Morgunblaðið - 06.06.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 2\
Notkun WAP-síma fer rólega af stað en reynist ágætlega
Osanngjarnt að bera WAP-
síma saman við borðtölvu
EITTHVAÐ hefur heyrst um að
WAP-síminn hafi ekki staðið undir
væntingum manna, að sögn Ólafs
Þ. Stephensen, forstöðumanns
upplýsinga- og kynningarmála
Landssímans. Hann sagði þá
gagnrýni sem fram hefði komið
hjá sérfræðingum í Danmörku á
WAP-símana vera
ósanngjarna, en eins
og greint var frá hér
í Morgunblaðinu síð-
astliðinn miðvikudag,
segja sérfræðingar
þar símana ónothæfa
vegna lélegrar flutn-
ingsgetu og fleiri
örðugleika. Ólafur
sagði að ekki væri
hægt að bera WAP-
síma saman við borð-
tölvu. Þeir sem væru að
leita að hröðum netað-
gangi og fallegum mynd-
um yrðu eðlilega fyrir
vonbrigðum því WAP-
síminn væri þá ekki rétta
tólið. Það sem fengist í
WAP-símum væri hins
vegar þjónusta sem ekki
hefði verið í boði áður.
„En þetta á eftir að breyt-
ast mjög mikið,“ sagði
Ólafur. „Með nýju WAP-
gáttinni okkar verður tengitíminn
miklu styttri en nú. Tíminn sem
það tekur að hlaða niður síður
takmarkast hins vegar áfram af
takmarkaðri gagnaflutningsgetu í
GSM-kerfinu. Með GPRS-síma-
kerfinu, sem við stefnum að að
verði tilbúið kringum næstu ára-
mót, mun þetta^ batna verulega."
Að sögn Ólafs er áætlað að
(''"A notendur WAP-símaþjón-
I \ ustu Landssímans séu um
1.000 talsins.
Að sögn Geirs Ragnars-
sonar, yfírmanns tækni-
rekstrar Islandssíma, er
eins með WAP-símana
og aðra nýja tækni að
alltaf megi búast við
einhverjum byrjunar-
örðugleikum. Hann
sagðist reikna með að
þau vandamál sem hafi
komið upp muni leys-
ast með tímanum.
Ekki liggja fyrir upp-
lýsingar um fjölda not-
enda WAP-símaþjón-
ustu Islandssíma.
Vandamál óháð
tegund síma
Bjarni Halldór
Kristjánsson, deildar-
stjóri á verkstæði
Hátækni ehf., sagði
að líkja mætti WAP-
síma við tölvur al-
mennt. Það haldist í hendur
hvernig WAP-síða fyrirtækis er
skrifuð við þann hugbúnað sem er
í símanum. Sum forrit passi ein-
faldlega illa saman. WAP er forrit
í símanum sem þurfi að hafa sam-
skipti við önnur forrit, sem er
WAP-síða fyrirtækja, og þarna
geta verið samskiptaörðugleikar.
Hann sagði að fyrstu símarnir sem
komu á markað séu farnir að
hiksta svolítið á þessum samskipt-
um og menn lendi í því að símarnir
frjósi. Þetta hafi hins vegar gengið
betur með nýjasta hugbúnaðinum í
WAP-símunum. Bjarni sagði að
hann vissi einungis um tvær teg-
undir WAP-síma á markaði hér-
lendis, Nokia 7110, sem væri al-
gengastur, og Ericsson R320S, og
að sömu vandamálin hafi verið
með þá báða. Hann sagði þessa
tækni vera skammt á veg komna
og að því væru eðlilega erfiðleikar
í byrjun. „Það verður samt að
segja að sumir hafa orðið fyrir
vonbrigðum vegna þess hvernig
þessi nýja tækni var kynnt,“ sagði
Bjarni. „Kynningin var eins og um
stórkostlega nýjung væri að ræða
en svo kom í ljós að þetta er ekki
svo rosalega merkilegt. Það hefur
án efa valdið vonbrigðum sumra.“
Litið kvartað yfír
WAP-símaþjónustu
Búnaðarbankans
Ingi Örn Geirsson, forstöðumað-
ur tölvudeildar Búnaðarbankans,
sagði að notkun á WAP-símaþjón-
ustu bankans hafi farið hægt af
stað. Bankinn hafi hins vegar lítið
fengið af kvörtunum yfir þjónust-
unni en þó hafi ákveðnir erfiðleik-
ar verið með fyrstu símana sem í
boði voru. Þeir símar sem nú væru
í boði reyndust hins vegar ágæt-
lega. Bankinn er ekki með skráð
hve margir notfæri sér þessa þjón-
ustu er. rúmlega 15.000 netbanka-
notendur bankans hafi möguleika
á að nýta sér hana. Ingi Örn sagði
að ekki hefði verið óeðlilegt að
vart hefði verið við einhverja byrj-
unarerfiðleika þar sem um nýja
tækni væri að ræða, en búið væri
að komast fyrir þá. Búnaðarbank-
inn væri ánægður með stöðuna í
þessum málum í dag. Þessi þjón-
usta væri nauðsynlegur þáttur í
starfsemi bankans og hann muni
halda áfram að byggja á þessari
tækni.
