Morgunblaðið - 01.04.2000, Side 36
36 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Haukurinn frumsýndur í íslensku óperunni í kvöld
„Bjarni
Haukur
fer með
gaman-
mál“
„ÆTLUNIN er að fá fólk til að
brosa út í annað,“ segir Bjarni
Haukur Þórsson leikari um
uppistand sem hann frumsýnir í
íslensku óperunni í kvöld. Hauk-
urinn hcitir sýningin, Ieikstjóri er
Sigurður Sigurjónsson og tónlist-
in er flutt af Mána Svavarssyni.
„Það var eitthvert Ieikrit í
gangi í Islensku óperunni - hvað
hét það nú aftur? Hellisbúinn eða
eitthvað svoleiðis, held ég. Það
fjallaði aðallega um samskipti
kynjanna og það var ekkert varið
í það. Nema hvað að það gekk
svo svakalega lengi hérna að það
komst bara ekkert annað að. En
loksins þegar það hætti, þá feng-
um við hérna inni,“ segir Bjarni
Haukur.
Ekki Hellisbúinn II
„Síðastliðið ár hef ég verið að
reyna að skrifa einhverja brand-
ara og senda Sigurði Sigur-
jónssyni í tölvupósti. Megnið af
þeim sendi hann til baka með ein-
kunninni „Glatað!" en þó hefur
einn og einn sloppið í gegn. Nú
erum við búnir að taka þetta
saman og búa til mikla gleðidag-
skrá - Bjarni Haukur fer með
gamanmál," segir hann og þver-
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Bjarni Haukur Þórsson er aftur kominn á sviðið í íslensku óperunni, nú með uppistandið Haukinn.
tekur fyrir að hér sé á ferð Hell-
isbúinn II. „Þetta er ekki list-
fræðilegt leikverk - þetta er bara
uppistand eins og það heitir á
góðri fslensku."
Á sviðinu er þó aðeins meira en
maður með hljóðnema, því með
sér á sviðið dregur Bjarni Hauk-
ur þríhjól. „Aftan á hjólinu er
mikill kassi og í kassanum leynist
ýmislegt sem ég dreg upp þegar
við á,“ segir hann.
En um hvað er svo uppista-
ndið?
„Hellisbúinn fjallaði eingöngu
um samskipti kynjanna en hér er
tekið á öðrum málum, svo sem
sveitinni og bændum, klósettinu,
áfengisnotkun, hestum og hund-
um og samskiptum manna við þá
- og aðeins á hjónabandinu. Svo
er líka gert heilmikið grin að
Dönum og Könum, Banda-
ríkjaforseta þar á meðal. Allt
ósköp ópólitískt og „ligeglad" og
ekki gert til þess að stuða einn
né neinn - að minnsta kosti ekki
mikið. Nú er byrjað að vora og
við þurfum aðeins að fara að
hlæja og lyfta okkur upp. Þetta
er nú aðaltilgangurinn og ef það
tekst þá er ætlunarverkinu náð.
Ef ekki þá er það allt í lagi - þá
fara menn bara að gera eitthvað
annað,“ segir Bjarni Haukur.
Messa
Gunnars
Þórðar-
sonar
flutt
HEILÖG messa eftir Gunnar
Þórðarson við texta sr. Sigurð-
ar Helga Guðmundssonar verð-
ur flutt í Langholtskirkju ann-
að kvöld, sunnudagskvöld, kl.
20.30.
Gunnar samdi messuna sl.
haust að beiðni Víðistaðakirkju
og var hún frumflutt þar á
nýársdag. í framhaldi af því var
verkið tekið upp á geislaplötu
sem nýkominn er út. Flytjend-
ur eru Kammersveit Hafnar-
fjarðar, Þórunn Guðmunds-
dóttir, sópran, Sigurður
Skagfjörð Steingrímsson, ba-
ríton og Aldamótakórinn sem
skipaður er söngfólki úr Kam-
merkór Hafnarfjarðar, Alfta-
neskómum, Kór Víðistaða-
sóknar og Kór Vídalínskirkju.
Stjórnandi er Úlrik Ólason.
Snælands-
skólií
Kringlunni
KÓR Snælandsskóla syngur í Kringl-
unni í dag, laugardag, kl. 11,13 og kl.
15. Kórinn er á förum til Bandaríkj-
anna, Vínlands, og mun syngja þar á
menningarhátíð sem íramundan er í
Norfolk og eru tónleikamir í Kringl-
unni til styrktar þeirri för.
Ingólfur
er kom-
inn heim
í ÁRBÆJARSAFNI verður opnuð
sýningin Saga Reykjavíkur - frá
býli til borgar í dag kl. 16. Sýningin
er í stærsta húsi safnsins, Lækjar-
götu 4. Þar verður saga Reykjavík-
ur rakin frá landnámi til nútimans
°g byggir sýningin að stórum hluta
á rannsóknarvinnu Árbæjarsafns,
fomleifauppgreftri í Aðalstræti og
Viðey, rannsóknum á sögu Inn-
réttinganna, minjum 19. og 20.
aldar og byggingarsögu borgar-
innar. Sviðsetningar, fomminjar,
munir og Ijósmyndir gefa gestum
innsýn í mismunandi tímabil sög-
unnar. Sérstök áhersla er Iögð á at-
vinnuhætti og þróun þeirra. Við
opnunina munu Bjöm Bjarnason
menntamálaráðherra og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarsljóri
flytja ávörp.
