Morgunblaðið - 12.03.2000, Page 6
6 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
fbúar Kaliforníu samþykkja Tillögu 22 um bann við hjónaböndum samkynhneigðra
Heilagl hjónaband o g
réttindi samkynhneigðra
BAKSVIÐ
Fyrir kosningarnar í Kaliforníu 7. mars
voru háværar deilur um Tillögu 22, sem
kveður á um að Kaliforníuríki muni aðeins
viðurkenna hjónaband karls og konu. Ragn-
hildur Sverrisdóttir segir að tillagan hafi
verið samþykkt og ekki sé hægt að túlka
það öðruvísi en sem afturkipp í réttinda-
baráttu samkynhneigðra. Olíklegt sé að
nokkurt ríki Bandaríkjanna muni heimila
hjónabönd samkynhneigðra á næstunni.
AP
Vinkonurnar Deborah Montesinos og Kathleen Gilbert fylgjast með nið-
urstöðum atkvæðagreiðslu um TiIIögu 22 á samkomu andstæðinga til-
lögunnar í San Francisco.
EGAR lq'ósendur í Kali-
forníu gengu að kjörborði
sl. þriðjudag greiddu þeir
ekki eingöngu atkvæði um
hvaða mann þeim litist best á sem
forsetaframbjóðanda komandi
haust, heldur einnig um fjölda ann-
arra atriða. Þeir samþykktu m.a. til-
lögu sem heimilar indíánum að
byggja upp spilavíti í ríkinu, ákváðu
að leggja milljónir í byggingu bóka-
safna og flóðgarða, höfnuðu því að
leggja fé í nýjar rannsóknarstofur
fyrir lögregluna og að fella niður 50
senta toll af hverjum tóbakspakka.
Sú tillaga, sem fékk langmesta um-
fjöllun fyrir kosningamar, var hins
vegar Tillaga 22. Hún kveður á um,
að Kalifomíuríki muni aðeins viður-
kenna hjónaband karls og konu. Til-
lagan var samþykkt með 61% at-
kvæða.
Nú mætti halda, fyrst menn sáu
ástæðu til að láta kjósa um tillögu
með þessu orðalagi að Kaliforníuríki
viðurkenni nú þegar hjónaband
tveggja karla eða tveggja kvenna.
Því fer fjarri. Tillagan er hins vegar
vamagli til að hnykkja á núgildandi
lögum og koma í veg fyrir að homm-
ar og lesbíur, sem hugsanlega fá rétt
til að giftast í einhverju öðra ríki
Bandaríkjanna síðar meir, geti kraf-
ist þess að njóta sömu réttar og hjón
í Kalifomíuríki.
Varnagli þessi var sleginn í kjölfar
margra ára umræðna í Bandaríkjun-
um um hvaða réttindi samkyn-
hneigðir í sambúð eigi að njóta. Kali-
forma hlýtur reyndar að teljast
standa þar nokkuð framarlega. Á
síðasta ári staðfesti ríkisstjórinn,
demókratinn Gray Davis, lög um
skráða sambúð, sem kveða á um að
sambýliskona eða maður samkyn-
hneigðs ríkisstarfsmanns skuli njóta
sömu réttinda í heilbrigðiskerfinu og
væru þær eða þeir í hjónabandi, auk
réttinda til makalífeyris.
