Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 50
■1 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA ÍDAG / Islandsklukka * Hljómur þeirrar Islandsklukku, sem er tákn kristnitökunnar í hugum þjóðarinn- ar, er umfiöllunarefni Stefáns Frið- bjarnarsonar í hugvekju dagsins. „Sú var tíð, segir í bókum, að ís- lenska þjóðin átti aðeins eina sam- eign sem metin var til fjár. Það var klukka. Þessi klukka hékk fyr- 1 ir gafli Lögréttuhússins á Þíng- vöUum við Öxará... “ (Halldór Kiljan Laxness: íslandsklukkan) EGAR Alþingi var endur- reist (sem ráðgjafarþing) 1845 stóðu deilur með þjóðinni um það, hvort þingið skyldi háð á Þingvöllum við Öx- ará, sem íslands saga stóð til, eða í Reykjavík, er þá var lítið þorp á mæÚkvaða dagsins í dag. Skáldin, með Jónas Hallgrímsson og Fjölnismenn í fararbroddi, héldu fram Þingvöllum, en veraldlegir valdsmenn flestir Reykjavík. Jón forseti Sigurðsson hélt fram Reykjavík. Hann komst svo að orði: „Sá mætti vera tilfinninga- laus íslendingur, sem ekki fyndi til föður- landsástar eða nokk- urra djúpra hugsana, þegar hann kemur á þann stað, sem Alþingi feðra vorra hefur stað- ið... En þótt hugur og tilfinningar mæli fram með Þingvelli, þá mælir að minni hyggju skynsemi og forsjálni með Reykjavík." Um aldamótin 1801 voru biskupsstólar á Hólum og í Skálholti lagðir niður. Einn biskup var yfir land- inu öllu, staðsettur í Reykjavík. Þetta tvennt, staðsetning Alþingis og biskups í Reylqavík, réð miklu imi það, að sá staður varð höfuðborg full- valda ríkis (1918) og lýðveldis (1944). Miklu valda þeir, stendur einhvers staðar, sem upphafinu valda. Þingvellir vóru eftir sem áður höfuðstaður íslands sögu í hugum oghjörtum þjóðarinnar. Þarvarð íslenzkt ríki að veruleika þá er Al- þingi hið forna kom saman fyrsta sinni, árið 930. Þar var kristin trú lögtekin á Jónsmessu skírara árið 1000 (eða árið 999 að mati sumra söguskýrenda). Þá vóru aðeins 70 ár liðin frá því að íslenzka ríkið varð formlega til og um 130 ár frá því að norrænt landnám hófst. Það er því rétt staðhæfing, þegar fullyrt er, að kristnin og íslenzka þjóðríkið hafí átt farsæla samleið nær alla f slands sögu. Þingvellir hafa alltaf staðið þjóðarhjartanu mjög nærri, ekki sízt á sannkölluðum þjóðhátíðum, þegar stórra atburða í sögu þjóð- arinnar hefur verið minnzt. Þús- und ára byggðar í landinu var minnzt með stórhátíð á Þingvöll- um árið 1874. Aiþingi minntist þúsund ára sögu sinnar og ís- lenzka ríkisins á Þingvöllum árið 1930. Þangað flykktust þá 30.000 íslendingar. Það var mikið fjöl- menni þegar tekið er tillit til þess að það ár vóru landsmenn tæplega 110.000 talsins. Lýðveldisstofnun- in, 17. júní árið 1944, fór að sjálf- sögðu fram á Þingvöllum. Það var sannkölluð þjóðhátíð, sem þorri þjóðarinnar tók þátt í, annaðhvort með viðveru eða í útvarpi. Þá var viðamikil þjóðhátíð á Þingvöllum árið 1974, þegar minnzt var 11 alda byggðar í landinu. Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur, kemst m.a. svo að orði í grein sem hann nefnir „Helgistaður þjóðar“ og birt er í afmælisriti um Davíð for- sætisráðherra Oddsson fimmtug- an (17. janúar 1998): „Enn stefnir í volduga hátíð á Þingvöllum árið tvö þúsund, þeg- ar minnzt verður þúsund ára kristnitöku á íslandi, sem var menningarviðburður slíkur, að engu verður til jafnað í sögu þjóð- arinnar... Umhugsunin um kristnitökuna árið eitt þúsund set- ur okkur dýpri sögulegar skorður en aðrar þjóðir geta státað af nema í litlum mæli - og þá oftar en hitt sótt í íslenzkar heimildir vitneskja um þeirra hegðan. Þetta er í rauninni eins og að við einir hefðum haft upplýsingamiðil á borð við sjónvarp, þegar aðrir klöppuðu stafi á steinana. - Þetta er líka til vitnis um það, að við eig- um lengri samfellda og skráða sögu en flestar vestrænar þjóð- ir...“ Kristnitakan hafði ríkari áhrif á þjóðmenningu okkar, þjóðarsögu og mannúðleg lífsviðhorf en nokk- ur annar atburður. Það er við hæfi að þjóðin leiði hugann að því er kristnir menn sungu messu á Þingvöllum árið þúsund, stuttu áður en kristni var lögtekin. Þá hafa hljómar klukkna, sem þeir klingdu, bergmálað í klettaveggj- um Þingvalla. Síðan hafa klukkur kristninnar hljómað í eyrum þjóð- arinnar, kynslóð eftir kynslóð, öld eftir öld, - já, í heilan aldatug. Þær hafa í aldanna rás runnið saman í eina íslandskiukku, sem kallað hefur kynslóðimar til tíða, til bæna, lofgerðar og sakra- menta. Þessi Kristsklukka er annarrar gerðar en sú sem „hringt var til dóma og á undan aftökum" á Þingvöllum, svo notuð séu orð Nóbelskáldsins úr vinsælu skáld- verki hans, íslandsklukkunni. Þessi Kristsklukka verður heldur ekki „metin til fjár“ eins og klukk- an sem bífalingsmaður kóngsins hirti á Þingvöllum forðum daga. En hún er í raun og sann sameign íslenzkrar þjóðar, sameign kyn- slóðanna. Hljómur hennar, hljóm- ur fagnaðarboðskaparins, mun óma í eyrum alþjóðar, m.a. á helgistað íslenzkrar þjóðar, Þing- völlum, á komandi sumri - og raunar í hverri byggð í sveit og við sjó. Megi svo áfram verða þann nýja aldatug, þá nýju stóröld, er senn hefst. Morgunblaðið/Golli Kirkjuklukkur úr Þönglabakkakirkju í Fjörðum en þær eru frá árinu 1300. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Margt er skrýtið í kýrhausnum MARGT er skrýtið í kýr- hausnum, segir gamalt mál- tæki. Stundum sé ég margt skrýtið í Morgunblaðinu mínu. Eg sá frétt sem að mér fannst að hlyti að vera komin úr kýrhausnum, svo þrjóskulega fáránleg var hún. Hún snerist um laun manna sem hafa gert það að ævistarfi sinu að hugsa um fólk, fjölskyldur, allt frá smábörnum og til þess aldr- aða. Eðlilega þarf heilbrigt fólk ekki að leita til þessara manna en það fer stundum á fund þeirra vegna barna sinna eða veikra vina eða ættingja. Eg er hér að tala um heimilislæknana okkar. Þessi stétt sem stendur grasrótinni næst og veit mest um líðan landans eins og hún er hverju sinni. Mér er óskiljanlegt ef líf- ið er einhvers virði, hvers vegna það er lægra metið að standa á vaktinni árið út og inn og aðstoða þjóðina í veikindum nótt og dag en vinna einhæf sérfræðistörf á stofum. Eg segi nótt og dag, því hér í þéttbýlinu eru það heimilislæknar sem að annast kvöld- og nætur- þjónustu til skiptis. Fara klukkan fímm síðdegis þeg- ar vinnu lýkur á heilsu- gæslustöðinni og í kvöld- og næturþjónustuna. Inn á þeirra borð koma öll mannleg mein, þeir flokka og meta hvað gera skuli. Þeir sinna langveiku fólki því að margt er enn ólæknanlegt í heimi hér. Sú hugsun að það sé einfalt og ekki flókið að átta sig á kvörtunum