Morgunblaðið - 12.03.2000, Side 34
34 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
ALMALIÐ EYSTRA -
HVERT STEFNIR?
GATAN fyrir álverksmiðju við
Reyðarfjörð er síst greiðari nú en áð-
ur. Svonefndur framkvæmdaraðili
að byggingu álverk-
’smiðjunnar er á byrj-
unarreit að því er
snertir mat á umhverf-
isáhrifum verksmiðj-
unnar. Raflínur frá
Fljótsdal að verksmiðj-
unni eiga eftir að fara
gegnum matsferli og
eru þær einar og sér
stórt álitaefni sem
marga varðar. Krafan
um að Fljótsdalsvirkj-
un fari í lögformlegt
mat er á ný komin á
dagskrá eftir að ljóst er
að Landsvirkjun ætlar
ekki að hefja fram-
kvæmdir við hana fyrr
en í fyrsta lagi vorið
2001. Bjamarflagsvirkjun er ekki
komin í matsferli, né heldur raflína
frá henni austur í Fljótsdal. Kára-
hnjúkavirkjun er eymamerkt sem
orkugjafi fyrir annan áfanga ál-
verksmiðjunnar, en stjómvöld ætla
að koma sér hjá því að gera það mál
upp þar til síðar. Ekki er byijað að
vinna starfsleyfi fyrir verksmiðjuna
og vandamálum sem tengjast losun
gróðurhúsalofttegunda frá henni er
vísað úr í buska. Skipulagsmál fram-
kvæmda era ófrágengin jafnt í
Fljótsdal sem í Fjarðabyggð. Er þá
ótalið það sem við á að éta, það er
fjármagn til framkvæmdanna. Orð
stjórnarformanns Þróunarfélags ís-
lands á aðalfundi félagsins mánudag-
inn 6. mars sl. lýsa upp þann þátt
málsins. Margir hafa orðið til að
benda á hversu holt er undir efna-
hagsþætti þessara stóriðjufram-
kvæmda, ekki síst að því er snýr að
íslenskum fjárfestum, nú síðast
Ingjaldur Hannibalsson prófessor í
grein í Morgunblaðinu
27. febrúar sl. Það virð-
ist hins vegar vænlegra
að tala við steininn nú
um stundir en reyna að
ná eyram ráðherra um
þessi efni.
Úrskurður um-
hverfísráðherra
Mörgum hefur orðið
fótaskortur í útlegging-
um á úrskurði um-
hverfísráðherra frá 25.
febrúar sl. Þar fór
fremstur ritstjóri Dags
í leiðara á hlaupársdag.
Virðist sem sá hinn
sami hafi ekki haft fyrir
því að lesa úrskurðinn.
Eg leyfi mér hér að vitna til úr-
skurðarorða umhverfisráðherra í
heild, svohljóðandi:
„Hinn kærði úrskurður skipulags-
stjóra ríkisins um mat á umhverfis-
áhrifum 480 þúsund tonna álvers á
Reyðarfirði, uppkveðinn 10. desem-
ber 1999, er úr gildi felldur. Jafn-
framt er meðferð málsins, sem hófst
með tilkynningu framkvæmdaraðil-
ans, Eignarhaldsfélagsins Hrauns
ehf., um umrædda framkvæmd 12.
október 1999, ómerkt í heild sinni.“
Með þessum úrskurði setur ráð-
herrann málið á byijunarreit og í
úrskurðinum felast hvorki fyrirmæli
né afstaða til þess hvort einhver fitj-
ar upp á málinu á ný og þá í hvaða
formi. - Að öðra leyti geta menn velt
fyrir sér reifun ráðuneytisins og
hvers vegna úrskurðurinn féll á
þennan veg. Skýringin virðist mér
Álverksmiðja við
Reyðarfjörð hefur aldrei
legið á borðinu, segir
Hjörleifur
Guttormsson, og óvissan
mun halda áfram a.m.k.
fram á næsta ár.
einföld: Fremur en að fallast á niður-
stöðu skipulagsstjóra um „frekara
mat“ kaus ráðherra af einhverjum
ástæðum að ómerkja allt matsferlið.
Niðurstaðan sýnist mér leiða til hins
sama, hvor kosturinn sem valinn var.
Framkvæmdaraðilinn verður að
taka málið upp að nýju, ef hann svo
kýs, og það er hans val á hvaða
granni það er gert. Allt tal um flýti-
meðferð á fyrsta áfanga er hins veg-
ar út í hött.
