Morgunblaðið - 06.06.2000, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Boðið upp á þjónustu til
að viðhalda heilbrigði
UNDANFARIN þrjú ár hefur verið
í undirbúningi á Akureyri nýr þátt-
ur í þjónustu við aldraða. Þessi nýja
þjónusta felst í því að þeim sem eru
75 ára og eldri, búa í eigin húsnæði
og njóta ekki heimahjúkrunar er
boðið að fá heimsókn af starfsmanni
öldrunarþjónustu Akureyrar.
Heimsóknir af þessum toga eru vel
þekktar í nágrannalöndunum og
hafa t.d. verið lögleiddar í Dan-
mörku. Hér á landi hefur þetta hins
vegar ekki verið gert áður á þennan
hátt en Akureyrarbær gerir þetta
nú að tilraunaverkefni til eins og
hálfs árs með stuðningi frá Heil-
brigðisráðuneytinu. Gangi þetta
verkefni vel er vonast til þess að
framhald geti orðið á því.
Með heimsóknunum er m.a leit-
ast við að veita öldruðum upplýsing-
ar um þá þjónustu sem þeim stend-
ur til boða hvað varðar heilsugæslu,
heimaþjónustu, réttindi vegna
trygginga og ellilífeyris, ýmsa fé-
lagslega þætti, tómstundaiðju ofl.
Þá verður lögð áhersla á að greina
áhættuþætti varðandi heilsufar og
veita ráðleggingar um fyrirbyggj-
andi aðgerðir, t.d. um skipulag hús-
næðis, mataræði eða hreyfingu.
Eins og af ofantöldu er ljóst er
áhersla í heimsóknunum lögð á ráð-
gjöf og stuðning. Með þessu er von-
ast til að viðhalda heilbrigði sem
lengst og gera fólki kleift að búa
lengur á eigin heimili en ella. Þá er
ætlað að þetta starf efli sjálfstraust
og auki öryggiskennd þess fólks
sem við verður rætt. Ahersla er
lögð á að sá sem heimsóttur er
stjórni samtalinu og ræði það sem
honum liggur helst á hjarta.
Tveir starfsmenn ráðnir
Starfsmenn þessarar þjónustu
eru bundnir þagnarskyldu. Þannig
fara engar persónuupplýsingar um
viðtalið úr höndum starfsmannsins
nema að fengnu leyfi viðkomandi
einstaklings og ekki er um að ræða
neina úttekt af hálfu hins opinbera á
högum fólks.
Til þess að sinna þessu starfi hafa
verið ráðnar þær Inga Dagný Eydal
hjúkrunarfræðingur og Kristín
Tómasdóttir iðjuþjálfi. Munu þær á
næstunni senda út bréf þar sem
þessi þjónusta verður kynnt en
ákveðið hefur verið að bjóða hana á
svæði Heilsugæslustöðvarinnar á
AkurejTÍ.
Þegar líður að heimsókn verður
með öðru bréfi tilkynnt um tíma-
setningu. Heimsóknin á sér síðan
stað u.þ.b. hálfum mánuði síðar. Af-
þakki fólk heimsóknina fær það
sent bréf að hálfu ári liðnu með til-
boði um nýja tímasetningu. Þetta er
gert í Ijósi þess hve mikið aðstæður
geta breyst á stuttum tíma og þar
með þörf fyrir stuðning og ráðlegg-
ingar.
A milli heimsókna getur fólk
hringt í viðkomandi starfsmann ef
því liggur eitthvað á hjarta.
Reynslan ein mun skera úr um
það hversu vel þessi þjónusta verð-
ur nýtt en það er von aðstandenda
verkefnisins að sem flestir sjái kosti
þess að þiggja slíkar heimsóknir.
O
2k
enntasmiðjan
kureyri
Laus eru til umsóknar störf við verkefnisstjórn,
rekstrarstjórn og kennslu
í Menntasmiðjunni á Akureyri
Meðai fjölmargra verkefna eru
♦ umsjón með Menntasmiðju kvenna - dagskóla
♦ rekstrarstjórn og umsjón almennra námskeiða
♦ kennsla í ýmsum hagnýtum og skapandi þáttum,
s.s. tölvuleikni, ensku, myndlist og leikrænni tjáningu
♦ kennsla í sjálfsstyrkingu og samskiptum
Um er að ræða alls tvö stöðugildi, með möguleika á mismunandi starfshlutföllum.
Umsækjendur skulu hafa háskólamenntun eða aðra sambærilega menntun sem nýtist við skipulagningu, þróunar-
vinnu, ráðgjöf og kennslu. Þeir skulu búa yfir færni í samskiptum og samstarfi, jafnframt hæfni til að starfa sjálfstætt
og löngun til að læra og vaxa í starfi. Krafist er staðgóðrar þekkingar á íslensku samfélagi og reynslu af að starfa með
fúilorðnu fólki. Auk þessara almennu hæfniþátta verður að sjálfsögðu tekið tillit til sérþekkingar á ofangreindum
sviðum, s.s. tölvukennslu, kennslu í sjálfsstyrkingu, rekstrarþekkingar og þekkingar á stöðu og reynsluheimi kvenna.
Starfskjör eru samkvæmt samningi Akureyrarbæjar og STAK.
