Morgunblaðið - 27.01.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 35
LISTIR
Form með blátt gler í miðju. Verkið er frá 1994 og er
gert úr leir og sandsteyptu gleri.
Netuppboð nýjung hjá Sotheby’s
Islendingur selur
fyrsta nútímaskúlpt-
úrinn á Netinu
FYRSTI nútímaskúlptúrinn sem
boðinn var upp á Netinu hjá upp-
boðsfyrirtækinu Sotheby’s í des-
ember síðastliðnum var eftir ís-
lenska myndhöggvarann Ki'istínu
Guðjónsdóttur. Sotheby’s hóf
starfsemi á Netinu skömmu fyrir
jól undir hatti Amazon.com,
stærstu bókaverslunar á Netinu.
Kristín var meðal fyrstu mynd-
höggvaranna til að sýna á þessum
vettvangi en hún sýnir á vegum
Rodney Derrick Fine Arts. Eitt
verka hennar varð fyrsti nútíma-
skúlptúr sem boðið var í með þess-
um nýja hætti á vegum uppboðs-
fyrirtækisins.
Frægt og viðurkennt
fyrirtæki
Kristín telur að með þessu opn-
ist sér miklir og góðir möguleikar
en auk fyrsta verksins hefur hún
nú þegar sýnt fímm önnur verk
hjá Sotheby’s á Netinu. Hún segir
að hingað til hafí ekki selst mikið
af listaverkum á Netinu, m.a. sök-
um þess að fólk hafi ekki treyst
þeim viðskiptamáta nægilega vel.
Sotheby’s sé hins vegar það frægt
og viðurkennt fyrirtæki að fólk
þori fremur að eiga við það við-
skipti.
Form með blátt
gler í miðju
Verkið, sem hún nefnir Form
með blátt gler í miðju, er unnið úr
leir og sandsteyptu gleri. Verk
Kristínar má sjá á vefsíðu er hún
hefur unnið að síðan 1996. Myndir
af verkum hennar, smíði þeirra
sem og svipmyndir frá fjölmörgum
sýningum er hún hefur tekið þátt í
má fínna á vefslóðinni www.
art.net/~stina.
Kristín er sem stendur búsett í
Norður-Karólínu í Bandaríkjunum.
Hún hélt fyrstu einkasýningu sína
í Bandaríkjunum á FÍóa-svæðinu
(Bay Area) í Kaliforníu síðastliðið
haust og heldur þriðju einkasýn-
ingu sína á Islandi í Galleríi Fold
næsta haust.
k
Lagersala
Jakkaföt
Stakar buxur
Skyrtur o.ft.
Sængurföt
Heilsukoddar
Undirdívanar
Springdýnur ^Z3Pggjabakkadýnur
Rafmagnsrúmbotnar
VERSLUNIN
LYSTADÚN
SNÆLAND
Skútuvogi 11 • Sími 568 5588
Við vorum að fá nýja sendingu...
Sjáðu
auqlýsi
auglysinguna