Morgunblaðið - 12.03.2000, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLJJNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
SUNNUDAGUR 12. MARS 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Þú smellir og seðillinn er greiddur
Signrjón Sighvatsson
Kaupir
Hellisfjörð
*og Arney á
Breiðafirði
SIGURJÓN Sighvatsson gekk i gær
frá kaupum á Sjónvarpshúsinu við
Laugaveg fyrir 280 milljónir króna,
en kaupaðili ásamt honum er Ofan-
leiti ehf. Sigurjón undirritaði kaup-
samninginn í Sjónvarpshúsinu í gær-
morgun.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að Sigurjón hafi einnig fest kaup á
eyjunni Arney á Breiðafirði og Hell-
isfirði sem er milli Reyðarfjarðar og
Norðfjarðar á Austfjörðum. Sigur-
jón vildi ekki tjá sig um þessi við-
skipti þegar Morgunblaðið hafði
'^tmband við hann í gær.
HUGA þarf betur að nýtingu svokall-
aðra aukaafurða úr sjávarfangi, enda
möguleikar til aukinnar verðmæta-
sköpunar verulegir og víða sóknar-
tækifæri. Þannig mætti auka verð-
mæti lýsisframleiðslu hérlendis um 7
milljarða króna árlega. Þetta kom
fi-am á fundi um aukaafurðir í sjávar-
útvegi sem haldinn var á föstudag.
Síðasta áratuginn hefur sífellt verið
lögð meiri áhersla á að auka virði
fiskaflans hérlendis. Afurðir sem áður
voru unnar í verðlitlar afurðir eða
jafnvel hent, eru nú verðmæt og vin-
sæl neysluvara. Útflutningsverðmæti
aukaaftu-ða hérlendis var árið 1998
um 3,8 milljarðar króna og ætla má að
verðmætið hafi aukist talsvert á síð-
asta ári. Þannig nam verðmæti auka-
afurða sem unnar voru hjá Útgerðar-
félagi Akm'eyringa á síðasta ári um 45
milljónum króna sem er nærri þriðj-
ungur af hagnaði félagsins í fyrra.
A fundi sem Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins stóð fyrir um fullnýtingu
sjávaraflans kom fram að enn eru þó
ótal sóknartækifæri til að auka verð-
mæti fiskaflans enn ffekar. Sigurjón
Arason, yfirverkfræðingur Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins, sagði
á fundinum að hérlendis væru t.d.
ýmsar vannýttar tegundir og benti í
því samhengi á að stærsti hluti upp-
sjávarafla væri bræddur í mjöl og lýsi
til dýrafóðurs. Sagði Sigurjón að tíf-
alda mætti verðmæti framleiðslunnar.
N orðurpólsfarar
Stillt veður en
þungt færi
ÍSLENSKU norðurpólsfaramir
lögðu að baki 3,6 km fyrsta göngu-
daginn af um 60 er þeir hófu göng-
njna frá Ward Hunt-eyju áleiðis til
norðurpólsins á föstudagskvöld.
Frostið var 45 stig og veður stillt en
færið mjög þungt.
Pólfararnir gengu í tvær og hálfa
klukkustund fyrsta daginn og tjöld-
uðu síðan á eyjunni skammt undan
ísnum. Sleðar þeirra eru yfir 130 kg
eða 10 kg þyngri en reiknað var með
upphaflega. Að sögn Haraldar Amar
Olafssonar, sem ræddi við föður sinn
í gær, eru þeir Ingþór Bjamason við
góða heilsu og allt gengur vel.
------*-++------
Auknar lífs-
* lrkur krabba-
meinssjúklinga
LIFSLIKUR krabbameinssjúklinga
hafa stöðugt farið batnandi undan-
farna áratugi, að því er fram kemur í
tímaritinu Heilbrigðismál, sem gefið
er út áf Krabbameinsfélagi Islands.
Útreikningar Krabbameinsfélagsins
sýna að um 22% þeirra íslendinga
sem greindust með krabbamein á ár-
unum 1956 til 1960 lifðu í fimm ár eða
lengur en hlutfallið var komið í um
48% á áranum 1991 til 1995.
Þegar útreikningar krabbameins-
félagsins eru skoðaðir kemur í ljós
að horfurnar hjá þeim sem greinast
með krabbamein fyrir 45 ára aldur
*-Au fjórfalt betri en á sjötta áratugn-
um og horfumar hjá þeim sem grein-
ast með krabbamein eftir 45 ára ald-
ur eru tvöfalt betri en á sjötta
áratugnum.
