Morgunblaðið - 12.03.2000, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 21
LISTIR
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN
Fyrstu tónleikar
fimmtudaginn 9. marz 1950 kl. 7.15 síðdegis
í Austurbæjarbíó
Stjórnandi
Robtr? Abraham
Efnisskrd:
BEETHOVEN Egmont-forleikurinn, op. 84
BÉLA BARTÓK Sjö rúmenskir þjóðdansar
HAYDN - Divertimento í B-dúr fyrir fimm
blásturshl jóðfæri
1. Allegro con spirito
2. Andante quasi Alegrctto
3. Menuetto
4. Rondo — Alegretto
Willy Bohring, flauta — Paul Pudelski, óbó
Egill Jónsson, klarínett — Adolf Kem, fagott
Alois Spach, hom
SCHUBERT
Sinfónia nr. 8 í h-moll
(„Ófullgerða hljómkviðan“)
1. Allegro moderato
2. Adante con moto
Efnisskrá frá fyrstu tónleikum Sinfóni'uhljómsveitar fslands í Austurbæjarbíói, fimmtudaginn 9. mars 1950.
sinnum. Næsta viðfangsefni var svo
Carmen sem aldrei hafði yerið sýnd
hér og við fengum Stefán íslandi frá
Kaupmannahöfn til að syngja Don
José og ameríska Carmen sem hét
Gloria Lane. Hún var ákaflega
sjarmerandi kona og frábær söng-
kona og bókstaflega lagði Reykvík-
inga að fótum sér. Tónleikarnir
gengu svo vel um vorið að við urðum
að taka þá upp aftur um haustið.
Þetta urðu, held ég, einar tólf upp-
færslur og er það líklega met enn í
dag. Tónleikar á þessum tíma voru á
þriggja vikna fresti eða um það bil
tólf tónleikar á ári. Þegar hljóm-
sveitin féll undir útvarpið aftur árið
1961 þá lögðust niður bæði ferðirnar
út á land og óperuuppfærslunar og
svo virtist sem einungis væri gert
það sem bráðnauðsynlegt þótti. Þeir
föstu stjórnendur sem ráðnir voru á
þessum árum voru sumir heldur at-
kvæðalitlir. Þegar lögin voru sett um
hljómsveitina árið 1982 kom svo
kippur í starfsemina aftur.“
Allt upp á við
Árið 1982 voru sett lög á Alþingi
um Sinfóníuhljómsveit Islands og
hún gerð að sjálfstæðri stofnun sem
rekin er sameiginlega af Ríkissjóði,
Ríkisútvarpinu, Borgarsjóði Reykja-
víkur og Bæjarsjóði Seltjarnarness.
Jón segir að eftir þetta hafi allt
stefnt upp á við. Til vitnis um það sé
velgengni sveitarinnar ytra og lof-
samlegir dómar um leik hennar í
virtum erlendum blöðum og tímarit-
um. Jón minnir á að nú höfum við á
að skipa einvala liði hljóðfæraleikara
og að Sinfóníuhljómsveitin hafi átt
því láni að fagna að hafa fengið til
liðs við sig marga góða stjómendur.
„Frá fyrri árum er sérstök ástæða til
að nefna Olav Kielland og Bohdan
Wodiczko að ólgeymdum heima-
mönnunum Róbert A. Ottóssyni og
dr. Victor Urbancic. Nokkrir af
hljómsveitarstjórum okkar í seinni
tíð hafa einnig unnið giftudrjúgt
starf. Jean-Pierre Jacquillat sem var
hér um árabil var prýðisstjómandi
þó að hann væri kannski of mikið
ljúfmenni til að vera mjög aðgangs-
harður hljómsveitarstjóri. Engu að
síður skilaði hann mjög góðum
árangri og fór til dæmis með hljóm-
sveitina í vel heppnaða tónleikaferð
til Frakklands árið 1985. Af einstök-
um mönnum á síðustu tíu til tólf ár-
um ber fyrstan að nefna Petri Sakari
sem tvívegis hefur verið hér aðal-
stjórnandi á þessum tíma og svo
landa hans Osmo Vanská. Ég lít svo
á að það sé fyrst og fremst Petri sem
hefur slípað hljómsveitina til og gert
hana að því hljóðfæri sem hún er í
dag. Á hinn bóginn verður að segjast
að Osmo Vánská hafði kannski
sterkari nærvera á sviðinu og það
var hann sem sló í gegn í Banda-
ríkjunum árið 1996. En grunninn
hafði Petri lagt. Hann er mikill
vinnuþjarkur og nákvæmnismaður
og þar að auki iðinn við að flytja ís-
lenska tónlist, sem því miður er
meira en hægt er að segja um Rico
Saccani sem nú er. Saccani er mjög
glæsilegur stjómandi og hefur vakið
sérstaka athygli fyrir það að stjórna
alltaf blaðalaust en fyrir vikið er
kannski verkefnalisti hans þrengri
en ella væri og hann ef til vill síður
fús til að takast á við ný verkefni."
