Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Níu sækja
um stöðu
þjóðminja-
varðar
NÍU sækja um embætti þjóðminja-
varðar en umsóknarfrestur vegna
starfsins rann út kl. 16 í gær. Mun
menntamálaráðuneytið senda um-
sóknirnar til umsagnar þjóðminja-
ráðs í samræmi við ákvæði þjóð-
minjalaga áður en ráðið verður í
stöðuna.
Umsækjendur um stöðu þjóð-
minjavarðar eru Adolf Friðriksson
fornleifafræðingur hjá Fornleifa-
stofnun íslands, dr. Bjarni F. Ein-
arsson fornleifafræðingur hjá
Fornleifafræðistofunni, Gísli Sig-
urðsson sérfræðingur hjá Árna-
stofnun, dr. Kristín Huld Sigurðar-
dóttir fornleifafræðingur, Hjör-
leifur Stefánsson fv. minjastjóri
Þjóðminjasafns, dr. Margrét Her-
manns Auðardóttir fornleifafræð-
ingur, Margrét Hallgrímsdóttir
borgarminjavörður, Ólína Þorvarð-
ardóttir deildarstjóri hjá Þjóð-
minjasafni og Steinunn Kristjáns-
dóttir fomleifafræðingur.
--------------
Umferðar-
öngþveiti
við Perluna
TALSVERT umferðaröngþveiti
myndaðist í nágrenni Perlunnar í
gær þegar sala hófst á íþrótta- og
útivistarvörum á tilboðsverði. Sal-
an gengur undir nafninu „Merkja-
vara á silfurfati" og eru seldar nýj-
ar vörur beint frá heildsölum með
allt að 60 til 80% afslætti.
Klukkan 14 í gær þegar Perlan
var opnuð biðu 250 manns fyrir ut-
an og að sögn aðstandenda sölunn-
ar þurfti að hleypa inn í hópum
langt fram eftir degi. Sneisafullt
var alveg þangað til lokað var
klukkan 19 og munu gestir sölunn-
ar ekki aðeins hafa fyllt bflastæðið
við Perluna heldur einnig komist
vel á veg með að fylla bflastæðin við
kirkjugarðinn og slökkvistöðina.
Salan verður opin alla helgina og
alla næstu viku.
Tal hf. kynnir verðlækkun á millilandasímtölum
Eitt verð til útlanda úr
far- og heimilissíma
Útiloka ekki að hafín verði
samkeppni í innanlands-
símtölum um landlínu
TAL hf. kynnti í gær mikla verð-
lækkun á útlandasímtölum úr
GSM-símum Tals sem jafnframt
stendur þeim sem hringja úr land-
línusíma til. boða á sama verði.
Verðskráin tekur gildi 15. apríl
næstkomandi og verður mínútu-
verð til allra helstu viðskiptaland-
anna, eða til þeirra landa sem
standa að baki 85% allrar símaum-
ferðarinnar, 19 kr.
Þórólfur Árnason, forstjóri Tals,
sagði þegar verðskráin var kynnt
að ekki væri vitað til þess að ann-
ars staðar í heiminum stæði til
boða að hringja til útlanda á sama
verði úr GSM-kerfi og landlínu-
kerfi. Verð á útlandasímtölunum
yrði á bilinu 15-30% lægra en
GSM-þjónusta Landssímans byði.
Heirailissíminn að
verða óþarfur
Tal ætlar í fyrsta sinn að bjóða
þjónustu fyrir landlínu með því
sem fyrirtækið kallar TALsam-
band við útlönd. Þjónustan stendur
öllum almennum símnotendum til
boða og geta þeir skráð sig í þjón-
ustuna hvar sem þeir búa á land-
inu. Áfram verður notast við for-
valsnúmerið 00 til að hringja til
útlanda. Skráningin fer fram á
vefsíðu Tals eða í þjónustusíma
fyrirtækisins.
Tal hefur nú viðskipti við 40 þús-
und farsímanotendur og býður upp
á endurgjaldslausa internetteng-
ingu með GSM-áskrift. Þjónustan
nær til 82% þjóðarinnar og í sumar
verða byggðar 20 nýjar stöðvar og
nær þá þjónustan til 85% þjóðar-
innar. Þórólfur sagði að Tal byði
upp á hágæðatalþjónustu. í árslok
ætlar fyrirtækið að bjóða upp á
aukna gagnaflutningsgetu í far-
símakerfinu í nýju GPRS-kerfi. Tal
hefur nú gert svokallaða reiki-
samninga við 75 GSM-símafyrir-
tæki í 45 löndum, þ.á m. öllum
helstu viðskiptalöndum íslendinga.
