Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Forsetakosningarnar á Taívan Tvísýn bar- átta um for- setaembættið Hinn 18. mars næstkomandi verður kosið til forseta á Taívan. Er úrslita kosninganna beðið með mikilli eftir- væntingu að því er kemur fram í þessari grein eftir Tómas Orra Ragnarsson, ekki síst í Austur-Asíu þar sem þau geta haft mikil áhrif á öryggis og hernaðarmál vegna viðkvæms sambands á milli Taívans og Kína. Annars staðar er einnig vel fylgst með kosningunum, einkum í Bandaríkjunum. Forsetaframbjóðandinn Chen Shui-bian heilsar stuðningsmönnum á ferð um borgina Keelung á Taívan. UTLIT er fyrir að keppnin um for- setaembættið verði afar tvísýn og spennan er mikil. Valið stendur um fimm frambjóðendur. Prír eru lík- legastir til að bera sigur úr býtum en hinir tveir hafa mælst með mjög lítið fylgi. Kosn- ingabaráttan er að komast á endasprettinn og frambjóðendurnir hafa verið að móta stefnu sína og kynna fyrir kjósendum. Þrír helstu frambjóðendurnir Frambjóðandi Kuomingdang, flokks þjóð- emissinna sem hefur stjómað Taívan frá 1949 er Lien Chen varaforseti og varaforsetaefni hans er forsætisráðherrann Vincent Siew. Lien er fulltrúi flokks sem hefur farið með völdin á Taívan frá því þjóðemissinnar flúðu til eyjunnar undan kommúnistum árið 1949. Chi- ang Kai-shek stjórnaði með harðri hendi fyrstu áratugina eftir komuna til Taívan. Sonur hans Chiang Ching-kuo sem tók við embætti föður síns byrjaði á færa stjómkerfi Taívan í átt til lýðræðis. Hann lýsti því yfir að hann yrði síð- asti meðlimur Chiang-ættarinnar sem stjóm- aði Taívan og byrjaði á umbótum eins og að lyfta herlögum sem höfðu verið áratugi í gildi. Eftir dauða Ching-kuo tók núverandi for- seti, Lee Teng-hui, við embætti forseta. Hann hefur stýrt Taívan í átt til lýðræðis og for- setakosningarnar nú em ákveðinn vendipunkt- ur í lýðræðisþróuninni. Nú verður í fyrsta skipti skipt um forseta í beinum kosningum en í fyrstu forsetakosningunum 1996 fór Lee með ótvíræðan sigur af hólmi en hann var þá sitj- andi forseti kosinn af þinginu. Kuomingdang á það á hættu að tapa kosningunum og tapa þeirri stöðu sem flokkurinn hefur haft á Taívan í fimmtíu ár. Sá frambjóðandi sem er hvað líklegastur til að fara með sigur af hólmi samkvæmt skoðana- könnunum er fyrrverandi landstjóri, James Soong. Hann var mjög vinsæll landstjóri og þekktur fyrir að vera maður fólkins. Um tíma var haldið að hann ætti möguleika á tilnefningu Kuomingdang en eftir að Lien var valinn til að vera frambjóðandi flokksins og Soong ákvað að bjóða sig fram var hann rekinn úr flokknum. Margir halda því fram að skynsamlegra hefði verið að hann yrði frambjóðandi flokksins, bæði vegna þess að hann hefur meira fylgi meðal almennings en Lien og einnig myndi hann ná að breyta ímynd flokksins til hins betra. Innan flokkins var hins vegar ákveðið að Lien færi fram vegna tengsla hans við Lee for- seta sem vildi að Lien yrði frambjóðandi flokksins. Soong og Lee hefur ekki komið vel saman í gegnum tíðina enda Soong þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum. Soong var lengi framan af með mikla forystu í skoð- anakönnunum en fylgi hans hefur minnkað verulega eftir að ásakanir um spillingu komu fram. Soong er sakaður um að hafa ekki gefið upp kosningaframlög og lagt peninga inn á reikninga fjölskyldumeðlima. Eftir að þessar