Jón segir að skömmu eftir að lögin
vora sett um hljómsveitina árið 1982
hafi verið gerð út nefnd til að kanna
kjör hljóðfæraleikara á íslandi og í
nálægum löndum. í kjölfarið á þessu
hafi kjör hljóðfæraleikaranna verið
endurskoðuð og bætt. „Síðan hefur
þetta því miður þróast á þá leið að
þegar aðrir hafa fengið kauphækk-
anir þá hefur oft verið verslað með
vinnuskyldu hljóðfæraleikara, þ.e.
að í staðinn fyrir að hækka launin þá
hefur vinnuskyldan verið skert eða
einhverjar takmarkanir settar á sem
hafa þrengt mjög að starfsemi
hljómsveitarinnar. Framtíðarnauð-
syn er því að rýmka kjör hljóðfæra-
leikara til þess að þeir eigi ekki allt
líf sitt undir því að vinna jafnmikla
eða meiri aukavinnu og aðalstarfið.“
Það sem einnig hefur haft mikil áhrif
á velgengni hljómsveitarinnar að
mati Jóns er það góða starfsfólk sem
hún hefur haft á að skipa. Hann
nefnir konsertmeistara hljómsveit-
arinnar, þau Björn Ólafsson, Jón
Sen, Guðnýju Guðmundsdóttur og
Sigrúnu Eðvaldsdóttur, og segir það
ómetanlegt að hafa slíkt fólk í for-
ystu. „Hljómsveitin hefur alla tíð
verið heppin með starfsfólk og það
hefur unnið hljómsveitinni af trú-
mennsku og þeirri bjartsýni sem
nauðsynleg er í þessu starfi. Það á
ekki síður við um þá sem stjórna
daglegum rekstri hljómsveitarinnar.
Ég vænti mikils af störfum núver-
andi framkvæmdastjóra, Þrastar
Ólafssonar. Hann hefur næman
skilning á þörfum og hagsmunun
hljómsveitarinnar, þó að hann sé
ekki tónlistarmaður að mennt, og
gengur heilshugar að starfi sínu.
Reynslan hefur sýnt að reyndir og
hagsýnir athafnamenn sem komið
hafa að stjóm hljómsveitarinnar
hafa oft dugað henni býsna vel.“
Elstu baráttumenn landsins um
sterka og öfluga íslenska sinfón-
íuhljómsveit hljóta að vera stoltir á
þessum fimmtíu ára tímamótum
hljómsveitarinnar. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands varð ekki einungis að
veraleika sem eitt helsta aflið í ís-
lensku menningarlífi heldur hefur
hún nú að auki haslað sér völl utan
landsteinanna. „Við sem voram að
brölta þetta í byrjun fullyrtum það
að íslensk sinfóníuhljómsveit yrði
máttarstólpi tónlistarlífs í landinu.
Ég held að við höfum ekki gert okk-
ur vonir um miklu meira. En svo ger-
ist þetta hvorttveggja í senn, okkar
draumur rætist og um leið kemur í
Ijós að hljómsveitin á líka erindi til
mun stærri áheyrendahóps en hér er
að finna. Þetta ævintýri hefur því
farið fram úr okkar glæstustu von-
um,“ segir Jón Þórarinsson.
Ein af myndunum á sýningunni eftir EUiott Erwitt.
Ljósmyndir
um kaffi
SÝNING á ljósmyndum úr
almanaki í'talska kaffiframleið-
andans Lavazza fyrir árið 2000
hefst í húsakynnum Sævars
Karls í Bankastræti um helg-
ina.
Lavazza hefur um nokkurra
ára bil gefið út almanak með
ljósmyndum kunnra alþjóð-
legra listamanna, sem hafa það
að markmiði að vegsama kaffi.
Að þessu sinni hefur Lavazza
fengið til liðs við sig ljósmynd-
arann Elliott Erwitt, sem er af
rússneskum ættum, en fæddur
í París árið 1928. Erwitt hefur
getið sér gott orð fyrir frétta-
og heimildaljósmyndun, m.a.
innan hinnar virtu ljósmynda-
stofu Magnum Photos.
Almanak Lavazza fyrir árið
2000 hefur vakið mikla athygli
innan og utan Italíu, þar sem
það var fyrst birt í lok síðasta
árs.
I almanakinu leitast Erwitt
við að sýna hvernig kaffi tvinn-
ar saman líf fjölskyldna núti'm-
ans, hann leitast við að sýna
flókin sambönd og mismunandi
fjölskylduform, augnablik þar
sem ólíkar kringumstæður
fólks birtast þegar það nýtur
kaffis.
Ljósmyndirnar verða til sýn-
is hjá Sævari Karli til 10. apríl
næstkomandi.
LANGAR ÞIGAÐ
NÁLGAST VERKEFNIN FRÁ
NýRRI HLIÐ?
1.040.161kr. ónVSK.
Rekstrarleigusamningur
Engin útborgun
22.709 kr. 6 mánuði
Fjármögnunarleíga
25% útborgun 260.040 kr.
15.982 kr. á mánuði
Rekstrarleiga er miðuð er við 24 mánuði og 20.000 km akstur á ári, f erlendri myntkröfu.
Fjármögnunarleiga er miðuð við 60 mánuði og 25% útborgun, greiðslur eru án vsk. Vsk leggst
ofan á leigugreiðslur en viðkomandi faer hann endurgreiddan ef hann er með skattskyldan rekstur.
Allt verð er án vsk.
ATVINNUBILAR
FyRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Grjóthálsi 1
Sfmi 575 1200
Söludeild 575 1225
RENAULT