Morgunblaðið - 01.04.2000, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 1. APRÍ L 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Stjórnarformaður SH gerir 900 milljóna kr. fjárfestingartap að umræðuefni á aðalfundi fálagsins
Fjárfestingarákvarðanir Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna hafa ekki
verið teknar af yfirvegun og ónóg
vinna hefur verið lögð í skoðun og
undirbúning þeirra. Þetta kom fram
í máli Róberts Guðfinnssonar,
stjómarformanns, á aðalfundi fé-
lagsins sem haldinn var í gær. Sam-
anlagt tap af þremur fjárfestingar-
verkefnum SH hefur numið 900
milljónum króna og sagði Róbert að
brýnt væri að stjórn og stjórnendur
félagsins endurskoðuðu vinnubrögð
sín varðandi ákvarðanir um fjárfest-
ingar.
Tveir nýir menn voru kosnir í
stjóm á fundinum, Þorsteinn Vil-
helmsson og Andri Teitsson í stað
þeirra Jóns Ingvarssonar og Guð-
mundar Kristjánssonar, en Róbert
Guðfinnsson verður áfram stjórnar-
formaður.
Óskynsamlegar fjárf estingar
„Árið 1998 hófum við samstarf
sem stefnumarkandi samstarfsaðilar
við indversk-bandaríska fjárfesting-
arfélagið SUN Capital Partners. Þar
var hugmyndin sú að SH kæmi að
málinu sem aðili með þekkingu á
framleiðslu og sölu matvæla úr sjáv-
arfangi. Samstarfsaðilinn kom inn
með fjármagn og þekkingu á aðstæð-
um í Rússlandi. Saman stofnuðu
þessir hluthafar fyrirtækið Navenor
á Kýpur,“ sagði Róbert.
I máli hans kom fram að starfsemi
félagsins hefði m.a. falist í fjárfest-
ingum í fiskiðnaðarfyrirtækjum í
Moskvu og Perm í Úralfjöllum, sem
ekki heppnuðust. „Það er alltaf auð-
velt að vera vitur eftir á og segja sem
Stjórn og stjórnendur
félagsins endurskoði
vinnubrögð sín
svo að fjárfestingar þessar hafi verið
óskynsamlegar; en að öllum líkind-
um voru þær það. Bæði fyrirtækin
voru búin ófullkomnum vélbúnaði og
þörfnuðust mikils viðhalds. Steininn
tók þó úr þegar rúblan féll á haust-
mánuðum 1998,“ sagði Róbert.
Þriðji liðurinn í samstarfi við fjár-
festingarfélagið var starfsemi Nav-
enor í rekstri markaðsfyrirtækisins
Axioma sem keypti og seldi fisk, að-
allega á Moskvusvæðinu. Að sögn
Róberts var ljóst að áhættan við að
stunda fiskviðskipti með þeim hætti
sem gert var í Axioma var gífurleg.
Kaupa þurfti inn fisk eftir vertíðum á
hverjum stað og oft að liggja með
hann í langan tíma. Þarna komu inn
áhættuþættir eins og gengisáhætta
og sveiflur í fiskverði. Mikið tap varð
á sjálfum rekstrinum, en að auki tók
SH að sér rekstrarfjármögnun fé-
lagsins upp á 350 milljónir sem töp-
uðust allar við hrun rúblunnar og
áframhaldandi taprekstur.
„Það er alveg ljóst að við sem sát-
um í stjórn félagsins og samþykktum
að leggja út í þetta áhættuverkefni
Morgunblaðió/Sverrir
Róbert Guðfinnsson, sijórnarformaður SH, og Þorsteinn Vilhelmsson,
nýkjörinn stjórnarmaður, á aðalfundinum í gær.
getum ekki skorast undan ábyrgð á
gjörðum okkar,“ sagði Róbert. Hann
bætti við að hann teldi að stjórnin
hefði ofmetið þekkinguna og getuna
Hagnaður
Norður-
ljósa 527
milljónir
HAGNAÐUR Norðurljósa nam 527
milljónum króna á síðasta ári, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu
frá félaginu. Tap af starfsemi fyrir-
tækjanna sem mynda Norðurljós á
árinu 1998 var samtals 261 milljón
króna.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
nam 245 milljónum og óreglulegir
liðir nema 282 milljónum og skýrast
af hagnaði Islenska útvarpsfélagsins
af sölu Islandia Intemet ehf. Afkoma
einstakra fyrirtækja innan Norður-
ljósa er ekki birt.