og ekki vanda- samt að sjá hvað er að ger- ast þegar fólk kemur og biður um hjálp er sú mesta firra sem að hugsast getur. Þetta mun þýða það að heilsugæsluþjónustan mun leggjast af hægt og hægt. Ekki áhugavert fyrir unga lækna að læra heimilis- lækningar, það verða færri og færri að leita til og þykir nú mörgum þegar nóg um læknaskortinn. Þuríður Jónsdóttir. Moka snjó frá dyrum og merkja lúgur NU þegar allra veðra er von vill Pósturinn beina vinsamlega þeim tilmælum til húseigenda að þeir haldi aðgangi að húsum sínum greiðum þegar snjóar og strái salti eða sandi á hálku- bletti, annars getum við ekki tryggt að við komum póstinum á áfangastað. Pósturinn hefur staðið fyrir átaki til að bæta merk- ingar á póstkössum, bréfa- lúgum og húsnæði. Árlega flytja þúsundir manna bú- ferlum og til þess að bréf- berinn geti komið póstinum til skila fljótt og örugglega þarf hann að vita hvar við- takendur búa, því þarf að tilkynna breytt póstföng til Póstsins og einnig þurfa nöfn allra íbúa að vera á/við bréfalúguna. Bjarney Harðardóttir, markaðs- og sölusviði Islandspósts. Tapað/fundið Brún loðkápa týndist BRUN, síð loðkápa týndist á Café Victor 11. febrúar sl. I vasanum var seðlaveski. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 863-3318 eða 557-4226. Kvengnllúr týndist KVENGULLÚR týndist í nágrenni Kjama í Mosfells- bæ 7. mars. Skilvís finnandi hafi samband í síma 566- 6707. Dökkblá kápa tekin í misgripum DÖKKBLÁ sparikápa með fallegu fóðri var tekin í mis- gripum úr fatahengi Hótels Loftíeiða í erfisdrykkju 9. nóvember sl. í staðinn var skilin eftir dökkblá kamel- ullarkápa. Þeir sem kann- ast við þetta hafi samband í síma 553-8559. Bíllyklar og húslyklar BÍLLYKLAR og húslyklar fundust aðfaranótt sunnu- dagsins 5. mars sl. í Lækj- argötu. Lyklarnir eru á mjög sérstarkri lyklakippu með blárri kúlu. Upplýsing- ar gefur Dagný í síma 564- 1416. Svört hálfsíð ullarkápa tekin í misgripum SVÖRT, síð ullarkápa var tekin í misgripum á Glaumbar laugardags- kvöldið 26. febrúar sl. í erminni á kápunni voru trefill og peysa. Fundar- laun. Vinsamlegast hafið samband við Veru í síma 564-2813. Brúnn leður- hanski týndist BRÚNN leðurhanski týnd- ist á horninu á Skálholtsstíg og Grundarstíg í Reykja- vík, miðvikudagskvöldið 8. mars sl. Hann hefur senni- lega dottið úr bíl. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Hildi í síma 565-4671. Morgunblaðið/RAX Víkverji skrifar... AÐ vakti athygli Víkverja þegar hann heyrði á dögunum að til stæði að breyta búningi knattspymu- liðs KR fyrir komandi keppnistímabii og nú hefur komið í Ijós að breyting- amar em aðallega í því fólgnar að hann verður „ekki eins röndóttur" og sá gamli - hvað sem það þýðir ná- kvæmlega. Víkveiji hefur heyrt að gamlir fé- lagsmenn virðast sumir hverjir ekki ánægðir með tiltækið enda KR-bún- ingurinn „eitt þekktasta vöramerki á Islandi,“ eins og Magnús Orri Schram, sem er framkvæmdastjóri rekstrarfélags KR-inga, orðar það í viðtali í DV á föstudaginn. Þar segir hann ennfremur að þrátt fyrir þessa staðreynd finnist „okkur“ - og á þá líklega við forráðamenn knattspym- unnar í KR - nauðsynlegt að laga búninginn að nútímanum með þeim breytingum sem á honum verða gerð- ar. Hvorki meira né minna! „Og nú er rétti tíminn vegna þess að við erum að losna úr fjötram fortíðarinnar með glæsilegum sigrum okkar í fyrra," segir framkvæmdastjórinn. Enn- fremur er haft eftir honum: „Með þessu móti verður hinum almenna stuðningsmanni KR gert auðveldara að eignast búninginn en það hefur löngum verið erfiðleikum bundið eins og margir hafa reynt í gegnum árin.