ásakanir komu fram minnkaði fylgi Soongs verulega og eru nú allir þrír frambjóðendumir með svipað fylgi í skoðannakönnunum. Soong hefur neitað því að hann hafi brotið af sér og sagt að forysta flokksins, þar á meðal Lee, hafi vitað um og heimilað færslumar. Nefnd, sem var skipuð til að rannsaka málið, komst að þeirri niðurstöðu að þó að hann hefði ekki farið að reglum um kosningaframlög hefði hann ekki gert neitt ólöglegt. Soong og Lien sækja báðir atkvæði til hefðbundinna fylgismanna Kuom- ingdang. í fyrstu forsetakosningunum 1996 fékk núverandi forseti Lee Teng-hui rúmlega fimmtíu prósent meðan næsti maður, fram- bjóðandi DDP, var með 29 prósenta fylgi. Þetta missætti nú innan Kuomingdang gefur Chen Shui-bien, frambjóðanda Frjálslynda lýðræðisflokksins, (DDP) góða möguleika á að ná kostningu. Ah Bien eins og hann er kallaður er fyrrverandi andófsmaður og hefur barist gegn veldi Kuomingdang frá því á áttunda ára- tugnum. Valdakerfið hafði horn í síðu hans og talið er að leyniþjónusta Taívan hafi staðið fyr- ir tilræði gegn konu Chen’s sem varð til þess að hún lamaðist fyrir neðan milli. Chen er fyrr- verandi borgarstjóri Taipei og þótt takast vel til í sínu embætti. Hann sóttist eftir endurkjöri 1998 en tapaði naumlega fyrir frambjóðanda Kuomingdang, Ma Ying-jeou, fyrrverandi dómsmálaráðherra. Chen hefur lent í vand- ræðum með að útskýra stefnu DDP gagnvart meginlandinu en upprunalega stefna flokksins var sjálfstæði Taívan. Hins vegar er ekki hægt að halda slíkri stefnu til streitu þegar hótað er að ráðast á eyjunna ef lýst er yfir sjálfstæði. I ljósi þessa hefur stefna Fijálslynda lýðræðis- flokksins smám saman breyst og segja má að stefna Chen’s nú sé að viðhalda óbreyttu ástandi. Ráðamenn í Peking hafa ekki legið á þeirri skoðun sinni Chen sé þeim ekki að skapi. En það kann að fæla óákveðna frambjóðendur frá Chen en þeir eru nú um 25% sem kunna að treysta Lien eða Soong betur til að fara með samskipti við Pekingstjómina. Helstu kosningamálin Aðalmálið í kosningunum eru samskiptin við Peking. í raun ríkir alger pattstaða. Ráða- menn í Kína hafa lýst því yfir að þeir munu ráð- ast á Taívan ef eyjan lýsir yfir sjálfstæði. Þetta er grundvallaratriði í stefnu þeirra gagnvart Taívan. Fyrstu og síðustu nýlendunni í Asíu, Macao var skilað nú í desember til Kína og hafa forystumenn kommúnistaflokksins margoft sagt það undanfarið að Taívan-vandamálið eins og það er nefnt verði leyst innan skamms. Slagorðin vantar ekki en sameining Taívan og Kína er langtum flóknara mál en skil Hong Kong til Kína 1997. Skil á nýlendunni Macao nú í desember voru enn einfaldara mál en Portúgalar höfðu margoft lýst yfir vilja sínum til að skila nýlendunni, Kínverjar í Macao studdu yfirtöku og vilji var af beggja hálfu til að komast að samkomulagi. Taívan aftur á móti er ekki nýlenda neins lands og lýðræðis- þróun undanfarinna ára gerir það að verkum að ekki er hægt að líta framhjá vilja almenn- ings í Taívan sem hefur engan áhuga á að vera undir yfirráðum kommúnista. Yfirlýsing Lee forseta um að líta bæri á samskipti Taívan og Kína sem tveggja jafnfrétthárra ríkja virðist hafa fallið í grýttan jarðveg meðal almennings. Lee hefur verið gagnrýndur fyrir yfirlýsing- una og Lien hefur upp á síðkastið reynt að draga úr mikilvægi hennar, en hefur þó ekki viljað draga hana til baka. Eitt annað