Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 73
I DAG
Arnað heilla
Q A ÁRA. í dag, miðviku-
UV/ daginn 14. júní, er
áttræð Fjóla Jósefsdóttir,
Reynimel 78, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum á
heimili sínu eftir kl. 15 í dag.
BRIDS
lim.sjún Guðmundur
Páll Arnarsun
„Þú tapaðir spilinu í þriðja
slag,“ sagði austur, en það
var gremja i röddinni, því
þrátt fyrir allt hafði sagn-
hafi fengið sina tíu slagi i
fjórum spöðum:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ 75
¥ 973
♦ AG64
+ 7542
Vestur Austur
*6 * 10983
VÁKDG104 ¥86
♦ 85 »D109732
+DG108 *3
Suður
+ÁKDG42
¥52
♦ K
+ÁK96
Vestur Norður Austur Suður
4 hjörtu Pass Pass 4 spaðar
4 hjörtu Pass Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur tók fyrstu tvo
slagina á ÁK í hjarta, en
suður trompaði þriðja
hjartað og lagði niður ÁK í
trompi. Staldraði svo við.
Hann sá að spilið stóð auð-
veldlega með laufinu 3-2,
svo hættan var fyrst og
fremst sú að laufið lægi
illa. Austur hafði hent tígli
í þriðja hjartað, sem benti
til að hann ætti þar a.m.k.
fimmlit. Að því athuguðu
var ekki ósennilegt að
vestur væri með fjórlit í
laufi.
Suður ákvað að fresta
því að taka síðasta tromp-
ið. Hann lagði tígulkóng-
inn inn á bók og spilaði svo
ÁK í laufi. Austur velti
vöngum nokkra hríð yfir
síðara laufinu, en henti síð-
an tígli. En það var
skammgóður vermir, því
nú spilaði sagnhafi smáum
spaða - fjarkanum - og
austur neyddist til að taka
slaginn á tromptíu og spila
tígli upp í ÁG blinds.
Sagnhafi gaf þannig óþarfa
slag á tromp, en fékk tvo
tígulslagi í skiptum og gaf
því engan á lauf.
En vikjum aftur að slag
númer þrjú. Suður hafði
trompað hjartað með tvisti
en ekki fjarka. Þar með
gaf hann austri tækifæri á
voldugri afblokkeringu -
austur gat losað sig við
1098 í trompi og átt þrist-
inn undir fjarka suðurs í
lokastöðunni. Austur sá
hins vegar ekki svona
langt frekar en sagnhafi,
en gremja hans er skiljan-
leg. Slík tækifæri gefast
ekki á hverjum degi.
I7A ÁRA afmæli. í dag,
I U miðvikudaginn 14.
júní, er sjötug Kristín
Sturludóttir, Sléttuvegi 13,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Guðbjörn Björns-
son. Þau hjón dvelja nú á
Benidorm.
7 A ÁRA afmæli. í dag,
tj V/ miðvikudaginn 14.
júní, verður fimmtugur
Gunnar Ólafsson, húsa-
smíðameistari, Víðigrund
20, Akranesi. Eiginkona
hans er Rannveig Sturlaugs-
dóttir. Þau taka á móti ætt-
ingjum og vinum föstudaginn
16. júm' kl. 20.30 í sal Frímúr-
ara, Stillholti 14, Akranesi.
COSPER
Manstu ekki að þú lofaðir að hitta mig undir
járnbrautarstöðvarklukkunni klukkan 10 í
kvöld, elskan.
SKAK
Hmsjnn llelgi Áss
Grctarsson
SIGURVEGARI efsta
flokks minningarmóts Capa-
blanca í ár, rússneski stór-
meistarinn Alex-
ander Volzhin
(2548), hafði hvítt
í meðfylgjandi
stöðu gegn tékkn-
eska stórmeistar-
anum Tomas Oral
(2.540). 22.
Hxg7+! Kxg7 23.
Hgl+ Kh8 Svart-
ur yrði strax mát
eftir 23...KÍ7 24.
Dh5. 24. Rf4 Hg8
Ekkert gat forðað
svörtum frá glöt-
un og til að mynda
gekk 24...dxe4
ekki upp sökum 25. Rg6+
Kg7 [25...Kg8 26. Rxe7+ og
svarta staðan hrynur til
grunna.] 26. Dh6+ Kf7 27.
Dxh7+ Ke8 28. Dxe7 og
svartur er mát. 25. Rg6+ og
svartur gafst upp enda fátt
til varnar eftir 25...Hxg6 26.
fxg6.
gjg
íi
WM\
&
i
A JJA
Hvítur á leik.
