Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR12. MARS 2000 57
V
FÓLK í FRÉTTUM
Forsynmg
íimmtudaginn 16. mars
Frumsýnd í 17. mars - Forsala miða hafin
_____1
HÁSKÓLABÍÓ
Kjötkveðju-
hátíðin orðin
alþjóðleg'ur
viðburður
Hin árlega kjötkveðjuhátíð í Rio de Janeiro
var glæsileg að vanda. Sigríður Hulda
Geirlaugsdóttir fylgdist með í návígi.
NÝIR TÍMAR. Heimseiningar-
stefnan gefur tóninn. Kamavalið í
Ríó, sem hefur árlega í marga ára-
tugi sett andlit sitt á skjáinn hjá
fólki - vakið hrifningu, undrun og
forvitni og minnt fólk á þessa hríf-
andi menningu sem fyrirfinnst fyrir
sunnan heimskautsbaug, er ekki
lengur eingöngu þjóðlegur viðburð-
ur. Að vísu hefur það viðgengist
lengi vel að frægar erlendar per-
sónur sitji í heiðursstúkum sem
boðsgestir. En að öllu loknu, „tchau“
og í burtu fara þau með minningu af
exótískum mögnuðum viðburði. En
aðdáendur kjötkveðjuhátíðarinnar í
Ríó eru ekki bara frægt fólk og
boðsgestir sambasýningarinnar
kunnu. Sambaskólar hafa fest rætur
úti um allan heim, með öllu tilheyr-
andi: dans og músík og upplifun sál-
arástandsins á kjötkveðjuhátíðinni.
En meðlimir þessara skóla frá Jap-
an (30 skólar), Portúgal, Bandaríkj-
unum, Svíþjóð, Finnlandi (5 skólar),
Argentínu, Ítalíu, Frakklandi,
Þýskalandi, Kanada, Póllandi og
Englandi höfðu ekki látið sér detta í
hug að þeir ættu einhverntíma eftir
að taka þátt í skrúðgöngunni á sjálfu
Marqués de Sapucaí-strætinu, sama
strætinu og allir sjá í sjónvarpinu
þegar kjötkveðjuhátíðin frá Ríó birt-
ist, eins og raunin varð í ár.
Alþjóðlegi sambaskólinn
Stofnandi „Sambala", sambaskól-
ans í Los Angeles, David de Hilster,
hafði sett upp síðu á Netinu, alþjóð-
legan sambaklúbb, þar sem fólk kom
og ræddi allt milli himins og jarðar
sem viðvék kjötkveðjuhátíðinni og
samba. Hins vegar var það Aless-
andra Pirotelli, kariokka (það er frá
Ríó de Janeiro), sem á ferð um heim-
inn hafði merkt hve mikill áhugi
fólks var almennt á kjötkveðjuhátíð-
inni í Ríó, sem fékk þessa hugmynd
að stofna „Alþjólega sambaskólann",
sem stjórnað væri í gegnum Netið.
I ár tóku þátt í stóru sambasýn-
ingunni hópui- útlendinga og á þenn-
an hátt má segja að heimseiningar-
stefnan sé komin til kjötkveðju-
hátíðarinnar í Ríó. Hin finnska, Sari
Kortelainen, sem æfði sambasporin
sín í snjó og kulda, mætti til Ríó og
beið stóra andartaksins af eftirvænt-
ingu. Heidi frá Danmörku var boðið
að taka þátt í smíði og undirbúningi
sviðsetningar fyrir skrúðgönguna og
sló til svo hún hefur kynnst hátíðinni
í sinni raunverulegustu mynd.
Kjötkveðjuhátíðin hefur líka að-
lagast nútímanum fyrir innlenda.
Hægt er að velja fantasíu í gegnum
Netið: Margar litríkar síður með
símanúmerum, verðum og upplýs-
ingum um þá skrúðgöngu sem
ákveðin fantasía tilheyrir. Verð á
fantasíu þeirra 14 sambaskóla sem
eru í fyrstu deild keppninnar getur
verið allt að 50 þúsund krónur.
Síðasta helgin fyrir kjötkveðjuhá-
tíðina, 26. og 27. febrúar, var notuð
til upphitunar. Margar rótgrónar
skrúðgöngur lögðu í hann, eins og
„Simpatía næstum ást“ í Ipanema-
hverfi og „Handarkriki Krists“ sem
fer af stað undir Kriststyttunni
frægu á Corcovado. Fyrir marga
Ríóbúa eru það þessar kjötkveðju-
göngur sem standa undir hátíðinni
en ekki sambasýningin sjálf, því
þegar að henni kemur er stór hluti
borgarbúa kominn út úr borginni í
afslöppun frá hita og reyk á stærstu
fríhelgi ársins.
Hver skóli stóru sambasýningar-
innar velur sér umfjöllunarefni,
þema. Sambatextinn gefur tóninn.
Búningar, sviðsetning og tónlistin,
kóreografían og sérstakir taktar
ásláttarhljóðfæranna: allt eru þetta
mikilvæg atriði í einkunnagjöf dóm-
nefndarinnar, sem lætur ekkert
óséð. Og í ár var haldið upp á þau
Atriði frá Imperio Serrano-sambaskólanum vakti mikla athygli í Ríó.
500 ár sem liðin eru frá því að vest-
ræn menning setti fót sinn á brasil-
íska grund. Af því tilefni munu
margir skólar fjalla um þann við-
burð.
Margt frægt fólk, innlent og er-
lent, lét sjá sig á Sambódromo í ár. I
stúkunum var boðið upp á kampa-
vín, lax, þistilhjörtu og osta. En hvað
kosta stúkurnar? Ef ein sem er 10
fermetrar kostar 270 þúsund krónur
þá kosta þessar stúkur sem stórfyr-
irtækin kaupa og eru 360 fermetrar
á stærð 10 milljónir. Þannig er nú
það.
Bruce Willis Matthew Perry
3 vikur á toppnum
Vinsælasta myndin í Bandaríkjunum í dag
Kjötkveðjuhátíðin í Ríó er einkar glæsileg