Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 41 A + Hulda Guðbjörg Helgadóttir fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 5. október 1925. Hún lést á líknardeild Landspítalans 6. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jóhanna Bjamadóttir, f. 2.6. 1889, d. 1.6. 1982, og Helgi Símonarson, f. 15.12. 1893, d. 12.1. 1980, frá Þingeyri. Hulda ólst upp í foreldrahúsum og er fj'óröa í röðinni af sjö systkinum; Olafur Jakob, f. 24.12. 1920; Hulda, f. 10.8. 1922, d. 17.10. 1924; Jósep, f. 16.6. 1924; Símon- ía Kristín, f. 1.10. 1927; María Jóna, f. 22.7. 1930; og Sigríður Markúsína, f. 15.7. 1933. Hulda giftist eftirlifandi eigin- manni sínum 6. mars 1948, Birni Jónatan Björnssyni skipstjóra, f. 26.1. 1925 frá Tálknafirði. Börn þeirra: 1) Guðmundur Helgi, f. 16.12. 1947, maki Hjördís Karls- Elskuleg tengdamóðir mín og vin- kona er látin. Mig langar að kveðja hana með nokkrum orðum. Það eru tæp þrjátíu ár síðan ég kom fyrst á heimili hennar og tengdapabba, og þau tóku mér og dóttur minni opnum örmum og ætíð fór vel á með okkur. Það voru famar nokkrar ferðir á sumri til Patró, þegar börnin voru yngri, alltaf var jafn gott að koma á heimili þeirra, og bömunum leið vel þar, garðurinn hennar ömmu var leikvöllurinnn þeirra. Hulda var með græna fingur, og garðurinn hennar bar þess merki, hún ræktaði rósir, og sáði sjálf fyrir sumarblómunum sínum, það var reyndar alveg sama á hverju hún snerti, hún var listakona, hún hafði gaman af öllu föndri, saumaði og prjónaði heilu dressin á barbí-dúkk- urnar fyrir bömin, ekki bara fótin, líka veski, skó og hvaðeina. Hulda var mikil saumakona, hún saumaði ekki bara á dúkkurnar og börnin, nei, hún saumaði jakkaföt, dragtir, kjóla og bara það sem hún var beðin um, og hafði mjög gott auga fyrir því sem var í tísku hverju sinni. Það lék allt í höndunum á henni, og var hún alltaf til í að leiðbeina okkur, það var ekki sjaldan gem komið var með efni meðferðis í heimsókn, þó ekki væri búið að finna snið, en alltaf fann hún snið við hæfi. Annars fékk ég alltaf svefnsýki þegar ég kom í heimsókn, ég slapp- aði svo vel af, því kyrrðin var svo mikil. Hún tengdamamma var ekki hávaðasöm kona. Hulda var gestrisin, og tók vel á móti fólki, enda vai' ávallt gestkvæmt hjá þeim hjónum, og alltaf heitt á könnunni, nýbakaðar kleinur og „píadínur" eins og við kölluðum hveitikökurnar hennar. Hulda dvaldi síðustu sex vikumar á líknardeild Landspítalans, og þar leið henni vel, enda starfsfólkið þar alveg frábært í alla staði, það er vart hægt að lýsa því hve vel var staðið að öllu þar. Mig langar að þakka þeim öllum fyrir allan þann hlýhug og elskulegheit sem þau sýndu Huldu og okkur fjölskyldu hennar. Einnig vil ég þakka stai-sfólki á 13 D og geisladeild Landspítalans fyrir þeirra hlýhug til okkar allra. Elsku Hulda, ég þakka þér fyrir góð kynni, mig langar að segja svo miklu meira en það er ekki hægt að koma því í orð. Eg sakna þín mikið, en ég veit að það var tekið vel á móti þér þar sem þú ert, og þér líður vel núna. Elsku tengdapabbi, megi algóður guð styrkja þig og styðja í þinni sorg. dóttir, þau eiga þrjú börn og eitt barna- barn. 2) Jóhanna, f. 3.10. 1951, maki Erling Rafn Orms- son, þau eiga þrjú börn og fimm barnabörn. 