Niðurstöðu
fyrst að vænta 2001
Álverksmiðja við Reyðarfjörð hef-
ur aldrei legið á borðinu og óvissan
mun halda áfram a.m.k. fram á
næsta ár. Með NORAL-verkefninu
átti að fást skorið úr um það fyrir 1.
júní 2000, hvort íslenskir fjárfestar
og Norsk Hydro taki sameiginlega
stefnu á framkvæmdir. Þeirri
ákvörðun seinkar nú um ótiltekinn
tíma. Þegar rætt var á Alþingi fyrr í
vetur um framkvæmdir við Fljóts-
dalsvirkjun var staðhæft að fyrsti
júní 2000 væri slíkur eindagi að af
þeim sökum gæfist ekki tími fyrir
lögformlegt umhverfismat. Nú sjá
menn að sú dagsetning var ekkert
annað en tilbúin svipa til að beija á
þingi og þjóð. Þarf ekki annað en lesa
viðtal við nýjan iðnaðarráðherra í
Morgunblaðinu 5. mars sl. til að fá
það staðfest. I þetta safn bættust síð-
an degi síðar orð Þorgeirs Eyjólfs-
sonar, stjómarformanns Þróunarfé-
lagsins, sem telur langt í lok
samninga gagnvart Norsk Hydro og
Landsvirkjun og um leið leggur hann
áherslu á að frá upphafi þurfi að
tryggja möguleika á a.m.k. 240 þús-
und tonna verksmiðju.
Þegar Landsvirkjun segir að
framkvæmdir samkvæmt útboði
frestist um heilt ár er fundið upp á
nýrri tylliástæðu til að komast hjá
formlegu mati á FJjótsdalsvirkjun.
Það er illt til að vita ef þetta gamal-
gróna fyrirtæki ætlar að taka þátt í
slíkum loddaraleik með nýjum iðnað-
arráðherra og ber það vott um ótrú-
lega skammsýni sem í raun ein-
kennir allt þetta mál.
Orkuöflun og
flutningslínur í óvissu
Þótt ráðamenn telji sig hafa
Fljótsdalsvirkjun á hendi era kurl
þar engan veginn komin til grafar.
Náttúravemdarsamtök Islands hafa
höfðað mál til að fá staðfest að fram-
kvæmdir við virkjunina skuli sæta
mati á umhverfisáhrifum. Þá nægir
orka frá virkjuninni ekki fyrir 1.
áfanga álverksmiðju og stefnt er að
Bjarnarflagsvirkjun að auki. Sú
virkjun er ekki komin í mat né held-
ur svonefnd Kröflulína II til að flytja
raforkuna frá henni austur. Þá er
áformað að leggja tvær raflínur frá
tengivirki í Fljótsdal um Hallorms-
staðaháls, þvert yfir Skriðdal og um
sinnhvom dalinn, Hallsteinsdal og
Þórdalsheiði, niður á Reyðarfjörð.
Umhverfisröskun af þessum tröll-
auknu línum yrði gífurleg, en þær
era ekki enn komnar í mat. Af öllu
þessu má ráða hversu margir endar
era lausir í þessu máli, og era þó
ótaldar stórvirkjanir fyrir síðari
áfanga álverksmiðjunnar (Kára-
hnjúkavirkjun, Arnardalsvirkjun
o.fl.).
Nýtt mat á álverksmiðjunni
Ýmsir aðstandendur álverksmiðj-
unnar láta svo sem endurtekið mat á
umhverfisáhrifum hennar sé nánast
formsatriði. Látum vera að fram-
sóknarþingmenn og ráðherrar reyni
að bera sig borginmannlega. Óllu
sérkennilegra er þegar þeir sem
reknir vora til baka með mat sitt á
dögunum, gervifélagið Hraun ehf. og
STAR, vilja telja mönnum trú um að
auðvelt verði að þröngva 1. áfanga
verksmiðjunnar í gegnum umhverf-
ismat. Þeir hinir sömu taka þá ekki
alvarlega úrskurð skipulagsstjóra
frá 10. desember 1999, en í honum er
að finna mörg atriði sem snerta
verksmiðjuhugmyndina alla, jafnt 1.
áfanga sem og ráðgert framhald.
Eitt þeirra varðar frekara mat á
áhrifum verksmiðjunnar á byggð,
fólksfjöldaþróun og vinnuafl á Aust-
urlandi. Auk margra náttúrafars-
legra og efnahagslegra þátta era
samfélagsáhrifin einn veikasti hlekk-
ur þessa málatilbúnaðar. Þeir sem
einu sinni hafa fallið á prófi ættu að
hafa vit á að búa sig sæmilega undir
áður en þeir ganga að prófborði í
annað sinn.
Inn í þetta mál kemur væntanleg
ný löggjöf um mat á umhverfisáhrif-
um. Varla getur það verið hugmynd
manna að setja verksmiðjuna öðra
sinni í mat samkvæmt úreltri löggjöf.
