Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 70
70 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Hundalíf
Ferdinand
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík # Sími 569 1100 # Símbréf 569 1329
Afram
stelpur!
Frá Önnu Ólafsdóttur:
ÉG VIL BYRJA á að þakka þeim
Ragnheiði Hansson og Guðrúnu
Kristjánsdóttur kærlega fyrir það
framtak að flytja inn Elton John til
Islands. Ég skemmti mér mjög vel á
tónleikunum og geri ekki nokkrar at-
hugasemdir við það þótt 50 eða 70
manneskjum hafi verið hleypt frítt
inn. Það var ekki ákvörðun þeirra að
hleypa fólkinu inn ókeypis heldur El-
tons Johns svo það er ekki við þær að
sakast. Þetta voru nú einu sinni hans
tónleikar og hann hlýtur að ráða því
hverjum hann býður í sín sam-
kvæmi. Er ekki annars allt vaðandi í
boðsmiðum hjá þessu menningar-
borgargengi? Enginn minnist á það.
Ég borgaði minn miða með glöðu
geði og veit um mjög marga til við-
bótar sem gerðu það einnig. í reynd-
inni veit ég um fullt af fólki sem nag-
ar sig í handabökin yfir því að hafa
ekki drifið sig á tónleikana og hefði
það fólk borgað uppsett verð fyrir
miðana með ánægju. Það sem kom í
veg fyrir að þetta fólk drifi sig af stað
var í versta falli einhver óraunveru-
leikatilfinning; að svona góðir hlutir
gætu ekki verið að henda Islendinga.
Nú veit þetta fólk betur. Ég er því al-
veg handviss um það að þessi vel
heppnaða tilraun mun skila sér með
enn meiri aðsókn á Laugardalsvöll-
inn þegar næsta stórstjarna kemur
til íslands. Sjálf hef ég oft farið til út-
landa á tónleika og verð bara að taka
það fram að það er bæði miklu ódýr-
ara og miklu meiri sjarmi yfir því að
sjá stórstjörnurnar I nærmynd á Is-
landi. Maður sleppur að auki við að
kaupa sér fokdýra flugmiða og hótel
til þess að komast á tónleika með
súperstjörnunum erlendis.
Annars hef ég verið að fylgjast
með umfjöllun fjölmiðla bæði fyrir
og eftir Elton John tónleikana og
verð bara að segja það blákalt að
mér finnst vera af þessu fári öllu
saman einhver gömul og sveitt
„karlpungalykt". Getur það verið að
þessar framúrskarandi og glæsilegu
athafnakonur séu að ráðast inn í eitt-
hvert heilagt ósnertanlegt karlvígi
með því að taka upp á því og farast
það svona vel úr hendi að flytja inn
heimsþekkta erlenda tónlistarmenn?
Ég er bara svona að velta þessari
hugsun upp.
Ég hvet þær stöllur Ragnheiði og
Guðrúnu - og var ekki einhver þriðji
aðili með þeim - eindregið til þess að
láta þessa neikvæðu fjölmiðlaum-
fjöllun sem vind um eyni þjóta og
halda ótrauðar áfram að fást við það
verðuga verkefni að koma Islending-
unum út úr moldarkofunum.
Afram stelpur!
ANNA ÓLAFSDÓTTIR,
Nýlendugötu 23, Reykjavík.
Boð og bönn
Frá Árna Helgasyni:
Um þessar mundir er frelsi mikið til
umræðu og ekki hvað síst meðal
ungs fólks. Það
segist ekki vilja
boð og bönn. En
því miður er það
oft svo að frelsið
verður að helsi.
Það sýnir sagan
okkur. Fólk segist
vilja vera frjálst í
athöfnum sínum
en talar aldrei um
hve langt þetta
frelsi á að ná. Spurningin er nefni-
lega: Vill þessi lýður afnema hin tíu
boðorð Biblíunnar? Eða vill hann
banna hraðakstur á vegum landsins?
Vill hann afnema lög sem banna
þjófnað, yfirgang og ofbeldi?
Ég man eftir því þegar bannlögin,
sem áttu að forða fólki frá eitur-
nautnum og því böli sem af þeim leið-
ir, voru afnumin. Nú sjáum við af-
leiðingarnar af því að hleypa
áfenginu inn í landið aftur, hversu
þjóðlífið hefur gjörbreyst til hins
verra. Þarf ekki að nefna annað en
öll þau hæli sem nú erú troðfull af
vímuefnaneytendum, að ekki sé tal-
að um ölvaða ökumenn sem valsa um
vegi og eru ógnun við öryggi annarra
vegfarenda.
Er nema von að spurt sé; Hvemig
ætti að stjórna þjóð sem byggi við
takmarkalaust frelsi? Sífellt er látið
undan málpípum þein-a sem græða á
að selja áfengi. Nú hrópa húskarlar
þessara gróðapunga að brýna nauð-
syn beri til að selja áfengi í venjuleg-
um matvörubúðum. Og það virðist
meira að segja ein helsta hugsjón
svokallaðrar Samfylkingar að koma
þessu vímuefni sem næst börnum og
unglingum. Er slíkur hugsunarhátt-
ur líklegur til að stuðla að því vímu-
lausa Islandi sem margir ræða nú
um en yfirleitt án þess að geta þess
að áfengi er það efnið sem vinnur
þjóðinni margfalt meirá tjón en öll
ólöglegvímuefni samanlögð.
Ég sá í DV á dögunum að borgar-
stjóri hefði haldið samkomu til að
þakka þeim sem vaskast hefðu unnið
gegn vímuefnum. Að sjálfsögðu var
þar áfengi á boðstólum. Tvískinn-
ungshátturinn lætur ekki að sér
hæða fremur en undirlægjuháttur-
inn við gróðapungana.
Ekki er langt síðan Áfengisvam-
aráð, sem hafði verið til mikils
gagns, var lagt niður og Vímuvarn-
arráð sett í þess stað. Ekki hefur
heyrt bofs frá því ráði nema hvað
framkvæmdastjóri þess lýsti því yfir
í byrjun að hún væri ekki bindindis-
kona. Er nema von að púkarnir á
fjósbitanum, sem eru dyggastir and-
stæðingar boða og banna, skemmti
sér vel?
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
Árni Helgason
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Ef þú starir á bakdymar £rá þ ví
snemma morguns,..
og þú starir daglangt þar til
kominn er kvöldmatur..
þá er það langur dagur.