Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 6
...
6 ÞRIBJUDAGUR 7. MARS 2000_______________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Töluverðar skemmdir urðu á þaki vélsmiðju Stáls á Seyðisfirði. Fyrir
miðri mynd sést hvar stór hluti þaksins rifnaði af.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Gamla skipasmíðastöðin á Seyðisfirði hýsir nú mjölgeymslu SR-mjöls.
Plötur fuku af húsinu, bæði af hlið þess og endagafli.
Aftakaveður á Norðaustur- og Austurlandi á sunnudag
V eðurhæð allt að 60
metrar á sekúndu
Kröpp lægð norðaustur af landinu olli
mjög hvassri nv-átt á Norður- og Austur-
landi á sunnudag og aðfaranótt mánudags.
Meðalvindur fór víða yfír mörk þess sem
kallast fárviðri, en í verstu hviðunum varð
hraðinn allt að 60 metrar á sekúndu.
Víða varð tjón af völdum veðurhamsins,
fólk sat fast í bifreiðum sínum á heiðum
uppi, þak rifnaði af þaki húss á Þórshöfn og
______prammi með krana, tönkum og________
vinnuskúr fauk á haf út á Seyðisfírði.
Ofsairetur(111rindstig)
Rok (10 vindstig)
Stormur (9 vindstig)
Hvassvilri (8 vindstig)
Vindhraði á sjálfvirkum mæli á Sandvíkurheiði
víndhraði .* * ** *. frá laugardegi til mánudags
m/s . *
, 4. mars | 5. mars 2000
60
Fárviðri (12 vindstig),
vindur ýfir 32,7 m/s
40 —;-------|----f----1----r
6. mars 2000
VNDHVmUR
Sunnan - suðvestan | Vestnorðvestan - norðvestan átt
HÖRÐUR Þórðarson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu íslands, segir
að vindraði upp á 60 m/sek sé með
því mesta sem gerist hér á landi
og telst vera ríflega 200 km hraði
á klst. Samkvæmt veðurmælingum
komu tvær slíkar hviður í Odds-
skarði í fyrrinótt, en þess má geta
að þegar vindhraðinn er orðinn
32,7 m/s telst orðið fárviðri - 12
vindstig. Tíu mínútna meðalvindur
í skarðinu var um 40 metrar á sek-
úndu.
Mjög tók að hvessa upp úr miðj-
um sunnudeginum, en Veðurstofan
spáði þá stormi, eða 20-25 metrum
á sekúndu, og snjókomu á Norður-
og Austurlandi síðdegis. Það gekk
eftir, en Hörður segir að veður-
hæðin hafi orðið nokkru hærri
þegar verst lét en ætlað hafi verið.
Veðrið gekk smám saman niður
eftir því sem leið á gærdaginn.
Þrennt beið næturlangt
á Sandvíkurheiði
Björgunarsveitir frá Vopnafirði
og Bakkafirði komust í gærmorg-
un til tveggja bifreiða sem setið
höfðu fastar á Sandvíkurheiði milli
fjarðanna frá því á sunnudag.
Vegna ofsaveðurs hafði björgunar-
sveitarmönnum frá Bakkafirði
ekki tekist að komast á heiðina.
Ekki var fannfergi á veginum um
að kenna, heldur var skyggni lítið
sem ekkert og erfitt að halda bif-
reiðum gangandi vegna stormsins.
Sólveig Helga Ákadóttir hélt á
bifreið sinni frá Bakkafirði yfir til
Vopnafjarðar um kaffileytið á
sunnudag. Hugðist hún komast
heim áður en illviðrið skylli á.
Venjulega tekur tuttugu til þrjátíu
mínútur að aka þessa leið, en þeg-
ar ekkert hafði spurst til konunnar
um klukkustund síðar hélt faðir
hennar, Aki Guðmundsson frá
Bakkafirði, í félagi við annan
mann, Marínó Jónsson, á jeppa-
bifreið þess síðarnefnda upp á
heiðina til leitar. Gekk þeim ferðin
ágætlega í fyrstu, en síðan fennti
fyrir loftinntak jeppans og drapst
þar með á honum. Áki og Marínó
létu Neyðarlínuna vita um ástand
mála og biðu svo átekta.
„Síðan tók við hrikalegt veður,
sannkallað gjörningaveður eins og
maður las um í ævintýrum hér í
eina tíð,“ sagði Áki í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Bíllinn hrist-
ist og nötraði, drullusokkarnir
rifnuðu af og við vorum orðnir ansi
smeykir um að rúðurnar færu þá
og þegar,“ bætti hann við. Ór-
skammt frá þar sem jeppi þeirra
félaga stóð er veðurmælingastaur
og hann sýndi mest 58 m/sek í
nokkrum kviðum um nóttina.
Biðu í 17-18 tíma
Sólveig Helga lét fyrirberast í
bifreið sinni, en hún lenti utan í
vegarkanti í blindbyl rétt fyrir kl.
17. Sat bifreiðin pikkföst og reyndi
konan fyrst um sinn að moka frá
púströri, en gafst svo upp á því og U
kom sér fyrir í kaldri bifreiðinni, f
nokkuð blaut. Björgunarmenn frá
Vopnafirði komust til hennar um
áttaleytið í gærmorgun og fluttu
hana þegar til Vopnafjarðar. Var
hún heil á húfi, en nokkuð köld eft-
ir volkið.
Björgunarmenn frá Bakkafirði
komust loks upp á heiðina um tíu-
leytið í gærmorgun og fundu þá ,
jeppabifreið. Hafði þá veður geng-
ið nokkuð niður, en var þó enn !
mjög hvasst. Voru mennirnir flutt- 9
ir heilir á húfi niður í Bakkafjörð,
en bifreiðin var svo sótt síðdegis í
gær. Er hún talsverð skemmd.