ELIN Þorgeirsdóttir, sem er dag-
mamma í Hafnarfírði, gefur hér
yngsta barni sínu brjóst um leið
og htín leikur við þrjtí börn sem
htín gætir. Lesendur blaðsins
kynnast í dag Elinu og fjölskyldu
hennar í einni af þremur fyrstu
myndafrásögnunum af fimm sem
Sögur af íslendingum
Ijósmyndarar Morgunblaðsins
hafa unnið um íslendinga á árinu
2000. Hinar tvær munu birtast
næstkomandi sunnudag. Samtímis
birta átta af helstu dagblöðunum
á hinum Norðurlöndunum sögur
með sama nafni þar sem ljós-
myndarar þeirra nálgast efnið á
persónulegan hátt. Morgunblaðið
mun síðar birta hluta af mynda-
Morgunblaðið/Ásdís
frásögnum hinna blaðanna en
með verkefninu er ætlunin að
sýna aðstæður og ásýnd Norður-
landabtía á árinu 2000.
■ LÍFK/B10
■ NÁTTÚRAN/B14
I DRAUMURINN/B 16
Harðorð ályktun formannafundar Verkamannasambandsins
Segja félög Flóabandalags-
ins hafa ákveðið úrsögn
FORMANNAFUNDUR Verka-
mannasambands íslands, VMSÍ,
var haldinn í gær. í ályktun fundar-
ins kemur fram að fundurinn líti
mjög alvarlegum augum þær full-
yrðingar sem fram hafa komið um
aðskilnað Flóabandalagsfélaganna
við VMSÍ og vilji í því sambandi
rifja upp að það var ákvörðun Flóa-
bandalagsins að segja skilið við önn-
ur félög VMSÍ í kjarasamningagerð
þeirri sem nú stendur yfir.
Þetta hafi félög bandalagsins
undirstrikað með því að taka ekki
þátt í umræðum og afgreiðslu kjara-
mála á þingi sambandsins sl. haust.
Bent er á að þrátt fyrir þetta hafi
samninganefnd VMSÍ ítrekað lýst
þeirri skoðun sinni að hún væri
reiðubúin að ganga til samstarfs við
Flóabandalagið en því hafi jafnharð-
an verið hafnað. Þá er því haldið
fram að bandalagsfélögin hafi ekki
látið duga að lýsa sjálfstæði sínu við
samningagerðina, heldur tekið þá
ákvörðun að draga alla félagsmenn
sína út úr störfum fyrir sambandið.
í ályktun fundarins er því lýst að
ofantalin upprifjun geri að verkum
að ekki verði annað ráðið en að fé-
lögin innan Flóabandalagsins hafi
þegar við upphaf undirbúnings
kjarasamninga verið búin að taka þá
ákvörðun að fara út úr VMSÍ. Hið
eina sem komið hafi í veg fyrir að sú
ákvörðun væri framkvæmd væri sú
staðreynd að það leiddi af sér úr-
sögn um leið úr Alþýðusambandi ís-
lands.
F ormannafundurinn lýsti yfir
fullum stuðningi við og trausti á for-
mann VMSI. I ályktuninni segir
ennfremur að VMSÍ, með lands-
byggðarfélögin innanborðs, muni
aldrei verða „skúffusamband" ein-
hvers aðildarfélagsins. Fundurinn
stóð enn yfir þegar Morgunblaðið
fór í prentun síðdegis í gær og var
þá m.a. verið að ræða samkomulag
Flóabandalagsins og Samtaka at-
vinnulífsins auk aðgerða stjórn-
valda í skattamálum.
Hervar Gunnarsson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, sagði við
Morgunblaðið á fundinum að honum
kæmi alls ekki á óvart þótt ályktun
fundarins yrði túlkuð sem_ staðfest-
ing á klofningi innan VMSI. „Komin
er gjá sem vandséð er hvernig má
brúa,“ sagði Hervar.
Aðild að formannafundinum á
Landssamband iðnverkafólks. Með-
al fulltrúa þess mátti heyra óánægju
með þátt Guðmundar Þ. Jónssonar,
formanns landssambandsins, í vinnu
Flóabandalagsins. Lýsti háttsettur
fulltrúi sambandsins þeirri skoðun
sinni að ef Verkamannasambandið
klofnaði þá gilti hið sama um Lands-
samband iðnverkafólks.
Auka má verðmæti lýsis
um sjö milljarða á ári
@ BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki