Morgunblaðið - 06.06.2000, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 39
LISTIR
Stór samningur
um verk Halldórs
Laxness erlendis
VAKA-Helgafell hefur
gengið frá umfangs-
mesta samningi sem
forlagið hefur gert um
verk Halldórs Laxness
erlendis. Um er að
ræða heildarsamning
við Steidl Verlag í
Þýskalandi um útgáfur
á skáldsögum og smá-
sögum nóbelsskáldsins
til næstu tíu ára. Um er
að ræða þýskar útgáfur
á 36 verkum Halldórs
Laxness og for-
kaupsrétt að fleiri bók-
um.
Steidl Verlag hefur á
liðnum árum staðið fyr-
ir öflugri útgáfu á bókum Halldórs
Laxness í Þýskalandi. Prófessor Hu-
bert Seelow hefur haft umsjón með
texta verkanna, þýtt mörg þeirra og
endurskoðað eldri þýðingar á öðrum
Hann hefur einnig skrifað eftirmála
að þessum nýju útgáfum til að fylgja
þeim út hlaði. Seelow var tilnefndur
til Evrópsku bókmenntaverðlaun-
anna í fyrra fyrir þýðingu sína á
Brekkukotsannál.
Steidl Verlag hefur undanfarinn
áratug gefíð verk Halldórs Laxness
út í fjölmörgum útgáfum, bæði inn-
bundin og í kiljum. Þá hefur forlagið
haft milligöngu um sölu á verkum
skáldsins til stórra bókaklúbba í
Þýskalandi, en meðal annarra verka
sem forlagið hefur á útgáfulista sín-
um eru verk Gúnters Grass.
Þýðingarmikill samningur
á hinu þýska málsvæði
Að sögn Péturs Más Ólafssonar
hjá Vöku-Helgafelli hefur samning-
ur á borð við þennan geysilega mikla
þýðingu á hinu þýska málsvæði, sem
segja má að hafi verið sterkasta vígi
Líixness erlendis undanfarin ár. „Nú
er Islandsklukkan t.d. að koma út í
þremur nýjum útgáfum," segir Pét-
ur Már, „þar sem end-
urskoðaður texti Seel-
ow er settur í misdýrar
umbúðir þar sem hver
og einn getur fundið
bók við sitt hæfí. Dýr-
asta útgáfan, sem telur
11 bindi, er íburðar-
mikil og hefur banda-
ríski listamaðurinn
Roni Horn unnið káp-
urnar á hana, síðan
koma út 12 bindi í að-
eins ódýrari útgáfu
sem ætluð er fyrir al-
mennan markað og
loks verður enn ódýr-
ara band á boðstólum.
Verkin verða síðan gef-
in út í kiljum þar að auki.“ Pétur seg-
ir þetta bjóða upp á ákveðna mögu-
leika varðandi markaðsetningu á
bókunum svo hægt verði að þreifa
sig áfram með verkin, því þýsku-
mælandi markaðurinn er stór og
þarfir lesenda misjafnar.
Brekkukotsannáll að koma út í
Bretlandi og Bandaríkjunum
eftir margra ára bið
„Þegar fyrst var samið við Steidl
árið 1988 hafði töluvert af verkum
Halldórs Laxness verið á markaði
hjá hinum og þessum. Þá var ákveð-
ið að veðja á Steidl sem er lítið forlag
en þó með aðra stóra höfunda á sín-
um snærum, “ segir Pétur Már.
Hann segir að Steidl hafi einnig
áhuga á að gera tilraun með að gefa
út einhver þeirra verka Laxness sem
ekki teljast beinlínis til skáldskapar,
svo sem ritgerðasöfn og fleira.
Pétm- segir að nú sé einnig von á
Brekkukotsannál í Bretlandi og
Bandaríkjunum eftir margra ára
bið, einnig sé verið að ganga frá út-
gáfu á nýrri þýðingu á Sjálfstæðu
fólki í Hollandi og Kristnihald undir
jökli mun koma út í Tékklandi innan
skamms.
Halldór
Kiljan Laxness
Enski boltinn á Netinu (m) mbl.is
ALLTAf= GITTHXSAÐ A/ÝT1
OXEYPIS
SAFNMAPPA
«•-.
öhdím!
ANDRES OND HEIM FYRIR AÐEINS
ANDRFS önd
• FÓðu ftNDRES ÖND inn um lúguna í hverri
viku fyrir einungis 274 krónur blaðið!
• Þú sparar 3.952 krónur ó óri með því
að kaupa flndrés Önd í óskrift!
• Ef þú skróir þig innan tíu daga færðu vandaða
safnmöppu og Fjölskyldukortið ókeypis!
KRXNGDU NTJNA í SXMA
SSO 3000
(§)Disney
Barnahjól fyrir 3-6 ára frá
Fjallahjól fyrir dömur frá
Fjallahjól fyrir börn frá
Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar,
________Fjallahjól frá____I _________Fjallahjól frá
samsett og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði
_____I ________Fjallahjól frá___[ ________Fjallahjól frá_
Ars ábyrgð
Reiöhjólahjálmar frá
einn mánuð
Barnasæti frá |
l/erslunin
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR
Hjálmar, barnastólar, grifflur,
blikkljós, bjöllur, hraöamælar,
brúsar, töskur, körfur, dempara-
gafflar, hjólafestingar á bíla
og margt fleira.
5% staðgreiðslu-
afsláttur
Upplýsingar um raðgreiöslur
veittar í versluninni
SCOTT • GIANT • BRONCO
BRONCO og DIAMOND
BRONCO
DIAMOND
scon
Brancale og Hamax
Hamax
GIANT
P H
I
t