Nægir í því sambandi að minna á
stöðuna gagnvart Evrópurétti, en
lögin hafa verið í ósamræmi við hann
í næstum ár. Ný lög gætu orðið virk í
sumar og ætti umhverfisráðuneytið
að hlutast til um að beðið yrði með
frekari vinnu að mati á umhverfis-
áhrifum uns þau taka gildi.
Skipulagsmál ófrágengin
Svo ótrúlegt sem það er hefur ekki
einu sinni verið haft fyrir því að
ganga frá skipulagsþætti þessa stór-
iðjumáls. Á það bæði við um verks-
miðju og orkuöflun til hennar. Um-
hverfisráðherra staðhæfði á Alþingi
fyrir jól að ekki þyrfti að leita frekar
en orðið er til Fljótsdalshrepps
vegna leyfisveitinga fyrir virkjunar-
framkvæmdum. Var ráðherrann þar
á allt öðra máli en Skipulagsstofnun.
Væri það svo sem eftir öðra að reynt
yrði að ganga yfir heimamenn í
Fljótsdal.
Annar þáttur nánast skoplegur
snýr að Fjarðabyggð. í öllum ákaf-
anum að hreppa stórframkvæmdim-
ar gleymdi sveitarstjómin að undir-
búa skipulag vegna þeirra, jafnt fyrir
verksmiðju, raflínur og íbúðabyggð.
Gildandi aðalskipulag Fjarðabyggð-
ar gerir ekki ráð fyrir stóriðjunni og
því er nú eftir dúk og disk unnið að
því að breyta skipulaginu. Geta
menn átt von á auglýsingum þar að
lútandi með tOheyrandi rétti ahnenn-
ingi til handa til athugasemda lögum
samkvæmt. Það er jafn gott að ekki
fréttist til útlanda um þessa frammi-
stöðu til viðbótar öðra skrautlegu!
Áhættusöm tilraun
Saga þessa álverksmiðjumáls er
þegar orðin dýrkeypt og sér þó ekki
fyrir endann á. Sú hugmynd að setja
risaálver niður í fámennt samfélag á
Austfjörðum gengur þvert á reynslu
og ráðleggingar, ekki síst erlendis
frá. Verði slík tilraun framkvæmd er
hætt við að hún leiði til ófamaðar í
samfélagslegu tilliti fyrir utan öll
umhverfisspjöllin. Menn ættu líka að
hafa í huga að af þeim stöðum sem
skoðaðir hafa verið hérlendis með til-
liti til staðsetningar stóriðju á borð
við álver er Reyðarfjörður talinn
hvað síst til slíkrar starfsemi fallinn.
Um efnahagsleg áhrif þessara
hugmynda minni ég á vamaðarorð
tveggja fyrrverandi forstöðumanna
Iðntæknistofnunar Islands, þeirra
Páls Kr. Pálssonar og Ingjalds
Hannibalssonar. Ýmsir aðrir hafa
varað við tapi af áformuðum virkjun-
arframkvæmdum. í öllu falli er ljóst
að Landsvirkjun stendur frammi
fyrir mjög erfiðu og áhættusömu
dæmi og um leið allir viðskiptavinir
þess stóra fyrirtækis.
Hætta verður feluleiknum
í kæra sem Náttúraverndarsam-
tök Austurlands (NAUST) lögðu
fram til umhverfisráðherra í janúar
sl. var þess m.a. krafist að fram fari
heildstætt mat á öllum þáttum stór-
iðjumálsins eystra, bæði orkufram-
kvæmdum og verksmiðju. Álmálið
eystra er aUtof stórt og afdrifaríkt til
að mönnum leyfist að ástunda felu-
leik um grandvallarþætti þess. Að
undanfömu hafa komið fram
splunkunýjar upplýsingar úr bak-
herbergjum samningsaðila sem ætl-
að er að hætta fé sínu í verksmiðj-
una, nú síðast á aðalfundi
Þróunarfélags Islands. Öllum er fyr-
ir bestu að leggja spilin á borðið,
hætta feluleiknum og fara að settum
leikreglum um alla þætti þessa um-
deilda og afdrifaríka máls.
Höfundur er fyrrverandi
alþingismaður.
Hjörleifur
Guttormsson
Onjgg blöndunartaeki
með branavöm
Hitastilltu Mora Mega blöndunartækin fyrir
bað og sturtu tryggja öryggi og þægindi.
Mora Mega er árangur margra ára
vöruþróunar og betrumbóta.
Mora - Sænsk gæðavara
T€nGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax: 564 1089
Nýtt
fyrir konur í yfirstærðum
OXFORD STREET
108 Reykjavík
>
CD
>
O
>
cn
>
Útsala
á eldri vörum
o
>
Fást í byggingavöruverslunum um land allt