Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
61. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hryðju-
verk á
Sri Lanka
Colorabo. AFP.
FJÓRIR skæruliðar Tamíl-tígra á
Sri Lanka sprengdu sjálfa sig í loft
upp í gær og sá fimmti var skotinn
áður en hann gat farið að dæmi fé-
laga sinna. Höfðu hermenn setið um
þá frá því í fyrrakvöld en alls féllu 28
menn í átökunum og 64 særðust.
Tamílamir virðast hafa ætlað að
sprengja sig í loft upp á föstudag er
bílalest með ráðherrum og öðrum
frammámönnum fór frá þinghúsinu
en einn þeirra virðist hafa sprengt
sprengjuna fyrir slysni nokkru áður.
Fórust þá margir en félagar hans
flýðu inn í byggingu. undan her-
mönnum. Þar sprengdu síðan fjórir
menn sprengjur, sem bundnar voru
við þá, og sá fimmti var felldur. Auk
þeirra sem féllu særðust 76.
Flestir þeirra sem féllu voru
óbreyttir borgarar sem urðu fyrir
kúlum frá hryðjuverkamönnunum í
átökum þeirra við hermennina. Lög-
reglan telur hins vegar að skotmark
Tamílanna hafi fyrst og fremst verið
Anuruddha Ratwatte, varnarmála-
ráðherra Sri Lanka, en hann hafði
tekið þátt í umræðum á þingi.
Sólin sleikt í
Eftir fremur erfíðan vetur er daginn tekið að lengja
svo um munar enda ekki nema vika í jafndægur á
Morgunblaðið/Ásdís
sundlauginni
vori. Þessi sólarmynd var tekin í Sundlaug Kdpa-
vogs í gær.
Tvær meginfylkingar takast á í kosningunum á Spáni í dag
Þjóðarflokki Aznars for-
sætisráðherra spáð sigri
Madríd. AP, AFP.
SPANVERJAR ganga að kjörborð-
inu í dag í almennum þingkosningum
og bendir margt til að Þjóðarflokkur
Jose Maria Aznars forsætisráðherra
muni bæta við sig fylgi og fara áfram
með völdin á næsta kjörtímabili. Byr-
lega hefur blásið í spænskum efna-
hagsmálum á síðustu árum og leggur
Aznar áherslu á að landsmenn snúi
bökum saman og veiji það sem áunn-
ist hefur.
„Hættum ekki því, sem við höfum,
og hverfum ekki aftur til óvissunnar
fyrir fjórum árum,“ er boðskapur
Aznars til spænskra kjósenda og
skoðanakannanir sýna að þeir eru
margir sammála honum um það.
Þjóðarflokkurinn hefur nú 156 sæti
af alls 350 á þingi og líklegt þykir að
þeim fjölgi eitthvað í kosningunum í
dag.
Sósíalistaflokkurinn, sem hefur
141 þingsæti, og Vinstrabandalagið,
Jose Maria Aznar, forsætisráð-
herra Spánar, á fundi með
stuðningsmönnum sfnum.
kommúnistar, sem hafa 21, hafa
myndað með sér kosningabandalag
og þeir luku kosningabaráttunni með
því að skora á alla vinstrimenn að
mæta á kjörstað. Kannanir benda
hins vegar ekki til áð miklar breyt-
ingar verði á fylgi vinstriflokkanna.
Kosningasigur Þjóðarflokksins
1996 batt enda á 14 ára valdatíð sós-
íalista en hann, eins og sósíalistar áð-
ur, hefur orðið að reiða sig á stuðning
héraðaflokkanna, ekki síst flokks
Katalóníumanna.
Efnahagsmálin
í öndvegi
Kosningabaráttan hefur að mestu
snúist um efnahagsmálin og hefur
Aznar heitið að halda við hagvextin-
um, sem verið hefur um 4% á ári, og
draga enn úr atvinnuleysinu en það
hefur farið úr 20% í 15%. Sósíalistar
lofa hins vegar jafnari skiptingu þjóð-
artekna, viija endurskoða einkavæð-
ingu núverandi ríkisstjómar og
hækka framlög til lífeyrisþega.
