Morgunblaðið - 12.03.2000, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
KLÚÐUR í vörninni er
oftar en ekki báðum spil-
urum að kenna. Hér virð-
ist vestur einn um sökina,
en þegar betur er að gáð
er sök austurs ekki minni.
Suður gefur; allir á
hættu. Tvímenningur.
Vestur Norður * G109 ¥ KG7 * D95 * 8654 Austur
* K43 A 62
v A1053 v D9842
♦ 10 ♦ Á872
A KG973 A D10
Suður A ÁD875 r 6 ♦ KG643 A Á2
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 spaðar
Pass 2 spaðar Pass 3 spaðar!
Pass Pass Pass
Hækkun suðurs í þrjá
spaða er taktísk sögn, því
hann vill ekki gera and-
stæðingunum auðvelt um
vik að komast inn í sagnir.
Eins og spilið liggur vinn-
ast fjögur hjörtu í AV, en
þangað er nánast vonlaust
að komast eftir þessa þró-
un sagna.
En við ætlum að skoða
vörnina. Vestur kom út
með einspilið í tígli og
austur tók með ás og spil-
aði tvistinum um hæl til að
biðja um lauf. Vestur
trompaði og spilaði laufl.
Sagnhafi tók með ás og
trompaði tvisvar út. Vest-
ur tók á laufkóng og nú
var vörnin komin með
fjóra slagi. Með hjartaás-
inn á hendinni sá vestur að
spilið færi a.m.k. einn nið-
ur, en þetta var tvímenn-
ingur, svo það var mikil-
vægt að reyna við 200 fyrir
tvo niður. Hann spilaði
laufgosa og sagnhafl
trompaði. Nú kom hjarta
að blindum, sem vestur
dúkkaði. En sagnhafl
stakk upp kóng og vann
sitt spil.
Vestur var vissulega
gráðugur, en austur átti að
sjá þessa hættu fyrir og
henda hjartadrottningu í
laufgosann! Af hverju? Jú,
austur veit um fimmlit í
tígli á hendi sagnhafa, svo
það er einfalt fyrir hann að
reikna út að suður getur
ekki átt nema eitt hjarta.
SKÁK
Uinsjóii llelgi Áss
Giélarssoii
Svartur á leik.
Tékkneski stórmeistar-
inn Vlastimil Babula
(2.573) hafði svart í með-
fylgjandi stöðu gegn þýska
stórmeistaranum Stefan
Kindermann (2.528) í
þýsku úrvalsdeildinni fyrir
skemmstu. 49. - Bxh3! 50.
Rxh3 - Del+ 51. Bfl Hvit-
ur verður mát eftir 51.
Kh2 - Bg3 51. d2 og hvítur
gafst upp.
Árnað heilla
ÁRA afmæli. Sextug-
ur verður nk. þriðju-
dag, 14. mars, Gunnar Fel-
ixson forsijóri, Hellulandi
6, Reylqavík. Hann og eig-
inkona hans, Hilda Guð-
mundsdóttir, taka á móti
gestum á afmælisdaginn á
milh kl. 17 og 20 á Grand
Hótel Reykjavik, við Sigtún.
ÁRA afmæli. í dag,
sunnudaginn 12.
mars, verður sextug Elín
Pótursdóttir hjúkrunar-
fræðingur, Krummahólum
47, Reykjavfk. Ehn er að
heiman á afmælisdaginn.
Með morgunkaffinu
Sjáðu hvað hann er
góður nieð sig, og
ekki einu sinni með
hring í nefínu.
Finnst þér þetta ekki
einum of hátt verð?
COSPER
i /
Þú ert áreiðanlega þreyttur og úttaugaður, en hvað
ertu að gera á fótum á þessum tíma sólarhrings?
LJÓÐABRÖT
í MINNINGU SKÁLDS
Sem vatn, er sytrar gegnum gisin þök
til gólfs, í strjálum dropum, farvegslaust,
sem dapur ferill fugls í þröngri vök,
sem fis, er þyrla vindar undir haust,
var líf þitt, bróðir, vega og átta villt,
í veröld, sem þér fáa geisla bar.
Var stríð mitt háð til einskis ógnum fyllt?
í örvænting þú spyrð og hlýtur svar:
Að eiga draum í dagsins tryllta gný
og djúpa þrá til söngs í hljóðum skóg,
að eiga sýn til sólar gegnum ský
og sorg í hjarta - það er skáldi nóg.
Kristján frá Djúpalæk.
SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 51
STJ ÖRJVUSPÁ
eftir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert kjarkmikill ogsækir
fast það sem þú vilt. Gættu
þess bara að særa engan í
atganginum.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Það kemur að því að yfirmenn
þínir taka eftir framlagi þínu.
Haltu samt hógværð þinni,
því hún er ásamt dugnaðinum
þitt mesta aðalsmerki.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Enn og aftur verður þú að
ganga fram fyrir skjöldu til
þess að koma málum á hreint.
