Morgunblaðið - 06.06.2000, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýr listi frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni
Islendingar í 19. sæti
yfir heilsulíkur þjóða
ISLENDINGAR fæddir árið 1999
geta átt von á því að lifa í 70,8 ár við
góða heilsu, samkvæmt nýjum lista
sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
in, WHO, hefur gefið út. Islendingar
eru í 19. sæti á lista yfir 190 aðildar-
ríki stofnunarinnar.
Þetta er í fyrsta skipti sem stofn-
unin mælir heilsulíkur þjóða, en til
þessa hefur verið látið nægja að mæla
ævilengd án tillits til heilsufars. Chris
Murray, verkefnastjóri hjá Aiþjóða-
heilbrigðismálastofnuninni, segir í
frétt frá AP-fréttastofunni að með
þessum hætti fáist betri mælikvarði á
stöðu heilsugæslu í heiminum. Sam-
kvæmt listanum lifa þjóðir heims við
góða heilsu í 57 ár að jafnaði.
Segir að taka beri
listanum með vissri varúð
Matthías Halldórsson, aðstoðar-
landlæknir, segir í samtaíi við Morg-
unblaðið að taka beri lista Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar með vissri
varúð þar sem lífslíkur við góða heilsu
hafi aldrei verið mældar á íslandi.
Listi stofnunarinnar sé því byggður á
lauslegum tölum og ágiskun, auk þess
sem erfitt sé að bera kannanir sem
þessa saman milli landa, þar sem þær
byggi að einhverju leyti á huglægu
mati fólks á eigin heilsu.
Matthías segir lista sem þessa hins
vegar fróðlega og hafa megi af þeim
ákveðið gagn, til dæmis í samanburði
milli þeirra landa sem best standa að
vígi og þeirra sem koma verst út.
Matthías segir íslendinga mega vel
við una að vera meðal tuttugu efstu
landanna enda sé munurinn á þeim
löndum hlutfallslega lítill. Hann segir
helstu dánarorsök íslendinga vera
hjarta- og æðasjúkdóma og þrátt fyr-
ir að dánartala vegna þessara sjúk-
dóma lækki verði íslendingar að vera
á varðbergi þar sem fólk hreyfi sig
töluvert minna en áður og fitni þar af
leiðandi of mikið, enda séu íslending-
ar orðin ein þyngsta þjóð heims.
Matthías segir þær tölur sem ekki sé
hægt að deila um, svo sem tölur um
ungbamadauða, mæðradauða og
ævilengd vera í mjög góðu horfi hér á
landi.
Alnæmisveiran
ógnar Afríkuríkjum
Japanir eru efstir á lista Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar, en
þeir halda góðri heilsu í 74,5 ár. Það
geta þeir meðal annars þakkað fitu-
snauðu mataræði. Lakast standa
íbúar Sierra Leone sem lifa við góða
heilsu í einungis tæp 26 ár. Afnkuríki
sunnan Sahara eyðimerkurinnar sitja
í 23 neðstu sætunum en alnæmisveir-
an breiðist hratt út á þessu svæði auk
þess sem alvarlegir sjúkdómar á borð
við mýraköldu eru algengir og stór
hluti íbúa býr við vannæringu og
mengað drykkjarvatn.
Chris Murray segir lífslíkur hjá
sumum Afríkuþjóðum ekki hafa verið
verri síðan á miðöldum.
Fjöldi ára við
góða heilsu
Samkvæmt lista
Alþjóða Heilbrigðisstofnunarinnar, WHO
Land
Ar
1 Japan 74,5
2 Ástralía 73,2
3 Frakkland 73,1
4 Svíþjóð 73,0
5 Spánn 72,8
6 Ítálía 72,7
7-8 Grikkland 72,5
7-8 Sviss 72,5
9 Mónakó 72,4
10-11 Andorra 72,3
10-11 12-13 San Marínó Kanada 72,3 72,0
12-13 Holland 72^0
14-15 Bretland 71,7
14-15 Noregur 71,7
16-17 16-17 Belgía Austurriki 71,6 71,6
18 19 Lúxemborg ísland 71,1 70,8
20-21 Finnland 70,5
20-21 Malta 70,5
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
Lax sést víða
ÞVERÁ í Borgarfirði var opnuð á
sunnudagsmorguninn og veiddist
þá einn lax, tólf punda hrygna sem
Edda Helgason veiddi á flugu í Ár-
mótakvörn. I gær veiddi Anna Fr.