helstu kosningamálanna er spill- ing innan valdakerfisins og Kuomingdang- flokksins. Flokkurinn er búinn að vera við völd frá 1949 og stór spillingarmál hafa hvað eftir annað komið upp. Fjárfestingararmur flokkins er eigandi að stórum hlutum í helstu fyrirtækj- um á Taívan og hann er tengdur forystu flokksins sterkum böndum. Áætlaðar eignir flokksins eru að minnsta kosti 300 milljarðar króna og árlegur hagnaður um 30 milljarðar. Svo virðist sem ákveðin þáttaskil séu í stjórn- málum á Taívan en áður var að miklu leyti litið framhjá spillingu í valdakerfinu. Þingmenn hafa oft á tíðum verið með sambönd við glæpa- klíkur og jafnvel verið dæmdir menn áður en þeir hafa komist á þing með atkvæðakaupum. Pressan hefur verið mest á Lien enda hefur hann um langt skeið verið í innsta hring Kuom- ingdang. Hann hefur lagt til að viðskiptahags- munir og flokksstarf verði skilið að þannig að það verði ekki bein tengsl á milli flokksins og þeirra viðskiptahagsmuna sem hann á að gæta. Hinir tveir frambjóðendurnir hafa líka lagt áherslu á þetta mál og fjármögnun kosninga- baráttunnar. Þegar nær dregur kosningadegi má búast við að Kuomingdang láti einskis ófreistað í baráttunni. Atkvæðakaup hafa verið fastur þáttur í kosningum undanfarinna ára og peningar þeir sem flokkurinn hefur til umráða geta skipt mikiu máli og styrkt stöðu Liens. Hlutfall óákveðinna í skoðanakönnunum undanfarið hefur verið um fjórðungur. Þessi atkvæði skipta miklu máli. Hinn almenni kjós- andi vill fyrst og fremst að samskiptin við Al- þýðulýðveldið séu á þann veg að ekki sé hætta á innrás frá Kína. Arið 1996 áður en Banda- ríkin sýndu vilja sinn til að grípa inn í hugsan- lega innrás Kína á Taívan hafði einn fimmti af skráðum fyrirtækjum á hlutabréfamarkaði farið í greiðslustöðvun eða gjaldþrot, verð á at- vinnu og íbúðarhúsnæði fallið um helming og gjaldeyrisforði eyjunnar sem er einn sá stærsti í heimi farið hríðlækkandi vegna millifærslna frá Taívan til annarra landa. Kjósendur vilja þess vegna öryggi og frið, þeir vilja ekki kjósa yfir sig forystu sem stefnir afkomu, eignum og hugsanlega lífi í hættu. Kuomingdang hefur mestu reynsluna í utanríkismálum og kann af þeim sökum að fá stóran hluta atkvæða hinna óákveðnu. Kínveijar eru á móti kosningunum almennt séð en þeir hafa sérstaka vanþóknun á Chen Shui-bien vegna stuðnings hans við sjálf- stæði Taívan. Einnig kann að þykja að nú sé kominn tími til að leyfa öðrum að stjórna en Kuomingdang, sérstaklega til að taka á þeirri spillingu sem hefur viðgengist síðustu áratugi. Þetta kann að styrkja stöðu Chens sem er frægur fyrir röggsemi og gat sér gott orð sem borgarstjóri Taipei. Eitt er víst, enginn fram- bjóðendanna kemur til með að hafa hreinan meirihluta kjósenda á bak við sig. Hvaða af- leiðingar það hefur á eftir að koma í ljós þar sem þetta gerist nú í fyrsta skipti. Forsetinn er valdamikill og með Soong sem forseta kann það að reynast honum erfitt að vinna með þingi þar sem meirihluti er Kuomingdang-þing- menn. Enn erfiðara verður fyrir Chen að vinna með þinginu. Vilji kjósenda til að breyta til kann að styrkja stöðu Soongs. Afstaða hans til Kína er hógvær og líkleg til að halda friðinn við kommúnistanna en jafnframt að takast á hend- ur umbætur í valdakerfinu. Hann er heldur ekki bundinn af yfiriýsingu Lees um tvö jafn- rétthá ríki. Lee forseti verður