Raunar er enginn skortur á kosn-
ingaloforðum hjá stóru fylkingunum
tveimur.
Þjóðarflokkurinn lofar að lækka
skatta, tryggja fulla atvinnu og auka
framlög til menntamála og hann ætl-
ar ekki síður en sósíalistar að bæta
kjör lífeyrisþega. Vegur það þungt á
Spáni þar sem hlutfall eftirlaunaþega
er mjög hátt og fæðingartíðnin sú
lægsta innan Evrópusambandsins.
Báðar fylkingamar taka mörg
dæmi af því sem verið hefur að gerast
annars staðar í Evrópu. Sósíalistar
vilja til dæmis fara að dæmi Blair-
stjómarinnar í Bretlandi og fjár-
magna sum af loforðum sínum með
skatti í eitt sinn á einkavædd ríkisfyr-
irtæki en Þjóðarflokkurinn vill einka-
væða með sama hætti og í Frakklandi
þar sem áherslan er lögð á að tryggja
áframhaldandi rekstur og atvinnu.
ÖRLAGAGYÐJUM
BOÐINN DANS
TÓLG í
TILTEKTINA
Foringi
var fallinn
Ofgnótt
_ og
óánægja
í Kísildal
New York. Daily Telegraph.
FJÖLSKYLDUR í Kísildal í
Kaliforníu, miðstöð tölvu- og
netiðnaðarins í Bandaríkjun-
um, eiga nú við nýtt vandamál
að stríða. Annars vegar er það
ofgnótt allra hluta og hins veg-
ar sú tilfinning þeirra sem ekki
hafa efnast með skjótum hætti
að þeir hafi orðið undir í lífinu.
Eru það ekki síst börnin sem
líða fyrir hvort tveggja.
I Kísiidal hafa margir efnast
óheyrilega á skömmum tíma og
það hefur haft margvísleg og
ekki alltaf holl áhrif á bömin
sem geta fengið næstum allar
sínar óskir uppfylltar. Á þetta
ekki síst við um fjölskyldur þar
sem menn flíka auðæfunum
óspart og viðhorf barnanna til
lífsins og tilverunnar ein-
kennist af hroka og yfirlæti.
Vegna þessa er það orðinn nýr
iðnaður að halda námskeið fyr-
ir þetta fólk þar sem reynt er
koma því inn hjá því og einkan-
lega börnunum að til séu önnur
verðmæti en peningar.
í Kísildal og annars staðar í
Kaliforníu býr líka fólk sem
ekki veður í peningum án þess
þó að líða neinn skort og því og
börnum þess finnst oft sem
þau hafi orðið undir í barátt-
unni um skyndigróðann. Veld-
ur það margs konar streitu-
einkennum, einkum hjá
unglingum, sem líta stundum á
foreldra sína, sem verða að
vinna fyrir brauðinu í sveita
síns andlitis, sem hverja aðra
fátæklinga.
Iridium-
kerfínu
lokað?
BANDARÍSKA fjarskiptafyrirtæk-
ið Motorola hefur tilkynnt að hafi
ekki fundist kaupandi að gervi-
hnattasímafyrirtækinu Iridium fyrir
17. mars nk. verði þjónustu þess
hætt.
Iridium hefur átt í miklum erfið-
leikum og lagði inn gjaldþrotsbeiðni í
ágúst sl. Hefur Motorola, sem á hlut
í því, haldið því á floti síðan en aðrir
fjárfestar hafa hætt stuðningi sínum,
nú síðast fjárfestingarfyrirtækið
Eagle River Investment.
Iridium reisti eftirlitsstöð fyrir
gervihnetti í Eiðahreppi fyrir fjórum
árum og viðbúið er að rekstri hennar
verði hætt finnist ekki kaupandi að
fyrirtækinu. Þá má nefna að pólfar-
arnir íslensku notast við Iridium-
síma en hafa einnig Argos-senditæki
til öryggis. Sænsku pólfaramir eru
hins vegar aðeins með Iridium-síma.
MORGUNBLAÐHE) 12. MARS 2000