Ottósdóttir síðan annan lax, einnig
tólfpunda, í Skiptafljóti.
„Anna missti líka tvo í Kaðal-
staðastrengjum, sem eru neðst í
ánni. Það er eins og það sé eitthvað
að gerast núna, nýr fiskur að sýna
sig og veðrabrigði,“ sagði Jón Ól-
afsson, einn leigutaka árinnar í
samtali við Morgunblaðið í gær-
dag.
Leigutakar og fleiri opna Kjarrá,
efri hluta Þverár, á miðvikudag og
sagði Jón að menn sem voru að
vinna þar efra, m.a. við að merkja
veiðistaði, hefðu séð lax „inni á
Eyrum“ og eftirtektarvert hefði
verið að krían þræddi mjög ána þar
efra, en bjartsýniskenningin varð-
andi það háttalag fuglsins segir að
hún sé á höttunum eftir laxalús.
Þeir svartsýnni telja líklegra að
hún sé á sílaveiðum.
Hópurinn sem tók við af stjórn
SVFR í Norðurá var kominn með
tólflaxa eftir tvo daga af þremur að
sögn Guðmundar Viðarssonar
kokks á Rjúpnaási í gærdag. Hann
sagði þrjá hafa veiðst í gærmorgun
og veiði hjá hópnum hefði dofnað
nokkuð eftir þokkalega byrjun.
„Þeim gekk ef til vill betur í byrjun
þar eð þeir voru fyrstir til að veiða
á maðkinn," sagði Guðmundur og
bætti við að á laugardaginn hefðu
þrír laxar veiðst á Flóðatanga-
svæðinu, sem er hræódýrt silungs-
veiðisvæði neðst í Norðurá.
Veiði hefst nú í hverri ánni af
annarri á næstunni og er víða farið
að sjást til laxa. Veiði hefst í Laxá í
Kjós og Laxá í Aðaldal 10. júní og
hafa menn séð væna laxa í báðum.
Síðustu daga í Kjósinni hafa menn
komið auga á nokkra fiska í Kvísla-
fossi og Laxfossi, en í Aðaldal hafa
menn séð ’ann í Flösinni og „við
staurinn", eins og menn auðkenna
einn veiðistaðinn í Kistukvísl.
Gáfu 200
sálmabækur
í FJÖLSÓTTRI sjómanna-
dagsmessu í Patreksfjarðar-
kirkju voru teknar í notkun 200
sálmabækur sem einstaklingar
og fyrirtæki á staðnum samein-
ast um að gefa.
Það eru fyrirtækin Bjarg hf.,
Háanes hf., Oddi hf., Lands-
banki íslands hf. og Eyraspari-
sjóður ásamt sjómönnum á Pat-
reksfirði sem sameinast um
gjöfina. Verðmæti gjafarinnar
nemur alls 420.000 kr., sam-
kvæmt því sem kemur fram í
fréttatilkynningu frá sóknar-
prestinum á Patreksfírði.
81. þing Stórstúku Islands haldið í Reykjavík
Andlát
SERA ÞORLEIFUR
KRISTMUNDSSON
Morgunblaðið/Þorkell
Stórstúka íslands heiðraði um helgina nokkra einstaklinga fyrir framlag þeirra til heilbrigðs og fagurs mann-
lífs án fíkniefna. Á myndinni eru Gunnar Þorláksson stórritari, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Þorgrímur
Þráinsson framkvæmdastjóri, Ingibjörg Þórólfsdóttir, sem tók við viðurkenningu fyrir hönd Tilveru, sr. Páhni
Matthíasson, Ólafur Ilaukur Árnason, fv. áfengisvarnarráðunautur, sr. Jóm'na Hrönn Bolladóttir, Þór Stefáns-
son umdæmisstjóri, sem tók við viðurkenningu fyrir hönd Lions-hreyfingarinnar, Guðrún Agnarsdóttir læknir,
Björn Bjarnason menntamálaráðherra og Björn Jónsson stórtemplar.
