Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 1
78. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SÞ óttast hungursneyð í Norðaustur-Afríku vegna mikilla þurrka Milljónir manna í lífshættu Sameinuðu þjóðirnar. AFP, AP. ALLT að 16 milljónum manna kann að stafa lífshætta af þurrkum í Norðaustur-Afríku að því er Sam- einuðu þjóðimar hafa greint frá. Catherine Bertini, yfirmaður mat- vælahjálpar Sameinuðu þjóðanna (WFP), hefur verið skipaður sér- stakur sendiboði samtakanna á þurrkasvæðunum, en á þessum sömu slóðum lést um ein milljón manna í hungursneyð fyrir 15 árum. Eþíópía er það land sem hefur orðið verst úti og er talið að um 80% þeirrar aðstoðar sem óskað er þurfi að veita þangað. En SÞ telja að nú þurfi um 12,4 milljónir manna á mat- vælaaðstoð að halda í Eþíópíu, Ent- reu, Sómalíu, Súdan, Kenýa, Úg- anda og Djíbútí. Bertini heimsækir nokkur land- anna í apríl, en WFP hefur hug á að dreifa 371.000 tonnum af matvælum á svæðinu í ár og er talið að kostnað- urinn nemi 205 milljónum dollara, eða rúmum 15 milljörðum króna. Carolyn McAskie, sem sér um samræmingu hjálparstarfs SÞ, segir þó matvælaþörfina kunna að reyn- ast enn meiri. Verði áframhald á þurrkum og síðan uppskerubrestur kunni að reynast þörf á allt að 904.000 tonnum af matvælum til við- bótar. Aukinn fjárstuðningur nauðsynlegur „Við okkur blasa mögulegar hörmungar innan tveggja mánaða, berist ekki frekari fjárhagsaðstoð," sagði MeAskie og kvað þá um 16 milljónir manna kunna að verða í hættu vegna þurrkanna. „AJlir muna eftir myndum af þjáðum Eþíópíubú- um frá því fyrir 15 árum og við get- um ekki leyft okkur að leiða hugann að slíkum atburðum á nýjan leik.“ Stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa nú þegar óskað eftir 14 millj- örðum króna til matvælaaðstoðar í Eþíópíu í ár og hefur aðeins helm- ingur þeirrar fjárhæðar borist. En í fréttatilkynningu SÞ segir að berist aukinn fjárstuðningur til matvæla- aðstoðar ekki fljótlega kunni að blasa við hungursneyð á borð við þá sem geisaði á níunda áratugnum. MORGUNBLAÐtÐ 1. APRIL 2000 5 690900 090000 Gin- og klaufa- veiki í A-Asíu Ottast faraldur Seoul. AP, Reuters. STJÓRNVÖLD í mörgum ríkjum Austur-Asíu óttast nú að gin- og klaufaveiki sé að verða faraldur og sögðust Suður-Kóreumenn í gær ætla að slátra 350.000 nautgripum í grennd við staðinn þar sem fyrsta tilfellið í landinu var greint. Ekki mun þó fyllilega ljóst hvort um gin- og klaufaveiki er að ræða en sýki með sömu einkennum hefur greinst í nautgripum á japönsku eynni Kyushu. Hefur bændum þar verið bannað að selja kjöt af naut- gripum og svínum um hríð. Astralar hafa bannað innflutning á mjólkurafurðum frá Japan og Kóreu og Singapore innflutning á nauta- kjöti frá Japan. Fyrir þremum árum braust út gin- og klaufaveiki á Taív- an og varð þá að farga 3,6 miHjónum svína. Taívanar vísa á bug grun- semdum um að smit hafi nú borist þaðan til Japans með hálmi. Yfir níu- tíu ár eru síðan sýkin herjaði í Japan. Pútín velur sér fijálslynda ráðgjafa Vísar á bug stjórnaraðild kommúnista Moskvu. AFP. VLADÍMÍR Pútín, starfandi forseti Rússlands, hafnaði í gær kröfu kommúnista um að þeir fengju aðild að næstu ríkisstjóm landsins. Hann tilkynnti einnig hvaða ráðgjafar hans ættu að móta efnahagsstefnu stjóm- arinnar og vestrænir fjármálasér- fræðingar sögðu að hann hefði ekki getað valið hæfari menn úr röðum fijálslyndra, markaðssinnaðra emb- ættismanna rússnesku stjómarinnar til að leysa það verkefni af hendi. „Það er erfitt að sjá fyrir sér sam- steypustjóm, eins og það hugtak hef- ur verið skilgreint,“ sagði Pútín þeg- ar hann var spurður hvort kommúnistar fengju aðild að stjóm- inni. Kommúnistar em stærsti flokk- urinn í dúmunni, neðri deild þingsins, og hafa krafist þess að Pútín myndi stjóm sem endurspegli þingstyrk flokkanna. Þetta er í fyrsta sinn sem Pútín hafnar þessari kröfu opinberlega. Hann sagði að val sitt á ráðherrum myndi ekki byggjast á því í hvaða flokki ráðherraefnin væra. „Þeir verða að slíta af sér flokksböndin um leið og þeir ganga í stjórnina." Óháðir sérfræðingar í slg'órn „Hugsanlegt er að stjómin verði skipuð félögum í hinum ýmsu flokk- um,“ bætti Pútín við. „En þeir verða að vera óháðir sérfræðingar á sínu sviði.