Góð viðbrögð
erlendis frá
Flugleiðir hafa fengið góð við-
brögð við WAP-þjónustunni, að
sögn Steins Loga Björnssonar,
framkvæmdastjóra markaðs- og
sölusviðs, sérstaklega frá erlend-
um viðskiptavinum. Hraðinn væri
hins vegar ekki mikill í WAP-sím-
anum og því væri ekki við því að
búast að hægt væri að framkvæma
flóknar aðgerðir í honum. Hann
sagði að það væri ákaflega mikil-
vægt fyrir Flugleiðir að hafa tekið
þá ákvörðun að vera fyrsta flugfé-
lagið í heiminum sem býður upp á
bókanir í gegnum WAP-síma.
Notkunin verði hins vegar ekki al-
menn og mikil fyrr en þegar
GPRS-kerfið kemur til sögunnar.
Telenor sækir
í austurveg
TELONOR hefur keypt meirihlut-
ann í rússneska símafyrirtækinu
Komikom-Combellga fyrir 120
milljónir dala eða liðlega níu millj-
arða íslenskra króna að því er segir
í Aftenposten. Fyrir um hálfu öðru
ári keypti Telía fjórðungshlut í
rússneska farsímafyrirtækinu
Vimpelkom og með kaupunum á
Komikom-Combellga er Telenor nú
með ein mestu umsvif erlendra fyr-
irtækja á símamarkaðinum í Rúss-
landi og hefur ekkert annað erlent
símafyrirtæki fjárfest jafnmikið í
Rússland og Telenor hefur gert
undanfarin ár. Uppgangur Komi-
kom-Combellga hófst í byrjun
niunda áratugarins en fyrirtækið
varð fyrst rússneskra símafyrir-
tækja til þess að bjóða upp á síma-
þjónustu af svipuðum gæðum og
þekkist á Vesturlöndum og hefur
einbeitt sér að þeim hluta markað-
arins sem leggur meira upp úr
gæðum en verði. Bréfin í Komikom-
Combellga keypti Telenor af bel-
gíska fyrirtækinu Belgacom og á
Telenor nú 75% í Komikom-
Combellga.Tormod Hermansen,
framkvæmdastjóri Telenor, segir
að frá árinu 1998 hafi Telenor fjár-
fest fyrir nálega 30 milljarða í
Rússlandi og að hann hafi mikla trú
á markaðinum í Rússlandi; fjárfest-
ingin í Vimpelcom hafi reynst
heillaspor og verð bréfanna hækk-
að mikið. Hagnaður Vimpelcom hafi
raunar ekki verið mjög mikill en
hins vegar hafi viðskiptavinum þess
fjölgað hratt undanfarin misseri.
Hermansen segist ekki geta sagt til
um það hversu stóran hlut Telenor
ætlar sér á markaðinum í Rúss-
landi. Telenor muni halda áfram að
fjárfesta á sviðum þar sem fyrir-
tækið skari fram úr og í verkefnum
sem stjórnendur þess hafi trú á.
Hraðbankar á
íbúa hverg’i fleiri
en á Islandi
„UMTALSVERÐAN fjölda af
færslum þarf í hverjum hrað-
banka til þess að rekstur hans
nái að standa undir sér,“ segir
Kristján Guðmundsson, mark-
aðsstjóri Landsbanka Islands.