Heiðruð fyrir framlag*
til mannlífs án fíkniefna
SÉRA Þorleifur
Kjartan Krist-
mundsson, fyrrver-
andi prófastur á
Kolfreyjustað, lést
að morgni sunnu-
dags á Sjúkrahúsi
Suðurlands, Selfossi.
Þorleifur var 74 ára.
Sr. Þorleifur
fæddist í Reykjavík
12. júní 1925. For-
eldrar hans voru
Kristmundur Benja-
mín Þorleifsson
gullsmiður og Guðný
Sigríður Kjartans-
dóttir húsmóðir. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1945 og guðfræðiprófi
frá Háskóla íslands 1955. Þá
kynnti hann sér Austurlanda-
kirkjudeildir 1983 til 1984.
Séra Þorleifur starfaði sem
skrifstofumaður hjá Trygginga-
stofnun ríkisins árin 1949 til 1954.
Hann var sóknarprestur í Kol-
freyjustaðarprestakalli í Fáskrúðs-
firði 1955-1994 og jafnframt próf-
astur í Austfjarðaprófastdæmi
1986-1994.
Séra Þorleifi voru falin marg-
háttuð félags- og trúnaðarstörf um
ævina. Hann var m.a. um tíma for-
maður og gjaldkeri Prestafélags
Austurlands og sat í kjaranefnd
Prestafélags Islands, auk þess sem
hann sótti Kirkjuþing mörgum
sinnum. Hann sat í hreppsnefnd
F áskrúðsfj arðarhrepps
í átta ár og í sýslunefnd
S-Múlasýslu 1966-1989.
Ennfremur var hann
varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins um
tíma og tók þrisvar sæti
á Alþingi.
Séra Þorleifur var
einn af stofnendum
Lionsklúbbs Fáskrúðs-
fjarðar og gegndi marg-
víslegum trúnaðarstörf-
um fyrir Lionshreyf-
inguna á íslandi. Hann
var m.a. umdæmisstjóri
1973-1975, fjölumdæm-
isstjóri 1974-1975 og sat alþjóða-,
Evrópu- og Norðurlandaþing á
vegum íslandsdeildar Lions. Hann
vann að stofnun Rauðakrossdeildar
Fáskrúðsfjarðar og var fyrsti for-
maður hennar, stundaði ritstörf og
tvisvar sinnum hlaut Þorleifur
gullmerki með demant fyrir störf
sín sem umdæmisstjóri Lions á ís-
landi.
Eftirlifandi kona sr. Þorleifs er
Þórhildur Gísladóttir og eignuðust
þaú fimm börn; Guðnýju Sigríði,
húsmóður, Ingibjörgu Þorgerði,
kennara, Kristmund Benjamín, yf-
irvélstjóra, Steinvöru Valgerði,
rekstrarhagfræðing, og Þórhildi
Helgu, kennara. Fóstursynir Þor-
leifs eru Jón Helgi Ásmundsson,
stöðvarstjóri í Helguvík, og Hjört-
ur Kristmundsson, svæðisstjóri hjá
Samskipum.
ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti
og Bjöm Bjamason menntamálaráð-
herra vora meðal nokkurra einstakl-
inga, sem heiðraðir voru fyrir fram-
lag sitt til mannlífs án fíkniefna á 81.
þingi Stórstúku íslands, IOGT, sem
var háð í Reykjavík 1.-3. júní.
Þingið hófst með Unglingareglu-
þingi fimmtudaginn 1. júní. Þar var
rætt um málefni barna- og unglinga-
starfs og Árbæjarsafn síðan skoðað.
