Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN ALMALIÐ EYSTRA - HVERT STEFNIR? GATAN fyrir álverksmiðju við Reyðarfjörð er síst greiðari nú en áð- ur. Svonefndur framkvæmdaraðili að byggingu álverk- ’smiðjunnar er á byrj- unarreit að því er snertir mat á umhverf- isáhrifum verksmiðj- unnar. Raflínur frá Fljótsdal að verksmiðj- unni eiga eftir að fara gegnum matsferli og eru þær einar og sér stórt álitaefni sem marga varðar. Krafan um að Fljótsdalsvirkj- un fari í lögformlegt mat er á ný komin á dagskrá eftir að ljóst er að Landsvirkjun ætlar ekki að hefja fram- kvæmdir við hana fyrr en í fyrsta lagi vorið 2001. Bjamarflagsvirkjun er ekki komin í matsferli, né heldur raflína frá henni austur í Fljótsdal. Kára- hnjúkavirkjun er eymamerkt sem orkugjafi fyrir annan áfanga ál- verksmiðjunnar, en stjómvöld ætla að koma sér hjá því að gera það mál upp þar til síðar. Ekki er byijað að vinna starfsleyfi fyrir verksmiðjuna og vandamálum sem tengjast losun gróðurhúsalofttegunda frá henni er vísað úr í buska. Skipulagsmál fram- kvæmda era ófrágengin jafnt í Fljótsdal sem í Fjarðabyggð. Er þá ótalið það sem við á að éta, það er fjármagn til framkvæmdanna. Orð stjórnarformanns Þróunarfélags ís- lands á aðalfundi félagsins mánudag- inn 6. mars sl. lýsa upp þann þátt málsins. Margir hafa orðið til að benda á hversu holt er undir efna- hagsþætti þessara stóriðjufram- kvæmda, ekki síst að því er snýr að íslenskum fjárfestum, nú síðast Ingjaldur Hannibalsson prófessor í grein í Morgunblaðinu 27. febrúar sl. Það virð- ist hins vegar vænlegra að tala við steininn nú um stundir en reyna að ná eyram ráðherra um þessi efni. Úrskurður um- hverfísráðherra Mörgum hefur orðið fótaskortur í útlegging- um á úrskurði um- hverfísráðherra frá 25. febrúar sl. Þar fór fremstur ritstjóri Dags í leiðara á hlaupársdag. Virðist sem sá hinn sami hafi ekki haft fyrir því að lesa úrskurðinn. Eg leyfi mér hér að vitna til úr- skurðarorða umhverfisráðherra í heild, svohljóðandi: „Hinn kærði úrskurður skipulags- stjóra ríkisins um mat á umhverfis- áhrifum 480 þúsund tonna álvers á Reyðarfirði, uppkveðinn 10. desem- ber 1999, er úr gildi felldur. Jafn- framt er meðferð málsins, sem hófst með tilkynningu framkvæmdaraðil- ans, Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf., um umrædda framkvæmd 12. október 1999, ómerkt í heild sinni.“ Með þessum úrskurði setur ráð- herrann málið á byijunarreit og í úrskurðinum felast hvorki fyrirmæli né afstaða til þess hvort einhver fitj- ar upp á málinu á ný og þá í hvaða formi. - Að öðra leyti geta menn velt fyrir sér reifun ráðuneytisins og hvers vegna úrskurðurinn féll á þennan veg. Skýringin virðist mér Álverksmiðja við Reyðarfjörð hefur aldrei legið á borðinu, segir Hjörleifur Guttormsson, og óvissan mun halda áfram a.m.k. fram á næsta ár. einföld: Fremur en að fallast á niður- stöðu skipulagsstjóra um „frekara mat“ kaus ráðherra af einhverjum ástæðum að ómerkja allt matsferlið. Niðurstaðan sýnist mér leiða til hins sama, hvor kosturinn sem valinn var. Framkvæmdaraðilinn verður að taka málið upp að nýju, ef hann svo kýs, og það er hans val á hvaða granni það er gert. Allt tal um flýti- meðferð á fyrsta áfanga er hins veg- ar út í hött. Niðurstöðu fyrst að vænta 2001 Álverksmiðja við Reyðarfjörð hef- ur aldrei legið á borðinu og óvissan mun halda áfram a.m.k. fram á næsta ár. Með NORAL-verkefninu átti að fást skorið úr um það fyrir 1. júní 2000, hvort