Morgunblaðið - 19.04.2000, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Starfsemi Landsbankans
á Akureyri efld
LANDSBANKI íslands hefur opnað
þjónustuver á Akureyri og jafnframt
hefur Viðskiptastofa Landsbankans
á Akureyri verið efld.
í þjónustuveri Landsbankans á
Akureyri verða í byijun 3 störf en
stefnt er að því að öll aukning í þess-
ari starfsemi hjá bankanum á næst-
unni komi fram í fjölgun starfa í þjón-
ustuverinu á Akureyri, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá Lands-
bankanum. Um miðlæga þjónustu er
að ræða, þannig að þeir sem hringja
munu jafnt njóta þjónustu frá
Reykjavík og Akureyri.
Hjá Viðskiptastofu Landsbankans
á Akureyri munu alls starfa sex há-
skólamenntaðir sérfræðingar, að
starfsmanni Landsbréfa meðtöldum.
Starfsemi Viðskiptastoíunnar hefur
verið flutt í húsnæði á 2. hæð útibús
Landsbankans á Akureyri, við hlið
þjónustuversins.
Sigurður Sigurgeirsson, svæðis-
stjóri Landsbankans á Norðurlandi,
segir í fréttatilkynningunni að sterk
staða bankans á fyrirtækjasviði á
Norðurlandi geri bankanum kleift að
byggja starfsemi sem þessa á Akur-
eyri. Sigurður nefnir einnig aðgengi
að sérmenntuðu fólki sem tryggt er
með starfsemi Háskólans á Akureyri.
BRAVILOR
Ánægðir gestir
koma alltaf aftur
Bjóddu þínum viðskiptavinum upp á bragðgott ilmandi kaffi sem
helst heitt og ferskt. Bravilor kaffivélar eru til í mörgum staerðum og
gerðum, veldu þá sem hentar þér og þínu fyrirtæki. Hagkvæmar,
smekklegar og einfaldar vélar sem krefjast lágmarks viðhalds.
Veldu Bravilor og búðu í haginn fyrir tíðar heimsóknir viðskiptavina.
Bravilor kaffivélar sjóða vatnið og hella bæði upp d
hitabrúsa og glerkönnur -13 bollar d aðeins 5 mtn.
A. Karisson hf. er þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir
sig í heildariausnum fyrir iðnað, matvæla-, versl-
unar- og hótelrekstur. Persónuleg samskipti og
lipur þjónusta auðvelda þér að búa þitt fyrirtæki
enn betur með vörum í hæsta gæðaflokki. Ef þú
leitar hagstæðra lausna fyrir þinn reksturfinnurðu
svarið hjá okkur. A. Karlsson hf.
A. KARLSSON hf.
Brautartiolt 28 • 105 Reykjavik
Simi 5 600 900 • Fax 5 600 901
www.akarisson.is
Stefán Friðfinnsson, forstjóri íslenskra aðalverktaka, ásamt hluta stjórnarmanna á aðalfundinum. Næst honum
sitja Sveinn R. Eyjóifsson stjórnarformaður Frjálsrar fjölntiðlunar og Árni Grétar Finnsson hrl.
Morgunblaðid/Jim Smart
Aðalfundur íslenskra aðalverktaka hf.
Ahugi á samstarfí við er-
lendan aðila til framtíðar
MIKILL áhugi er af hálfu stjórnar
íslenskra aðalverktaka á að fá að fé-
laginu traustan erlendan samstarfs-
aðila á sviði verktöku og mannvirkja-
gerðar til framtíðar. Þetta kom fram
í ræðu Jóns Sveinssonar, stjórnar-
formanns íslenskra aðalverktaka, á
aðalfundi félagsins í gær.
íslenskir aðalverktakar keyptu á
síðasta ári allt hlutafé í bygginga-
verktakafyrirtækjunum Armanns-
felli, Álftarósi og Úlfarsfelli. Öll fé-
lögin hafa nú verið sameinuð undir
merkinu ÍAV og annast félagið al-
hliða verktakastarfsemi innan og ut-
an varnarsvæðisins á Keflavíkurflug-
velli. Starfsemi utan vamarsvæða
hefur eflst verulega eftir kaupin á
verktakafyrirtækjunum.
í yfirlitsræðu Jóns Sveinssonar
kom fram að mikil umsvif væru fram-
undan á sviði ýmiss konar stórfram-
kvæmda á næstu árum. Hann nefndi
virkjanir og jarðgangagerð, auk tvö-
fóldunar Reykjanesbrautar. Við und-
irbúning slíkra verka væri ætlunin að
byggja á þekkingu og afli samstæð-
unnar en jafnframt að afla félaginu
erlendra samstarfsaðila í þeim verk-
þáttum sem eru félaginu nýir. Jón
lýsti miklum áhuga stjórnarinnar á
samstarfi við erlendan aðila til fram-
tíðar. „Er það mat stjórnenda að slíkt
muni treysta stoðir félagsins enn
frekar og gera það enn betur sam-
keppnisfært,“ sagði Jón. Á aðalfun-
dinum í gær var stjórn ÍAV hf. end-
urkjörin og samþykkt var að greiða
hluthöfum 7% arð, samtals 98 mil-
ljónir króna. Fram kom að frá ára-
mótum hafa Islenskir aðalverktakar
selt 80 hús, íbúðir eða lóðir á ýmsum
byggingarstigum íyrir nær einn
milljarð króna. Markmið ÍAV er að
geta boðið til sölu um 300 íbúðir á ári.