í tengslum við sýninguna verður
skólabörnum boðið upp á fræðslu
um fortíð borgarinnar. Einnig
verður efnt til fyrirlestraraðar í
samvinnu við Reykjavíkur-
akademiuna undir yfirskriftinni:
Lífið í Reykjavík. Þá verður sett
upp ný sýning i einu safnhúsanna í
samvinnu við Menntafélag bygg-
ingariðnaðarins sem varpa mun
ljósi á byggingarsögu Reykjavíkur,
sú sýning verður opnuð hinn 1. júní.
Þann dag verður einnig opnuð sýn-
ing um sögu bíliðna í Reykjavík,
sem unnin er í samvinnu við Bíl-
iðnafélagið. Þá mun og verða opn-
uð bókastofa í safninu þar sem
liggja frammi margvíslegar upp-
lýsingar fyrir almenning, skólafólk
og fræðimenn um sögu Reykjavík-
ur.
Einnig verður útbúin heimasíða
fyrir sýninguna sem gestir geta
skoðað á staðnum eða heima hjá
sér.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ingólfi Arnarsyni landnámsmanni fundinn staður á sýningunni í Ár-
bæjarsafni. Það er Anna Lísa Guðmundsdóttir, deildarstjóri Árbæjar-
safns, sem hagræðir hér Ingólfi.
M-2000
Laugardagur 1.
apríl.
Árbæjarsafn -
mr minjasafn
% Reykjavíkur. Kl. 16.
Saga Reykjavíkur -
Frá býli til borgar.
Raldn verður saga borgarinn-
ar frá landnámi til von-a tíma
með texta teikningum, ljós-
myndum, sviðsetningum,
skyggnusýningu og notkun
margmiðlunar í tölvum. Skóla-
bömum verður einnig boðið upp
á markvissa fræðslu um fortíð
borgarinnar auk þess sem ráð-
stefnur, fyrirlestrar og sértæk-
ar sýningai- verða skipulagðar.
www.rvk.is/arbaer
Háskólabio kl. 13.30.
Lúðrasveitin Svanur - Af-
mælistónleikar.
Lúðrasveitin Svanur fagnar
70 ára afmæli um þessar mund-
ir. Af því tilefni verður frumflutt
nýtt tónverk eftir Tryggva M.
Baldvinsson auk tónlistar úr
ýmsum áttum. Stjómandi er
Haraldur Ami Haraldsson.
wwwn.nt.is/svanur.
Kirkjuhvoll, Akranesi, kl. 16.
Myndlistarsýning - Sjávar-
list.
Sossa og Gyða L. Jónsdóttir
opna málverka- og höggmynda-
sýningu í tengslum við verkefnið
Sjávarlist. Sýningin stendur til
16. aprfl. Sjávarlist er eitt af
samvinnuverkefhum Menning-
arborgar og sveitarfélaga.
www.akranes.is.
Bjamarlaug, Akranesi. Kl.
20.
Lifðu - leiksýning.
Skagaleikflokkurinn
frumsýnir leikritið „Lifðu“ eftir
Kristján Kristjánsson í tengsl-
um við hina fjölbreyttu menn-
ingardagskrá bæjarins.
Skíðalandsmót 2000.
Skálafell. KI. 9.30.
Svig, boðganga karla 3 x 10
km, boðganga kvenna 3 x 3.5 km
og brettamót.
Skíðalandsmót 2000 er liður í
Vetraríþróttahátíð ÍBR.
http://www.toto.is/skildi2000.
Kringlan kl. 14.
Hópur nemenda úr Öskju-
hlíðarskóla skemmtir á sviðinu í
Kringlunni. Flutt verður atriði
úr söngleiknum Sæbúar eftir
Ólaf B. Ólafsson sem frumsýnd-
ur verður í íslensku ópemnni
laugardaginn 8. aprfl.
Dagskrámar era liður í dag-
skrá Reykjavíkur - Menningar-
borgar Reykjarvíkur.
www.reykj avik2000.is.
Ratleikur á
Kjarvalsstöðum
FJOLSKYLDUDAGUR verður á
Kjarvalsstöðum á morgun, sunnu-
dag, og hefst dagskráin með ratleik
kl. 14. Vettvangur leiksins er Kjar-
valssýningin sem nú stendur yfir og
er fræðslu um sýninguna blandað
saman við leiki og þrautir og leiðir
safnkennari leikinn. Hver þátttak-
andi fær í hendur tösku með vís-
bendingum eða lyklum að ákveðnum
verkum. Að leikslokum fæst lausn á
gátunni sem í þessu tilviki er fólgin í
listinni.
Þátttökugjald er 600 krónur fyrir
hvert barn. Aðgangur er ókeypis
fyrir fullorðna í fylgd með baminu.
Markmið fjölskyldudaga safnsins
er að gefa börnum og fullorðnum
tækifæri til að eiga saman fræðandi
stund á safninu.
Alla sunnudaga kl. 16 er boðið upp
á almenna leiðsögn um sýningar
safnsins.
Sýningu lýkur
Sýningunni Carnegie Art Award
lýkur nú á sunnudag og er ókeypis á
Kjarvalsstaði þessa síðustu sýning-
arhelgi. Sýningin var sett á laggirn-
ar til að styðja framúrskarandi lista-
menn á Norðurlöndum og halda á
lofti merki málaralistar í hæsta
gæðaflokki.