“ Auk þess að vera starfandi forseti hefur Pútín verið forsætisráðherra frá áramótum og hugsanlegt er að hann bíði með að skipa nýjan forsæt- isráðherra þar til hann verður settur í forsetaembættið í byijim maí. Hann getur þó skipað eða rekið ráðherra áður en hann tekur formlega við emb- ættinu. Míkhaíl Kasjanov aðstoðarforsæt- isráðherra er nú talinn líklegastur til að verða næsti forsætisráðherra. Margir stjómmálaskýrendur í Rúss- landi telja þó að hann verði ekki lengi í embættinu og víki fyrir einhveijum af helstu samstarfsmönnum Pútíns síðar á árinu. ■ Rússneskir hermenn/34 Keuters Pútín Rússlandsforseti á ríkis- stjómarfundi í gær. Kasjanov er álitinn náinn banda- maður gömlu valdaklíkunnar í Kreml, fámenns hóps manna sem höfðu mikil áhrif í forsetatíð Borís Jeltsíns, meðal annarra oh'u- og áljöf- ursins Romans Abramovítsj. Ráðgjafar Pútíns og stjómar hans hafa keppst um að fá það verkefni að móta efnahagsstefnu næstu stjómar og tilkynnt var í gær hveijir þeirra hefðu orðið fyrir valinu. Þeir era And- rej Illaríonov, Oleg Vjúgín, Míkhaíl Dmítríjev og Sergej Shatalov. Fjórmenningarnir era h'tt þekktir á Vesturlöndum en hafa getið sér gott orð meðal vestrænna fjárfesta og embættismanna. „Erfitt er að hugsa sér hæfari menn úr þeim hópi hæfi- leikamanna sem starfar fyrir rúss- nesku stjómina, en hann er að vísu ekki stór,“ sagði í greinargerð fjár- festingarbankans Renaissance Capit- al um ráðgjafana. Statoil í Noregi Rausnar- leg eftir- laun Ósló.AP. HARALD Norvik, fyrrverandi forstjóri norska ríkisolíufyrir- tækisins Statoil, ákvað í gær að afsala sér rausnarlegum eftir- launum frá fyrirtækinu. Norvik lét af starfi hjá Statoil í ágúst sl. eftir 12 ára starf. Nú- verandi stjóm ákvað svo nýlega, að Norvik skyldi fá um 14 millj. ísl. kr. á ári það sem hann ætti eftir ólifað. Hann er 53 ára. Þessi rausn við Norvik vakti reiði meðal almennings og stjómmálamanna líka, enda er Statoil ríkisfyrirtæki og ríkið leggur hart að verkalýðsfélög- unum að vera hófsöm í kjara- kröfum. Norvik tilkynnti svo í gær, að hann vildi ekki vera kallaður gráðugur og hefði því afsalað sér eftirlaununum. Hann fær hins vegar eingreiðslu frá Statoil upp á 44 millj. ísl. kr. Hershöfð- ingi áreittur? HÆSTSETTA konan í Banda- ríkjaher, Claudia Kennedy undirhershöfðingi, hefur að sögn BBC lagt fram kæra á hendur öðram hershöfðingja og segir hann hafa þuklað á sér. Kennedy segir þetta hafa gerst fyrir fjóram áram á skrif- stofu sinni. Hún kvartaði þá við yfirboðara sína og virðist hafa sætt sig við viðbrögðin. Hún segir að umræddur maður hafi í fyrra fengið mikilvægt starf, sér hafi mislíkað það mjög og því leggi hún fram kæra. AP Eldgos á eyjunni Hokkaido ELDGOS húfst í fjallinu Usu á nyrstu eyju Japans, Hokkaido, í gærmorgan. Myndin af gosbólstr- unum var tekin í bænum Abuta, rétt þjá fjallinu sem er við stöðuvatn. Mikið öskufall var á svæðinu en lítið virtist um sprengingar, nær engar drunur heyrðust frá eldstöðvunum, að sögn AP-fréttastofunnar. Rúm- lega 11.000 manns hafa verið flutt á brott frá hættusvæðum nálægt Usu. Óttast er að gosið geti valdið aurskriðum íþéttbýli við stöðuvatn- ið en þar búa liðlega 50.000 manns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.