Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 30

Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Arfleifð Lj ónsins s A arabísku þýðir nafn Hafez al-Assads, fyrrverandi Sýrlandsforseta, ljón. Hann var sagður ástríkur en strangur faðir og hans er sárt saknað, þótt einhverjir kunni að telja arfleifð hans vafasama á köflum. Það er heldur ekki víst að fullkominn friður verði um arftaka hans. HUNDRUÐ þúsunda svartklæddra Sýrlendinga með grátbólgin augu reyndu í öi'væntingu að komast fram hjá vörðum laganna til þess að sjá í síðasta sinn kistu „ljónsins,“ Hafez al-Assad forseta, sem borinn var til grafar í gær. A arabísku þýðir nafn forsetans fyrrverandi „ljón“. Menn hrópuðu „Allahu Akbar,“ Guð er mestur, og konur æptu sem skelfingu lostnai-. „Guð varðveiti þig. Þú munt ætíð verða í hjörtum okkar og augum Bashars!" hrópaði eldri maður sem reyndi að halda jafnvægi í mannmergðinni miðri. Bashar, sonur og verðandi arftaki Assads, var með dökk sólgleraugu þar sem hann gekk þögull á eftir kistu föður síns er borin var af her- mönnum. Bashar er 34 ára og yngri bræður hans, Maher og Majd, gengu við hlið hans. Kistan var sveipuð sýr- lenska fánanum, rauðum, hvítum og svörtum með tveim grænum stjöm- um. Dýrkeyptur stöðugleiki Assad sat að völdum í Sýrlandi í 30 ár og verður helst minnst fyrir að hafa veitt landinu það sem það þurfti svo nauðsynlega á að halda: Stöðug- leika. En sá stöðugleiki var dýru verði keyptur. Þegar Assad tók stjómartaumana í sínar hendur í valdaráni 1970 hafði herinn rænt völdum í landinu að minnsta kosti 20 sinnum á þeim 24 áram er liðin vora frá því landið hlaut sjálfstæði frá Frökkum, og var Sýrland af þessum sökum aðhlátursefni bæði í araba- heiminum og víðar. Assad lést á laug- ardaginn, 69 ára. Hann var borinn til grafar í æskuþorpi sínu, Qardaha, norður af Damaskus. Forsetinn fyrrverandi var herflug- maður, þjálfaður í Sovétríkjunum, og klókur stjómmálamaður. Hann hélt Sýrlandi á floti í 30 ár með vilja- styrknum einum saman og stundum ofbeldisaðgerðum. Assad bannaði allt andóf, og á þeim forsendum vora þúsundh- Sýrlendinga fangelsaðir eða drepnir í valdatíð hans. Gallamir við stjómartíð Assads era augljósir. Mannréttindabrot og slakur efnahagur. En stolt þjóðarinn- ar er alveg jafn augljóst, og hún lítur á sig sem síðasta fánabera arabískra gilda. Lítið hefur farið fyrir lýðræði í landinu, þar sem búa um 17 milljónir manna, og þeir eru líka staddir í eins konar efnahagslegri fortíðarvídd sem sést hvað best á bílunum sem eru á götum Damaskusborgar, flestir af árgerð frá því upp úr 1970. Það hefur aukið á efnahagsvandann að í marga áratugi hefur mestum peningum ver- ið eytt í vamarmál, og í Sýrlandi skortir mikið grandvallarþjónustu. Meðalmánaðarlaun háskólamennt- aðs Sýrlendings núna eru sem svarar um 7.500 krónum. Aðeins um fjögur þúsund Sýrlendingar eiga farsíma. Samkvæmt tölum sem bandaríska viðskiptaráðuneytið birti í fyrra dróst þjóðarframleiðsla á mann sam- an frá 1995 til 1997 úr sem svarar tæpum 79 þúsund krónum í sem svarar tæpum 63 þúsimd krónum. Enginn hlutabréfamarkaður er í landinu og spilling er útbreidd og grefur undan efnahagslífinu. Er- lendar fjárfestingar era minni en vænst hefur verið og lög, sem sett vora 1991 til að auðvelda útlending- um að fjárfesta í landinu, hafa ekki skilað neinum árangri. Hagvöxtur var að meðaltali fimm prósent 1991- 96, en samdráttur var 1997 og 98. Baráttan við ísrael Efnahagslífið, líkt og allt annað í Sýrlandi Assads, hefur setið á hakan- um vegna baráttunnar við Israel. Sýrlendingar hófu friðarviðræður við ísraela í kjölfar friðarráðstefnunnar sem haldin var í Madríd 1991, en síð- an hefur lítið þokast í samkomulags- átt. I öllum friðarumleitunum hvikaði Assad hvergi frá þeirri kröfu að því landsvæði er heitir Gólanhæðir, sem ísraelar hertóku 1967, yrði skilað öllu. Sú ákvörðun forsetans að fara ekki sjálfur fyrir samninganefnd landsins, heldur