Morgunblaðið - 01.04.2000, Page 92
Netþjónar
og tölvur
COMPAQl
Hefur þitt fyrirtæki
efni á aö eyða tíma
starfsfólksins í bið?
Það er dýrt að láta starfsfólkið biða!
Tðlvukerfi sem virkar F'IC' I
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3IM0,
ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: KfilSTJ@MBL.ÍS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunbiaðið/RAX
Forsljóri Landsvirkjunar um byggingu Kárahnúkavirkjunar
Félag með öðr-
um hugsanlegt
Vorgalsi
Það lifnar yfir mannlífinu þegar
vorar og sólin fer að skína. Vorgalsi
hleypur í unga fólkið í bjartviðrinu,
eins og þessi mynd sýnir sem tekin
var í Hafnarfirði í gær.
-----
Kópavog-
ur hættir
í Knatt-
húsum
BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur
ákveðið að kanna möguleika á að
byggja yfir gervigrasvöllinn í Smár-
anum en taka ekki þátt í samstarfi
við Knatthús ehf. um að reisa yfir-
~ÍA'ggðan knattspyrnuvöll í Vetrar-
mýri í Garðabæ í samstarfi við
Hafnarfjarðarbæ, Garðabæ og
Bessastaðahrepp. „Það var þver-
pólitísk samstaða um þessa ákvörð-
un,“ sagði Gunnar I. Birgisson, for-
maður bæjarráðs.
Að sögn Gunnars myndi yfir-
byggður gervigrasvöllur í Smáran-
um tengjast íþróttahúsinu og þeirri
aðstöðu sem þar væri fyrir hendi.
„Þarna eru öll bílastæði fyrir hendi,
hægt er að samnýta aðstöðu í
\*ífcróttahúsinu, búningsaðstöðu og
annað og enga hitun þarf inn í húsið,
því hitalögn er undir vellinum,"
sagði hann.
■ Kópavogur/18
------♦-+-♦------
Komst í 32-
manna úrslit
KRISTJÁN Helgason, snókerspil-
ari, tryggði sér í gær rétt til að leika í
32-manna úrslitum á Opna skoska
meistaramótinu.
Næsti leikur hans er á miðviku-
daginn og þá mætir hann líklega
•'“TVÍark Williams sem nú er talinn besti
snókerspilari í heimi.
■ Mætir/Bl
FRIÐRIK Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að eitt af því
sem muni koma til athugunar við
undirbúning vegna Kárahnúkavirkj-
unar sé hvort Landsvirkjun eigi að
standa að slíkum framkvæmdum ein
og sér eða mynda um það sérstakt og
sjálfstætt félag, með öðrum fjárfest-
um, t.d. öðrum orkufyrirtækjum,
innlendum og erlendum.
„Slík rannsókn mun fara fram á
næstunni og ætti að leiða í ljós með
hvaða hætti er hentugast og hag-
kvæmast að standa að þessum fram-
kvæmdum, ef af þeim verður,“ sagði
hann.
Einkaréttur Landsvirkjunar til að
reisa og reka vatnsaflsvirkjanir
rennur út árið 2001. Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðarráðherra var
spurð hvort væri sjálfgefið að
Landsvirkjun yrði falið að reisa
Kárahnúkavirkjun. Hún sagði að
reiknað væri með því að Lands-
virkjun færi í einhveiju formi í þetta
verk. „En hvort hún stofnar um það
sérstakt hlutafélag er annað mál og
getur vel komið til greina," sagði
Valgerður.
Friðrik segir að ítarlegri upplýs-
ingar þurfi að liggja fyrir áður en
ákvarðanir verði teknar. Margt þurfi
MIKILL áhugi er á því meðal
stjórnenda og bankaráðs Lands-
bankans að gengið verði hratt til
viðræðna um möguleika á samein-
ingu Landsbankans og Búnaðar-
bankans, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins.
Fram kom í yfirlýsingu banka-
ráðs Landsbankans sl. fimmtudag
að ef til sameiningar milli íslands-
banka og Fjárfestingarbanki at-
vinnulífsins kemur blasi við að væn-
legt sé að sameina Landsbanka og
Búnaðarbanka. Brýnt sé að stjórn-
völd greiði fyrir ákvörðunum um
frekari hagræðingu í bankakerfinu.
Skv. heimildum blaðsins er það
vilji stjórnenda Landsbankans að
formlegar grundvallarákvarðanir
um sameiningu Landsbankans og
Búnaðarbankans verði teknar fljótt
og innan þess tímaramma sem við-
ræður FBA og íslandsbanka eru í,
að skoða, því augljóst sé að fram-
kvæmdimar myndu hafa áhrif á
lánshæfi fyrirtækisins og eigið fé. „I
þessu fælist gífurleg skuldaaukning.
