Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Töltkeppnin á Kvíarhóli
Þörður Þorgeirsson og Filma frá Árbæ náðu lágmarkseinkunn inn á landsmót og gott betur en það. Þau sigr-
uðu í atvinnumannaflokki með glæsibrag, yfír 8,50 í einkunn, og ljóst að þau verða erfíð viðureignar í sumar.
Yfir tuttugu munstr-
aðir á landsmót
ÞAÐ voru hvorki fleiri né færri en
21 keppandi sem náði lágmarks-
einkunn 6,67 til þátttöku í tölt-
keppni landsmótsins. Og gott betur
en það því sigurvegarinn Þórður
Þorgeirsson á Filmu frá Árbæ náði
8,37 í forkeppni og 8,54 í úrslitum.
Það má því segja að knapar,
hestar og dómarar hafi verið í
feikna stuði á annan í hvítasunnu á
Kvíarhóli í Ölfusi. Keppt var í
tveimur flokkum atvinnu og áhuga-
manna. í öðru sæti í atvinnu-
mannaflokki varð Ólafur Ásgeirs-
son á Glúmi frá Reykjavík með
7,77 og 8,14. Adolf Snæbjörnsson
varð fjórði á Glóa frá Hóli með
7,17/7,60. Marjolyn Tiepen varð
fjórða á Áifheiði Björk frá Lækjar-
botnum með 7,20/7,44 og Sigurður
Óli Kristinsson varð fimmti á Ási
frá Háholti með 7,20/7,19.
í áhugamannaflokki sigraði
Birgitta D. Kristinsdóttir á Birtu
frá Hvolsvelli með 6,67/7,27. Annar
varð Viggó Sigurgeirsson á Rosa.is
frá Drangshlíð með 6,80/6,89 og
Hildur Sigurðardóttir þriðja á
Sörla frá Kálfhóli með 6,47/6,88. í
fjórða sæti varð Eyjólfur Þor-
steinsson á Gátu frá Þingnesi með
6,73/6,80 og í fimmta sæti varð hin
kornunga Freyja Amble Gísladótt-
ir á Muggi frá Stangarholti með
6,63/6,79. Freyja er nýgengin upp í
unglingaflokk og ljóst að þar fer
efnilegur knapi.
Það má því segja að þátttakend-
um í töltinu á landsmótinu hafi
fjölgað um 21 á þessu litla móti
sem haldið var við skemmtilegar
aðstæður á Kvíarhóli. Virðist
stefna í að fjöldi þátttakenda á
mótinu sé kominn fram úr öllum
áætlunum.
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 55 _
london
stansted
nýja lágfargjaldaflugfélagiö í eigu british airways
250 kr. aukaafslátturef
bókað er á vwvw.go-fly.com
flugfar á lægsta verði selst hratt, samt sem áður er enn hægt að fá flugfarfrá aðeins 14.000 kr. báðar leiðir
london stansted ■ alicante • barcelóna • bilbao • bologna • kaupmannahöfn • edinborg • faro • ibiza • lissabon • madrid • malaga • mílanó • napolí • palma • prag ■ róm • feneyjar
miðast við eftirspurn i samkvæmt skilmálum