Morgunblaðið - 06.06.2000, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
Slökkviliðsmenn ganga frá þakkanti sem losnaði á Suðurveri í rokinu.
Rykmistur í
hvassviðrinu
sunnanlands
RYKMISTUR lá yfir höfuðborgar-
svæðinu í gær vegna hvassrar suð-
austanáttar, sem bar með sér fínt
ryk af heiðum og söndunum við
suðurströndina og jafnvel leifar af
öskunni úr gosinu í Heklu í vetur.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni er óvanalegt að svo
þurrt veður sé í slíkri átt. Ekkert
hefur blotnað í jarðveginum og er
hann því frekar laus í sér og fýkur
þá af stað í rokinu.
Meðalvindhraði suðvestanlands
var 13-18 metrar á sekúndu, en
sérstaklega var þó hvasst við suð-
urströndina þar sem meðalvind-
hraði fór upp í 18-20 metra á sek-
úndu. Vindhviður voru einnig mjög
hvassar.
í Keflavík og víðar á Suðurnesj-
um fóru hviðumar upp í 25 metra á
sekúndu og líklega hefur ástandið
verið svipað meðfram suðurströnd-
inni.
Slökkviliðið í Reykjavík var kall-
að út eftir að þakkantur á verslun-
arhúsnæðinu Suðurveri við
Kringlumýrarbraut losnaði í rokinu
og var vegfarendum talin stafa
hætta af. Að sögn varðstjóra gekk
þó fljótt og vel að ganga frá kantin-
um og engin slys urðu á mönnum.
Leik Skagamanna og Vest-
mannaeyinga, sem átti að hefjast
klukkan átta í gærkvöldi á Akra-
nesi, var frestað vegna hvassviðris
eftir að dómari leiksins hafði metið
aðstæður á vellinum.
Veðurstofan gerði ráð fyrir að
áfram yrði hvasst í nótt, en draga á
úr vindinum í dag. Einnig var búist
við rigningu eða skúmm við suður-
ströndina í nótt og í dag og meiri of-
ankomu heldur en í gær.
Til björgunarstarfa á Súmötru á vegum Sameinuðu þjóðanna
Stýrir
alþjóð-
legum
aðgerð-
um
ÞORSTEINN Þorkelsson, skóla-
stjóri björgunarskóla Slysavarna-
félagins Landsbjargar, fer í dag á
vegum Sameinuðu þjóðanna til
Indónesíu þar sem hann tekur
þátt í því að skipuleggja og sam-
ræma björgunaraðgerðir vegna
þeirra hörðu jarðskjálfta sem
urðu á eyjunni Súmötru á sunnu-
dagskvöld.
Þorsteinn er í fimm manna
teymi á vegum UNDAC (United
Nations Disaster Assessment and
Coordination) liðs Sameinuðu
þjóðanna, sem hefur umsjón með
skipulagningu björgunaraðgerða
þar, en félagar hans eru frá
Ástralíu, Fiji-eyjum og Nýju-
Gíneu.
Þorsteinn hefur, ásamt Sólveigu
Þorvaldsdóttur framkvæmda-
stjóra Almannavarna ríkisins,
hlotið þjálfun til að vera hluti af
UNDAC liði Sameinuðu þjóðanna
og er Island á útkallslista hjá
UNDAC ásamt 46 öðrum ríkjum.
„Þegar válegur atburður gerist
senda Sameinuðu þjóðirnar hóp
úr UNDAC liðinu til viðkomandi
lands til að samræma alþjóðlegt
hjálparstarf," segir Þorsteinn í
samtali við Morgunblaðið. „Hlut-
verk hópsins er að meta ástandið
og ná upp samvinnu milli þeirra
sem vinna að björgunar- og hjálp-
arstarfi á vettvangi, hvort sem
það eru stofnanir Sameinuðu
þjóðanna, stjórnvöld í heimarík-
inu eða aðilar á vegum Rauða
krossins.“
Morgunblaðið/Amaldur
Þorsteinn Þorkelsson, skólastjóri björgunarskóla Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, heldur í dag á vegum Sameinuðu þjóðanna til Indónesíu.