Menntasmiðjan á Akureyri er miðstöð óformlegs náms fyrir fullorðna. Námi í Menntasmiðjunni er ætlað að auka lífsleikni,
vera hvatning fullorðnum konum og körlum sem vilja gefa sér annað/nýtt tækifæri til náms og stuðningur þeim sem eru að
takast á við breytingar í lífinu. f Menntasmiðjunni fer fram sífelld þróun í aðferða- og hugmyndafræði, auk þess sem hún gegn-
ir því hlutverki að veita öðrum menntasmiðjum ráðgjöf og handleiðslu. f Menntasmiðju kvenna, sem er einn þáttur starfsem-
innar, er lögð sérstök áhersla á nám og menningu kvenna. Starfsfólk skiptir með sér meginábyrgð á verkþáttum eftir hæfni og
áhugasviði og þörfum starfseminnar hverju sinni.
Innan vébanda Menntasmiðjunnar á Akureyri eru nú starfsrækt:
Menntasmiðja kvenna - dagskóli fyrir konur
ý Vinnuklúbburinn og fleiri námskeið fyrir fólk í atvinnuleit
# Nýbúanám
# Kvöld- og helgarnámskeið, skapandi, sjálfsstyrkjandi og hagnýt námskeið fyrir konur og karla
# Samningsbundin og starfstengd námskeið fyrir starfsfólk opinberra stofnana á Eyjafjarðarsvæðinu
& í farvatninu eru fleiri stór og smá verkefni
# Menntasmiðjan er þátttakandi í ýmsum innlendum og fjölþjóðlegum verkefnum um
óformlegt nám fullorðinna
Umsóknir skuli sendar, eigi síðar en 14. júní n.k.
til Menntasmiðjunnar á
Akureyri Glerárgötu 28,600 Akureyri
Nánari upplýsingar veitir Valgerður H. Bjarnadóttir, forstöðufreyja Menntasmiðjunnar
í síma 462 7255, GSM 862 8722 eða í tölvupósti: valkahb@nett.is
Héraðsdómur dæmir mann í
tveggja mánaða fangelsi
*
Ok á ofsahraða und-
ir áhrifum áfengis
og velti bfl út í á
KARLMAÐUR á tuttugasta og
fimmta aldursári hefur í Héraðsdómi
Norðurlands eystra verið dæmdur í
tveggja mánaða fangelsi auk þess
sem hann var sviptur ökurétti ævi-
langt.
Maðurinn var ákærður fyrir hegn-
ingar- og umferðarlagabrot með því
að hafa í maímánuði í fyrra ekið undir
áhrifum áfengis og án ökuréttar frá
Akureyri áleiðis til Reykjavíkur, allt-
of hratt og óvarlega með þeim afleið-
ingum að þegar hann ók Norður-
landsveg við Svertingsstaðaá í
Vestur-Húnavatnssýslu lenti bifreið-
in útaf veginum og valt 5-6 veltur og
hafnaði út í ánni.
Við slysið kastaðist annar farþeg-
inn, 17 ára piltur, út úr bifreiðinni og
lenti út í skurði, en þegar hann fannst
þar eftir nokkra stund andaði hann
ekki, enginn púls fannst og hann var
orðinn helblár í andliti. Vegfarandi
sem að kom hóf strax lífgunartilraun-
Silki-damask
í metratali
í úrvali
Póstsendum
Skólavördustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050.
ir með blástursaðferð og hjartahnoði
og báru þær árangur eftir skamma
stund. Farþeginn ásamt öðrum úr
bifreiðinni var fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á Sjúkrahús
Reykjavíkur.
Ók greitt
Viðurkenndi maðurinn skýlaust
fyrir dómi sakargiftir. Hann kvaðst
hafa hafið neyslu áfengis um mið-
nætti daginn fyrir slysið ásamt félög-
um sínum tveimur á skemmtistað á
Akureyri en hætt drykkju um kl. 10
um morguninn þegar fyrir lá að þeir
félagar ætluðu saman í bifreið suður
til Reykjavíkur.
Hóf hann akstur þrátt fyrir að
finna til vægra áfengisáhrifa. Hefði
félögum sínum verið fúllkunnugt um
ástand hans, þ.á m. svefnleysi. Skýrði
hann einnig frá því að hafa ekið nokk-
uð greitt, á 120 til 140 km hraða að
jafnaði. Þegar hann fór fram út vöru-
flutningabíl, á 140-150 km hraða,
missti hann stjórn á bifreið sinni með
fyrrgreindum afleiðingum. Hann
kvaðst hafa bjargað félaga sínum upp
úr ánni og veitt honum fyrstu hjálp,
en þar sem hann hefði verið miður
sín eftir atburðinn hefði hann drukk-
ið tvo bjóra á vettvangi.
A maðurinn að baki alllangan sak-
arferil, en hann hefur á árunum
1992-1999 hlotið yfir 20 refsidóma
fyrir fíkniefnabrot, umferðarlaga-
brot og fyrir ýmis hegningarlaga-
brot, þjófnað, rán, skjalafals, nytja-
stuld og líkamsárás. Við ákvörðun
refsingar var litið til sakarferils hans,
en að mati dómsins var háttsemi
hans í umrætt skipti mjög vítaverð.
Ólafur Ólafsson kvað upp dóminn.
i
i
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is