Morgunblaðið - 12.03.2000, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Skemmdir
í eldi á
skemmti-
stað
Heimssýningín f Hannover í Þýskalandi
T
Morgunblaðið/Sigrún
Hátíðarkrans var hífður upp á grind íslenska sýningarskálans í Hannover.
6HM fagnar útspili
ríkisstj órnarinnar
BANDALAG háskólamanna,
BHM, fagnar útspili ríkisstjórnar-
innar í skattamálum. Björk Vil-
helmsdóttir, formaður BHM, segir
einkar ánægjulegt að sjá hækkun
persónuafsláttar og minnkun
tengjutengingar barnabóta. Það
eigi eftir að koma lágtekjuhópum
og millitekjuhópum innan BHM af-
skaplega vel.
„Þetta kemur í raun öllu fjöl-
skyldufólki vel og jafnar bilið milli
aldurshópa, sem er gríðarlega mik-
ilvægt. Það er svo mikið af sameig-
inlegum hagsmunum hjá þeim lág-
tekjuhópum sem Flóabandalagið
var að semja fyrir og þessum milli-
tekjuhópum sem við erum með inn-
an okkar raða,“ segir hún.
Björk vinnur sem félagsráðgjafi
hjá Blindrafélaginu og að hennar
mati skiptir einna mestu máli að
greiðslur almannatrygginga eigi
nú að fylgja launaþróun. „Eg þekki
það vel úr mínu starfi að bilið milli
láglaunahópa og þeirra sem fá líf-
eyrisgreiðslur hefur aukist á und-
anförnum árum og því tel ég þetta
frábært skref,“ segir hún. „Sem
launþegahreyfing getur BHM líka
fagnað þessu mjög, því sjúkdómar
og fötlun spyrja hvorki um stétt né
stöðu og okkar fólk lendir jafnt í
því sem aðrir."
Fagnar auknum
réttindum
Björk segir BHM einnig fagna
því að lengja eigi fæðingarorlof,
jafna og samræma réttindi milli
starfsfólks á opinbera og almenna
vinnumarkaðnum. „Við fögnum því
að réttindi færist upp á við. Við
myndum aldrei mótmæla slíku,“
sagði hún.
BHM er með lausa samninga í
enda október nk. Björk segir ljóst
að væntanlegur kjarasamningur
SA og Flóabandalagsins sé stefnu-
markandi fyrir þá samninga sem
eftir koma á þessu ári. „Það er ekki
spurning," segir hún. „Utspil ríkis-
stjórnarinnar eru líka geysilega
mikilvæg í þessu sambandi og eiga
að mínu viti eftir að skipta tals-
verðu máli í allri samningagerð það
sem eftir lifir ársins,“ segir Björk.
Grind ís-
lenska skál-
ans risin
BIJIÐ er að reisa grindina að ís-
lenska sýningarskálanum fyrir
heimssýninguna í Hannover í
Þýskalandi, EXPO 2000, sem hefst
1. júní. I tilefni af því var á föstudag
haldið hóf til að fagna áfanganum.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson
ráðuneytisstjóri bauð gesti vel-
komna og að því loknu mælti Ingi-
mundur Sigfússon sendiherra
nokkur orð. Þá tók Sigríður Sig-
urðardóttir, framkvæmdasfjóri ís-
lenska verkefnisins, til máls, auk
Ingo Herbert, skipulagsstjóra hjá
EXPO 2000 og fulltrúa þýska verk-
takafyrirtækisins.
Skálinn verður blár risakubbur
úr stálgrind, 23x23 metrar að flat-
armáli og 19 metrar á hæð, klædd-
ur bláum plastdúk og glærum þar
yfir, sem vatn rennur af þaki húss-
ins, en vatn er meginþema skálans.
Morgunblaðið/Ásdís
Fjöldi í hæfnisprófi
MIKILL fjöldi þreytti hæfnispróf
Morgunblaðsins fyrir blaðamenn í
húsakynnum Iláskólans í Reykja-
vík í gærmorgun. Prófið felst
einkum í að kanna íslenskukunn-
áttu og felst m.a. í þýðingu texta
úr ensku og dönsku og frétta-
skrifum.
Að sögn Bylgju Birgisdóttur hjá
starfsmannahaldi Morgunblaðsins
var brugðið á það ráð í ár að
auglýsa eftir blaðamönnum f sum-
arafleysingar og það hafi greini-
lega skilað sér. Nálægt 200 um-
sóknir um störf hafi borist, eða
tvöfalt fleiri en í fyrra, og þar af
þreyttu um 150 prófið, 142 í gær
og 7-8, sem staddir eru erlendis
eða úti á landi, í gegnum Netið.
Bylgja sagði að hafist yrði
handa við yfirferð prófsins nú um
helgina, en vegna mikils fjölda
þátttakenda gæti það tekið nokk-
urn tima.