Byrjað verður á því að setja upp
samræmingarstöð fyrir hjálpar-
starf í samvinnu við staðaryfir-
völd. Þá segir Þorsteinn að farið
verði um svæðið til að meta áhrif
skjálftans á hús, heilbrigðiskerfið,
rafmagnslínur og fleira, en
stærsti skjálftinn varð við borgina
Bengkulu þar sem búa um 1,2
milljónir manna.
Okkar hlutverk að fá
heildarmynd af ástandinu
„Samkvæmt þeim fréttum sem
við höfum eru fimmtíu til hundrað
manns látnir og er óttast að nokk-
ur hundruð manna séu grafin
undir rústum. Mjög litlar upp-
lýsingar fást úr sveitahéruðunum
í kringum borgina um það tjón
sem orðið hefur þar, en okkar
hlutverk er að fá heildarmynd af
ástandinu á svæðinu."
Þorsteinn segir að liðsmenn
UNDAC eigi að vera tilbúnir að
leggja af stað í ferð sem þessa
með mjög skömmum fyrirvara.
Hann hefur með sér sérstakan
búnað sem allir liðsmenn UNDAC
eru með tilbúinn heima hjá sér og
inniheldur helstu nauðsynjar fyrir
slíka ferð. Þar eru meðal annars
handbækur, lyf og búnaður til að
geta verið sjálfbær í allt að 72
klukkustundir.
Fyrirtæki
sameinast
FRÁGENGIÐ er samkomulag um
að fyrirtækin Fiskanes hf. í Grinda-
vík og Valdimar hf. í Vogum samein-
ist Þorbimi hf. í Grindavík. Sameinað
íyrirtæki, Þorbjöm-Fiskanes, heí'ur
yfir 20.800 þorskígildistonna veiði-
heimildir innan og utan lögsögu. Þar
af er þorskur 9.600 tonn.
Hluthafar í Fiskanesi fá 35,3% hlut
við samrunann, hluthafar í Valdimari
6% og hluthafar í Þorbirni 48,7%.
■ Eitt stærsta/26
----------------
Kaupir húsbréf
fyrir 4 milljarða
MIKLAR ráðstafanir verða nú gerð-
ar til að styrkja húsbréfakerfið og
slá á þenslu. Mun íbúðalánasjóður
kaupa húsbréf fyi-ir minnst 4 millj-
arða kr. á verðbréfamarkaði á næst-
unni. Þá verður hámarksfjárhæð
húsbréfalána íbúðalánasjóðs ekki
hækkuð í takt við neyzluvísitölu.
■ Aðgerðir/C2
Karlmaður reyndi að smygla 700 e-töflum til landsins
Geymdi tæplega 500
e-töflur innvortis
KARLMAÐUR á þrítugsaldri
reyndi að smygla tæplega 700 e-
töflum til landsins í síðustu viku en
var handtekinn í Leifsstöð. Hann
var að koma frá Amsterdam og faldi
rúmlega 200 töflur innanklæða og
tæplega 500 töflur í meltingarvegi.
Rúmlega 200 töflur fundust innan
klæða við reglubundið fíkniefnaeft-
irlit í Leifsstöð þann 29. maí sl., að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Tollgæslunni á Keflavíkur-
flugvelli. Við nánari athugun vökn-
uðu grunsemdir um að maðurinn
kynni að vera með fíkniefni innvort-
is. Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík tók við rannsókn málsins
og við læknis- og röntgenskoðun
kom í ljós að maðurinn var með
tæplega 500 e-töflur innvortis.
Verðmætið um tvær milljónir
í fréttatilkynningunni segir að
þetta sé stærsta e-töflumál sem
komið hafi upp á Keflavíkurflugvelli
á þessu ári.
Miðað við verðkönnun SAA á
ólöglegum fíkniefnum, sem fram-
kvæmd var á Vogi þann 1. júní sl.,
kostar e-taflan um 2.900 krónur og
samkvæmt því er heildarverðmæti
700 e-taflna um tvær milljónir
króna.
Siðastliðna átta mánuði hefur
tollgæslan á Keflavíkurflugvelli lagt
hald á 7.615 g af hassi, 11 g af mar-
ijúana, 1.484 g af amfetamíni, 108 g
af kókaíni, 661 e-töflu og 600 stera-
töflur.
Sérblöð í dag
i'A) Slilii'
SfoiJii
Þórey Edda og Jón Arnar með
OL-farseðla / B1 / B3
Kynning á liðunum í
Evrópukeppni landsliða / B4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is