LJOÐABROT
Asareiðin
Jóreyk sé ég víða vega
velta fram um himinskaut -
norðurljósa skærast skraut -
Óðinn ríður ákaflega
endilanga vetrarbraut.
Sópar himinn síðum feldi
Sigfaðir með reiddan geir,
hrafnar elta’ og úlfar tveir,
vigabrandar vígja eldi
veginn þann, sem fara þeir.
Sleipnir tungla treður krapa,
teygir hann sig af meginþrótt,
fætur ber hann átta ótt,
stjörnur undan hófum hrapa
hart og títt um kalda nótt.
Grímui' Thomsen.
STJÖRIVUSPÁ
eflir Franees llrake
*
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert metnaðargjarn og legg-
ur hart að þér til þess að
leysa þau verkefni, sem
þér eru falin.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Ekki er mark að draumum
segir máltækið. En engu að
síður getur verið gagnlegt að
velta fyrir sér efni þeirra og
lesa í það eftir efnum og
ástæðum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu að halda ró þinni,
þótt samstarfsmenn þínir geri
þér daginn erfiðan. Þú munt
standa uppi með pálmann í
höndunum, þegar allt er um
garð gengið.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júm') M
Hafðu augun hjá þér í dag og
bregztu skjótt við, ef einhver
þarfnast aðstoðar þinnar.
Láttu það þó ekki ganga út yf-
ir allt annað, sem þú þarft að
gera.
Krabbi
(21.júní-22.júlí)
Þú hefur agað sjálfan þig svo
að undanförnu, að það kemur
að því að þú þarft að gefa
sjálfum þér lausan tauminn
bara til þess að komast af.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það skilar engu að gára bara
yfirborðið. Til þess að ná ára-
ngri þarftu að kafa eftir þeim
sannindum, sem hjálpa þér að
skilja eðli hlutanna og leysa
þá-_____________________
Meyja j*
(23. ágúst - 22. sept.) <SSL
Forvitni er til fyrirmyndar,
þegai- hún rekur mann áfram
í leit að staðreyndum um
menn og málefni. En hún á sín
takmörk og þau þarft þú að
þekkja.
Vog m
(23.sept.-22.okt.)
Nú kemstu ekki lengur hjá
því að taka ijármálin til end-
urskoðunar. Það er eitt og
annað sem mætti fara betur;
útgjöld sem eru oft út í bláinn,
Sporðdreki
(23. okt.-21. nóv.)
Það er erfitt að velja, þegar
vegir liggja til allra átta. En
þér er óhætt að treysta eðl-
isávisun þinni í bland við hæfi-
legan skammt af raunsæi.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) JÍUr
Það er eitthvað sem dregur
þig niður og þú átt erfitt með
að festa hendur á ástæðunni.
Leitaðu hjálpar tafarlaust ef
þú telur það nauðsynlegt.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) éSt?
Þú þarft að taka afdrifaríka
ákvörðun í dag. Gefðu þér
góðan tíma til þess að kanna
allar hliðar málsins áður en
þú lætur til skarar skríða.
Vatnsberi , ,
(20. jan. -18. febr.)
Það er nauðsynlegt að setjast
niður af og til og fara í gegn
um eigin mál; vega þau og
meta og breyta því sem þarf.
Þessum tíma er vel varið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það getur reynzt erfitt að ná
landi, þegar dimmt er og
slæmt í sjó. En hjálpin er allt-
af nálæg; það er bara að
kunna að bera sig eftir henni.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki bygeðar á traustum
grunni vísindal
Barnamyndatökur
Tilboðsverð í júní og júlí
Fyrstir koma
Fyrstir fá
Ljósmyndastofan Mynd sími 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020
Hársnyrtistofan
Hár Class Skeifunni 7
VILLI ÞÓR
HÁRSNYRTIR
Tímapantanir í síma 553 8222
BORÐSKREYTINGAR
j M A1 H YS <3 Vatnsvörn
Stöðvið lekann
með pensli
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SlMl 568 7228 • FAX 568 7295
-■,-—.,
SUMAR
Hörkjólar
5,990-
Hörjakkar
5.990-
Kvartbuxur
3.990-
Margar stærðir og gerðir
Bolir 990-
Kjólar 20%
FLASH
r
Laugavegi 54,
símí 552 5201
Jakkar4«99í
Litir Rauðir, Hvitir .Dökkrauðir
Stærðir s, m, l.