Morgunblaðið - 14.06.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 14.06.2000, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fleiri fyrirtæki krefjast lögbanns á aðgerðir Sleipnis Fjögur hópferðafyrirtæki hafa fengið sam- þykkt lögbann á verkfallsaðgerðir Bifreiða- stjórafélagsins Sleipnis og ein lögbanns- aðgerð til viðbótar var lögð fram í gær. ÓSKAR Stefánsson, formaður Sleipnis, segir að verkafólk úr öðr- um stéttarfélögum taki þátt í því með vinnuveitendum að reyna að brjóta niður verkfall Sleipnis. Hann segist sakna stuðnings ann- arra verkalýðsfélaga við aðgerðir Sleipnis. Staðan í viðræðum Sleipnis og vinnuveitenda hefur ekkert breyst frá því að verkfallið hófst 8. júní sl. Þá lögðu fulltrúar Sleipnis fram tilboð þar sem nokkuð var dregið í land frá upphaflegum kröfum fé- lagsins. Óskar sagði að tilboðið hefði gert ráð fyrir samningi til fjögurra ára þar sem gert var ráð fyrir að byrjunarlaun bifreiða- stjóra væru rúmlega 90 þúsund krónur á mánuði. Vinnuveitendur höfnuðu þessum samningsdrögum. Ragnar Árna- son, sem sæti á í samninganefnd Samtaka atvinnulífsins, sagði að enn bæri talsvert mikið á milli. Það væri hægt að reikna það með ýmsum hætti og því erfítt að nefna eina tölu í því sambandi. Ragnar sagði að fram að þessu hefði verið lítill sáttatónn í Sleipnismönnum. Þeir hefðu talað um að þetta yrði langt verkfall og greinilegt væri að þeir væru nokkuð uppteknir við að framfylgja verkfallinu og þess vegna haft takmarkaðan tíma til að huga að því að semja um lausn þess. Sleipnismenn eiga ekki rétt á fjárstuðningi frá Norræna flutn- ingaverkamannasambandinu nema verkfallið standi í tvær vikur og sagðist Ragnar ekki geta útilokað að það skipti einhverju máli í þessu samhengi. Sleipnismenn óánægðir með samning VMSÍ Sleipnismenn mótmæltu harð- lega samningi sem Verkamanna- sambandið gerði við Samtök at- vinnulífsins í vor. Sá samningur fól í sér sérstakan samning fyrir rútu- bílstjóra á landsbyggðinni. Óskar Stefánsson kallaði samninginn „rýtingsstungu í bak Sleipnis- manna“. „í þessum samningi tók Verka- mannasambandið allt sem stóð í okkar kröfum og færðu það niður á þann samning sem við höfðum fyrir og jafnvel niður fyrir hann. Eg var á göngunum í húsi sátta- semjara þegar verið var að ganga frá þessum samningi en ekkert samráð var haft við mig. Við sögð- um þess vegna að það hefði verið komið aftan að okkur og ég stend alveg við þá yfirlýsingu" sagði Óskar. Óskar sagði að þessi samningur VMSI um kjör rútubílstjóra á landsbyggðinni ætti mikinn þátt í hve verkfall Sleipnis væri í hörð- um hnút. Vinnuveitendur hefðu með þessum samningi fengið við- spyrnu sem vissulega hefði valdið Sleipnismönnum erfiðleikum. Átök um framkvæmd verkfallsins Áhrif verkfalls Sleipnis kemur með skýrustum hætti niður á Kynnisferðum sem sjá um akstur frá Keflavíkurílugvelli til Reykja- víkur, Hagvögnum sem sjá um akstur strætisvagna í nágranna- bæjum Reykjavíkur og Norður- leiðar sem er með sérleyfi milli Reykjavíkur og Akureyrar. Mjög breytilegt er hvort Sleipnismenn vinna hjá fyrii-tækjum sem sinna hópferðum. Sum þessara fyrir- tækja eru með starfsemi á lands- byggðinni en sinna mikið