Þrátt fyrir aukin réttindi samkyn-
hneigðra í Kalifomíu þá vora það
önnur ríki sem gengu lengra og ýttu
þar með undir að í Kaliforníu var
borin fram og samþykkt Tillaga 22
um að ríkið viðurkenndi eingöngu
hjónaband karls og konu. Hawaii-
búar vora til dæmis nálægt því að
heimila hjónabönd samkynhneigðra,
en það var ríki hinum megin í Banda-
ríkjunum, Vermont, sem ýtti dug-
lega við mönnum. Þar höfðaði sam-
kynhneigt par prófmál og krafðist
þess í nafni mannréttinda að fá að
njóta allra þeirra réttinda, sem
gagnkynhneigð pör nytu. Málið fór
alla leið fyrir Hæstarétt Vermont,
sem kvað upp dóm sinn 20. desem-
ber sl. Rétturinn komst að þeirri nið-
urstöðu, að samkynhneigð pör ættu
að njóta allra sömu réttinda að lög-
um og bera allar sömu skyldur og
gagnkynhneigð pör, enda bryti
Vermontríki gegn mannréttinda-
ákvæðum stjómarskrárinnar með
því að mismuna þegnum sínum að
þessu leyti. Rétturinn tók þó ekki af
skarið um hvort þing ríkisins yrði að
setja lög sem heimiluðu hjónabönd
samkynhneigðra, heldur sagði að
þingið yrði að ráða fram úr þvi hvort
jafnrétti þegnanna yrði náð fram
með þeim hætti eða með skýram lög-
um um skráða sambúð. Flestir telja
líklegt að Vermont finni slíkum rétt-
indum annað heiti en „hjónaband",
enda samþykktu kjósendur þar sams
konar tillögu og Tillögu 22 sl. þriðju-
dag, og þar með er tryggt að önnur
ríki þurfa ekki að taka afstöðu til
réttindanna, þar sem staðbundin
réttindi sambýlisfólks færast ekki á
milli ríkja eins og réttur hjóna.
Hvert ríki
virðir lög hinna
í Bandaríkjunum gildir sú ein-
falda regla, að hvert ríki innan
þeirra er skuldbundið til að virða lög
og reglur næsta ríkis. Fólk, sem
gengur í hjónaband, ættleiðir böm,
skilur eða fremur aðra lögformlega
geminga, verður að geta gengið að
því sem vísu að staða þess sé óbr-
eytt, þótt það aki yfir ríkjamörk.
Kalifomíuríki hefur til dæmis veitt
hjónum frá sumum Suðurríkjanna
sömu réttindi og hefðu þau gengið í
hjónaband þar, jafnvel þótt annað
eða bæði hjóna séu miklu yngri en
lög Kalifomíuríkis tíunda sem lág-
marksaldur til hjónabands. Sama á
við um skyldleika hjóna.
Miðað við þessa reglu hefði Kali-
fornía, sem og önnur ríki Bandaríkj-
anna, líklega þurft að viðurkenna
hjónaband samkynhneigðra frá
Vermont, eða öðram ríkjum sem
settu löggjöf um hjónaband tveggja
einstaklinga af sama kyni. En undir
þann leka var sett með alríkislögum
árið 1996, þar sem kveðið er á um að
hverju ríki sé í sjálfsvald sett hvort
það viðurkenni hjónabönd fólks af
sama kyni. I kjölfarið vora lagðar
fram tillögur í hverju ríkinu á fætur
öðra, þar sem kjósendur tóku af-
stöðu til tillagna um „vemdun hjóna-
bandsins", eins og slíkar tillögur eru
oft nefndar (í Kalifomíu var tillagan
í fyrstu nefnd slíku nafni, en það
þótti of leiðandi og að tilstuðlan dóm-
stóla var heitinu breytt svo það vís-
aði til „takmörkunar á hjónabandi“,
ekki vemdun þess.). Á þriðjudag
varð Kalifomía 31. ríkið til að sam-
þykkja, að hjónaband skuli aðeins
binda karl og konu.
Kalifornía á sjálf að ráða
Höfundur Tillögu 22 er repúblik-
aninn og öldungadeildarþingmaður-
inn Pete Knight. Hann sagði tillög-
una nauðsynlega til að loka glufu í
lögunum, því annars gætu önnur ríki
þvingað íbúa Kalifomíuríki til að við-
urkenna hjónabönd, sem gengju
gegn sannfæringu heimamanna.
„Kaliforníubúar eiga sjálfir að ráða
þvi hvers konar hjónabönd era við-
urkennd innan ríkjamarkanna. Þetta
er okkar ríki og á að vera okkar val,“
sagði Knight, sem kom sér að vísu
undan því að svara spumingu blaða-
manns Sacramento Bee um hvers
vegna hann beitti sér þá ekki á sama
hátt fyrir því að ríkið neitaði að við-
urkenna hjónabönd unglinga eða ná-
skyldra, sem sum önnur ríki leyfðu.