“ Víkveija rak í rogastans yfir þessum rökum, en áttaði sig á samhenginu strax í næstu setningu framkvæmda- stjórans: „I hönd fer mikil og góð markaðssetning á nýrri vöra sem verður þrátt fýrir allt röndótt.“ Það kæmi Víkverja sem sagt ekki á óvart að ástæða breytinganna væri fyrst og fremst sú von að selja sem mest af þessum nýja búningi. xxx TALANDI um peningaplokk þá fannst Víkveija nýjungin sem kynnt var í þætti Happdrættis DAS í ríkissjónvarpinu í vikunni ótrúleg. I boði era alls kyns bifreiðir og leikur- inn kostar fólk ekki neitt eða svo mátti að minnsta kosti skilja á ungu, fallegu konunni sem kynnti fyrirbær- ið. Hún tók skýrt fram í byijun að fólk þyrfti hvorki peninga né kredit- kort, aðeins að hringja inn og þá færi símanúmerið í pott sem síðan yrði dregið úr og vinningshafinn hlyti bif- reið. En svo var upplýst að það kost- aði aðeins 100 krónur að vera með og upphæðin yrði einfaldlega innheimt á næsta símareikningi. Sára einfalt! Og meira að segja er hægt að hringja tuttugu sinnum úr sama númeri fyrir hvem drátt. Og kostar varla neitt! Tuttugu símtöl kosta ekki nema tvö þúsund krónur. Safnast þegar saman kemur, hugsaði Víkveiji, og honum kæmi ekki á óvart þótt einhverjir þeirra spennu- og spilafíkla sem byggja landið fái hærri símareikn- inga á næstu mánuðum en þeir era vanir. xxx ÍKVERJA brá í brún þegar hann heyrði rödd Pálma Gests- sonar, leikara, innan úr herbergi dóttur sinnar á dögunum. Pálmi les reyndar afbragðs vel og ekkert nema gott um hann að segja að öllu leyti, en það sem Víkveiji undraðist vora málfarsvillurnar í ævintýrinu sem leikarinn var að lesa. I ljós kom að dóttirin var að spila geisladiskinn Ferðafélagi bamanna 99 og sagan heitir Anna Bella eignast vin. Sagan hófst með þessum orðum: „Önnu Bellu hlakkaði til í dag.“ Þegar Vík- verji lærði íslensku á sínum tíma tók sögnin hlakkar með sér nefnifall - og gerir enn, skv. reglum - þannig að Anna Bella hlakkaði til í dag hefði verið honum að skapi. Ég hlakka sem sagt til, en hvorki mig né mér, eins og reyndar er orðið mjög aigengt í mál- inu. Víkverja finnst þágufallssýki satt að segja ákaflega hvimleið; kannski er hann af svo gömlum skóla eða leið- inlega íhaldssamur, en sumum virðist finnast þetta öldungis eðlileg þróun málsins. Víkverji hefur hins vegar al- ið böm sín upp þannig að þau tali rétt mál og finnst því slæmt þegar boð- skapur eins og ævintýri eða annað bamaefni sem keypt er handa þeim skuli ekki vera vandaðra en raun ber vitni. Ekki skánaði álit Víkverja á umræddum geisladiski fáeinum and- artökum eftir áðumefnda setningu þegar hann heyrði Pálma lesa af inn- lifun: „Henni hafði lengi langað í..." Útgefendum geisladisksins, Aðalút- gáfunni, og öðram sem framleiða efni fyrir böm, er hér með vinsamlega bent á að sögnin langar tekur með sér þolfall. Mig langar sem sagt, en mér langar ekki...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.