fela það verkefni utanríkis- ráðherranum, Farouq al-Sharaa, ávann honum vinsældir heima fyrir, en erlendis var litið á þetta sem tákn um fyrirlitningu forsetans á óvinum sínum. Svona harðlínustefna, sem út- lendingum hefur ekki þótt sérlega viðkunnanleg, hefur verið mörgum venjulegum Sýrlendingum upp- spretta stolts. Þrátt fyrir að þeir von- uðust til þess að njóta góðs af friðar- samningum við Israel litu þeir svo á að Sýrland - og Assad - væri staðfast og óbugandi. Þetta stolt var meginþráðurinn í upplýsingamaskínunni umhverfis Assad. í ritstjómargreinum og opin- AP Sýrlenskur hermaður stendur vörð fyrir framan stðra mynd af hinum látna forseta, Hafez al-Assad, í bænum Qardaha í gær. beram yfirlýsingum úði og grúði af setningum á borð við: „Sýrland er hjarta arabaheimsins." Sýrlendingar hafa háð þrjár styrjaldir gegn ísrael- um, og hafa verið svo uppteknir af baráttunni og draumum um mikil- fengleika að landið er orðið að út- kjálka sem heimurinn hefur að mestu gleymt. Astríkur faðir Assad hélt einkalífí sínu utan sjóndeildarhrings almennings. Hann kvæntist æskuástinni sinni, Aniseh Makluf, 1958. Þrátt fyrir að mikið væri að gera hjá forsetanum var sagt að hann hefði ætíð haft tíma til að sinna fjölskyldunni. Forsetahjónin eignuðust fjóra syni og eina dóttur. Assad var sagður ástríkur en strangur faðir sem hafði sérstakt uppáhald á syninum Basel, sem var verkfræðingur og fallhlífahermaður. Assad hafði hug á því að Basel tæki við forsetaembættinu, en sonurinn lést í bflslysi fyrir sex áram. Sagt er að Assad hafi aldrei náð sér fyllilega eftir andlát Basels. Hann lét byggja syninum mikið marmaragrafhýsi í Quardaha, og var forsetinn grafinn skammt frá því. Assad tilheyrði alavítatrúarhópn- um, sem er í minnihluta í Sýrlandi. Alavítar hafa verið taldir sértrúar- hópur shíta-múslíma, en trú þeirra er í litlu lík kennisetningum Islams. Al- avítatrú, sem í era þræðir úr kristni og stjömuspeki, er talin eiga rætur að rekja til níundu aldar, og fjöl- skylda Assads hefur í margar kyn- slóðir verið áhrifamikil meðal alavíta. Sýrlendingar era að mestum hluta súnní-múslímar, og alavítar hafa ætíð fylgt íslömskum sið, að minnsta kosti út á við. Snemma á valdatíð Assads sprattu upp deilur um hvort hann, sem alavíti, gæti farið með völd í ís- lömsku rfld. Assad leitaði á náðir áhrifamikils shítaklerks í Líbanon, ímams Musa al-Sadr, sem kvað upp trúarlegan úrskurð um að alavítar til- heyrðu samfélagi shíta. Trúarathafnir alavíta era lokaðar fyrir utanaðkomandi, og jafnvel þeir sem fæðast inn í þetta trúfélag era lengi að öðlast dýpri þekkingu á því. Alavítar trúa því, að konur hafi ekki sál og stjömuspeki hefur sérstaka merkingu fyrir þá. Til dæmis er því trúað, að vetrarbrautin sé gerð úr guðlegum sálum trúaðra. Alavítai’ era sagðir allt að tvær milljónir tals- ins og búa flestir í Sýrlandi, en einnig í Líbanon og Tyrklandi. Deilur um arftaka Talið er víst að sonur Assads, Bashar Assad, muni taka við völdum af föður sínum, enda hafði forsetinn kveðið svo á um sjálfur. En bróðir forsetans, Rifaat Assad, gaf í skyn á mánudaginn að hann myndi reyna að steypa næstu rfldsstjórn og taka völdin í landinu. í yfirlýsingu frá Rifaat sagði að „ný leiðréttingarhreyfing" yrði stofn- uð til þess að marka nýja stefnu á öll- um stigum, pólitísku, félagslegu og efnahagslegu. Þetta hefur áður verið notað til að skírskota til valdatöku Assads sjálfs í nóvember 1970, er hann vai’ vamarmálaráðherra og rændi völdum í því skyni að „leiðrétta stefnu framámanna Baath-sósíalista- flokksins“ er fór með völdin í landinu, en þeir hefðu horfið frá réttri stefnu. Gylltar stangarkúlur, fánalínur, línufestingar og þjóðfánar flestra ríkja. íslenski fáninn er saumaður á íslandi. ELLINGSEN GRANDAGARÐI 2, REYKJAVIK, SIMI 580 8500 - Sænsku Formenta fánastansimar meö forsteyptum sökkli á sérstöku árþúsundatilboöi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.