Morgunblaðið - 06.06.2000, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Fiskanes í Grindavlk og Valdimar
í Vogum sameinast Þorbirni
Eitt stærsta
útgerðarfé-
lag landsins
SAMKOMULAG hefur tekist um að
Fiskanes hf. í Grindavík og Valdi-
mar hf. í Vogum sameinist Þorbirni í
Grindavík. Verður nafni Þorbjarnar
breytt í Þorbjörn-Fiskanes við sam-
eininguna. Rekstur hins sameinaða
fyrirtækis verður í Grindavík og
Vogum.
Verður þá til eitt af öflugri út-
gerðarfélögum landsins, hið annað
stærsta í þorskígildum talið, að því
er fram kemur í morgunkorni Islan-
dsbanka-FBA. Veiðiheimildir hins
sameinaða félags, Þorbjarnar-
Fiskaness hf., innan og utan lögsög-
unnar verða um 20.800 þorskígild-
istonn og er þorskur þar af um 9.600
tonn. Einungis Útgerðarfélag Akur-
eyringa og Samherji hafa yfir meiri
þorskkvóta að ráða, samkvæt hálf-
fimm fréttum Búnaðarbanka Is-
lands.
Sameiningin miðast við 30. júní en
starfsemi undir sameiginlegri yfir-
stjórn hefst 1. september og verður
Eiríkur Tómasson, framkvæmda-
stjóri Þorbjamar, framkvæmda-
stjóri hins sameinaða félags, sem
skráð er á aðallista Verðbréfaþings
Islands.
4.470 milljóna velta
á síðasta ári
Velta fyrirtækjanna á síðasta ári
var 4.470 milljónir króna og skiluðu
þau öll hagnaði. Við samrunann fá
hluthafar í Fiskanesi 35,3% í sam-
einuðu félagi, hluthafar í Valdimar
fá 16% og hluthafar í Þorbirni
48,7%. Markmiðið með sameining-
unni er að ná fram hagræðingu í
nýtingu eigna og tryggja áfram-
haldandi arðbæran rekstur. Félagið
verður í bátaútgerð, útgerð frysti-
skipa, útgerð skipa í veiðum á upp-
sjávarfiski, vinnslu á saltfiski og
vinnslu á ferskum fiski til útflutn-
ings ásamt landfrystingu og lagmet-
isiðju.
Gunnar Tómasson, markaðsstjóri
Þorbjarnar, segist ætla að veiði-
heimildir hins sameinaða félags séu
svipað miklar og Granda hf., sem er
eitt af stærstu útgerðarfélögum
landsins. Að sögn Gunnars hafa ekki
verið teknar neinar ákvarðanir um
sölu skipa eða breytingu á vinnslu í
landi, rekstur félaganna verði að
mestu óbreyttur fram að hausti en
menn muni nota tímann til þess að
fara yfir málin fram að þeim tíma.
Gengi bréfa í Þorbirni hækkaði
um 13,6% í gær eða í 5,44 en alls var
verslað með bréf að verðmæti tæpra
5,2 milljóna króna.
Íslandsbanki-FBA hf. aðstoðaði
við samruna félaganna í Þorbjörn-
Fiskanes hf.
Morgunblaðið/Amaldur
Útskrift þátttakenda í Brautargengi 2000 fór fram í Grasagarðinum í
Laugardal síðastliðinn föstudag.
Konur hvattar til fram-
gangs í viðskiptalífinu
UM 100 reykvískar konur hafa tek-
ið þátt í námskeiði Impru og Iðn-
tæknistofnunar fyrir konur sem
hafa áhuga á sjálfstæðum atvinnu-
rekstri en námskeiðið hefur verið
nefnt Brautargengi. Það var at-
vinnu- og ferðamálanefnd Reyja-
víkurborgar sem hafði frumkvæði
að fræðsluverkefninu árið 1996 í
samvinnu við Iðntæknistofnun en
Reykjavíkurborg hefur dregið sig
út úr framkvæmd námskeiðsins.
Impra, þjónustumiðstöð frum-
kvöðla og fyrirtækja á Iðntæknist-
ofnun, hefur lagt grunn að nýju
fræðsluverkefni sem kallast Braut-
argengi 2000 og styrktu bæjar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu þátt-
takendur. Námskeiðið hófst um
miðjan febrúar og lauk nú um mán-
aðamótin síðustu og sóttu það átján
konur af höfuðborgarsvæðinu.
Konurnar kynntust grundvallar-
atriðum við stofnun fyrirtækis og
fengu hagnýta fræðslu í stefnumót-
un og markaðs- og fjármálum og í
lok námskeiðsins gerðu þær við-
skiptaáætlun. Námskeiðið tókst að
sögn mjög vel og töldu konurnar
sig hafa öðlast betri sýn á það
hvernig reka ætti eigið fyrirtæki.