3) Egg- ert, f. 9.4. 1954, maki Ragnheiður Gísladóttir, þau eiga þrjár dætur og tvö barnabörn. 4) Gunnar Óli, f. 20.2. 1958, maki Jóna Júlía Böðvarsdóttir, þau eiga þrjár dæt- ur. 5) Anna, f. 2.5. 1959, maki Sigurður Ingi Guðmundsson, þau eiga tvö börn og Anna á tvo syni frá fyrra hjónabandi. 6) Ingi- björg, f. 14.2. 1961, d. 28.12. 1962. Minningarathöfn fór fram í Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 10. mars. Útför Huldu fer fram frá Pat- rekskirkju, Patreksfirði, mánu- daginn 13. mars og hefst athöfn- in klukkan 14. „Hún er ekki mynd, sem menn sjá, eða ljóð, sem þeir heyra, heldur er hún mynd, sem lifir í hjartanu, þótt augunum sé lokað, og ljóð, sem ómar í sálinni, þó að eyrað nemi ekkert hljóð. Hún er ekki safinn bak við skorpinn börk eða vængjuð ránfugls- kló, heldur er hún garður, sem aldrei fölnar, og hópur engla, sem fljúga að eilífu.“ (Spámaðurinn.) Þessi orð eru tileinkuð fegurð. Fegurð sem alla tíð var kennd við þig, elsku amma mín. Það er sama hvort um var að ræða hjarta þitt, andlit þitt eða alla yndislegu stóru og litlu hlutina sem þú skapaðir með þínum fallegu penu fingrum. Þú varst hrein manneskja, laus við syndir og listakona fyrst og fremst. Þú munt alltaf vera stór hluti af mín- um innblæstri þar sem ég fékk hluta af næmi fallegu fingi-a þinna í arf. Ég þakka þér fyrir það, elsku amma mín. Blómahúsið og garðurinn þinn var annar heimur fegurðar sem þú bjóst yfir. Þessir fallegu litir og form ásamt yndislegii angan sem fyllti vit okkar og umlyktu á fallegum sumar- dögum, þegar tíminn var hjá mér og þér, elsku amma mín. Nú þegar þú ert ekki bundin við neinn stað, svo sannað sé, sé ég þig, elsku amma mín, standandi í miðju blómahafi. Yf- ir þér ríkir mikil birta, friður og feg- urð þar sem þú stendur ásamt öllum ættingjum þínum og vinum handan svefnsins langa, þú horfir á þau með fallegu brúnu augunum þínum eins og nývaknaður engill. „Því að hvað er það að deyja annað en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“ (Spámaðurinn.) Nafn mitt fékk ég frá þér strax við fæðingu. Alla tíð hef ég verið stolt af því að bera þitt nafn, elsku amma mín. Það myndaði ákveðin Huldu tengsl og alltaf vil ég vera þér til sóma sem nafnan þín. Ég vil þakka þér íyrir þetta fallega nafn og þá undra sögu sem því fylgir og okkur. Takk fyrir stundimar í Kópavogin- um, þær eru mér ómetanlegar. Megi máttur himins og jarðar styrkja þig og styðja í sorg þinni, elsku afi minn. Hulda Guðbjörg Helgadóttir. Mig langar til að minnast Huldu frænku, móðursystur minnar, er lést á líknardeild Landspítalans 6. mars sl. eftir erfið veikindi. Hulda var elsta systir móður minnar, en móðir mín var yngst. Bjuggu þær - báðar á Patreksfirði fram til ársins 1981 að við fluttum suður. Mikill kærleikur var milli systranna og einnig var mikill kær- leikur og samgangur milli heimil- anna. Fylgst var að í gegnum sætt og súrt allt fram á þennan dag þótt fjar- lægð hafi komið í veg fyrir daglegar heimsóknir seinni árin þá var síminn mikið notaður. Hulda var mjög dul kona og bar ekki tilfinningar sínar á torg, en kærleiksrík vai’ hún og vildi öllum vel. Hún eignaðist sex böm með Bjössa, eiginmanni sínum, en yngstu dótturina misstu þau er hún var tæp- lega tveggja ára, en hin bömin fimm komust