Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 54
jí.4 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 HESTAR MORGUNBLAÐIÐ Vali á kynbótahrossum á landsmót senn að ljúka Grunnur lagður að glæstri sýningu Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Huginn frá Haga, Oskar frá Liltadal, Dynur frá Hvammi, Randver frá Nýjabæ og Snerrir frá Bæ eiga allir góða möguleika á að láta að sér kveða á landsmótinu þótt sigurlíkurnar séu mismunandi. Kynbótasýningar undanfarnar vikur gefa meira en góð fyrirheit um eitthvað stórkost- legt á landsmótinu sem haldið verður eftir tæpan mánuð. Víða um land og þá sérstak- lega á Suðurlandi hefur komið fram mikill fjöldi góðra hrossa og eru línur nú nokkuð farnar að skýrast meðan síðustu sýningarn- ar mar ao SKyrasi meoan siousru synmgar standa yfír. Valdimar Kristinsson rýnc þær niðurstöður sem nú þegar eru ljósar tók saman hvaða hross standa best að víj fyrir lokaátökin. Hinn litfagri Randver frá Nýjabæ mun prýða landsmótið en hann hefur fleira til að bera en fagran lit - er með hæfileikaeinkunn upp á 8,56. Knapi er Vignir Jónasson. Mörg góð hross hafa komið fram undan Gusti frá Hóli I og þar á meðal er stóðhesturinn Kjarni frá Argerði sem hefur góða möguleika á að blanda sér í toppbaráttuna. Knapi er Sigurður V. Matthíasson. Frammistaða fjögurra vetra hrossanna er hvað óræðust og erfitt að átta sig á fyrirfram hvert þeirra muni blómstra. Myndin sem af fjögurra vetra hryssum er tekin á sýningunni í Víðidal í vor. 'ÆTLA má að þær hjáróma raddir sem heyrst hafa um að ekki stefni í rétta átt í hrossarækt fari nú senn að hljóðna þegar hvert snillingshrossið á fætur öðru er leitt undir dóm og menn geta gert sér góðar vonir um bestu kynbótasýningu sem haldin hefur verið á íslenskum hrossum. Auðvitað eru það topparnir sem alltaf vekja mesta athygli þegar þeir sigla í háar tölur en það sem er athyglisvert er hversu mörg hross eru til í landinu sem eru í meðallagi góð og þaðan af betri. Það sem einnig gleður er hversu mörg hross fá nú góðar ein- kunnir íyrir sköpulag ásamt háum hæfileikatölum. En hvaða hross eru það sem koma •til með að berjast um efstu sætin á landsmóti? Það liggur að sjálfsögðu ekki fyrir fyiT en að afloknum sýning- um í Borgarnesi og Stekkhólma á Héraði. En líklegt er þó talið að þau verði ekki mörg sem eiga eftir að bætast á topp tíu listann. I Borgar- nesi samanstendur hópurinn af áður ósýndum hrossum á árinu úr Borgar- fmði, Snæfellsnesi og Dölum og svo aftur fallkandídötum írá annað hvort Víðidalssýningunni eða sýningunni á Gaddstaðaflötum sem á nú að reyna með til þrautar. Einnig gætu verið þar hross sem ekki voru heil heilsu eða ekki tilbúin þegar áðumefndar sýningar stóðu yfir. Á Héraði og í Homafirði kunna «innig að leynast úrvalshross eins og reynslan hefur nú sýnt í gegnum tíð- ina enda láta menn þar eystra engan bilbug á sér finna. Huginn trónir á toppnum Af stóðhestum sem efstir standa í flokki sex vetra hesta trónir þar á toppnum Huginn frá Haga með 8,57 og sína 9,05 fyrir hæfileika. Þama er á ferðinni ungur hestur sem stóð sig með mikilli prýði í mjög erfiðu hlut- verki í A-flokki hjá Fáki og kynbóta- sýningu í Víðidal. Númi frá Þórodds- stöðum fylgir honum fast á eftir með W,54 en ljóst er að hann fer ekki á landsmót og mun því ekki hrófla við Hugin