Morgunblaðið - 12.03.2000, Síða 31

Morgunblaðið - 12.03.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 31 Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Dr. Ragnar Jóhannsson, forstöðumaður efnagreininga á Keldnahoiti hefur unnið að þróun efnanna frá upphafi. Það kemur fram í máli Sigurðar að verð á Undra-hreinsiefnum sé lægra en á sambærilegum, vistvænum hreinsiefnum og svipað og á hreinsi- vörum sem ekki eru eins vistvænar. Markaðsstörf að hefjast Salan á hreinsiefnunum hefur gengið vel, að sögn Sigurðar, síðan hún fór af stað sumarið 1998. „Reyndar dalaði salan eitthvað með- an á húsbyggingunni stóð en er að taka við sér aftur. Það er fyrst núna sem eiginlegt markaðsstarf er að fara af stað. Það á eftir að kynna efn- ið bæði innanlands og utan. Salan á hreinsiefnunum hefur einkum verið í mínum höndum," segir Sigurður. „Fram að þessu hafa tjöruhreinsir- inn og alhliða hreinsilögurinn fengist á bensínstöðvum Olís um allt land. En penslasápan er seld í öllum máln- ingarvöruverslunum. Línusápan fæst hjá Essó og Olís og veiðarfæra- versluninni Dímon.“ Fjármagna fyrirtækið að mestu sjálf Sigurður er spurður að því hvern- ig fjármögnun fyrirtækisins hafi ver- ið háttað. „í upphafi fékk ég styrk frá Byggðasjóði, Frumkvöðlasjóði, Ný- sköpunarsjóði atvinnulífsins og úr Framleiðslusjóði landbúnaðarins og námu þessir styrkir alls um 10% af þeim kostnaði sem nú þegar hefur verið lagður í fyrirtækið. Að öðru leyti hef ég fjármagnað fyrirtækið með persónulegum lánum og lausa- fé. Meðan aðrir hafa verið að kaupa sér stóra jeppa lagði ég allt mitt í fyrirtækið,“ segir hann. Telur hann að salan á innanlands- markaði dugi til að standa straum af þeim kostnaði sem lagður hefur ver- ið í fyrirtækið? „Til þess að renna styrkari stoðum undir fyrirtækið þyrfti útflutningur að koma til. Ég hef mikla trú á að þessar vörur eigi eftir að seljast vel, bæði hér inn- anlands og erlendis." Sigurður segist bjartsýnn á fram- tíðina. „Áhugi fyrir umhverfisvernd er að aukast hér á landi og um allan hinn vestræna heim. Nú hugsar fólk mun meira um að þau efni sem það er að vinna með séu umhverfisvæn. Farið er að gera auknar kröfur til hreinsiefna og í auknum mæli er ver- ið að fjarlægja af markaðnum hreinsiefni sem innihalda skaðleg efni. Það á því eftir að verða gott pláss fyrir okkar vörur í nánustu framtíð." Jónssonar, framkvæmdastjóra fyrir- tækisins, hefur það reynst frábær- lega vel en Kristinn er þekktur fyrir kröfuhörku í hreinlæti." Línusápa eykur fiskiríið Undra-línusápa er nýjasta afurðin frá fyrirtækinu S. Hólm. Línusápan er notuð til þvotta á fiskilínu. „011 óhreinindi nást mjög vel úr línunni og hún verður mýkri og meðfæri- legri,“ segir Sigurður. „Það sem ger- ir línusápuna hvað áhugaverðasta er að efnið skilur eftir fitu á línunni sem síðar myndar brák á sjónum og í hana sækir fiskurinn. Þeir sem hafa gert tilraunir með línusápuna full- yrða að í sumum tilfellum hafi afli aukist um allt að helming eftir Unu- þvottinn. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins gerði viðamikla tilraun með hreinsi- getu þessara efna í matvælaiðnaði og var rækjuvinnsla valin þar sem auð- velt var að fylgjast með gerlafjölda og þar með þrifum í þeim iðnaði. Rækjan er soðin en þá kemur hún nánast gerlalaus inn í vinnslulínuna en safnar upp gerlum á leið í pakkn- ingu. Gerðar voru svokallaðar ATP- mælingar á búnaði sem er mæli- kvarði á fjölda baktería á yfirborði og einnig var framkvæmd gerlataln- ing á rækju úr pakkningu og stóð rannsóknin um 5 vikna skeið. Einnig voru gerðar prófanir á ætingu á áli og stáli með notkun Undra sam- kvæmt ASTM-iðnaðarstaðli í Banda- ríkjunum sem mælir tæringu á málmum. Eru að þróa vistvænt flugvélahreinsiefni Niðurstaðan úr þessum rannsókn- um sýndi að gerlafjöldi var langt undir leyfilegu marki, sem sýnir að efnið er mjög virkt, og það kom einn- ig í ljós að það skaðar ekki þessa málma.“ Sigurður segir að verið sé að þróa ný efni til að setja á markaðinn. „Þar á meðal er vistvænt flugvélahreinsi- efni sem ekki er til á markaðnum nú. Hér er um sama grunnefni að ræða og í hinum hreinsiefnunum nema hvað við erum að fínstilla eiginleik- ana svo þeir standist hinar ströngu kröfur sem gerðar eru til hreinsiefna fyrir flugvélar.“ Fermingarmyndatökur Svipmyndir Hverfisgötu 18, sími 552 2690. Flugstöð Leifs Eiríkssonar • Sími: 425 Ert 1?^ a Gleraugnaverslun á fríhafnarsvæðinu Þú sparar 20r< -401'( i kaupir gleruugu hjá okkur. z' tekur aðeins 15 mínútur utbua bil a}gen£u.stu gleraugu. Þjónustu og ábyrgðaraðilar eru: Gleraugnaverslunin í Mjódd • Gleraugnaverslun Keflavíkur • Gleraugnaverslun Suðurlands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.