Morgunblaðið - 01.04.2000, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
IM
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 43
Segulörvun
gegn geðklofa
London. AP.
GEÐKLOFASJÚKLINGAR sem
heyra raddir kunna að eiga von um
nokkra bót meina sinna með segul-
örvun heilans, að því er fyrstu niður-
stöður vísindarannsóknar, er greint
var frá í læknaritinu Lancet nýverið,
benda til.
í ljós kom, að þeir sjúklingar, sem
gengust undir segulmeðferð á þeim
hluta heilans sem stjórnar radd-
skynjun, fundu til færri og lágværari
raddofskynjana en þeir sjúklingar
sem gengust undir hliðstæða gervi-
meðferð.
Verði þessar niðurstöðm- staðfest-
ar í frekari rannsóknum gætu þær
aukið skilning á orsökum ofskynjana
og hvemig koma megi í veg fyrir
þær. Um það bil eitt prósent jarð-
arbúa þjáist af geðklofa, eða skitsó-
freníu, og um 50-70% þeirra heyra
raddir. I um 20% tilfella duga lyf
ekki til að þagga niður í þeim.
Dr. Anthony David, prófessor í
taugageðlækningum í London, sagði
niðurstöðumar lofa góðu. Dávid var
ekki meðal höfunda rannsóknarinn-
ar. Geðklofi hefur stundum verið nefndur „sjúkdómur einsemdarinnar“.
Vinna C- og E-vítamín
gegn elliglöpum?
New York. Reuters Health.
NY rannsókn hefur leitt í ljós, að
eldri mönnum sem tóku E- og C-
vítamínbætiefni að minnsta kosti
einu sinni í viku í nokkur ár var síð-
ur hætt við elliglöpum og sýndu
jafnvel framfarir í hugarstarfi, þ.á
m. minni, skapandi hugsun og eftir-
tekt. Dr. Kamal H. Masaki og sam-
starfsmenn hans við Kuakini-lækna-
miðstöðina í Honolulu á Hawaii
greindu frá þessari niðurstöðu í
marshefti vísindaritsins Neurology.
Könnuð var bætiefnaneysla rúm-
lega þrjú þúsund manna 1988, og
einnig var safnað upplýsingum frá
1982 um suma. Ekki kom fram
hversu mikið mennimir tóku af
hvoru vítamíni. Mennimir vom á
aldrinum 71 til 93 ára og gengust
þeir aftur undir rannsókn 1993.
Þeir sem tóku einungis E- eða C-
vítamín 1988 stóðu sig betur í
minnisprófi 1993 en þeir sem tóku
engin bætiefni, að því er vísinda-
mennirnir greina frá. Þeir sem tóku
bæði vítamínin stóðu sig einungis
h'tið eitt betur en þeir sem tóku
engin bætiefni. Höfundar rannsókn-
arinnar segja þó, að mönnum sem
tóku bæði E- og C-vítamín í mörg
ár hafi farið umtalsvert fram „og
bendir það til þess, að langtíma-
neysla sé nauðsynleg til þess að
hafa jákvæð áhrif á hugarstarf síðar
á ævinni“.
Vísindamennirnir telja að C- og
E-vítamín kunni að koma í veg fyrir
heilaskemmdir þar eð þau em and-
oxunarefni.
Tengsl verkja-
lyfs og astma?
London. Reuters, The Daily Telegraph.
NOTKUN verkjalyQa sem inni-
halda virka efnið paracetamól
kann að gera astmakösti verri,
að því er vi'sindamenn greindu
frá í ritinu Thorax í liðinni viku.
Þeir segja þó, að taka beri þessu
með fyrirvara því ekki sé um að
ræða að lyf, sem innihalda efnið,
beinlúiis valdi astma.
Rannsóknin, sem leiddi þctta í
Ijós, var gerð á úrtaki 664
astmasjúklinga og 910 manns
sem ekki eru með astma, og stóð
í eitt ár. I ljós kom, að fullorðnir
astmasjúklingar sem tóku para-
cetamól vikulega voru allt. að
80% líklegri tO að fá astmaköst
en þeir sem ekki tóku slík lyf. Þá
komu einnig f ljós tengsl milli
mikillar notkunar paracetamóls
og alvarlegri asmakasta og
bólgu i slúnhúðinni í nefinu.
Vísindamennimir segja að
hugsanlega sé orsökin sú, að
paracetamól dragi úr magni
andoxunarefnisins glútaþíóns,
sem fínnst í öndunarfærunum
og er talið vemda lungun fyrir
slæmum áhrifum mengaðs lofts
og aðskotaefna.
Leggja vísindamennimir til,
að astmasjúklingar dragi úr
notkun paracetamóls eftir
megni, en þeir sem þjást af þess-
um sjúkdómi geta ekki tekið
aspirfn eða skyld lyf, því þau
geta haft alvarlegar aukaverk-
anir fyrir sjúklingana.
Vísindamennimir segja að
frekari rannsókna á tengslum
þessum sé þörf og að astma-
sjúklingar eigi ekki að taka að
nota önnur verkjalyf í stað para-
cetamóls. Enn beri að líta svo á
að óhætt sé að nota lyf sem inni-
halda efnið.
Átröskun ættgeng
New York. Reuters.
KONUM er miklu hættara við lyst-
arstoli eða lotugræðgi ef systur
þeirra eða mæður eru þegar haldn-
ar þessum átröskunum.
Þetta er niðurstaða rannsóknar
vísindamanna við Pittsburgh-há-
skóla í Pennsylvaníu sem birt var í
American Journal of Psychiatry.
Vísindamennirnir báru saman tíðni
átröskunar meðal skyldmenna 323
kvenna með lystarstol eða lotu-
græðgi annars vegar og 180 heil-
brigðra kvenna hins vegar. Kon-
urnar voru á aldrinum 18-28 ára.
Niðurstaðan var sú að meðal
kvenna í fjölskyldum þeirra sem
áttu við átröskun að stríða var
lotugræðgi fjórum sinnum algeng-
ari og lystarstol ellefu sinnum al-
gengara en í viðmiðunarhópnum.
Körlum í fjölskyldum kvennanna
jneð átröskun virtist hins vegar
ekki vera hættara við sjúkdómun-
um.
Vísindamennirnir röktu niður-
stöðu rannsóknarinnar til blöndu
af „fjölskyldu- og erfðaáhrifum“ en
sögðu að ekki væri enn vitað hvor
þessara þátta væri mikilvægari.
I annarri rannsókn könnuðu vís-
indamenn við Virgina Common-
wealth-háskóla tíðni lystarstols og
geðdeyfðar meðal rúmlega 2.100
kventvíbura (bæði eineggja og tví-
eggja). 77 kvennanna (eða 3,6%)
reyndust með lystarstol og sex
þeirra áttu tvíburasystur sem var
haldin átröskuninni. Vísindamenn-
irnir leiddu getum að því að erfða-
fræðilegir þættir hefðu veruleg
áhrif á hættuna á lystarstoli og
ykju hana um 58%.