Morgunblaðið - 06.06.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 1 3
FRÉTTIR
Tjón ekki
bætt vegna
vargfugls
RÍKIÐ bætir bændum ekki tjón
vegna vargfugls í æðarbyggðum, en
umhverfisráðuneytinu berast reglu-
lega óskir um slíkar bætur.
„Ríkisvaldið hefur ekki viður-
kennt bótaskyldu vegna tjóns af
völdum vargs í æðarbyggðum vegna
hlunninda," segir Magnús Jóhanns-
son, ráðuneytisstjóri í umhverfis-
ráðuneytinu. „Það hafa komið upp
óskir um slíkt í gegnum tíðina, ann-
ars vegar vegna fugla sem valdið
hafa meintu tjóni og eru friðaðir,
eins og til dæmis emir, og hins vegar
vegna vargs eins og hrafns og jafnvel
minks,“ segir Magnús.
Hann bendir á að hrafninn sé ekki
friðaður og heimilt sé að farga hon-
um hvenær sem er ársins og því
hefði verið litið svo á að menn ættu
almennt að geta varist honum.
Magnús segir ekkert í lögum
skylda stjórnvöld til að bæta tjón af
þessu tagi og ekki hafi verið rætt að
breytta því. Ríkið telji sig ekki
skaðabótaskylt enda sé þetta hluti af
náttúrunni. Hann bendir þó á að
stjómvöld styrki eyðingu tiltekinna
ránfugla og rándýra, fyrst og fremst
til að draga úr skaðsemi þeirra.
-
~~ V U . ■ # 1
SHk ...X wl íM WW®/1
116 stúdentar
brautskráðir frá
Kvennaskólanum
116 stúdentar voru brautskráðir
frá Kvennaskólanum í Reykjavík í
vor.
Margrét María Grétarsdóttir
stúdent af félagsfræðibraut hlaut
hæstu einkunn nýstúdenta 9,10
og voru henni veitt verðlaun úr
Minningarsjóði frú Þóru Melsteð,
stofnanda
Kvennaskólans, fyrir hæstu
meðaleinkunn og bestan hcildar-
árangur á stúdentsprófi.
í ræðu sinni við skólaslitin, sem
fram fóru í Hallgrímskirkju, fjall-
aði Ingibjörg Guðmundsdóttir
skólameistari meðal annars um
aðlögun námsframboðs skólans að
nýrri námskrá og aukið val í
skólanum. Einnig ræddi hún um
erfiða samkeppnisstöðu skólanna
við ráðningu kennara, einkum í
raungreinum. Hún fjallaði cinnig
um fartölvuvæðingu skólanna,
fjarkennslu og erlend samskipti.
Guðjón Davíð Karlsson flutti
ræðu fyrir hönd nýstúdenta. Full-
trúar 60 ára, 50 ára og 10 ára af-
mælisárganga voru viðstaddir at-
höfnina og flutti Guðrún Briem
ávarp fyrir hönd 50 ára stúdenta
og færði skólanum veglega bók-
argjöf.
Jóhanna Héðinsdóttir nýstúdent
söng við undirlcik Margrétar
Lilju Pálsdóttur nýstúdents og
Harðar
Áskelssonar organista og einn-
ig sungu Kór skólans og kór Nýja
tónlistarskólans undir stjórn Sig-
urðar Bragasonar.
136 stúd-
entar
braut-
skráðir
fráMS
136 STÚDENTAR voru braut-
skráðir frá Menntaskólanum við
Sund í vor. Þar með lauk 31.
starfsári skólans en þetta var í 28.
sinn sem stúdentar voru braut-
skráðir.
Dúx skólans var Stefán Orri
Stefánsson stúdent af eðlisfræði-
deild, en hann var með fullnaðar-
einkunn 9,1. Semidúxar voru Jón
Trausti Reynisson stúdent af fé-
lagsfræðadeild og Margrét Lára
Jónsdóttir stúdent af náttúru-
fræðideild, bæði með 8,9 í fullnað-
areinkunn.
I ræðu sinni greindi Eiríkur
Guðmundsson rektor frá helstu
þáttum í starfi vetrarins. Hann
sagði meðal annars frá því að þrjá-
tíu ára afmæli skólans hefði verið
haldið hátiðlegt síðasta haust og
að margir gestir hefðu heimsótt
skólann af því tilefni.
Eiríkur sagði einnig frá þeirri
vinnu sem kennarar hefðu lagt á
sig í vetur við hin ýmsu þróunar-
verkefni. Meginviðfangsefnið hefði
verið endurskoðun skólanámsskrár
og mótun framtíðarsýnar í kennslu
og starfsháttum á grundvelli nýrr-
ar aðalnámsskrár.
Eiríkur talaði einnig um að
brýnasti vandi skólans hefði um
árabil verið of lítið og óhentugt
húsnæði, en nú væri hins vegar
fyrir alvöru hafinn undirbúningur
að úrbótum að húsnæðisvanda
skólans í samvinnu við mennta
málaráðuneytið og Reykjavíkur-
borg.
Kristinn Már Armannsson fyrr-
verandi ánnaður skólafélagsins og
Ylfa Ösp Áskelsdóttir fluttu saman
árvarp fyrir hönd nýstúdenta.
Fulltrúar tíu og 25 ára stúdenta
ávörpuðu einnig samkomuna og
gáfu skólanum gjafir.
Nemendur fluttu tónlist við at-
höfnina. Krístín Halla Bergsdóttir
stúdent af tónlistarbraut lék á
fiðlu við undirleik Guðríðar S. Sig-
urðardóttur píanóleikara og skóla-
kórinn söng undir stjórn Aslaugar
Bergsteindóttur.
Ráðstefna
um stafrænt
sjónvarp
RÁÐSTEFNA Gagnvirkrar
miðlunar um stafrænt sjónvarp
og þá byltingu sem nýjasta
sjónvarpstækni felur í sér verð-
ur haldin á Hótel Loftleiðum á
föstudag.
Á ráðstefnunni verða erlend-
ir og innlendir fyrirlesarar,
sérfræðingar í stafrænni tækni,
gagnvirku sjónvarpi, fjarskipt-
um og breiðbandi. Þar má nefna
meðal annars aðila frá BT (Brit-
ish Telecom), Yes Television,
Háskóla Islands, Gagnvirkri
miðlun og íslenskum Ijósvaka-
og fjarskiptafjTÍrtækjum.
Samgöngumálaráðherra,
Sturla Böðvarsson, setur ráð-
stefnuna.
quguA
tliiw'1*”1 m ...
PPkkiir HtsFénvert) mt emstök!
Bolir........490,-
Peysur_______990,-
Buxur........ 790,-
Pils.........690,-
Blússur.....1.290,-
Jakkar___... 1.990,-
STÓR IUÚMER
FERÐATÖSKUR
BORÐBIÍNAÐUR
POTTASETT
lít á kítsb'íttveríí!
Bælartaska sem
alltaf kemur sér vel!
Útsala kr. 695,-
ífeílJíl JsL