Þórólfur segir að fyrirtækið renni
blint í sjóinn með hve stóran hluta
markaðarins fyrirtækið get vænst
hvað varðar millilandasímtöl úr
landlínu. Hann segir að styrkur
hefðarinnar sé mikill og það verði
að koma í ljós að hve miklu leyti al-
menningur hyggist nýta sér þau
viðskiptatilboð sem nú eru sett
fram.
„Með þessu sjáum við fleiri
ástæður fyrir okkar áskrifendur að
þurfa ekki að hafa heimilissíma,"
segir Þórólfur. Hann bendir t.a.m.
á að 1. janúar nk. verði fastagjald
fyrir heimilissíma 1.100 krónur og
fyrir þá upphæð sé hægt að tala í
110 mínútur úr Tal-farsíma í annan
Tal-farsíma.
Tal hefur haft leyfi tii alls fjar-
skiptareksturs frá nóvember 1998
en einkum sinnt farsímamarkaðn-
um. Þórólfur sagði að fyrirtækið
hefði trú á þráðlausum fjarskiptum
en stigi nú engu síður það skref að
bjóða jafnframt upp á millilanda-
símtöl úr landsíma. „Við ætlum inn
á fastlínukerfið í innanlandssímtöl-
um. Hvenær það verður ræðst í
fyrsta lagi af því hvenær leyfi fæst
til þess og í öðru lagi þegar það
verður arðbært. Við höfum alla
innviði til þess, s.s. tækniþekkingu,
markaðssetningu, símstöð, sam-
skipti við erlenda aðila og sam-
tengiþjónustu og bjóðum upp á
net- og gagnaþjónustu,“ segir Þór-
ólfur.
Hann sagði að áform Tals í þessa
veru réðust líka af því hver út-
koman yrði af mikilli hækkun á
fastlínugjaldi Landssímans.
Úr verðskrám símafyrirtækjanna: Símtöl til útlanda
Landssími íslands- Frjáls Tal
íslands sími fjarskipti (GSM og
I, ' (landlína*) (landlína) (landlína) landlína)
Upphafsgjald símtals: 3,20 kr/símtal 3,15 kr Ekkert Ekkert
\ x ,í ‘ ■ .y > / Land sem Taxti, Taxti Taxti Taxti
hringt er til kr/mín. kr/mín. kr/mín. kr/mín.
Danmörk, Noregur, Svíþjóð ,20,90 18,90 17,00 19,00
Færeyjar 19,90 18,90 17,00 19,00
Finnland 21,90 18,90 17,00 19,00
Bretland 20,90 18,90 17,00 19,00
Irland 22,90 18,90 17,00 19,00
Holland, Þýskaland 21,90 18,90 17,00 19,00
Belgía, Lúx., Frakkland 22,90 18,90 17,00 19,00
Austurríki, Sviss 24,90 18,90 17,00 19,00
Portúgal 22,90 18,90 17,00 19,00
Spánn 22,90 18,90 . 17,00 19,00
ítalia 22,90 18,90 17,00 19,00
Pólland 34,00 40,00 40,00 40,00
Eistland, Lettland 39,00 40,00 40,00 40,00
Litháen 44,00 40,00 40,00 40,00
Rússland 59,00 89,90 55,00 89,90
Tékkland 44,00 40,00 40,00 40,00
Ungverjaland 39,00 40,00 40,00 40,00
Rúmenía 59,00 49,90 50,00 49,90
Búlgaría 49,00 49,90 50,00 49,90
Slóvenía 49,00 49,90 50,00 49,90
Króatía 49,00 40,00 40,00 40,00
Kýpur 49,00 40,00 40,00 40,00
Grikkland 44,00 40,00 40,00 40,00
Tyrkland 59,00 49,90 50,00 49,90
Armenía 79,00 89,90 90,00 89,90
Bandarikin 20,90 18,90 17,00 19,00
Kanada 19,90 18,90 17,00 19,00
Mexfkó 69,00 59,90 70,00 59,90
Argentína 79,00 89,90 90,00 89,90
Brasilfa 49,00 45,00 45,00 45,00
Chlle 97,00 89,90 90,00 89,90
Venesúela 79,00 59,90 70,00 59,90
Suður-Afríka 59,00 45,00 45,00 45,00
Marokkó 59,00 49,90 50,00 49,90
Egyptaland 79,00 69,90 70,00 69,90
Kenýa 97,00 89,90 90,00 89,90
Indland 89,00 89,90 90,00 89,90
Tailand 49,00 45,00 45,00 45,00
Hong Kong 27,90 18,90 17,00 19,00
Kína 69,00 89,90 90,00 89,90
Japan 49,00 45,00 35,00 45,00
Ástralía / 22,90 18,90 23,00 19,00