Þingið hófst með guðsþjónustu í
kirkju Árbæjarsafns. Mjöll Matt-
híasdóttir kennari hélt stólræðu og
stórtemplar, sr. Björn Jónsson,
þjónaði fyrir altari. Á orgel lék
Reynir Jónasson organisti Nes-
kirkju. Á þinginu var samþykkt að
halda aukaþing Stórstúkunnar 6.-7.
október 2000. Þá verður tekin til af-
greiðslu tillaga nefndar um breyt-
ingar á skipulagi og starfsemi IOGT
á Islandi en hún var kynnt á þinginu.
Tillagan miðar að því að Góðtemplar-
ar starfi í félagsskap sem hafi það val
að starfa hvort heldur er í óbreyttu
stúkuformi - eða IOGT-hópum með
hefðbundnu fundaformi og sinni þeir
þá m.a. sérstökum verkefnum.
Við hátíðarkvöldverð á föstudag
vora heiðraðir nokkrir einstaklingar
og félagasamtök fyrir framlag til
heilbrigðs og fagurs mannlífs án
fikniefna. Heiðrað vora Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti íslands,
Bjöm Bjarnason menntamálaráð-
herra, Guðrún Agnarsdóttir læknir,
sr. Jónína Hrönn Bolladóttir, Ólafur
Haukur Ámason, fv. áfengisvama-
ráðunautur, sr. Pálmi Matthíasson
og Þorgrímur Þráinsson fram-
kvæmdastjóri og ennfremur f.h.
Lions-hreyfingarinnar Þór Stefáns-
son umdæmisstjóri og f.h. Tilvera,
samstarfshóps á Grandarfirði, Ingi-
björg Þórólfsdóttir. Heiðursfélagar
Stórstúkunnar vora kjörin Hilmar
Jónsson, Kristín Þorvarðardóttir,
Kristján Jónsson, Marta Halldórs-
dóttir, Matthías Gestsson og Stein-
unn Sigurðardóttir.
Framkvæmdanefnd óbreytt
Framkvæmdanefnd Stórstúku ís-
lands var kjörin óbreytt til auka-
þingsins í haust. Hana skipa: Stór-
templar: sr. Björn Jónsson,
Akranesi. Stórkanslar: Helgi Seljan
framkvæmdastjóri, Reykjavík. Stór-
varatemplar: Geirþrúður Kristjáns-
dóttir, f. skrifstofustjóri, Kópavogi.
Stórritari: Gunnar Þorláksson skrif-
stofustjóri, Reykjavík. Stórfræðslu-
stjóri: Hörður Pálsson bakarameist-
ari, Akranesi. Stórgjaldkeri: Sig-
urður Jörgensson viðskiptafræð-
ingur, Reykjavík. Stórkapelán:
Katrín Eyjólfsdóttir bókari, Reykja-
vík. Stórgæslum. unglingastarfs:
Lilja Harðardóttir þjónustufulltrúi,
Reykjavík. Stórgæslum. ungmenna-
starfs: Guðlaugur Fr. Sigmundsson
framkvæmdastjóri, Reykjavík. Stór-
gæslum. löggjafarstarfs: Árni Valur
Viggósson símaverkstjóri, Akureyri.
Stórfregnritari: Valdór Bóasson
kennari, Reykjavík. Fyrrverandi
stórtemplar: Hilmar Jónsson rithöf-
undur, Keflavík.
Á þinginu vora gerðar nokkrar
samþykktir. Átaki gegn áfengis-
neyslu unglinga, Við drekkum ekki,
sem 13 til 15 ára unglingar vinna að
frumkvæði Samfés, Samtaka félags-
miðstöðva á íslandi og áætlunarinn-
ar ísland án eiturlyfja var fagnað.
„í því sambandi minnir þingið á
mikilvægi fordæmis og hvetur for-
eldra til að leggja börnum sínum lið
við að standa gegn þrýstingi til
neyslu áfengis og annarra iíkniefna
og skefjalausum áróðri hagsmuna-
afla,“ segii- í einni samþykktinni.