Það er út af fyrir sig í lagi, þvf
þú ert með allt á hreinu.
Tvíburar ^
(21. maí - 20. júní) AA
Þegar mistök verða, er ekki
um annað að ræða en kyngja
þeim, læra og halda áfram.
Það versta er að stinga höfð-
inu í sandinn; það breytir
engu.
Krabbi
(21. júní - 22. júh')
Nú er tækifærið að ná th
þeirra, sem hingað til hafa
ekki viljað hlusta á skoðanir
þínar. Settu þær þannig fram,
að enginn þurfí að efast um
þig-_____________________
Ljón
(23. júh' - 22. ágúst)
Það er stundum erfitt að
skera úr um hvor er betri
brúnn eða rauður. En með
heiðarieikann að leiðarljósi á
ekki að vera erfitt að ákveða
sig._____________________
Meyja j*
(23. ágúst - 22. sept.) <DSk
Þegar kemur að krossgötum,
er sjálfsagt að staldra við og
velja framhaldið af kost-
gæfni. Sú leið, sem rétt er,
liggur ekki alltaf í augum
uppi-
(23. sept. - 22. október)
Mundu að taka allar áskoran-
ir alvarlega. Finnist þér eitt-
hvað ekki þess virði að líta við
því, þá kemur það þér í koll,
þóttsíðarverði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu ekki ganga yfir þig. Þú
átt þinn rétt eins og aðrir og
verður að verja hann, þegar
með þarf. Það er eina leiðin til
þess að lifa farsællega.
Bogmaður
(22. nóv.-21. des.) ftSr
Láttu ekki leiðindin ná tökum
á þér, þótt þér finnist fátt
spennandi vera að gerast hjá
þér í augnablikinu. Það breyt-
ist áður en þú veizt af.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar)
Gættu þess að ganga ekki svo
hart fram, að þú gefir sjálfum
þér aldrei grið. Ekkert er
þess virði að fórna því heilsu
sinni og lífi.
Vatnsberi f ,
(20. jan.r -18. febr.)
Taktu aðfinnslum með auð-
mýkt, þeim sem þú veizt að
eiga rétt á sér! Það má læra af
þeim og þú ert rétti maðurinn
til svo skynsamlegra við-
bragða.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) W'
Nú máttu beinlínis ekki
byrgja sköpunarþrána lengur
inni. Hafðu verk þín fyrir þig,
ef þér finnst það betra, en
umfram allt; byrjaðu!
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Reglur kterleikuns
„ Orders ofLove "
Losað um dulið orkuflæði sem veldur sársauka í fjölskyldum,
samböndum og í lífi einstaklinga með samvirkniaðferð Berts
Hellingers sem hann kallar „Orders og Love“.
Það er kærleikur barnsins og hollusta sem bindur það við sitt kerfi (fjölskylduna)
upp á gott og vont. T.d. sem barn reynum við að koma í staðinn fyrir þá sem
hafa gleymst, verið útilokaðir eða forsmáðir.
Karen Hedley, löggiltur meðferðaraðili, heldur námskeið dagana 25. og 26. mars
í Bolholti 4, en hún hefur unnið eftir aðferðum Hellingers sl. 7 ár.
Hún heldur fyrirlestur í Norræna húsinu mánudaginn 20. mars kl. 20.
Upplýsingar og skráning í síma 554 4904 eftir kl. 19. Farsími 696 3349.
Netfang skrugga@strik.is
Að gera erfitt hjónaband gott
og gott hjónaband betra
Námskeiö fyrir hjón og sambýlisfólk
um samskipti, tjáskipti og tilfinningar
veröur haldið föstudaginn 31. mars
til sunnudagsins 2. apríl 2000
í kórkjailara Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar í síma 553 8800.
Stefdn Jóhannsson,
MA, jjölskyldurdðgjafi
Taktu mér eins og ág er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Þ R R 5EM#HJHRTflfl 51ER
P P l Ý S I N 6 II 5 I M I SBB 77BB SKRIFST0FU5ÍMI S 6 B 92BI
Mánudagsspjall
í hverfinu
A morgun
í Breiðholti
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða
með viðtalstíma í hverfum borgarinnar
næstu mánudaga.
Á morgun verða
Geir H. Haarde fjármálaráðherra og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi
í Breiðholti, Álfabakka 14a,
kl. 17.15-19.15.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla Reykvíkinga
til að ræða málin og skiptast á skoðunum við
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hafðu áhrif og láttu
þínar skoðanir heyrast.
Næsti mánudagsspjallfundur:
Mánudagur 20. mars
kl. 17.15-19.15 í vesturborginni, Kaffi Reykjavík.
Vörður - Fulitrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavfk
www.xd.ís
sími 515 1700
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
U
d