Landsvirkjun skuldar nú tæpa 70
milljarða, en þessar framkvæmdir
allar myndu einar kosta um 90 millj-
arða. Þótt ég sé nú sjálfur vanur
stórum tölum úr mínu fyrra starfi er
þetta auðvitað gríðarlega há tala í
ljósi þess að um einstakt fyrirtæki er
að ræða. Því er brýnt að finna bæði
hentugustu og hagkvæmustu lausn-
ina,“ segir hann.
■ Hentar aðeins/47
þannig að þessi tvö mál haldist í
hendur.
Viðskiptaráðherra vill ekki
selja hluti ríkisins strax
„Ég tel að skapast hafi tiltölulega
jákvætt andrúmsloft gagnvart því
að látið verði reyna á sameiningu
Landsbanka og Búnaðarbanka. Það
verður að einhenda sér í að skoða
það mál,“ sagði Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráðherra í gær.
Aðspurð segist Valgerður telja
rétt að bíða með frekari sölu á eign-
arhlut ríkisins í Landsbankanum og
Búnaðarbankanum þar til séð verði
fyrir endann á samruna banka-
stofnana, sem nú er til umræðu.
„Ég vil ekki ana að frekari sölu og
tel að það sé ekki komið að því að
ríkið selji meira í bönkunum. Fyrst
verði látið reyna á frekari sam-
runa,“ sagði viðskiptaráðherra.
Heldur
ótrauður
áfram
HARALDUR Örn Ólafsson norður-
pólsfari hefur ákveðið að stefna á
norðurpólinn eftir að hafa lokið
þriggja daga reynslutíma úti á ísn-
um einsamall. Honum miðar vel
áfram og er einskis vant, en gerir
ráð fyrir að fá birgðir til sín út á ís-
inn eftir tvær vikur.
Haraldur náði góðum árangri á
fimmtudag er hann gekk 19,3 km í
góðu færi: „Ég var alveg í skýjunum
yfir þessari vegalengd, þetta var
mikill sigur fyrir mig,“ sagði hann er
hann gaf skýrslu hjá bakvarðasveit-
inni í gær. „Ég var þreyttur eftir
daginn, enda tók ég hraustlega á, en
rosalega ánægður. Færið hefur
aldrei verið eins gott, og þetta var
albesti dagurinn í leiðangrinum."
Fyrst Haraldur hefur nú ákveðið
að halda förinni áfram er Ingþór
væntanlegur til íslands á mánudag,
en hann hefur dvalið í Resolute síð-
an á miðvikudag og tekið til birgðir
handa Haraldi. Hann er á hægum en
góðum batavegi eftir kalið.
■ Mun þyngra/6
Ljósmynd/Yann Kolbeinsson
Ovenju
mikið af
svartþröstum
ÓVENJU mikið hefur borið á svart-
þröstum í þeim þrastahópum sem
komnir eru til landsins, en fyrstu
hópamir komu um sfðustu helgi og
er þetta hugsanlega í fyrsta skipti
sem svo stór svartþrastahópur
kemur til landsins að vorlagi.
Flestir sáust svartþrestirnir í
Austur-Skaftafellsýslu eða yfir 150
fuglar og undir Eyjafjöllum, 22
fuglar, en einnig hefur svartþröst-
ur fundist í nágrenni Reykjavíkur.
Samningar Flóabandalagsins
Atkvæði talin í dag
ATKVÆÐI um kjarasamning
Flóabandalagsins og Samtaka
atvinnulífsins verða talin í dag,
en frestur til að skila atkvæða-
seðlum rann út í gær.
Aðild að kjarasamningnum
eiga þrjú verkalýðsfélög, Efling-
stéttarfélag í Reykjavík, Hlíf í
Hafnarfirði og Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur. Um
póstatkvæðagreiðslu er að ræða
og verða atkvæði talin sameigin-
lega.
Halldór Björnsson, formaður
Eflingar, sagði að talning myndi
hefjast fyrir hádegi í dag. Hann
átti ekki von á að niðurstaða
lægi fyrir fyrr en um miðjan
dag, þar sem um nokkuð tíma-
freka talningu væri að ræða.
MITSUBISHI
MITSUBISHI
- demantar í umferð
HEKLA
íforystuánýrriöld!
Stjórnendur Landsbanka
um samruna ríkisbankanna
Akvarðanir
teknar sem fyrst