Morgunblaðið - 01.04.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 35
Deilt um lávarðartign Ashcrofts
London. AFP, The Daily Telegraph.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Michael
Ashcroft, umdeildur auðkýfingur
og gjaldkeri breska íhaldsflokks-
ins, fái lávarðartign gegn því skil-
yrði að hann hafi fasta búsetu í
Bretlandi og greiði þar skatta.
Ashcroft hefur fallist á þetta skil-
yrði, en hann hefur búið í Belís,
fyrrverandi nýlendu Breta í Mið-
Ámeríku, og fyrirtæki hans hafa
notið þar skattfríðinda.
William Hague, leiðtogi breskra
íhaldsmanna, hafði lagt til að Ash-
croft yrði gerður að lávarði.
Kaupsýslumaðurinn er á meðal 33
manna sem tilkynnt var í gær að
fengju lávarðstign.
Helsti fjárhagslegi
bakhjarl Ihaldsflokksins
Ashcroft er umdeildastur þess-
ara manna. Peter Bradley, þing-
maður Verkamannaflokksins,
gagnrýndi tilnefningu „manns sem
hefur verið í skattaútlegð megnið
af síðustu tveimur áratugum, hefur
búsetu í öðru landi og er fulltrúi
erlendrar ríkisstjórnar hjá Sam-
einuðu þjóðunum“.
Ashcroft hyggst segja af sér sem
sendiherra Belís hjá
Sameinuðu þjóðunum
og lofaði að hafa fasta
búsetu í Bretlandi
fyrir lok ársins. Hann
ætlar ekki taka sæti í
bresku lávarðadeild-
inni fyrr en hann hef-
ur uppfyllt þetta skil-
yrði, að sögn
talsmanns breska for-
sætisráðuneytisins.
Ashcroft hefur ver-
ið gjaldkeri Ihalds-
flokksins og jafnframt
helsti fjárhagslegi
bakhjarl hans. Talið
er að fjárframlög hans
í flokkinn frá kosningunum árið
1997 nemi þremur milljónum
punda, andvirði 350 milljóna
króna. Hann hefur einnig veitt
flokknum lán að andvirði allt að
tveggja milljóna punda, 230 millj-
óna króna, á þessum tíma.
Tilnefningu Ashcrofts
hafnað í fyrra
Nefnd sem fjallar um tilnefning-
ar til lávarðartignar hafnaði Ash-
croft í fyrra vegna
deilna um viðskipta-
hagsmuni hans er-
lendis. The Times
birti þá skýrslur frá
utanrlkisráðuneytinu
þar sem fram kom að
embættismenn þess
höfðu áhyggjur af því
að efnahagur Belís
væri orðinn of háður
fyrirtæki Ashcrofts,
BHI Corporation.
Kaupsýslumaðurinn
var sagður hafa sent
seðlabankastjóra Bel-
ís bréf þar sem hann
hefði hótað því að
draga allar fjárfestingar sínar í
landinu til baka ef gerðar yrðu
breytingar á lögum sem veittu
honum 30 ára skattfríðindi.
The Times sagði að vinir Ash-
crofts í breska utanríkisráðuneyt-
inu á valdatíma íhaldsmanna hefðu
beitt sér fyrir því að stjórnvöld í
Belís tryggðu að banki hans yrði
undanþeginn nýrri skattalöggjöf.
Blaðið dró hins vegar til baka
ásakanir um að Ashcroft væri við-
Michael Ashcroft
riðinn lögbrot eiturlyfjasmyglara
eða peningaþvætti eftir að
kaupsýslumaðurinn höfðaði meið-
yrðamál gegn blaðinu. Ashcroft
lýsti því þá yfir að hann hygðist
flytja búferlum til Bretlands og
Hague, sem hafði stutt hann
dyggilega í orrahríðinni, tilnefndi
hann til lávarðartignar.
Lávörðum Verkamanna-
flokksins fjölgað
20 nýju lávarðanna 33 eru félag-
ar í Verkamannaflokknum, fjórir
eru íhaldsmenn og níu frjálslyndir
demókratar. íhaldsmenn hafa átt
flest sæti í lávarðadeildinni og
stjórn Verkamannaflokksins hefur
reynt að jafna stöðu flokkanna þar.
699 lávarðar eiga nú sæti í deild-
inni, að nýju lávörðunum meðtöld-
um, og þar af eru 236 íhaldsmenn
og 202 félagar í Verkamanna-
flokknum.
Tony Blair hefur skipað 203 lá-
varða frá því hann varð forsætis-
ráðherra fyrir tæpum þremur ár-
um. Margaret Thatcher skipaði
hins vegar 201 lávarð á ellefu ára
valdatíma sínum.
Mætti með
sprengju í
brúðkaup
Peking. AFP.
AFBRÝÐISAMUR eiginmaður
myrti eiginkonu sína og son og
hefndi sín því næst á fjölskyldu kon-
unnar með því að sprengja sprengju
í brúðkaupi eins ættingja hennar
með þeim afleiðingum að 38 manns
létust og 30 særðust.
Liu Zhanjin myrti eiginkonu sína
og son í febrúar og faldi lík þeirra í
útikamri húss síns í þorpinu Shajian
í Kína. Liu grunaði eiginkonu sína
um að eiga í ástarsambandi. Hann
sagði því ættingjum sínum að hún
hefði yfirgefið sig og tekið son þeirra
með sér og skipulagði á sama tíma
hvernig hann gæti hefnt sín á ætt-
ingjum hennar með því að mæta í
brúðkaup eins þeirra með 50 kg
sprengju á handvagni.
I sprengingunni fórust samstund-
is 25 manns, þar á meðal Liu sjálfur,
og þrettán til viðbótar hafa síðan lát-
ist af sárum sínum. Enn eru nokkrir
alvarlega særðir og telur lögregla
því ekki ólíklegt að tala látinna
hækki.
I auglýsingu, sem birtist í Morgunblaðinu þann 16. mars sl., eru bornir saman
eiginleikar og verð bíla í sama verðflokki. Þau leiðu mistök virðast hafa
orðið að Peugeot 406 er sleppt í samanburðinum. Það leiðréttist hér með
og við baetum við lengd og breidd bílanna.
Tegund Vélarstærð Hestöfl ABS Loftpúðar Hnakkapúðar CD Fjarstýrð hljómtæki Hátalarar Þokuljós Lengd Breidd Verð frá
Peugeot 406 1800 16v 112 já 2 5 já nei 4 nei 4,60 m 1,77 m 1.695.000 kr.
Laguna 1600 16v 107 já 4 5 já já 6 já 4,51 m 1,75 m 1.678.000 kr.
Avensis 1600 16v 110 já 4 5 nei nei 4 nei 4,49 m 1,71 m 1.680.000 kr.
Vectra 1600 16v 101 já 2 5 nei nei 6 nei 4,49 m 1,71 m 1.660.000 kr.
Passat 1600 8v 101 já 4 5 já nei 4 nei 4,67 m 1,74 m 1.690.000 kr.
# >
*
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24 ■ s. 520 1100
Sýningar og prufubílar eru einnig á eftirtöldum stöðum: Akranes: Bílver s. 431 1985, Akureyri: Bílasala Akureyrar s. 461 2533,
Vestmannaeyjar: Bilaverkstæðið Bragginn s. 481 1535, Keflavík: Bílavik ehf. s. 421 7800.
PEUGEOT