öll vel til manns og eiga þau öll böm og barnabörn. Huldu var ýmislegt til lista lagt, hún var einstaklega handlagin og listræn og gerði margan listagripinn. í gegnum tíðina saumaði hún mikið af fötum. Hún var ung er hún bytjaði að sauma á systur sínar en síðan á bömin og fjölskylduna. Síðar varð saumaskapur helsta vinna hennar og saumaði hún þá fyrir fólk á Patró og einnig nágrannabyggðum. Fólk leit- aði mikið til hennar ef laga þurfi flík og ef hún gat ekki leyst vandann við nýja eða notaða flík var það líklega ekki hægt. Hin síðari ár var hún far- in að minnka sumaskapinn en sneri sér í staðinn að annars konar sköpun. Á yngri áram hafði hún lært að vinna skrautmuni úr mannshári og rifjaði hún þann lærdóm upp fyrir nokkram áram og vann margar nælur og og aðra skrautmuni úr hári. Hárið fékk hún frá ýmsum velviljuðum og jafn- vel fékk hún að klippa lokk úr hári einhverrar stúlkunnar ef réttur hár- litur fannst. Annað mikið áhugamál hennar nú hin síðari ár vai’ perlu- saumur og vann hún einnig mörg listaverk úr perlunum. Fleiri við- fangsefni væri hægt að telja upp sem hún vann, öll jafn vel og af jafn mik- illi natni og eitt er víst að hún átti mikið eftir ógert í þeim efnum, því jafnvel eftir að hún var orðin aívar- lega veik nú í haust var öll tóm- stundavinnan henni ofarlega í huga og hlakkaði hún til að geta hafist handa að nýju sem hún gerir örugg- lega nú á öðram tilverastigum. Börn- in hennar hafa öll erft þennan list- ræna hæfileika hennai’. Annað áhugamál átti Hulda og það var gróður og garðrækt. Hún var með garð við húsið sitt á Patró og bar hann glöggt vitni um natni hennar og elju við erfið ræktunarskilyrði. Hún vai’ vakandi og sofandi að hugsa um garðinn og ræktaði oft upp plöntur sem hún gróðursetti síðan eða hafði í gróðurhúsinu sínu. Er ég kom við hjá henni sl. sumar fannst henni garður- inn í mestu órækt því hún hafði ekki getað sinnt honum eins og hún vildi vegna veikinda en ekki gat ég séð þá + Þökkum öllum, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður okkar, tengdamóður, dóttur, systur og mágkonu, GUÐRÚNAR ÞORBJARGAR SVANSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans fyrir einstaka umönnun. Daníel Árnason, Árni Svanur Daníelsson, Guðrún Harðardóttir, Davíð Már Daníelsson, Tinna Maria Emilsdóttir, Álfhildur Kristjánsdóttir, Svanur Kristjánsson, Inga Rósa Sigursteinsdóttir, Þorvarður Elíasson, Kristján Rúnar Svansson, Edda Bachmann, Skarphéðinn Sigursteinsson, Ragnheiður Hinriksdóttir. HULDA GUÐBJÖRG HELGADÓTTIR órækt því garðurinn bar af. Nú fyrir stuttu er ég kom að heimsækja hana á spítalann var hún að segja mér frá krókusunum sem komnir væra upp nálægt heimili Önnu dóttur hennar sem býi’ í Danmörku, þannig að áhuginn var ekki langt undan. Hún hafði einnig mikla ánægju af því að heimsækja Önnu til Danmerkur og skoða alla fallegu garðana þar. Hulda hafði gaman af því að ferð- ast þótt hún hafi ekki alltaf haft mörg tækifæri til þess. Hún fór þó nokkram sinnum til útlanda og hafði mikið gaman af en mest ferðaðist hún þó í huganum og fræddist um fjarlægar þjóðir í gegnum erlenda vini sína sem hún kynntist íýrir vest- an. Hulda er nú komin á annað tilver- ustig og veit ég að þar hefur verið tekið vel á móti henni af þeim