Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 27
lausamjöll og blint þessa stundina,
injög blint. „Vatnið í Vatnafjöllum
fylltist af ösku í Heklugosinu 1947
og þá hvarf vatnið. I fjöllunum
eru geysistórir gígar,“ upplýsir
Haukur. Og loksins í gegnum grá-
mann sjáum við hrauntungu úr
Hekiu, lága á að líta, svarta með
snjóföl. Þegar nær kemur rís
hraunjaðarinn upp, sex til sjö
metra á hæð, úfinn, og það rýkur
úr hrauninu. Klukkan er hálffjög-
ur og hér munum við dveljast í
um þrjá ti'ma eða þar til skyggir
og sjá hvort eldglóð lýsir í myrkr-
inu. Fararstjóri segir að við meg-
um ekki fara langt inn í hraunið
og þurfum að gæta okkar, skarp-
ar eggjar séu i hrauninu og auð-
velt að skera sig. Flestir eru orðn-
ir kaffiþurfí en allir fara út fyrst
til að viðra sig og horfa á hraun-
ið.
Glóðin í hrauninu
Þeir fyrstu lialda upp hraunjað-
arinn og aðrir fylgja á eftir.
Hraunið er víða laust og hrynur
úr því. Skömmu síðar finnur
Haukur eldglóð, og við hin kom-
um og rýnum niður um svarta
rauf á gullna glóð. Sumir fara enn
nær og taka myndir. Aðrir hakla
inn í hraunið, ráfa þar um, fáeinir
finna sér upphitað sæti á góðum
stað og sitja þar og upplifa augna-
blikið. Fyrir rúmri viku hvfldi
þetta grjót enn í iðrum Heklu.
Einkum eru það útlendingar, þýsk
stúlka og önnur hollensk, sem
sitja þarna lengi, svo lengi að
smám saman er eins og þær renni
saman við kynjamyndir hraunsins
og verði hluti af því. Ungur mað-
ur frá Singapúr hlær, hann sest
niður en sprettur upp. Sessan er
of heit. Hann hafði næstum villst í
hrauninu, segir hann á ensku við
stúlkurnar. Þær segja mér að þær
hefðu ekki haldið að þær mundu
ganga i hrauninu. Þær voru að
upplifa eitthvað framandi, eitt-
hvað einstakt. Ég vel nokkra
steina til að taka með mér heim
og geng meðfram hraunjaðrinum
og upp á hæð til að fá betri yfir-
sýn. Það er hægt að sjá hvernig
seigfljótandi hraunið hefur runnið
fram og myndað tungu, en annað
sé ég ekki, enga glóð. Þegar niður
er komið eru nokkrar konur að
skoða hraunmola í lófa sér. Elín
Árnadóttir segir að þau hjónin
fari til Kína í aprfl og ætli að gefa
hraunmola, láta útbúa skilti með
áletruninni „Hekla 2000“. Mér
finnst þetta góð hugmynd. Ég
frétti að einn í hópnum hefði
brennt vettlinginn sinn, annar
sviðið skósólana og sá þriðji skor-
ið sig á hrauninu.
Undir stjörnu-
björtum himni
Á meðan við dveljumst þarna
hafa fáeinir bflar og tveir snjós-
leðar rennt að hraunjaðrinum.
Maður og náttúra.
Utía-Heklá <: '
Ráuðöldur
Höskuldsbjal
Lambafell
:í'''Keldur
Hekluhraun 2000
Byggt á-bráðabingðákorti Guðrúnaf Svemsdóttur
Mýrdals■
jökull
Klukkan hálfsjö er snúið heim á
leið. Það hefur fryst og færið er
betra. Á heimleiðinni rekumst við
á bilaðan jeppa og hann er tekinn
í tog niður á Hellu. Þetta er jeppi
þeirrar gerðar sem notaður var í
Persaflóastríðinu, en hann er ekki
gerður fyrir fslenskar aðstæður,
segja menn. Frostið harðnar og
það birtir yfir. I vestri hefur
kvöldsólin tendrað glóð í skýjun-
uin. I bflnum spjalla menn saman
um allt milli himins og jarðar: út-
búnað í jeppuin, rallíkeppnir og
heimasiður, ferðamennsku, upp-
eldismál, rilja upp endurminning-
ar, ræða um kvikmyndagerð o.fl.
o.fl.
Úti er svartamyrkur en ljósin
frá bæjunum við suðurströndina
mynda perluband og stjörnur
tindra á himni. Þegar við ökum
fram hjá Hveragerði er klukkan
farin að ganga ellefu og frostið
komið niður í þrettán gráður.
Norðurljósin bylgjast um himin-
inn. Bfllinn þýtur áfram eftir veg-
inum. Senn munu borgarljósin
slökkva á stjörnum himinsins.
Höfundur er ritari Ferðafélags ís■
lands.
NAMSAÐSTOÐ
fyrtr samrœmdu prófin í 10. bekk
• Stærðfræöi • Enska
• íslenska • Danska
Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19
Nemendahiónnstan sf. ■ ban^Hnirifg 10, Mjódd.
Halðu
hraðan á
með Olivettl prenturum
og faxtækjum
Smith & Norland eykur enn vöruval sitt og
býður nú Olivetti prentara og faxtæki sem
eru afkastamikill og traustur búnaður.
ítölsk hönnun eins og hún gerist best.
Bjóðum einnig gott úrval af Fujitsu Siemens
tölvum.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • Fax 520 3011 • www.sminor.is