Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ferdinand Smáfólk UJHS' PON T VOU 6ET OUT TUEREIN RIGHT FIELI? ANP l'LL MITVOUAFEW FLIES.. Hæ Lfsa. Vertu velkomin í liOið mitt. Farðu þama út á hægri kantinn og ég sendi þér nokkra bolta. afsökunum, er það? BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Myndin er tekin á slysstað 7. mars 1975 í birtingu. Ef myndin prentast vel má sjá að búið er að gera björgunarbáta og bjarg- hringi klára á dekkinu. Hvassafellið lá lengi á strand- stað og eins og sjá má myndaðist mikil fsing á skipinu. 25 ár frá fræknu bj örgunarafreki Frá Tómasi J. Knútssyni: ÞAÐ var að morgni 7. mars 1975 að ms. Hvassafell, þá nýjasta skip Skipadeildar Sambandsins, strand- aði á Flatey á Skjálfanda. Skipið fékk á sig brotsjó rétt utan við eyj- una og snérist 153 gráður og sigldi á fullri ferð í gegnum brimlöðrið og sat fast í fjörunni. Krafturinn í sjónum var svo mikill að skipið sat nánast á þurru landi þegar það stoppaði. Lætin um borð voru slik að það er eins og þetta hafí gerst í gær, þessi atburður situr það vel í minni mínu að það gleymist aldrei. Aðdraganda strandsins má rekja til ofsaveðurs af norðaustri með mikilli fannkomu, ísing hafði sest á radarinn og vitinn í Flatey logaði ekki. Siglingaleið skipsins var norðan við eyjuna en brotið sem skipið fékk á sig setti allt úr skorð- um og andartaki síðar var strandið orðið staðreynd. Engin slys urðu á áhöfn né far- þegum en áhöfnin, 16 manns og þrjár eiginkonur skipverja, voru um borð. Ein eiginkonan var kom- in sex mánuði á leið. Eftir margar tilraunir til að senda út neyðarkall, heyrði skut- togarinn Dagný frá Siglufirði kall frá skipinu og kom þeim áleiðis til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunn- ar. Vistin um borð var bærileg, það var reyndar rafmagnslaust vegna þess að ekki var hægt að keyra neinar ljósavélar, sjór var kominn í vélarrúm og skipið var greinilega mikið laskað að neðan. Oll loftnet skipsins voru slitin. Biðin var löng eftir björgun, en skipið strandaði kl. 6.35 og björg- unarsveitin birtist í hádeginu. Þarna voru komnir meðlimir úr Björgunarsveitinni Garðari frá Húsavík. Þeir komu á tveim bátum og lágu utan við brimið hinum megin á eyjunni, sendu björgunar- sveitarmenn í land á gúmmíbátum ásamt fluglínutækjum og gengu síðan yfir eyjuna. Eftir að flug'ínu- tækjunum hafði verið komið fyrir í fjörunni var skotið línu um borð og áhöfnin setti fast í formastrið. Síð- an var konunum þremur og sex manns af áhöfninni bjargað í land, en restin af áhöfninni var um kyrrt. Þeim var síðan bjargað í land eftir tvo daga en ekkert amaði að mannskapnum um borð. Björgunin gekk greiðlega og síð- an var gengið í röð yfir eyjuna í foráttu veðri og snjókomu, að bæj- arstæðinu í Flatey. Þar var lagt á ráðin og ákveðið að ferja mann- skapinn út í bátana sem lónuðu fyrir utan. Allt gekk eins og í sögu og mannskapurinn hélt af stað áleiðis til Húsavíkur en björgunar- sveitarmenn héldu til í húsunum á eyjunni og voru í talstöðvarsam- bandi við áhöfnina um borð á strandstað. Þegar til Húsavíkur kom var Kaupfélagið opnað og mannskap- urinn fékk hlý og þurr föt og síðan var matarveisla á hótelinu. Það var komið kvöld og mannskapurinn var útkeyrður eftir þennan örlagaríka dag. Það var síðan um miðjan maí sama ár að skipinu var bjargað af strandstað, þar var samvinna Landhelgisgæslunnar og björgun- arskipsins Lifeline til fyrirmyndar og skipið dregið inn til Akureyrar. M/s Hvassafell sigldi í mörg ár eft- ir þetta strand undir merkjum Sambandsins og er ennþá í sigling- um en aðrir eigendur. Þegar slíkir atburðir eiga sér stað í lífi ungs manns og heilli skipsáhöfn er bjargað á giftusam- legan hátt er þakklæti eitt og sér ekki nóg í hljóði, það þarf að minna okkur Islendinga á það hversu öfl- ugt og fórnfúst starf björgunar- sveitarmenn leggja á sig þegar neyðarkallið kemur. Um leið og greinarhöfundur sendir Björgunarsveitinni Garðari frá Húsavík kærar þakkir fyrir björgunina fyrir 25 árum, skora ég á alla íslendinga að styðja vel við bakið á Slysavarnafélaginu Lands- björg og veita þeim þann stuðning sem þeim sæmir. Það veit enginn hver er næstur í neyð. TÓMAS J. KNÚTSSON, Heiðarholti 14, Keflavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.