„Kostnaðurinn við rekstur hrað-
banka er allnokkur, hver hrað-
banki kostar nokkrar milljónir,
öryggismál þurfa að vera í góðu
lagi og þá þarf vitaskuld að sjá
um viðhald, þjónustu og flutning
á peningum við rekstur hrað-
banka.“ Að sögn Kristjáns rekur
Landsbankinn á milli 50 og 60
hraðbanka víðs vegar um landið.
A sumum stöðum hafi rekstur-
inn gengið vel en annars staðar
verr og enda þótt Landsbankinn
setji sér ekki beinlínis það
markmið að reka hraðbankana
með hagnaði þá setji menn sér
ákveðna lágmarksviðmiðun í
fjölda færslna þegar tekin er
ákvörðun um staðsetningu hrað-
banka. Ekkert vit sé í að reka
hraðbanka þar sem færslur eru
ekki nema fimm til tíu á dag.
Kristján segist hafa rekið sig á
að hraðbankar séu mikið tilfinn-
ingamál fyrir fólk og að það
skipti menn miklu máli að vita af
hraðbanka nálægt sér. Landsb-
ankinn geri sér vel grein fyrir
þessum kröfum. Vegna fréttar
um að enginn hraðbanki sé á
Seyðisfirði segir Kristján að
Landsbankinn hafi rekið hrað-
banka í fyrrasumar og hafi það
verið gert í tilraunaskyni. Notk-
un hans hafi hins vegar ekki ver-
ið í samræmi við væntingar
manna. Það beri þó að ítreka
sérstaklega að ekki liafi verið
tekin endanleg ákvörðun í mál-
inu hjá Landsbankanum. Útibúið
á Seyðisfirði sé að flytja í nýtt
húsnæði og eins og fram kom
hjá svæðisstjóra Landsbankans
á Austfjörðumverði málið skoðað
betur þegar að flutningi kemur.
Þá megi ekki heldur gleyma því
að Landsbankinn þjóni Austfirð-
ingum ötullega og reki þar ellefu
útibú en Búnaðarbankinn aðeins
eitt og íslandsbanki ekkert.
Þéttriðið net hraðbanka
á íslandi
„Það er ekki grundvallarfor-
senda hjá okkur að reka hrað-
banka með hagnaði og auðvitað
höfum við líka þjónustu við við-
skiptavini okkar í huga, “ segir
Jón Þórisson, framkvæmdastjóri
útibúasviðs Islandsbanka. Að
sögn Jóns létta hraðbankar álagi
af útibúunum og gera megi ráð
fyrir að kostnaður við hverja
færslu í hraðbönkunum sé held-
ur lægri en í útibúunum. Þegar
menn ákveði hvar koma skuli
fyiir hraðbanka sé það þó ævin-
lega hluti af stærra reiknings-
dæmi. Jón tekur undir að kostn-
aðurinn við rekstur hraðbank-
anna sé allnokkur og hann segir
að hjá Islandsbanka horfi menn
til þess að hafa hraðbankana ná-
lægt útibúunum til þess að ná
niður þessum kostnaði. Islands-
banki reki 38 hraðbanka nú og
ekki standi til að fjölga þeim í
bráð en hins vegar séu menn
frekar að velta fyi'ir sér stað-
setningu þeirra, þ.e.a.s. að koma
þeim fyrir þar sem sem flest fólk
á leið um. Jón segir að á Islandi
sé rekið eitt þéttriðnasta net
hraðbanka, þ.e. að hér séu mun
færri íbúar um hvern hraðbanka
en þekkist annars staðar.
Byggðu upp framtíð!
Láttu að þér kveða í
undirstöðuatvinnugrein ísiendinga
IMám í fiskvinnsluskólanum
tekur tvö ár og er aðal áherslan
lögð á matvælavinnslu. Einnig
eru kenndar greinar eins og
tölvu- og upplýsingatækni,
rekstrarhagfræði o.fl.
Námið er lánshæft.
Nám í fiskvinnsluskólanum
skilar þér, bættum launum,
kost á framhaldsmenntun
og ábyrgðarstöðum.
Umsóknarfrestur er til 9. júní
Hvaleyrarbraut 13, 220 Hafnarfirði
Sími; 565 2099, Fax: 565 2029, http://fiskvin.ismennt.is, Netfang: gislier@ismennt.is