Brautargengi 2000 er haldið til
þess að hvetja konur til framgangs í
íslensku viðskiptalífi og stuðla að
jafnvægi í fyrirtækjarekstri milli
karla og kvenna.
Hlutafjárút-
boði Islenska
hugbúnaðar-
sjóðsins lokið
FORKAUPSRHAFAR skráðu sig
fyrir öllu því hlutafé sem í boði var í
hlutafjárútboði Islenska hugbúnaðar-
sjóðsins hf. og því kemur ekki til al-
mennrar sölu eins og áætlað hafði
verið.
Útboðinu lauk á föstudag. Boðið
var út hlutafé að nafnvirði 117.550.832
kr á genginu 13,30 eða 1.563 milljónir
króna að markaðsverðmæti. Alls
skrifuðu 403 forgangsréttarhafar sig
fyrir rúmum 1.600 milljónum króna
að markaðsverðmæti.
Tilgangur útboðsins var að afla fjár
til kaupa á verðbréfum í samræmi við
fjárfestingastefnu félagsins, ásamt
því að greiða niður skuldir sem sjóð-
urinn hefur stofnað til. íslenski hug-
búnaðarsjóðurinn er áhættufjárfesth-
sem á ráðandi hlut í leiðandi fyrir-
tækjum á sviði upplýsingatækni á Is-
landi. Sjóðurinn hefur þá stefnu að
fjárfesta í fyrirtækjum sem sækja á
erlenda markaði og samnýta þekk-
ingu fyrirtækjanna á sviði tækni,
markaðsmála, rekstrar og erlendra
tengsla.
Að loknu útboði er hehdamafnverð
félagsins 500 milljónir króna en
markaðsvirði m.v. útboðsgengi 6.650
milljónir króna.
Umsjónaðaraðili útboðsins var
Landsbanki íslands hf.
Frjáls fjarskipti og Islands-
sími fá farsímaleyfi
HALLÓ Fijáls Fjarskipti hf. og ís-
landssími GSM hf. fengu í gær leyfi
Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir
rekstri farsímaneta og þjónustu í
DCS1800 tíðnisviðinu, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Póst- og
fjarskiptastoftiun. Umsækjendur
voru auk Frjálsra Fjarskipta og ís-
landssíma fyrirtækin Lina.net og Int-
ernational Mobile Communieations
Inc. (IMC) í Maryland, Bandarílqun-
um. Landssími íslands hf. og Tal hf.
hafa áður fengið leyfi fyrir DCS 1800
farsímaþjónustu.
Umsóknir Línu.nets og IMC eru
enn í vinnslu. Islandssíma GSM hf. er
úthlutað 15 Mhz en Frjálsum fjar-
skiptum 7,4 Mhz. Mælikvarði Póst-
og fjarskiptastofnunar við úthlutun
tíðnisviðs er stærð þjónustusvæðis-
ins sem umsækjendur ætla að þjóna
pg íjöldi íbúa á viðkomandi svæðum.
íbúar á svæðum sem Islandssími
GSM ætlar að þjóna eru um 275 þús-
“
Fyrsta skrefið að öruggu húsnæði!
Umsóknarfrestur til 13. júní nk.
ja lierb.
Beijarimi 5, Reykjavík
65m2 íbúð,i02 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 1.104.702
Búsetugjald kr. 39.047
Skólatún 1, Bessast.hr.
69m2 íbúð, 203 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 661.148
Búsetugjald kr. 26.569
3ja lierh.
4ra herb.
Miðholt 3. Mosfellsbæ
102m2 íbúð, 101 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 1.728.882
Búsetugjald kr. 42.909
Garðhús 6, Reykjavík
115m2 Mð, 201 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 2.097.766
Búsetugjald kr. 46.915
4ra herb.
Holtabyggð 4, Hafnarfírði
105m2 Mð, 101 Almennt lán
Búseturéttur kr. 1.145.903
Búsetugjald kr. 59.360
5 lierb.
Blikaás 19 og 21, Hafnarf.
120m2 Mð,20i,203 Alm. lán
Búseturéttur kr. 1.478.702
Búsetugjald kr. 74.452
Miðholt 3, Hafnarfirði
90m2 íbúð,202 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 999.208
Búsetugjald kr. 40.361
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf.
Opið frá kl. 8:30 til 15:30 nema miðvikudaga, frá 8:30-12:00.
Með umsóknum um íbúðir á leiguíbúðalánum þarf að skila launaseðlum sfðustu sex mánaða
ásamt síðustu skattskýrslu.
Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 14. júnífrá kl. 12:00 til 12:30 að Skeifunni 19.
Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta úthlutun sína, aðöðrum kosti gætu þeir
misst réttindi sín og íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns.
Búseti hsf. Skeifunni 19 sími 520-5788
www.buseti.is
und en 220 þúsund á svæðum sem
Frjáls Fjarskipti ráðgera að þjóna,
að því er fram kemur í tilkynning-
unni. Póst- og fjarskiptastofnun ráð-
gerir að afgreiða hinar tvær umsókn-
imar á næstu vikum. Leyfishafar
munu greiða leyfisgjöld og að auki
kostnað við úthlutunina skv. 11. gr.
laga um Póst- og fjarskiptastofnun.
Búist er við að kostnaður við úthlut-
unina nemi á aðra milljón króna og
verður honum skipt milli þeirra sem
leyfin hljóta.
Halló - Frjáls fjarskipti hf. boða
stórlækkað verð á GSM-símtölum,
innanlands og til útlanda, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
félaginu í kjölfar leyfisveitingarinnar.
Fyrirtækið hefur unnið að undirbún-
ingi á uppsetningu farsímakerfis hér
á landi í samvinnu við MintTelecom í
Bretlandi, sem rekur fyrsta GSM-
heimsnetið. I fyrsta áfanga mun far-
símakerfi Halló - Frjálsra fjarskipta
hf. ná yfir höfuðborgarsvæðið,
Reykjanesbæ, Akranes og Akureyri;
eða til liðlega 200 þúsund manns. I
öðrum áfanga nær farsímakerfi fé-
lagsins til Selfoss, Hveragerðis,
Hellu, Hvolsvallar, Vestmannaeyja,
Grindavflíur, Sandgerðis og Garða-
hrepps. I þriðja áfanga koma svo Eg-
ilsstaðir, ísafjörður, Borgarbyggð,
Sauðárkrókur, Hofsós, Siglufjörður,
Ólafsfjörður, Dalvík, Húsavík og
Homafjörður. Fyrirtækið segir að
ísland verði miðstöð alþjóða GSM
fjarskipta MintTelecom. Þjónustan
verði seld um allan heim og muni
fjarskipti til og frá íslandi margfald-
ast, og verða á milli 700 og 900 milljón
mínútur á ári, en árleg umferð nú
nemur 60 milljónum mínútna. Segir í
tilkynningunni að á næstu vikum
verði þjónustu félagsins hleypt af
stokkunum í Bretlandi og í kjölfarið
um heim allan. Áætlanii- MintTele-
com gera ráð fyrir að þegar á fyrsta
ári muni viðskiptavinir félagsins í
Bretlandi einu verða yfir 600 þúsund.
Bankarnir spá
0,5-0,6% verðbólgu
milli mánaða
BANKARNIR birta um þessar
mundir spár sinar um hækkun vísi-
tölu neysluverðs frá maí til júní.
Spárnar eru á bilinu 0,5-0,61%
hækkun á milli mánaða. Bensín
hækkaði um 3,5% um mánaðamótin
og er því stór hluti af væntanlegri
hækkun neysluverðsvísitölunnar.
Spárnar jafngilda um 7,5% verð-
bólgu á ársgrundvelli.FBA gerir ráð
fyrir 0,5% hækkun á vísitölu neyslu-
verðs á milli maí og júní. Verðhækk-
anir á bensíni og húsnæði hafa mest
áhrif að því er fram kemur í spá
bankans sem birt verður í mánaðar-
skýrslu í dag. Búnaðarbanki Islands
spáir 0,5-0,6% hækkun á milli mán-
aða. Edda Rós Karlsdóttir, hagfræð-
ingur hjá Búnaðarbankanum, segir
að undirliggjandi verðbólga sé mikil
og hjöðnun ekki í sjónmáli.
Kaupþing spáir 0,61% hækkun á
vísitölu neysluverðs á milli maí og
júní. Kaupþing gerir ráð fyrir 0,8%
hækkun á matvöru og 1% hækkun á
húsnæðisliðum og fatnaði, auk bens-
ínhækkunar um 3,5%. Spá Kaup-
þings samsvarar 7,6% verðbólgu á
ársgrundvelli.Landsbanki íslands
spáir 0,6% hækkun á vísitölu neyslu-
verðs frá maímánuði að því er fram
kemur í markaðsyfirliti bankans í
gær. Þar segir einnig að spáin jafn-
gildi 7,5% verðbólgu á ársgrundvelli.
í spá Landsbankans valda bensín-
hækkanir og húsnæðisliður hvað
mestum hækkunum, samanlagt um
tveimur þriðju hlutum heildarhækk-
unar, en einnig má rekja nokkra
hækkun til árstíðarbundinnar hækk-
unar grænmetis, sem kemur til
vegna ónógs framboðs og hárra tolla.