að þessu sinni. Keilir frá Mið- sitju er í þriðja sæti með 8,45 þar sem gott jafnvægi er á milli sköpulags og hæfileika. Næstur með 8,44 kemur svo Oskar frá Litladal sem var ekki eins sannfærandi þegar hann kom Jfam og reiknað hafði verið með en gæti hugsanlega átt eitthvað inni í hæfileikum en hann var hins vegar lækkaður fyrir sköpulag í vor og má ætla að eigandinn Sigurbjörn Bárðar- son muni láta endurmeta sköpulagið á landsmótinu. Hinn íðilfagri Seifur frá Efra-Apavatni er í fjórða sæti með 8,41 og 8,70 fyrir sköpulag eins og frægt varð á dögunum. Má reikna með að margur vilji skoða þennan hest í nálægð og fá að sjá með eigin augum hvernig fallegasti hestur landsins lítur út í smáatriðum. Kvist- ur frá Hvolsvelli er í sjötta sæti með 8,38 og Dynur frá Hvammi sjöundi ásamt Markúsi frá Langholtsparti með 8,36. Þá er röðin komin að ný- stiminu frá Skagaströnd honum Smára sem er með 8,34 og Spuni frá Miðsitju er með 8,32, Ljósvaki frá Ak- ureyri 0,01 einum lægri og sami mun- ur er svo í Kveldúlf frá Kjarnholtum. Jafnir með 8,28 eru svo Penni frá Kirkjubæ og Randver frá Nýjabæ. Keppnin verður að líkindum jafn- ari meðal fimm vetra stóðhesta en þar er með hæstu einkunn Askur frá Kanastöðum með 8,35 en Kjami frá Árgerði fylgir fast á hæla hans með 8,33 og þar fyrir neðan með 8,31 er hinn hárprúði Þyrnir frá Þórodds- stöðum með 8,31 þar sem næsthæsta sköpulagseinkunn ársins fleytir hon- um í þriðja sætið. Þá er það topphest- urinn úr fjögurra vetra flokki frá síð- asta ári Garpur frá Auðsholtshjáleigu sem kemur næstur með 8,26 og Gnýr frá Stokkseyri sem stóð efstur á Gaddstaðaflötum. Grímnir frá Odds- stöðum er fimmti með 8,17 og Hrím- faxi frá Hvanneyri sjötti með 8,11. Síðan koma Frakkur frá Mýnesi með 8,10, hinn föðurlausi Djákni frá Vot- múla með 8,09 og sömuleiðis Dropi frá Stóra-Dal, Hróður frá Refsstöð- um er með 8,08 og Spegill frá Sauðár- króki með 8,07. Hörkunagli frá Þúfu Af fjögurra vetra hestum er það ný stjarna frá Þúfu sem Nagli heitir en sá er með 8,13. Ýmir frá Holtsmúla kemur næstur með 8,09 og Þráinn frá Sigtúni hækkaði sig verulega frá stóðhestasýningunni í maí og er nú kominn með 8,08. Töfri frá Kjartans- stöðum er fjórði með 8,06 og Forseti frá Vorsabæ er með 8,05, Sjóli frá Dalbæ er með 8,03. Blær frá Búðar- hóli er í sjöunda sæti með 8,01. Hólahryssur atkvæðamiklar Ljóst er nú að Hólahryssurnar eiga eftir að setja svip sinn á kynbótasýn- ingu landsmótsins eins og oft áður. Af sjö vetra hryssum og eldri eru tvær þeirra á toppnum þær Þilja og Þula. Sú fyrmefnda með 8,43 og sú síðar- nefnda með 8,42. Liltu neðar er Hyll- ing frá Kvistum með 8,38 og ísbjörg frá Ólafsvík er fjórða með 8,34. Send- ing frá Enni er með 8,31 í fimmta sæti, Játning frá Steindórsstöðum þar næst með 8,26. Lilja frá Litla- Kambi er með 8,25 ásamt Snældu frá Bjarnanesi. Þá koma þrjár hryssur með 8,21 þær Byssa frá Hala, Mána- dís frá Torfunesi og Nótt frá Gríms- stöðum. Ef fer sem horfir ætti Gleði frá Prestbakka sem er langefst fimm vetra hryssna að verða ein af stóru stjömum mótsins með 8,70 í aðalein- kunn og 8,96 fyrir hæfileika sem hreint ótrúleg einkunn. Næst henni kemur langt fyrir neðan í skalanum Hlín frá Feti með 8,36 og Trú frá Auðsholtshjáleigu með 8,31. Ösp frá Háholti er fjórða með 8,29 og Gígja frá Auðsholthjáleigu er