Norðurljós voru stofnuð á síðasta
ári, en félagið rekur Islenska út-
varpsfélagið hf., Sýn hf. og Skífuna
hf. og á auk þess 34,5% hlutafjár í
fjarskiptafyrirtækinu Tali hf.
Tekjur samstæðunnar námu 4.131
milljón króna og jukust um 13,6% frá
Norðurljós
Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyling
Rekstrartekjur Milljónir króna 4.131 3.636 +13,6%
Rekstrargjöld 3.247 2.965 +9,5%
Afskriftir 638 538 +18,6%
Fjármagnskostnaður -1 -339 +99,7%
Hagnaður (tap) af reglul.starfsemi 245 -206
Óreqluleqir liðir 282 -55
Hagnaður ársins 527 -261
Efnahagsreikningur 31.12.99
Eignir samtals Milljónir króna 10.140
Eigið fé 7.280
Skuldir 2.860
Skuldir og eigið fé samtals 10.140
fyrra ári. 12% tekjuaukning varð af
sjónvarpsrekstri og tekjur af rekstri
Skífunnar jukustum 16%.
Rekstrarkostnaður samstæðunn-
ar jókst um 9,5% á milli ára og nam
3.247 milljónum. Kostnaður seldra
vara jókst um 20% og sölu- og mark-
aðskostnaður um 16%. Afskriftir
jukust um 100 milljónir eða 18,6% á
milli ára en aukningin er að stærst-
um hluta til komin vegna kaupa
Norðurljósa á öllum hlutabréfum í
íslenska útvarpsfélaginu hf„ Sýn hf.
og Skífunni hf. í júlí á síðasta ári.
Mikil lækkun fjármagnskostnaðar
skýrist af hagstæðum gengismun og
hárri tekjufærslu vegna verðlags-
breytinga.
til að fara sem stefnumótandi sam-
starfsaðilar inn á jafn erfitt
markaðssvæði og Rússland væri.
„En er Rússland þá vonlaus stað-
ur til að stunda viðskipti? Eg tel að
svo sé ekki. SH keypti á síðastliðnu
ári 20% hlut í sænska fyrirtækinu
Scandsea sem átt hefur í viðskiptum
við Rússa í fjölda ára. Það er ólíku
saman að jafna að sjá fagmannleg
vinnubrögð þeirra og áhættustýr-
ingu, enda hafa þeir hagnast vel á
þessum viðskiptum á undanförnum
árum,“ sagði Róbert.
Fórum langt út fyrir
skynsamleg mörk
Fram kom í ræðu hans að tap fé-
lagsins hefur ekki verið einskorðað
við Rússland. Síðastliðið haust hafi
SH lagt niður starfsemi dótturfyrir-
tækisins Sæmarks, en Sæmark
fékkst við útflutning, aðallega frá
smærri framleiðendum. „Svo virðist
sem starfsemi þessa félags hafi alveg
farið úr böndunum árið 1998. Hér
virðist sem menn hafi farið langt út
fyrir skynsamleg mörk þegar af-
urðalánaviðskipti hófust, jafnvel til
aðila sem ekki fengu aðgang að fjár-
magni í bankakerfinu. Slík viðskipti
eru áhættusöm og kreíjast vandaðra
vinnubragða og mikils aðhalds. Svo
virðist sem verulega hafi skort þar
á,“ sagði Róbert.
Þá vék hann einnig að kaupum SH
á fyrirtækinu Árnes Europe í Hol-
landi um áramótin 1998-1999. Sagði
hann að fyrirtækið hefði verið lítið
og sérhæft sig í flatfiski. Þekkingin í
því hefði aðallega legið hjá einum
starfsmanni sem yfirgaf það í byrjun
sl. sumars. Við nánari skoðun hefði
komið í ljós að SH hafði keypt kött-
inn í sekknum. Markaðssambönd
höfðu ekki verið eins traust og menn
höfðu álitið og birgðir ofmetnar. Því
var sú ákvörðun tekin seinni hluta
árs að leggja starfsemina af.
Störfum fækkað úr ÍOO í 45
„Samkvæmt ákvörðun stjórnar fé-
lagsins síðastliðið vor fór fram veru-
leg endurskipulagning á rekstri SH
hf. og dótturfélaga þess síðari hluta
starfsársins. Hún er nú að fullu kom-
in til framkvæmda. Starfsmönnum á
Islandi hefur fækkað úr sem svarar
liðlega 100 ársstörfum í 45. Um-
sýslusölu hefur verið hætt og einstök
dótturfélög eru ábyrg fyrir innkaup-
um sínum og samningum við fram-
leiðendur," sagði Róbert.