fjöl- skyldumeðlimum sem á undan era farnh’ og þá einkum af dótturinni sem hún syrgði alltaf. Elsku Hulda ég þakka þér allan þann kærleik og ástúð sem þú hefur sýnt mér og fjölskyldu minni frá upphafi. Guð gefi Bjössa, börnunum ykkar, tengdabörnum, barnabörnum og barnabamabörnum styrk í sorginni, einnig systkinum og þeii’ra fjölskyld- um því missir okkar allra er mikill. Þótt lífið hylji ljósm sín, og lífsins gátá ei verði skýrð, á bak við sortann sólin skín, í sinni miklu geisladýrð. (BöðvarBj.) Eyrún Baldvinsdóttir. I örfáum orðum langar mig til að minnast hennar Huldu frænku, hún var alltaf kölluð það af okkur syst- kinunum og þau orð höfðu meiri merkingu en bara frænka. Hulda frænka sem ég minnist helst sem konunnar sem við gengum alltaf að á sínum stað heima hjá sér og oftast sat hún fyrir framan saumavélina eða var að annast blómin sín sem hún hafði svo mikið yndi af. Ein af bestu jólagjöfum sem ég minnist er einmitt frá systkinunum á Brannum 9, það var fullur skókassi af heimasaumuð- um fötum á dúkkuna sem amma og afi höfðu gefið mér. Þessi föt vora svo fín og komu sér svo vel í mömmu- leiknum hjá mér. Eftir að ég flutti suður og stofnaði heimili vora heimsóknimar vestur ekki margar en samt eru þær mér' dýrmætar því alltaf var gott að koma á Brannana og þiggja veitingar því aldrei kom maður að tómum kofun- umþar. Elsku Hulda frænka, amma Hulda á Patró (eins og krakkarnir mínir segja) nú ert þú búin að fá hvíldina þína og ferð að hitta Ingu litlu og alla hina sem fóru á undan þér. Til Bjössa og allra í fjölskyldunni ykkar vil ég senda mínar innilegustu samúðarkveðjur og megi Guð veita ykkur styrk til að lifa með þessum breytingum sem hafa orðið hjá ykk- ur. 4. Selma Baldvinsdóttir og íjölskylda. Elsku hjartans amma, þótt þú sért horfin sjónum eigum við lærdóminn sem þú gafst. Þú varst yndisleg, um- hyggjusöm og góð kona. Það var allt- af svo fallegt í kringum þig og gott að koma til þín. Þú ert hetjan okkar, æðralaus og af rósemi tókst þú á við það sem koma skyldi. Við viljum þakka þér fyrir samfylgdina og biðjum góðan guð að vaka yfir afa og veita honum styrk. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt Þig umvefji blessun og bænir, égbiðaðþúsofirrótt Þó svíði sorg mitt hjarta, þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margt að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, éghittiekkiumhríð, * þin minning er jjós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Ásgerður og Gísli Þór. + Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, INGI RAGNAR HELGASON hrl., Hagamel 10, er látinn. Ragna M. Þorsteins, Álfheiður Ingadóttir, Ragnheiður Ingadóttir, Steinunn Ásmundsdóttir, Eyrún Ingadóttir, Ingi Ragnar Ingason. + Útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MAGNEU GRÓU SIGURÐARDÓTTUR, Þrastarlundi 18, Garðabæ, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. mars kl. 13.30. Sigrún Einarsdóttir, Karl Eyjóifsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN BRYNJÓLFSSON vélstjóri frá Þingeyri, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 14. mars kl. 13.30. Elín Kristjánsdóttir, Guðjón Þ. Þórarinsson, Sigrún Kristjánsdóttir, Mark Bouchard og barnabörn. Hjördís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.