Morgunblaðið - 06.06.2000, Síða 71
MÓ'RÖUfÍBLAjÓYí)
______________________________________________^RYsJufíAGLfR'eYYgNltbáð’ 7*1
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDBOND
Bragðmikill
Bacon
Bergmál hins liðna
(Stir Of Echoes)
Sigurvegarar Stuttmyndadaga
Söngfuglar í
Kaupmannahöfn
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Verðlaunahafar stuttmyndadaga 2000. F.v. Grímur Hákonarson áhorf-
endaverðlaunin, Gísli Darri Halldórsson og Ómar Hauksson fengu
þriðju verðlaun, Ragnar Santos og Ólafur Jóhannesson ðnnur verðlaun,
Kristján Leifur Pálsson, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson og Halldór V.
Sveinsson áttu verðlaunamynd Stuttmyndadaga 2000.
„EINS OG fiskur í tjörn sem á
heima í sjó,“ þannig er Karaoke-
„menningunni" lýst í sigurmynd
stuttmyndadaga sem lauk á að-
faranótt mánudags. Myndin heitir
„Georg: lifandi lag“ og fjallar um
íslenska Karaoke-hetju sem flyst
til Danmerkur í leit að persónuleg-
um sigrum í Karaoke-heiminum.
Myndin er gerð af Lorti, sem er
félagskapur skipaður Kristjáni
Leifi Pálssyni, Halldóri Vésteini
Sveinssyni og Hafsteini Gunnari
Sigurðssyni. Piltarnir eru hjóla-
brettaunnendur og byrjuðu sinn
kvikmyndagerðarferil á því að taka
upp glæfralegar hjólabrettabrell-
ur.
í innsta hring
Karaoke-vélarinnar
„Karaoke er skemmtilegt fyrir-
brigði og það er alveg ákveðin
tKaraoke] menning til,“ svarar
Halldór, eða Tinni eins og hann er
kallaður, þegar blaðamaður spyr af
hverju þeir félagar hafi ákveðið að
fjalla um þetta umfangsefni í stutt-
mynd þeirra.
„Við komumst reyndar bara að
því eftir að við fengum hugmynd-
ina, þegar við vorum að heimsækja
þessa Karaoke staði í gríni, sem
sögupersónum myndarinnar finnst
reyndar ekki sniðugt að fólk geri.
Síðan ákváðum við að kynna okkur
þetta almennilega og þá var þetta
til staðar.“
„Hugmyndin kviknaði þegar við
vorum nokkrir saman að vinna úti
í Kaupmannahöfn við að setja upp
tjöld,“ segir Hafsteinn. „Svo var
bara ekkert að gera lengur. Ver-
tíðin var búin, djasshátíðin var
búin, og í einhverju eirðarleysi
ákváðum við að gera stuttmynd.“
Piltarnir segjast hafa skrifað
lauslegt handrit að myndinni en
hún sé einnig að stórum hluta
spuni. Myndin var tekin sumarið
1998 en þeir lögðu ekki lokahönd á
verkið fyrr en um siðastliðna
páska.
En skyldi það hafa tekið þá fé-
laga langan tíma að komast inn í
innsta hring Karaoke menningar-
innar í Kaupmannahöfn?
„Þetta var eiginlega bara okkar
eigin Karaoke klíka,“ segir Haf-
steinn og hlær. „Við héngum á
tveimur hallærislegum börur á
Strikinu sem við höfðum tekið eftir
og gáfu okkur upphaflega hug-
myndina. Við vorum ekkert sér-
staklega mikið að blanda geði við
fastagestina."
„Nei, nei, en maður talaði samt
aðeins við barþjónanna og fékk að
vita hvernig þetta væri,“ bætir
Tinni við. „A sumum stöðum voru
menn sem mættu bara við opnun á
hverjum degi og fóru við lokun eft-
ir að hafa sungið um tíu lög.“
Piltarnir fóru einnig til Kína
sama sumar og kynntust því hve
sterk Karaoke menningin var þar.