Hann sagði það misskilning hjá
þeim sem teldu að unnt væri að
halda íslenskum framleiðendum í
sjávarútvegi óupplýstum og ein-
angra þá frá markaðsupplýsingum.
Nútíma upplýsingatækni og almenn
þekking í sjávarútvegi hefði gert það
að verkum að nýrra vinnubragða
væri þörf. „Það er liðin tíð að fram-
leiðendur framselji ábyrgð á mark-
aðsetningu afurða sinna alfarið í
hendur sölufyrirtækis og hafi ekkert
með verðlagningu, greiðslufresti og
aðra þætti að segja. Lausnin liggur í
einföldu skilvirku markaðsfyrirtæki
sem vinnur að sem stystum boðleið-
um á milli framleiðenda og markaða
á hagkvæman hátt, og gefur ásætt-
anlega ávöxtun til hluthafa sinna.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er
orðin að slíku fyrirtæki nú.“
Stefán Halldórsson
hættir sem fram-
kvæmdastjóri VÞI
LAG E RSALA
Herraskyrtur 1 99- Regnjakkar frá 399-
Ungbarnavörur frá 1 99- Bolir frá 1 99-
^ Buxur frá 1 99-
Nærbuxur 3 í pk.l 99-
Leikföng frá 99-
LAGERSALA
Faxafeni 8 opið virka daga 12-19 laugard. 12-18 sunnud. 12-19
STEFAN Halldórsson
hefur sagt starfi sínu
lausu sem fram-
kvæmdastjóri Verð-
bréfaþings íslands hf.
frá og með næsta
hausti þegar hann tek-
ur við starfi fram-
kvæmdastjóra Lífeyr-
issjóðs verkfræðinga.
I samtali við Morg-
unblaðið segir Stefán
að ákvörðunin sé alfar-
ið sín og hafi verið tekin
íyrir stuttu síðan. „í
mínum huga var alltaf
Ijóst að ég yrði ekki hjá
Verðbréfaþingi til ei-
lífðarnóns." Hann segir
að gott tækifæri hafi gefist til að
breyta til nú og að tvær megin
ástæður séu fyrir ákvörðun sinni.
„Ég hef áhuga á að takast á við ný
verkefni og starf framkvæmdastjóra
Lífeyrissjóðs verkfræðinga tel ég
vera spennandi. Það tengist þeim
markaði sem ég hef starfað á í um tíu
ár, fyrst hjá Kaupþingi en síðan
Verðbréfaþingi.
Hitt er svo að nú er að mínu mati
góður tímapunktur til breytinga og
að nýr framkvæmdastjóri taki við af
mér. Uppbyggingu innviða hjá Verð-
bréfaþingi og á fjármálamarkaðinum
er í stórum dráttum lokið, þótt alltaf
verði einhverjar breytingar. Miklu
hefur verið áorkað og
stefnumótandi ákvarð-
anir verið teknar,“ seg-
ir Stefán og nefnir sér-
staklega í því sambandi
nýlega viljayfirlýsingu
Verðbréfaþings um að-
ild að NOREX, sam-
starfi norrænna kaup-
halla, og tengingu
íslenska verðbréfa-
markaðsins við öflugt
alþjóðlegt viðskipta-
kerfi.
Tryggvi Pálsson,
stj órnarformaður
Stefán Verðbréfaþings Is-
Halldórsson lands, segir að ákvörð-
un Stefáns hafi komið
stjórnarmönnum á óvart. Hann segir
að stjórninni sé vandi á höndum að
finna eftirmann í stól framkvæmda-
stjóra. Ákvörðun liggi ekki iyrir um
hvort staðan verði auglýst, en verði
væntanlega tekin á stjórnarfundi í
næstu viku.
„Ég tel að þekking Stefáns og
dugnaður hafi skilað Verðbréfaþingi
miklum árangri á þeim fimm árum
sem hann hefur verið framkvæmda-
stjóri. Framundan er það mikilvæga
verkefni að ljúka samningum um að-
ild þingsins að NOREX og Stefán
mun aðstoða við það verk þar til
hann lætur af störfum í haust,“ segir
Tryggvi.