akstri til Reykjavíkur. Þar sem bifreiða- stjórar á íslandi eru í mörgum stéttarfélögum er því kannski ekki að undra þó að nokkur átök hafi verið um framkvæmd verkfallsins. Sumir eru í almennum verkalýðs- félögum á landsbyggðinni, nokkrir eru í verslunarmannafélögum og einnig er eitthvað um að rútubíl- stjórar séu verktakar. Ástæðan fyrir því að sýslumaður samþykkti lögbann á verkfallsað- gerðir Sleipnismanna gagnvart Teiti Jónassyni og Austurleið í síð- ustu viku er sú að engir rútubíl- stjórar sem starfa hjá þessum tveimur rútubílafyrirtækjum eru í Sleipni. Flestir bílstjórar sem starfa hjá Teiti Jónassyni eru t.d. í Eflingu, sem lokið hefur gerð kjarasamninga við vinnuveitendur. Eigendur Hópbíla hf. fengu í gær samþykkt lögbann á verkfallsað- gerðir Sleipnismanna, en rútubíl- stjórar sem starfa hjá fyrirtækinu eru flestir í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur. í gær lagði Austur- leið fram aðra lögbannskröfu og lögbannskrafa kom einnig frá hóp- ferðafyrirtækinu Allrahanda. Óskar var spurður hvort ástæð- an fyrir þeim átökum sem hefðu verið um framkvæmd verkfallsins væri sú að Sleipnir væri ekki landsfélag bi/reiðastjóra heldur svæðisfélag. Óskar sagði að það skipti ekki höfuðmáli í þessu máli hvort Sleipnir væri landsfélag. „Ástæðan fyrir því að deilan er svona hörð er sú að önnur verka- lýðsfélög standa ekki með okkur eða sýna okkur ekki stuðning af neinu tagi. Verkalýðsfélögin hafa látið það yfir sig ganga að vinnu- veitendur geti hent launþegum inn í önnur verkalýðsfélög. Með þögn- inni samþykkja félögin að þetta sé hægt“ sagði Öskar. Oskar sagði að lögbannskröfurn- ar streymdu nú inn til félagsins. Hann sagði að í kröfunum væri til- greint hvaða starfsmenn ætluðu að keyra og á þessu listum væri að finna menn sem ekki hefðu unnið hjá fyrirtækjunum. „Þarna er kennari að austan, skúringakona, maður sem hefur séð um ferða- skrifstofu, rekstrarstjóri, póstmað- ur, matreiðslumaður, félagsmaður í Verkalýðsfélaginu Þór, félags- maður í Sjómannafélaginu Boðan- um og bifvélayirki svo dæmi sé tekið. Það er verið að taka fólk héðan og þaðan; fólk sem er að vinna allt önnur störf. Það er verið að reyna að brjóta þetta verkfall niður með þessum hætti“ sagði Óskar og bætti við að þetta væri stóralvarlegt fyrir verkalýðshreyf- inguna. Með afskiptaleysi annarra verkalýðsfélaga af þessu framferði væri verið að eyðileggja verkfalls- réttinn. Óþægindi af verkfallinu Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, sagði að verkfallið hefði valdið fyrirtækjum í ferðaþjónustu og ferðamönnum óþægindum. Áhrif verkfallsins birtust skýrast hjá Kynnisferðum og Hagvögnum. Allmargir ferðamenn hefðu keypt ferðir til íslands þar sem ferð til Morgunblaðið/RAX Fjögur hópferðafyrirtæki hafa fengið samþykkt lögbann á verkfallsað- gerðir Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis. og frá Keflavíkurflugvelli væri inni í fargjaldinu. Fyrirtækin hefðu orðið að kaupa akstur fyrir þessa ferðamenn með leigubílum. Aðrir ferðamenn þyrftu að fara á eigin vegum eða með leigubílum milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Erna sagði að áhrif verkfallsins á hóp- ferðafyrirtæki