Þeir segja þó að mekka Karaokes-
ins sé Tokyo í Japan.
Allir til Köben?
Piltarnir segjast hafa verið að
grúska lengi í stuttmyndagerð en
að félagsskapurinn Lortur hafi
aldrei áður sent mynd inn í keppn-
ina. Þeir segjast ekki enn búnir að
ákveða hvað gera skuli við vinn-
ingslaunin.
„Hugmyndin var reyndar að
bjóða öllum sem komu að mynd-
inni til Kaupmannahafnar," segir
Hafsteinn hæðnislega. „Það getur
vel verið að það verði staðið við
það.“
Piltarnir segja þó ekki ólíklegt
að hluti af fjárhæðinni fari beint í
næstu mynd. Þó svo að þeir séu
ekki búnir að ákveða neitt um hvað
sú mynd eigi að vera hafi þeir ver-
ið að prufa sig áfram með leirkalla.
Þeir vonast til að komast í það að
gera aðra mynd með haustinu.
Aðrar myndir sem fengu verð-
laun á hátíðinni voru „Engill no.
5503288“ eftir Ólaf Jóhannesson,
„Gogh Syndrome - Technoballet í
E dúr“ eftir teiknimyndafrömuð-
inn Gísla Darra Halldórsson og
sérstök áhorfendaverðlaun fékk
Grímur Hákonarson fyrir mynd
sína „Efnisleg Ást“.
Dómnefndin hrósaði einnig sér-
staklega myndunum „Amtmanns-
stígur 5“ eftir Jón Sæmund, „Oh, I
need your love“ eftir Egil
Sæbjörnsson og myndum Mold-
vörpunnar.
Þær erlendu myndir sem fengu
verðlaun voru „M.A. Numminen
turns rabbit“ eftir Claes Ollson frá
Finnlandi, „Sind Sie Lugi?“ eftir
Klaus Theo Gartner og Alice
Flotron frá Þýskalandi og „Into
the night“ eftir Klaus Harö frá
Finnlandi.
HROLLVEKJA
★★★
Leikstjórn og handrit: David
Koepp. Aðalhlutverk: Kevin Bacon,
Kathryn Erbe. (99 mín.)
Bandaríkin 1999. Sam-myndbönd.
Bönnuð innan 16 ára.
í ÞESSUM yfimáttúrulega spenn-
uti-ylli leikur Kevin Bacon jarðbund-
inn og fjölskyldukæran efasemda-
mann sem í rælni
manar mágkonu
sína til að dáleiða
sig. Við dáleiðsluna
opnast áður luktar
dyr í hugarfylgsn-
um hans og úr læð-
ingi leysast leyndir
hæfileikar til að
skypja og sjá. Upp
frá því breytist líf hans í hreina mar-
tröð og hann fer að hegða sér undar-
lega sínum nánustu til mikillar ar-
mæðu. Hann fer brátt að finna á sér
að voveiflegir atburðir hafi gerst í
húsinu sem hann býr í, atburðir sem á
einhvem óskiljanlegan máta tengist
framliðinni stúlku sem hann tekur að
sjá. En smátt og smátt tekur þokimni
að létta og hörmuleg og óvænt leynd-
armál koma í ijós. Þetta er kynngi-
mögnuð og skotheld spennumynd þar
sem flest gengur upp; hugvitssamlegt
handrit, góð leikstjóm, sanfærandi
persónur og pottþéttur leikur, sér í
lagi hjá Bacon sem er hér alveg vera-
lega bragðmikill í safaríku hlutverki.
Ekki horfa fram hjá þessari ef kom-
inn er tími til að snyrta neglumar.
Skarphéðinn Guðmundsson
Hvergi betra
Bamaveiðistöng
Sundhiingur
Golíleikfang
verð
Kylfa og bolti
Skráðu þig %)
í vefklúbbinn
www.husa.is
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is