íslenskir fjárfestar og Norsk Hydro taki sameiginlega stefnu á framkvæmdir. Þeirri ákvörðun seinkar nú um ótiltekinn tíma. Þegar rætt var á Alþingi fyrr í vetur um framkvæmdir við Fljóts- dalsvirkjun var staðhæft að fyrsti júní 2000 væri slíkur eindagi að af þeim sökum gæfist ekki tími fyrir lögformlegt umhverfismat. Nú sjá menn að sú dagsetning var ekkert annað en tilbúin svipa til að beija á þingi og þjóð. Þarf ekki annað en lesa viðtal við nýjan iðnaðarráðherra í Morgunblaðinu 5. mars sl. til að fá það staðfest. I þetta safn bættust síð- an degi síðar orð Þorgeirs Eyjólfs- sonar, stjómarformanns Þróunarfé- lagsins, sem telur langt í lok samninga gagnvart Norsk Hydro og Landsvirkjun og um leið leggur hann áherslu á að frá upphafi þurfi að tryggja möguleika á a.m.k. 240 þús- und tonna verksmiðju. Þegar Landsvirkjun segir að framkvæmdir samkvæmt útboði frestist um heilt ár er fundið upp á nýrri tylliástæðu til að komast hjá formlegu mati á FJjótsdalsvirkjun. Það er illt til að vita ef þetta gamal- gróna fyrirtæki ætlar að taka þátt í slíkum loddaraleik með nýjum iðnað- arráðherra og ber það vott um ótrú- lega skammsýni sem í raun ein- kennir allt þetta mál. Orkuöflun og flutningslínur í óvissu Þótt ráðamenn telji sig hafa Fljótsdalsvirkjun á hendi era kurl þar engan veginn komin til grafar. Náttúravemdarsamtök Islands hafa höfðað mál til að fá staðfest að fram- kvæmdir við virkjunina skuli sæta mati á umhverfisáhrifum. Þá nægir orka frá virkjuninni ekki fyrir 1. áfanga álverksmiðju og stefnt er að Bjarnarflagsvirkjun að auki. Sú virkjun er ekki komin í mat né held- ur svonefnd Kröflulína II til að flytja raforkuna frá henni austur. Þá er áformað að leggja tvær raflínur frá tengivirki í Fljótsdal um Hallorms- staðaháls, þvert yfir Skriðdal og um sinnhvom dalinn, Hallsteinsdal og Þórdalsheiði, niður á Reyðarfjörð. Umhverfisröskun af þessum tröll- auknu línum yrði gífurleg, en þær era ekki enn komnar í mat. Af öllu þessu má ráða hversu margir endar era lausir í þessu máli, og era þó ótaldar stórvirkjanir fyrir síðari áfanga álverksmiðjunnar (Kára- hnjúkavirkjun, Arnardalsvirkjun o.fl.). Nýtt mat á álverksmiðjunni Ýmsir aðstandendur álverksmiðj- unnar láta svo sem endurtekið mat á umhverfisáhrifum hennar sé nánast formsatriði. Látum vera að fram- sóknarþingmenn og ráðherrar reyni að bera sig borginmannlega. Óllu sérkennilegra er þegar þeir sem reknir vora til baka með mat sitt á dögunum, gervifélagið Hraun ehf. og STAR, vilja telja mönnum trú um að auðvelt verði að þröngva 1. áfanga verksmiðjunnar í gegnum umhverf- ismat. Þeir hinir sömu taka þá ekki alvarlega úrskurð skipulagsstjóra frá 10. desember 1999, en í honum er að finna mörg atriði sem snerta verksmiðjuhugmyndina alla, jafnt 1. áfanga sem og ráðgert framhald. Eitt þeirra varðar frekara mat á áhrifum verksmiðjunnar á byggð, fólksfjöldaþróun og vinnuafl á Aust- urlandi. Auk margra náttúrafars- legra og efnahagslegra þátta era samfélagsáhrifin einn veikasti hlekk- ur þessa málatilbúnaðar. Þeir sem einu sinni hafa fallið á prófi ættu að hafa vit á að búa sig sæmilega undir áður en þeir ganga að prófborði í annað sinn. Inn í þetta mál kemur væntanleg ný löggjöf um mat á umhverfisáhrif- um. Varla getur það verið hugmynd manna að setja verksmiðjuna öðra sinni í mat samkvæmt úreltri löggjöf. Nægir í því sambandi að minna á stöðuna gagnvart Evrópurétti, en lögin hafa verið í ósamræmi við hann í næstum ár. Ný lög