jöfn Hrafn- tinnu frá Reykjavík með 8,24 og síðan koma þrjár með 8,19 þær Frá frá Há- koti, Áría frá Steinnesi og Rausn frá Kirkjubæ og Vera frá Kjartansstöð- um er einni kommu lægii. Af fjögurra vetra hryssum hefur Spyrna frá Holtsmúla gott forskot með 8,34 sem er undraverður árang- ur hjá svo ungu hrossi. Næst henni er Þerna frá Arnarhóli með 8,23 og þriðja er ein Hólahryssan Þeysa með 8,06. Fantasía frá Feti er með 8,05 og þær Jódís frá Tungu og glenna frá Strandarhöfða era jafnar með 8,0 en Hvelfing frá Kii’kjubæ er með 7,96 og Eydís frá Stokkseyii er með 7,94. Þrír með val Hafa ber í huga að ekki er víst að allir þeir stóðhestar sem taldir era til sögunnar í elsta flokknum mæti í kyn- bótasýningu. Til dæmis hefur eigandi Hugins frá Haga unnið sér rétt til að taka þátt í gæðingakeppni landsmóts- ins og sömuleiðis hafa bæði Markús frá Langholtsparti og Ljósvaki frá Akureyri gert það. Rökrétt virðist að fara með Hugin í kynbótasýningu þar sem hann er vænlegur sigurkandídat en Markús og Ljósvaka ættu að eiga meiri möguleika í gæðingakeppni og Markús jafnvel sigurkandídat í B- flokki. Þótt þessar tölur sem hér era nefndar gefi vissar upplýsingai' er ekki á vísan að róa með leikslokin. Erfitt er að henda reiður á yngstu hrossunum. Sum þeirra eru komin á þann topp sem þau geta náð en önnur eiga ef til vill eftir að springa út. Það er vel þekkt að fjögurra vetra stjörn- ur hafa blómstrað á landsmóti og má þar nefna Náttfara frá Ytra-Dals- gerði og Þrá frá Hólum. Tíminn sem eftir er fram að móti er mikilvægur, menn geta hæglega farið fi-am úr sjálfum sér og hrossinu við þjálfun en telja verður frekar ólíklegt að slíkt muni gerast því kunnáttan í uppbygg- ingu hrossa fyrir stórátök er orðin mjögalmenn. Gustur í góðum málum Þegar forskoðun eins og það var kallað hér áður þegar hross vora valin á landsmót lýkur verður tölva Bændasamtakanna mötuð á niður- stöðum dóma og reiknað verður út nýtt kynbótamat. Ræður það hvaða hross öðlast rétt til afkvæmasýningar á mótinu. Ljóst er að afkvæmi nokk- urra stóðhesta hafa komið vel út úr dómum í vor og má þar fyrstan nefna Gust frá Hóli I. Áður en dómar hófust virtist keppnin helst standa milli hans og Andvara frá Ey en ætla má að Gustur hafi bætt stöðu sína veralega. Svai-tm- frá Unalæk hefur bætt stöðu sína nokkuð og virðist á góðri leið með að hrista af sér lággengni stimpilinn. Má hiklaust ætla að það hafi verið bráðræði að sýna hann með afkvæmum á síðasta landsmóti. Staða hans í dag virðist önnur og betri, sér- staklega hvað varðar fótaburð. En spennandi verður að sjá hver staða einstakra hesta verður eftir nýja út- reikninga og hverjir komast á lands- mót. Orri á lygnum sjó Nokkur fjöldi afkvæma hefur kom- ið fram undan Orra frá Þúfu sem sigl- ir lygnan sjó að Sleipnisbikamum. Hafa þau staðið sig að vonum vel og ætti staða hans í kynbótamatinu að standa óhögguð eftir nýja útreikn- inga, jafnvel að hann bæti við. En ekki era öll kurl til grafar kom- in og verður spennandi að sjá hvað sýningarnar austan- og vestanlands færa okkur til viðbótar. En eitt er víst að það stefnir í að fleiri hross komi fram á kynbótasýningu landsmóts en áður hefur verið. Það er nú býsna gaman þegai- saman fara mikið magn og gæði og það virðist vera staðan í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.