Knight sagði einnig að viðurkenn-
ing á hjónaböndum samkynhneigðra
myndi senda röng skilaboð til bam-
anna, sem ættu að erfa landið.
Einn talsmanna andstæðinga til-
lögunnar, Donald G. Brown, prófast-
ur Ensku biskupakirkjunnar í
Sacramento, sagði tillöguna fásinnu
og eingöngu fram setta vegna for-
dóma í garð samkynhneigðra.
Hjónabönd þeirra væra ekki leyfð í
ríkinu, en tillagan væri eingöngu til
þess ætluð að Kalifornía gengi gegn
þeirri fomu reglu, að virða lög ann-
arra ríkja. Reyndar væri tillagan
jafnframt tímaskekkja, því litlar lík-
ur væra á að nokkurt ríki heimilaði
hjónabönd samkynhneigðra á næst-
unni.
Prófasturinn sagði það líka al-
rangt, að samþykki tillögunnar hefði
engin áhrif á réttarstöðu samkyn-
hneigðra. Hann tíundaði fjölmörg
dæmi um annað, þar sem sams kon-
ar tillögur hefði verið samþykktar
sem lög. í Idaho og Pennsylvaníu
hefðu dómstólar til dæmis skýlt sér á
bakvið sambærileg ákvæði, þegar
þeir höfnuðu beiðni samkynhneigðs
foreldris um stjúpættleiðingu á
barni sambýlings. í Flórída, Illinois,
Virginíu og Washington hefði fólk,
sem barðist gegn auknum réttindum
samkynhneigðra para, vísað til sam-
bærilegrar lagasetningar. Loks
nefndi hann svo til sögunnar, að
Pittsburgh-háskóli hefði neitað að
veita sambýlisfólki samkynhneigðra
starfsmanna sinna sömu réttindi til
sjúkratrygginga og mökum annarra
starfsmanna, á þeirri forsendu að
það stríddi gegn anda nýsamþykktr-
ar tillögu þar, sem var sama efnis og
Tillaga 22.
Misheilög hjónabönd
Það verður að viðurkennast að ein
helsta upphrópun fylgismanna til-
lögunnar, um að beita þyrfti öllum
ráðum í baráttunni gegn hnignun
hinnar heilögu stofnunar, hjóna-
bandsins, hljómaði sérkennilegar
síðustu dagana fyrir kosningarnar
en oft áður. Þremur vikum fyrir
kosningar sýndi ABC-sjónvarps-
stöðin þátt, þar sem 50 konur keppt-
ust um hylli milljónamærings. Hann
var hulinn sjónum þeiira og áhorf-
enda, en skoðaði stúlkurnar í krók
og kring, á baðfötum jafnt sem ball-
kjólum, ættingjar hans spurðu stúlk-
uraar spjöranum úr og loks valdi
hann eina, sem honum leist best á.
Þá snaraði hann sér fram fyrir
myndavélarnar, kraup á kné, bað
hennar, hinki’aði eitt auglýsingahlé
og giftist henni með pompi og pragt
á sviðinu.
Giftingarathöfnin, í sjónvarpsal í
Las Vegas í Nevadaríki, var sýnd í
sjónvarpi í Kalifomíu jafnt sem ann-
ars staðar. Það fór þó lítið fyrir upp-
hrópunum um að illa væri farið með
hina heilugu stofnun, hjónabandið.
Ef hjónakornin hefðu kosið að setj-
ast að í Kalifomíuríki, þá hefðu þau
að sjálfsögðu notið allra sömu rétt-
inda þar og í Nevada.
Andstæðingar Tillögu 22 bentu á,
að ef hjónabandið væri á hverfanda
hveli, þá væri erfitt að kenna nokkr-
um öðram um það en gagnkyn-
hneigðum. Það væri jú fólkið sem
hefði komið þessu bandi í núverandi
stöðu. Ef þeim væri jafn annt um
hjónabandið og þeir segðu, þá ættu
þeir fremur að beita sér fyrir því að
banna skilnaði og framhjáhald með
lögum.