gætu orðið virk í sumar og ætti umhverfisráðuneytið að hlutast til um að beðið yrði með frekari vinnu að mati á umhverfis- áhrifum uns þau taka gildi. Skipulagsmál ófrágengin Svo ótrúlegt sem það er hefur ekki einu sinni verið haft fyrir því að ganga frá skipulagsþætti þessa stór- iðjumáls. Á það bæði við um verks- miðju og orkuöflun til hennar. Um- hverfisráðherra staðhæfði á Alþingi fyrir jól að ekki þyrfti að leita frekar en orðið er til Fljótsdalshrepps vegna leyfisveitinga fyrir virkjunar- framkvæmdum. Var ráðherrann þar á allt öðra máli en Skipulagsstofnun. Væri það svo sem eftir öðra að reynt yrði að ganga yfir heimamenn í Fljótsdal. Annar þáttur nánast skoplegur snýr að Fjarðabyggð. í öllum ákaf- anum að hreppa stórframkvæmdim- ar gleymdi sveitarstjómin að undir- búa skipulag vegna þeirra, jafnt fyrir verksmiðju, raflínur og íbúðabyggð. Gildandi aðalskipulag Fjarðabyggð- ar gerir ekki ráð fyrir stóriðjunni og því er nú eftir dúk og disk unnið að því að breyta skipulaginu. Geta menn átt von á auglýsingum þar að lútandi með tOheyrandi rétti ahnenn- ingi til handa til athugasemda lögum samkvæmt. Það er jafn gott að ekki fréttist til útlanda um þessa frammi- stöðu til viðbótar öðra skrautlegu! Áhættusöm tilraun Saga þessa álverksmiðjumáls er þegar orðin dýrkeypt og sér þó ekki fyrir endann á. Sú hugmynd að setja risaálver niður í fámennt samfélag á Austfjörðum gengur þvert á reynslu og ráðleggingar, ekki síst erlendis frá. Verði slík tilraun framkvæmd er hætt við að hún leiði til ófamaðar í samfélagslegu tilliti fyrir utan öll umhverfisspjöllin. Menn ættu líka að hafa í huga að af þeim stöðum sem skoðaðir hafa verið hérlendis með til- liti til staðsetningar stóriðju á borð við álver er Reyðarfjörður talinn hvað síst til slíkrar starfsemi fallinn. Um efnahagsleg áhrif þessara hugmynda minni ég á vamaðarorð tveggja fyrrverandi forstöðumanna Iðntæknistofnunar Islands, þeirra Páls Kr. Pálssonar og Ingjalds Hannibalssonar. Ýmsir aðrir hafa varað við tapi af áformuðum virkjun- arframkvæmdum. í öllu falli er ljóst að Landsvirkjun stendur frammi fyrir mjög erfiðu og áhættusömu dæmi og um leið allir viðskiptavinir þess stóra fyrirtækis. Hætta verður feluleiknum í kæra sem Náttúraverndarsam- tök Austurlands (NAUST) lögðu fram til umhverfisráðherra í janúar sl. var þess m.a. krafist að fram fari heildstætt mat á öllum þáttum stór- iðjumálsins eystra, bæði orkufram- kvæmdum og verksmiðju. Álmálið eystra er aUtof stórt og afdrifaríkt til að mönnum leyfist að ástunda felu- leik um grandvallarþætti þess. Að undanfömu hafa komið fram splunkunýjar upplýsingar úr bak- herbergjum samningsaðila sem ætl- að er að hætta fé sínu í verksmiðj- una, nú síðast á aðalfundi Þróunarfélags Islands. Öllum er fyr- ir bestu að leggja spilin á borðið, hætta feluleiknum og fara að settum leikreglum um alla þætti þessa um- deilda og afdrifaríka máls. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Hjörleifur Guttormsson Onjgg blöndunartaeki með branavöm Hitastilltu Mora Mega blöndunartækin fyrir bað og sturtu tryggja öryggi og þægindi. Mora Mega er árangur margra ára vöruþróunar og betrumbóta. Mora - Sænsk gæðavara T€nGI Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 564 1088 • Fax: 564 1089 Nýtt fyrir konur í yfirstærðum OXFORD STREET 108 Reykjavík > CD > O > cn > Útsala á eldri vörum o > Fást í byggingavöruverslunum um land allt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.