„Við höfum svo sannarlega feng-
ið nóg af þessum stórviðrum að
undanförnu. Haustið hér var ynd-
islegt, en eftir áramót hefur al-
mættið líklega verið að jafna
skuldirnar," sagði Áki. Fjórðungur
af þaki húss á Bakkafirði fauk út í
hafsauga í veðurhamnum um nótt- 1
ina og í býtið þurftu björgunar- p
menn að berja klaka utan af bátum
í höfninni. Talið var að ella myndu
þeir sökkva sökum ísingarinnar.
Þá bilaði rafiínan milli Vopnafjarð-
ar og Bakkafjarðar í óveðrinu og
rafmagn var skammtað í gær af
þeim sökum. Viðgerð tókst síðdeg-
is í gær.
Pramma rak út á haf
Á Seyðisfirði var veður í fyrri- I
nótt með versta móti og lýstu 1
heimamenn því sem einhverju því
versta um mjög langt skeið. Engan
sakaði, en talsvert tjón varð á
mannvirkjum. Þá urðu nokkur tré
í bænum veðrinu að bráð og lágu
trjágreinar um allan bæ í gær.
Tvær stórar hurðir á netagerð-
arhúsi Fjarðarnets brotnuðu og
hið sama átti sér stað í fleiri hús- l
um í bænum, m.a. gamla Kaupfé-
lagshúsinu. Þar er þó engin starf-
semi nú um stundir. Þakplötur 1
rifnuðu af húsi vélsmiðjunnar Stáls
og nokkrar skemmdir urðu á hús-
næði skipasmíðastöðvarinnar, þar
sem nú er mjölgeymsla SR-mjöls.
Pramma, sem settur hafði verið
upp við svonefnda Leiru og stóð
þar á sérstökum fótum, rak á haf
út í óveðrinu. Þrír tankar höfðu
staðið á prammanum, auk krana
og vinnuskúrs. Tveir tankar virð- j
ast hafa fokið á haf út og við það
léttist pramminn svo hann fór
fljótlega sömu leið. Hann fannst
svo í gærmorgun.
Tankarnir voru tómir og í eigu
Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
Skv. upplýsingum frá lögreglu í
gær var engin hætta talin á meng-
un af völdum þeirra. í gær var
unnið að því að smíða nýjar hurðir
á hús netagerðarinnar í stað þeirra
sem fuku. Eru þær engin smás- I
míði, eða fjórir metrar á hæð og
breidd.
Þá brotnuðu fjölmargar rúður í
húsnæði trésmiðjunnar Töggs.
Nokkuð fennti inn á vélar tré-
smiðjunnar, en í gær var talið ólík-
legt að um mikið fjártjón væri að
ræða.
Átt bú falsað málverk?
tímarit
Sláandi samantekt um
falsanir á málverkum
íslenskra listamanna
og margt fleira
forvitnilegt í nýjasta
hefti Tímarits
Máls og menningar.
Mál og menningl
malogmenning.is I
Laugavegi 10 • »mi oio áZóOO • Síöumúla 7 • Sími 510 2500
Þak fauk í heilu lagi af íbúðarhúsi á Þorshöfn
„Allt í einu varð
hrikaleg sprenging“
ÞAK fauk því sem næst í heilu lagi af
íbúðarhúsi á Þórshöfn í veðurhamn-
um á sunnudagskvöld. Rétt undir kl.
sjö var sem þak hússins lyftist í einu
lagi í einni kviðunni, en skyndilega
seig það aftur. Skömmu síðar fauk
það hreinlega af og eftir í húsinu
stóðu íbúarnir - sex manns, þar af
fjögur börn, í hífandi ofsaroki.
„Það er erfitt að lýsa þessu. Allt í
einu varð hrikaleg sprenging. Börn-
in voru að horfa á Stundina okkar í
sjónvarpinu og ég sat ásamt föður
mínum í eldhúsinu að drekka kaffi.
Skyndilega heyrðist hvellur og stór
Ijósakróna í eldhúsinu hrundi í gólf-
ið. Andartaki síðar fór vesturhluti
þaksins í heilu lagi af og afgangurinn
rann niður í garð. Þetta gerðist allt
ótrúlega hratt,“ segir ívar Jónsson,
íbúi í húsinu, sem stendur ofarlega í
kauptúninu á Þórshöfn, á stað þar
sem oft verður mjög vindasamt.
ívar selflutti börnin ásamt föður
sínum út í bíl fyrir utan húsið. Var
eitt barn borið í einu, því feðgarnir
þurftu að nota aðra höndina til að
halda sér svo þeir fykju ekki í ofsa-
rokinu.
Húsið er tæplega hálfrar aldar
gamalt og ívar telur líklegt að það sé
ónýtt. Hann bjargaði innanstokks-
munum úr því í gærkvöldi og naut
liðsinnis félaga sinna í björgunar-
sveitinni á Þórshöfn.
„Við vorum hér um tíu með tvo
sendibíla og náðum að taka það
mesta. Síðan fórum við og tjóðruðum
niður viðbyggingu húss hér neðar í
þorpinu og gerðum að öðrum sem
var í hættu,“ sagði ívar. Hann segir
þetta versta veður þar um slóðir um
árabil, en á stundum sem þessum sé
geysilega dýrmætt að finna stuðning
samborgaranna. Allir hafi lagst á eitt
um að bjarga verðmætum og ekki
vílað fyrir sér að vinna við það næt-
urlangt við slæm skilyrði.
Von er á fulltrúa tryggingafélags
frá Reykjavík til Þórshafnar í dag til
að meta skemmdimar á húsinu. Að-
eins útveggimir standa eftir og ívar
vann í gær við að taka það sem eftir
var í húsinu.