Morgunblaðið - 06.06.2000, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 06.06.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 31 ERLENT Mikil skelfíng vegna náttúruhamfara á eynni Súmötru í Indónesíu Einn öflugasti skjálfti sem riðið hefur yfir í mörg ár Jakarta. AP, AFP. MIKIL skelfíng gi’eip um sig í Bengkulu-sýslu í Indónesíu þegar gífurlega öflugur jarðskjálfti reið yfir eyjuna Súmötru undir mið- nætti á sunnudag. Fjöldi manns beið bana og hundruð slösuðust, að því er embættismenn greindu frá í gær. Fregnir bárust af tjóni af völd- um skjálftans í sex sýslum á eynni. Indónesíska veðurfars- og jarð- fræðiþjónustan sagði að skjálftinn hefði mælst 7,3 á Richter, en Bandaríska jarðfræðimiðstöðin í Colorado sagði skjálftann hafa ver- ið 7,9 á Richter. Reið hann yfir um klukkan 23.30 að staðartíma, eða klukkan 17.30 að íslenzkum tíma og stóð í nokkrar mínútur. Ellefu mín- útum síðar kom annar skjálfti er mældist um sex á Richter og hund- ruð eftirskjálfta fylgdu í kjölfarið. Er kv’öldaði varð að hætta björg- unaraðgerðum í húsarústum vegna þess að hjálparsveitir höfðu ekkert rafmagn. Þúsundir flýðu heimili sín er eftirskjálftarnir héldu áfram að dynja yfír og margir voru heimilis- lausir vegna skemmda er orðið höfðu á húsum þeirra. Oll hús í borginni skemmd „Skjálftinn stóð í margar mínút- ur. Tugir heimila hafa eyðilagzt og svo virðist sem öll hús í borginni hafi skemmst," sagði lögi-eglustjór- inn í Bengkulu, Hariyono. „Fólk fyllist skelfingu í hvert skipti sem það finnur fyrir eftirskjálfta." Um 1,2 milljónir manna búa í Bengkulu-sýslu, sem er nálægt upptökum skjálftans, er voru úti fyrir Indlandshafsströnd Súmötru, þar sem eru mót tveggja jarð- skorpufleka. Fregnir um tölu látinna og slas- aðra voru óljósar í gær vegna þess að skálftinn eyðilagði samskipta- leiðir til margra héraða. Haft var eftir vitnum að sjúkra- hús á svæðinu ættu erfitt með að sinna öllum þeim er slösuðust, ekki sízt vegna þess að fáir starfsmenn húsanna hefðu komizt til vinnu. I gærkvöldi komu 15 læknar með flugi frá borginni Palembang á Suð- ur-Súmötru starfsbræðrum sínum í Bengkulu til aðstoðar. I höfuðborg sýslunnar búa um 250 þúsund manns, og þar hlynntu læknar að slösuðum á bílastæði undir berum himni af ótta við að sjúkrahúsið, sem hafði skemmst mikið í skjálftanum, myndi hrynja í eftirskjálftum, að því er indónes- íska fréttastofan Antara greindi frá. Vatn og rafmagn fór af og síma- sambandslaust var í stórum hluta borgarinnar. Sögðu borgaryfirvöld að rafmagn myndi ekki komast á aftur fyrr en í fyrsta lagi eftir viku. Þá voru sjúkragögn af skornum skammti, og sagði í fregnum Ant- ara að læknar hefðu í sumum tilfell- um orðið að gera minniháttar að- gerðir án deyfilyfja. Flugvöllur borgarinnar lokaðist vegna skemmda á samskiptatækj- um og farþegasal. Margir vegir til borgarinnar voru ófærir vegna skriðufalla. Talsmaður indónesíska flotans sagði að tvö herskip hlaðin matarbirgðum og sjúkragögnum hefðu verið send á hamfarasvæðið. Fregnir bárust af því að á eynni Enggano, sem er um 200 km suð- austur af Bengkulu, hefðu orðið gíf- urlegar skemmdir. Haft var eftir embættismanni að um 90% bygg- inga á eynni hefðu skemmst. Ekki vart flóðbylgju Skjálftinn er einn sá stærsti sem mælst hefur í Indónesíu á undan- förnum árum. Hans varð vart víða í vesturhluta eyjaklasans, þ.