eftir kosning- amar formaður Kuomingdang-flokksins og Lien líður fyrir að líta út eins og strengjabrúða í höndum Lees. Fyrri afstaða frambjóðanda Frjálslynda lýðræðisflokksins, Chens, sem stuðningsmanns sjálfstæðis kann að koma hon- um í koll og verða þess valdandi að kjósendur treysta honum ekki til að fara með forsetaem- bættið. Samskipti Kína, Taívan og Bandaríkjanna Fyrir skömmu var gefin út skýrsla um saim skipti Taívan og Kína af stjórninni í Peking. I þeirri skýrslu er sagt að ef Taívanar haldi áfram að draga lappirnar í samningaviðræðum um sameiningu eigi þeir það á hættu að Kín- veijar geri innrás á eyna. Áður höfðu Kínverj- ar sagt að innrás yrði einungis gerð ef Taívan lýsti yfir sjálfstæði eða væri tekið yfir af er- lendum aðlilum. Markmiðið með þessari skýrslu er að gera Taívönum það ljóst að þeir geti ekki endalaust dregið lappirnar hvað varð- ar sameiningu. Markmið Kínverja er einnig að hafa áhrif á kjósendur í þá átt að kjósa annað- hvort Soong eða Lien frekar en Chen vegna stuðnings hans við sjálfstæði eyjunnar. Samn- ingaviðræðurnar verða eftir sem áður mjög erfiðar vegna þess að ekki er vilji, hvorki meðal almennings né í valdakerfinu, til að sameinast Kína á þeim forsendum sem bjóðast. Hræringar í Bandaríkjunum koma líka til með að hafa áhrif á samskipti Kína og Taívan. Forsetakosningar eru á næsta leiti og ef repúbhkani verður kosinn sem forseti kunna Bandaríkjamenn að veita Taívan meiri stuðn- ing en nú er. Nýlega voru samþykkt í fulltrúa- deildinni lög sem kalla á meiri stuðning við Taívan, sérstaklega hvað varðar hernaðar- og öryggismál. Clinton hefur lýst því yfir að hann muni beita neitunarvaldi ef þingmannadeildin samþykkir lögin einnig. Stjórnin í Washington reynir eftir sem áður að miðla málum á milli Kína og Taívan en er í erfiðri stöðu. Stuðning- ur almennings í Bandaríkjunum við Taívan er mikill og hefur aukist, sérstaklega eftir að lýð- ræðisumbætur komust á skrið. Hornsteinn vamarstefnu Taívan hefur verið fólginn í að geta keypt háþróuð vopn frá vopnaframleið- endum í Bandaríkjunum. I Taívan er vilji fyrir hendi að kaupa Patriot-flaugar og vera aðili að eldflaugavarnarkerfi sem var upphaflega hannað fyrir Japani vegna hugsanlegrar hættu frá Norður Kóreu. Peking-stjómin er þessu harðlega mótfallin. Aukinn stuðningur við Taívan svo sem í formi vopnasölu, hernaðar- samskipta og stuðnings við að eyjan verði meðlimur í alþjóðasamtökum eins og Alþjóða- viðskiptastofnuninni (WTO) og Alþjóðaheil- brigðismálastofnunni (WHO) mun ergja Kína- stjórn sem sakar Bandaríkjamenn um að vera með íhlutun í innanríkismál Kína. Fyrirtæki í Bandaríkjunum sem eiga viðskiptahagsmuni í Kína era geysisterk hagsmunasamtök sem vilja halda friðinn við kommúnista til að geta átt viðskipti við hinn geysistóra Kínamarkað. Þau em nú í sinni stærstu herferð frá því að NAFTA-samkomulagið var gert til að tryggja Kína varar.Iegan rétt á sem hagstæðustum við- skiptakjörum við Bandaríkin. Samskipti milli Kína og Bandaríkjanna em nú á viðkvæmu stigi einu sinni sem oftar. Kína þarf á stuðningi Bandaríkjanna að halda til að tryggja inn- göngu í Alþjóðaviðskiptastofnunina og fyrir- tæki í Bandaríkjunum vilja að Kínverjar fái inngöngu sem fyrst. Höfundur er viðskiptafræðingur, búsettur í Hong Kong en áður á Tafvan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.