væru misjöfn þar sem bílstjórar í mörgum þessara fyrirtækja væru ekki í Sleipni. Verkfallið hefði því margvísleg óþægindi í för með sér, en reynt væri að leysa úr þeim eftir mætti. Nokkuð breytilegt er hvað margir ferðast að jafnaði með Kynnisferðum á þessum árstíma en fyrirtækið er að jafnaði með um 40 ferðir á dag milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar, auk þess sem það sér um að flytja áhafnir flugvéla til og frá flugvellinum. Um 3.000-4.000 ferðast að jafnaði með Almenningsvögnum, sem sjá um almenningsvagnaþjónustu í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Bessastaðahreppi. Pétur Feng- er hjá Almenningsvögnum sagði að í gær hefði talsvert mikið borið á kvörtunum hjá þeim sem að jafn- aði notfærðu sér strætisvagna- þjónustuna. 123 þúsund í föst laun og 190 þúsund í heildarlaun Samkvæmt gildandi kjarasamn- ingi Sleipnis eru byrjunarlaun fé- lagsmanna 76 þúsund krónur á mánuði. Samkvæmt tölum Kjara- rannsóknarnefndar um laun bíl- stjóra vöru- og flutningabíla á fjórða ársfjórðungi ársins 1999 voru dagvinnulaun þeirra að með- altali 100.300 kr. á mánuði. Föst mánaðarlaun (þ.e. dagvinnulaun + fastar greiðslur) voru hins vegar 123 þúsund krónur. Þessi meðaltöl byggja á upplýsingum um laun 95 bílstjóra og þar af fengu 89 bíl- stjórar yfirvinnugreiðslur og voru þær 62.000 kr. að meðaltali á mán- uði. Gera má ráð fyrir að yfir- vinnugreiðslur bílstjóra séu heldur hærri yfir sumartímann og því er óhætt að fullyrða að heildarlaun bílstjóra séu ekki undir 190 þús- und kr. á mánuði. Hafa ber í huga að félagsmenn í Sleipni fengu ekki launahækkun um síðustu áramót. Óskar sagði að vinnutími bif- reiðastjóra væri mjög breytilegur. Sumir væru með 10 yfírvinnutíma á mánuði á meðan aðrir væru með allt að 120 yfirvinnutíma. Fomilundur BM-VALLÁ Söludeild í Fomalundi Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050 f Fornalundi færðu góðar hugmyndir fyrir garðinn þinn. Skoðaðu gagnvirkt kort af Fornalundi á www.bmvalla.is www.bmvalla.is Kristnihátíðin á Þingvöllum Bæklingur sendur á öll heimili NÆSTU daga munu landsmenn fá bækling um umferðarmál vegna Kristnihátíðar inn um lúguna hjá sér. 1 bæklingnum er að finna upp- lýsingar um umferð og kort af öll- um leiðum á Þingvelli, bfiastæðum og gönguleiðum, tjaldstæðum, að- komu fatlaðra auk upplýsinga um rútuferðir fyrir almenning. Júlíus Hafstein, framkvæmda- stjóri Kristnihátíðar, hvetur al- menning til að geyma bæklinginn í bílnum og segir að ef fólk fari að tilmælum Kristnihátíðarnefndar séu litlar líkur á umferðartöfum líkt og urðu á Lýðveldishátíðinni árið 1994. Júlíus segir að vegabætur og betra skipulag geri það að verkum að umferð á að ganga mun betur en fyrir sex árum. „Það sem breyt- ir mestu er að frá gatnamótum Þingvallavegar á Mosfellsheiði og Grafningsvegar er sérleið fyrir all- ar rútubifreiðir, allt starfsfólk, lög- reglu og öryggisverði og alla sér- staka gesti hátíðarinnar á sértilgerðum vegi, meðfram Þing- vallavegi að hakinu fyrir ofan Al- mannagjá, og því þarf ekki að stöðva umferð einkabíla til og frá höfuðborgarsvæðinu," segir Júlíus.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.