á m. í JARÐSKJÁLFTI í INDÓNESÍU Upptök skjálftans voru úti fýrir strönd Súmötru höfuðborginni, Jakarta, og í nágr- annaríkinu Singapore þar sem margir flýðu hús sín er háhýsi skók- ust í skjálftanum. Þótt upptök skjálftans væru und- ir hafsbotni hafa ekki borist fregnir af flóðbylgju, svonefndri tsunami, sem jarðskjálfti eða eldgos geta komið af stað. í desember 1992 leiddi jarðskjálfti, er mældist sjö á Richter, til flóðbylgju er varð um 2.500 manns að bana á Flores-eyju í austurhluta Indónesíu. AP A forsíðum breskra dagblaða er Karl Bretaprins hvattur til að kvænast Camillu Parker Bowles. E nglandsdrottn- ing og ástkona prinsins ræðast við Lundúnum. The Daily Telegraph. SVO virðist sem Elísabet Eng- landsdi’ottning hafi loks gengist við því að Camilla Parker-Bowles, ást- kona Karls Bretaprins, sé konan í lífi hans en á laugardag ræddust þær stuttlega við í garðveislu sem haldin var í tilefni af sextugsafmæli Konst- antíns, fyrrum Grikklandskonungs. Breskir fjölmiðlar kalla endur- fundinn sögulegan og til marks um viðhorfsbreytingu drottningar sem um árabil hefur virt tilvist Parker- Bowles að vettugi. The Daily Telegraph segir frá því að Parker-Bowles hafi verið kynnt. fyrir drottningu er hún mætti til af- mælisveislunnar sem haldin var á heimili Karls í Glósturskíri og að eft- ir að þær skiptust á kveðjum hafi hver haldið í sína áttina og blandað geði við gesti. Er þetta sagt vera í fyrsta sinn í tvö ár að drottningin ávarpi Parker-Bowles og að sögn sjónarvotta, einkenndust endur- fundirnir af viðeigandi kurteisi. Allt þar til um helgina hafði drottningin neitað að hitta ástkonu Karls prins eða vera viðstödd at- hafnir þar sem hún væri meðal gesta og var ástæðan snar þáttur Parker- Bowles í skilnaði prinsins og Díönu prinsessu. Er fullyrt að um mikla stefnubreytingu sé að ræða ekki síst íljósi þess að drottningin hafi vitað fullvel að Parker-Bowles myndi vera í garðveislunni og er sögð hafa íhugað málið vel áður en hún tók þá ákvörðun að heiðra Konstantín fyrr- um Grikklandskonung með nærveru sinni. Heimildamenn Dnily Tele- graph innan konungsfj ölskyIdunnar segja að drottningin hafi litið svo á að tími væri kominn til að gangast við því að Parker-Bowles væri stór hluti af lffi prinsins. Biskupbin vildi mynda sér „yfirvegaða skoðun“ Greint var frá því í gær að erki- biskupinn í Kantaraborg hafi farið fram á að hitta Parker-Bowles á leynilegum fundum og að íþau sex skipti sem þau hafi hist, hafi sam- band Karls og Camillu verið rætt, með það að markmiði að erkibisk- upinn gæti myndað sér „yfirvegaða skoðun“ á samskiptum þeirra. Ilefur þetta ýtt undir umræðuna um það hvort Karl prins gangist að eiga Parker-Bowles en samkvæmt reglum Ensku biskupakirkjunnar er slíkt óheimilt þar eð bæði eru þau fráskilin og fyrrum eiginmaður Parker-Bowles er enn á lífi. Ef af giftingu yrði kynni það að valda vanda, ekki aðeins innan kirkjunnar heldur einnig innan konungs- fjölskyldunnar því ef Elísabet drottning félli frá, yrði Camilla drottning. Karl prins hefur þó ekki breytt fyrri yfirlýsingum sínum um að hann hafi ekki í hyggju að kvænast á ný og vinir Parker-Bowles vfsa slfk- uin hugleiðingum á bug og segja hana hafa allt það sem hún vilji. „Það síðasta sem hún myndi vilja er íburðurinn og hátíðleikinn sem fylg- ir því að verða drottning," fiænka Camillu í gær. Fjarskipti í brennidepli Sala Landssímans - Ný lög um fjarskipti - Tækifæri í fjarvinnslu - Öryggi fjarskiptakerfis Opinn fundur Málefnanefnd Sjálfstæðisflokksins um upplýsingatækni heldur opinn fund miðvikudaginn 7. júní kl. 16.30 í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Fjarskipti á íslandi - forsendur framfara Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra. Einkafyrirtæki: Tækifæri til fjarvinnslu á landsbyggðinni Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður. Tækifæri í fjarvinnslu með nýjustu tækni - Reynsla af fyrstu sporum fjarvinnslu á íslandi Árni Sigfússon, forstjóri Tæknivals. Sambandslaust ísland 2003? Halldór Kristjánsson, forstjóri Tölvu- og verkfræðiþjónustunnar. Síminn í samkeppnisumhverfi Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri Landssímans. Sala Landsímans - samkeppnismál Eyþór Arnalds, forstjóri (slandssíma. Fundarstjóri: Ragnheiður Árnadóttir, aðstoðarmaður fjármálaráðherra. SJALFSTÆÐISFLOKKURINN www.xd.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.