Stefán Friðfinnsson, forstjóri ÍAV,
segir í samtali við Morgunblaðið að
töluvert hafi verið um samstarf við
erlenda aðila við tilboðsgerð. „Ég tel
æskilegt að fá að félaginu erlenda að-
ila, hvort sem það er með eignarhaldi
eða nánu samstarfi. Svið sem við höf-
um ekki unnið á eins og jarðganga-
gerð verða mjög umfangsmikil í
framtíðinni og við viljum vera þátt-
takendur í því.“
Stefán gerði tvöföldun Reykjanes-
brautar að umtalsefni. Á sínum tíma
fjármögnuðu Islenskir aðalverktak-
ar sf. þá Reykjanesbraut sem nú er í
notkun. Slík tilhögun hefur verið í
umræðunni um tvöfóldun Reykja-
nesbrautar og ef stjórnvöld óskuðu
eftir einkafjármögnun nú yrðu marg-
ir reiðubúnir að gera tilboð, að sögn
Stefáns, sem fullyrti að ÍAV yrði í
þeim hópi.
íslenskir aðalverktakar og Stáltak
hf. hafa skrifað undir viljayfirlýsingu
um að standa að byggingarfram-
kvæmdum á hafnarsvæðinu í
Reykjavík og standa viðræður við
hafnar- og borgaryfirvöld nú yfir, að
því er fram kom í ræðu Stefáns á að-
alfundinum í gær. Svæðið í kringum
Slippinn er eftirsótt íbúðarsvæði, að
sögn Stefáns, en þar áStáltak nokkr-
ar lóðir. Það er von íslenskra aðal-
verktaka að þríhliða samstarf fyrir-
tækjanna tveggja og Reykjavíkur-
borgar takist um uppbyggingu á
svæðinu.
Á fundinum kom fram að höfuð-
stöðvar IAV, sem nú eru í Keflavík,
munu flytjast að Suðurlandsbraut 24
í næsta mánuði. Landsafl keypti hús-
ið nýlega en þar hafa íbúðalánasjóð-
ur og Landsbankinn starfsemi sína
nú.
Landsafl er orðið að einum um-
svifamesta rekstraraðila fasteigna
hér á landi, að því er fram kom í ræðu
Stefáns. Félagið er í 80% eigu ís-
lenskra aðalverktaka en Landsbanki
íslands á 20%. Félagið sinnir fast-
eignarekstri og eignaumsýslu. Fram
kom í máli Jóns Sveinssonar að félag-
ið hefði aukið umsvif sín verulega á
síðasta ári og heildarfjárfesting í
húsnæði til langtímaútleigu næmi nú
um fjórum milljörðum króna. Jón
sagði stjóm ÍAV binda miklar vonir
við Landsafl og vænta verulegs arðs
af starfsemi fyrirtækisins í framtíð-
inni.
Island í 10. sæti
í samkeppnishæfni landa
ÍSLAND er í 10. sæti í könnun IMD
á samkeppnishæfni landa árið 2000
og hefur hækkað um sjö sæti frá síð-
asta ári, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Þjóðhags-
stofnun sem annast hefur gagna-
söfnun varðandi íslenskan hluta
könnunarinnar.
Island hefur verið þátttakandi í
könnun International Institute for
Management Development (IMD)
frá árinu 1995. IMD gefur árlega út
skýrslu þar sem fram kemur mat
stofnunarinnar á samkeppnishæfni
landa út frá þeirri umgjörð sem fyr-
irtækjum er búin. Alls eru 47 lönd
þátttakendur og byggist könnunin á
upplýsingum um 290 mismunandi
atriði. Tölulegar staðreyndir um
efnahagsmál em 2/3 hlutar upplýs-
inganna og þriðjungur endurspegl-
ar viðhorf forráðamanna fyrirtækja.
Efni skýrslunnar er flokkað í átta
efnisþætti: Styrkleiki hagkerfisins,
alþjóðavæðing, stjórnsýsla, fjármál,
innviðir þjóðfélagsins, stjórnun,
tækni og vísindi og mannauður.
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
arinnar nú lendir ísland í fyrsta
sæti varðandi mannauð og í fjórða
sæti hvað varðar styrkleika hag-
kerfisins. Þau atriði sem öðra frem-
ur valda því að Island hækkar um
sjö sæti er stórbætt staða hvað
varðar alþjóðavæðingu landsins, en
þar hækkar Island úr 37. sæti í það
23. Stjórnsýslan styrkist einnig
vemlega í samanburðinum eða úr
14. sæti í það 5. og varðandi stjórnun
fyrirtækja fer Island úr 21. sæti í 15.
sæti.