Það hleypti enn fjöri í deiluna þeg-
ar lagaprófessor við Stanford-há-
skóla, Michael Wald, gaf út skýrslu
um ætluð áhrif samþykkis tillögunn-
ar á öll þau heimili, þar sem böm búa
hjá samkynhneigðum foreldram.
Hann áætlaði að um 100 þúsund
böm í Kalifomíu byggju hjá sam-
kynhneigðum foreldram og að í rík-
inu væra um 400 þúsund samkyn-
hneigð pör. Wald vísaði til kannanna,
sem sýna að böm sem alin era upp á
heimilum samkynhneigðra era síst
verr undir lífið búin en börn gagn-
kynhneigðra.
Trúarbrögð og togstreita
Trúarbrögð komu að sjálfsögðu
mjög við sögu í deilunum um Tillögu
22. Mormónar beittu sér til dæmis
mjög fyrir samþykki tillögunnar og
katólska kirkjan lagði fram há fjár-
framlög til þeirrar baráttu, á meðan
mótmælendur og ýmsir aðrir, sér-
staklega þó gyðingar, vora harðh
andstæðingar tillögunnar.
Þessi togstreita endurspeglaðist
auðvitað hjá þeim hópum sem kusu
um tillöguna, til dæmis vora 67%
kjósenda af rómönsk-amerískum
uppruna fylgjandi tillögunni, en
katólska kirkjan hefur sterk ítök í
þeirra hópi. Þessh Kalifomíubúar
era sífellt að verða mikilvægari hóp-
ur kjósenda í ríkinu og telja nú um
þriðjung allra kjósenda þar. Þeh era
íhaldssamh að mörgu leyti, til dæm-
is harðir andstæðingar fóstureyð-
inga og menning þeirra á rætur í
hinni hefðbundnu kjarnafjölskyldu.
Það væri því freistandi að álíta sem
svo, að þeh féllu ágætlega inn í
Repúblikanaflokkinn, ef ekki væri sú
staðreynd, að þeir fylgja frekar
demókrötum að málum varðandi til
dæmis sjúkratiyggingar og efthlit
með byssueign.
Annar hópur kjósenda er auðvitað
samkynhneigðh sjálfir. Samkvæmt
áætlunum Demókrataflokksins era
samkynhneigðir um 10% af öllum
kjósendum í Kaliforníu og um 15-
20% af stuðningsmönnum Demó-
krataflokksins. Forsetaframbjóð-
endurnh og demókratarnh A1 Gore
og Bill Bradley tipluðu varfærnis-
lega í kringum þennan hóp fyrir
kosningar með því að lýsa því yfir, að
þeh væra algjörlega mótfallnh til-
lögunni, því hún myndi valda sund-
urlyndi, en hins vegar væra þeh ekki
á jiví að samkynhneigðh fengju að
ganga í hjónaband. Um 86%
repúblikana greiddu atkvæði með
Tillögu 22, en aðeins um þriðjungur
demókrata. Eldri kjósendur vora því
frekar samþykkh að leggja takmörk
við hjónabandinu, en andstæðingar
tillögunnar sögðu, efth að úrslitin
lágu fyrir, að þeh gætu að minnsta
kosti huggað sig við, að yngri kjós-
endur hefðu verið henni andvígh. Og
unga fólkið mun erfa landið.
Réttindasamtök samkynhneigðra
í Kaliforníu vinna nú að því að safna
nægilega mörgum undhskriftum til
að koma nýrri tillögu á framfæri í
næstu kosningum í ríkinu, í nóvem-
ber. í þeirri tillögu ætla þeh að
leggja til að hjónabönd samkyn-
hneigðra verði í lög leidd. Nái sú til-
laga samþykki, sem hlýtur að vera
ólíklegt miðað við úrslitin á þriðju-
dag, þá fellh hún Tillögu 22 úr gildi.
Frábært verk um
merkan mann
„Frábært verk."
Einar Már Jónsson, THH 1.2000
Ástæða er til að fagna því að um
svo merkilegan mann sé nú til
ítarleg og skemmtileg ævisaga."
Ármann Jakobsson, DV
„Ein besta íslenska ævisaga
sem ég hef lesið."
Kolbrún Bergþórsdóttir, Oagur
Mál og menningl
malogmenning.isl
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500