Myndin er tekin rétt áður en
prófið hefst og greinilegt er að
sumir hafa brugðið á það ráð að
renna yfir blaðið sitt fyrir átökin.
Andlát
INGIR.
HELGASON
INGI Ragnar Helga-
son hæstaréttarlög-
maður lést á föstudag í
Reykjavík á 76. aldurs-
ári.
Ingi R. fæddist í
Vestmannaeyjum hinn
29. júlí 1924. Foreldrar
hans voru Helgi Guð-
mundsson sjómaður og
verkamaður og Einar-
ína Eyrún Helgadóttir
verkakona. Ingi ólst
upp í Vestmanneyjum
og Reykjavík, varð
stúdent frá MR 1945;
lauk lagaprófi frá HI
1953 og varð hæstaréttarlögmaður
1964. Hann rak eigin málflutnings-
stofu í Reykjavík 1953-81, varð for-
stjóri Brunabótafélags íslands 1981
og var síðan starfandi stjórnarfor-
maður Vátryggingafélags íslands
frá 1989 og þar til hann lét af störf-
um fyrir aldurs sakir, 1996.
Ingi tók virkan þátt í stjórnmál-
um, fyrst í Háskólanum og síðar með
Sameiningarflokki al-
þýðu - Sósíalista-
flokknum og síðar Al-
þýðubandalaginu.
Hann gegndi fjölmörg-
um trúnaðarstörfum,
var m.a. borgarfulltrúi í
Reykjavík um átta ára
skeið og varaþingmað-
ur snemma á sjöunda
áratugnum. Hann sat í
bankaráði Seðlabank-
ans í á þriðja áratug,
var m.a. formaður
bankaráðs, sat í stjóm
íslenska álfélagsins,
stjórn Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands og í stjórn Krabba-
meinsfélags íslands frá 1991 til
dauðadags. Þá vann Ingi ötullega um
árabil í Samtökum um byggingu
tónlistarhúss, en það málefni var
honum afar hugleikið.
Eftirlifandi eiginkona Inga er
Ragna M. Þorsteins, fv. flugfreyja,
og hann lætur eftir sig fimm upp-
komin börn.
Örlagagyðjum
boðinn dans
► Líftæknifyrirtækið Urður,
Verðandi, Skuld hélt nýverið fund
í Washington til að leggja drög að
vísindaráði fyrirtækisins. /10
Draumurinn
sem rættist
►Jón Þórarinsson, einn af helstu
frumkvöðlum Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands, segir frá tilurð hennar
og mótun gegnum þau 50 ár sem
liðin eru frá stofnun hennar. /20
Foringi var fallinn
► Einar B. Pálsson segir frá
Heklurannsóknum Steinþórs Sig-
urðssonar heitins jarðfræðings en
Einar var í för með Steinþóri er
hann beið bana við Heklu. /24
Tólg í tiltektina
►Viðskiptaviðtalið er við hjónin
Eygló Hjálmarsdóttur og Sigurð
Hólm Sigurðsson í S. Hólm. /30
►l-28
Sjálfstætt fólk
► í blaðinu í dag birtast þrjár
fyrstu myndafrásagnirnar af fimm
þar sem ljósmyndarar blaðsins
segja sögur af íslandingum. Sam-
tímis birtast hliðstæðar sögur í
átta helstu dagblöðum Norður-
landa. /1&10-19
Heimilið er heilagt
► Hjónin Guðjón Pedersen og
Katrín Hall í viðtali en sameigin-
Iega munu þau senn ráða ríkjum í
Borgarleikhúsinu, hann sem leik-
hússtjóri Leikafélags Reykjavíkur
og hún sem listdansstjóri Islenska
dansflokksins. /6
Stafræn framtíð
►Á CeBit-sýningunni í Hannover
á dögunum voru sýnd ýmiss tæki
sem ætla má að fari á almennan
markað áður en langt um líður. /24
FERÐALÖG
► l-4
Sólsetur og sólarupp-
rás í friðsæld
► Siglt á skútu niður Níl. /2
Ekki bara fyrir
göngugarpa
► Ferðafélagið Útivist á 25 ára
afmæli á árinu. /3
D
m0 BILAR
► 1-4
Wagon R+
► Orðinn stærri og kraftmeiri. /2
Reynsluakstur
►BMW 3 Touring - sportlegur
langbakur. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
►l-28
íslenskur harðviður
► Hefur hafið starfrækslu
á Húsavík. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Idag 60
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjörnuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Skoðun 34 Fólk í fréttum 54
Minningar 36 Utv/sjónv. 52,62
Viðhorf 36 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 Dægurtónlist 26b
Bréf til blaðsins 48
INNLENDAR FRÉTTIR:
24-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6