Nýja-Sjáland O 44,00 45.00 45,00 45,00
Fidjieyjar \ \ 97,00 99,90 115,00 99.90
*Sé hringt úr GSM-síma bætist við taxtann álag, 12,50 kr./mín. frá kl. 8 tll kl. 18 vlrka daga
en á öðrum tímum þess utan er álagið sem bætist við taxta 8,00 kr./mín. hjá Símanum GSM
\
Gili, Kjalarnesi
s. 566 8963/892 3041
Eitthvert besta úrval landsins
af vönduðum, gömlum, dönskum
húsgögnum og antikhúsgögnum
Opið lau.-sun. kl. 15.00-18.00
og þri. og fimkvöld kl. 20.30-22.30 eða
^Ath. einungisektohlutir^^\ftiijmnarasamkomulagi. Ólafur^
Verkfalls-
aðgerðir
réttmætar
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sýknað Verkalýðsfélagið Bald-
ur á ísafirði og einn verkfallsvörð á
vegum félagsins af kröfum Samtaka
atvinnulífsins, sem kröfðust 920 þús-
und króna skaðabóta vegna tjóns af
völdum umdeildra verkfallsaðgerða í
Reykjavíkurhöfn í maí 1997.
Málavextir voru m.a. þeir að
Verkalýðsfélagið Baldur hóf verkfall
21. apríl 1997, ásamt fáeinum öðrum
félögum innan VMSÍ til að knýja á
um kröfur sínar gagnvart Vinnuveit-
endafélagi Vestfjarða. Upp komu
deilur um löndun vestfirskra skipa
utan Vestfjarða og hélt Baldur því
fram að landanir skipa utan Vest-
fjarða væru verkfallsbrot, þar sem
löndunarmenn annarsstaðar gengju
í störf verkfallsmanna.
Hinn 20. maí kom Stefnir-ÍS 28 til
löndunar í Reykjavík og tóku verk-
fallsverðir Baldurs sér stöðu við
skipið. Þegar ákveðið var að fresta
löndun til næsta dags lögðu verk-
fallsverðir bifreiðum sínum við
skipshlið og komu í veg fyrir að unnt
væri að landa úr togaranum.
Að mati dómsins var Stefni siglt til
Reykjavíkur til löndunar gagngert
til að komast hjá áhrifum vinnu-
stöðvunar á Vestfjörðum og verk-
fallsverðir því í rétti er þeir hófu að-
gerðir sínar við Reykjavíkurhöfn.
Kj ötmeistari
í annað sinn
Morgunblaðið/Sverrir
Valgerður Sverrisddttir, viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra, afhendir Elvari Óskarssyni, Kjöt-
meistara Islands árið 2000, verðlaun.
ELVAR Óskarsson
hjá Kjötiðnaðarstöð
KEA var í gær val-
inn „Kjötmeistari
Islands árið 2000“
en þetta er í annað
sinn sem hann hlýt-
ur þennan titii.
Þetta er í fimmta
sinn sem Meistara-
félag kjötiðnaðar-
manna heldur fag-
keppni sína,
Islenskir kjötdagar.
Keppnin er nú hald-
in í tengslum við
matvælasýninguna
Matur 2000 í Kópa-
vogi. Keppt var í
sex keppnisflokk-
um, það er hráum
og soðnum kjötvör-
um, soðnum matar- og áleggspyls-
um, blóðpylsum, sultum og slátri,
hráverkuðum vörum, kæfum og
paté og sérvörum og nýjungum.
Veitt voru gull-, silfur- og
bronsverðlaun fyrir hverja vöru
fyrir sig en til að fá gullverðlaun
þarf vara að fá 49 til 50 stig. Titil-
inn „Kjötmeistari íslands árið
2000“ hlýtur síðan sá kjötiðnaðar-
maður sem fær flest stig saman-
lagt úr öllum flokkum.
„Það er mest hsi-gt að fá 300
stig. Ég fékk 292 stig sem er einu
stigi meira en þegar ég hlaut titil-
inn siðast árið 1998,“ segir Elvar
Óskarsson. „Framundan er að
fara á námskeið erlendis og læra
meira þessu tengt enda áhugi
mikill. Þess má geta að þessi
verðlaun hafa verið veitt fímm
sinnum og Kjötiðnaðarstöð KEA
hefur hlotið þau þrisvar," segir
Elvar.