Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hlutabréf Sjóvár-
Almennra skráð
á YÞÍ í dag-
ERLEND samkeppni getur orðið
Sjóvá-Almennum skeinuhætt en
150 vátryggingafélög innan Evr-
ópusambandsins hafa þegar skráð
sig hjá Fjármálaeftirlitinu og geta
því starfað hér án frekari skilyrða,
að því er fram kom í máli Einars
Sveinssonar, annars framkvæmda-
stjóra Sjóvár-Almennra á kynning-
arfundi fyrir aðila á fjármálamark-
aði í gær.
Bréf Sjóvár-Almennra verða
skráð á Aðallista Verðbréfaþings
íslands í dag og stefnir í að félagið
verði hið fjórða stærsta skráð á
VÞÍ. Skráningin verður stærsta
einstaka nýskráning hingað til, að
því er fram kom í máli Benedikts
Sveinssonar, stjórnarformanns
Sjóvár-Almennra.
Tilgangur skráningar hlutabréfa
Sjóvár-Almennra á VÞÍ er að auð-
velda viðskipti með bréfin, ýta
undir öruggari verðmyndun, fjölga
hluthöfum og gera upplýsingar að-
gengilegri að sögn Ivars Guð-
mundssonar, forstöðumanns um-
breytingar og verðbréfaútgáfu
FBA, sem hefur umsjón með
skráningunni.
Hluti af eigin bréfum Sjóvár-
Almennra verður seldur á markaði
í kjölfar skráningar og segir ívar
tilganginn með því m.a. hinn sama
og tilgang skráningarinnar, þ.e. að
styrkja verðmyndun, fjölga hlut;
höfum og auka flot bréfanna. í
máli Einars Sveinssonar kom fram
að ekki hefur verið ákveðið hve
stór hluti eignarhlutar félagsins í
eigin bréfum verður seldur. Eign-
arhlutur Sjóvár-Almennra nemur
um 56,9 milljónum eða hátt í 10%
af heildarhlutafé sem nemur 585
milljónum króna. Markaðsvirði fé-
lagsins samkvæmt gengi á Opna
tilboðsmarkaðnum er ríflega 24
milljarðar króna en viðskipti með
bréf Sjóvár-Almennra hafa átt sér
stað á OTM frá 10. september árið
1992.
Sóknarfæri erlendis nýtt
Einar Sveinsson gerði grein fyr-
ir starfsemi Sjóvár-AImennra, til-
gangi félagsins, stefnumótun innan
þess og framtíðarsýn og sagði m.a.
að félagið starfi á Islandi en muni
nýta sóknarfæri erlendis ef tæki-
færi gefast, bæði í vátrygginga- og
fjárfestingamálum. Jafnframt kom
fram að markmið félagsins væri að
teljast ávallt framúrskarandi fjár-
festingarkostur.
Einar gerði einnig grein fyrir
rekstrarhorfum á yfirstandandi
ári. Búist er við að hagnaður árs-
ins 2000 verði 44% meiri en á síð-
asta ári, eða 499 milljónir miðað
við 346,5 milljóna króna hagnað
ársins 1999. Búist er við að eigin
iðgjöld hækki um 27%, eigin tjón
aukist um 52%, rekstrarkostnaður
um 19% og fjárfestingartekjur um
105%, úr 1,3 milljörðum í 2,7 millj-
arða króna.
Einar gerði enn fremur grein
fyrir samkeppni íslensku trygg-
ingafélaganna og talaði um fá-
mennismarkað. Mikil samkeppni
ríkir á milli íslensku tryggingafé-
laganna þriggja, Tryggingamið-
stöðvarinnar, VIS og Sjóvár-Al-
mennra. í umræðum eftir fundinn
sagði Einar í því sambandi að
vissulega væri þörf fyrir tvö
tryggingafélög en óvissa ríkti í
hans huga um hvort pláss væri
fyrir þrjú félög. Hann sagði að
frekari samþjöppun væri þó ekki í
sjónmáli, utan að t.d. lítil báta-
ábyrgðarfélög ættu ekki framtíð
fyrir sér.
Fjármálatengd
starfsemi eykur hagnaðarvon
Einar Sveinsson sagði einnig að
sóknarfæri á tryggingamarkaði
felist í því að feta sig á nýjar
brautir. Tryggingar í tengslum við
1044
SUMARNAM Stærðfræði
Nú er tækifæri til að lagfæra stærðfræðikunnátt-
una. Vandað upprifjunarnám í stærðfræði fyrir
9. og 10. bekk grunnskóla. Námið stendur
yfir í fimm vikur og lýkur með prófi.
Vel menntaðir kennarar og góð aðstaða.
Nánari upplýsingar í síma 5515593.
Tölvu- og stærðfræðiþjónustan ehf. Brautaholti 4
Morgunblaðið/Þorkell
Markaðsvirði Sjóvár-Almennra er um 24 milljarðar króna.
iM SjÓVÁ - ALMENNAR
Nafnverð, krónur Eignar- hlutur
15 stærstu hluthafar þann 6. júní 2000
1 Burðaráshf. 55.987.639 10,60%
2 Helga Ingimundardóttir 29.439.439 5,57%
3 Benedikt Sveinsson 23.300.767 4,41%
4 Einar Sveinsson 20.761.113 3,93%
5 Hjalti Geir Kristjánsson 16.124.547 3,05%
6 Guðný 0. Halldórsdóttir 15.718.757 2,98%
7 Skeljungur hf. 15.301.799 2,90%
8 Kristfn H. Halldórsdóttir 14.712.570 2,79%
9 Ingimundur Sveinsson 13.511.742 2,56%
10 Guðrón Sveinsdóttir 11.536.866 2,18%
11 Lífeyrissjóður verslunarmanna 11.122.420 2,11%
12 Ernaehf. 10.509.213 1,99%
13 Björn Hallgrímsson ehf. 10.509.212 1,99%
14 Lynghagiehf. 10.509.212 1,99%
15 Ragnhildur Þórarinsdóttir 8.094.226 1,53%
15 stærstu samtals: 267.139.522 50,58%
heilsufar fólks, umönnunartrygg-
ingar og sjúkratryggingar væri
t.a.m. það sem félagið myndi
leggja áherslu á. Jafnframt sagði
Einar að fjármálatengd starfsemi
auki hagnaðarvon en tryggingafé-
lög hafa í auknum mæli róið á þau
mið og hefur sívaxandi hluti hagn-
aðar Sjóvár-Almennra komið frá
fjármálatengdri starfsemi undan-
farin ár. Að mati Einars verður
samkeppni í netviðskiptum mikil í
framtíðinni og í ljósi þess legðu
Sjóvá-Almennar mikla áherslu á
Netið í markaðssetningu.
Hluthafar Sjóvár-AImennra eru
alls 865. Tíu stærstu hluthafar
eiga 40,98% hlutafjár í félaginu og
fimmtán stærstu eiga 50,58%.
Stærsti hluthafi er Burðarás hf.
með 10,6% hlut. í skráningarlýs-
ingu er bent á að ýmsir hluthafar
séu tengdir þótt ekki sé vitað til
þess að samkomulag sé milli hlut-
hafa fyrirtækisins varðandi með-
ferð atkvæða. Systkinin Benedikt
Sveinsson, Einar Sveinsson, Ingi-
mundur Sveinsson og Guðrún
Sveinsdóttir eiga ásamt móður
sinni, Helgu Ingimundardóttur,
samtals 18,65% eignarhlut í félag-
inu. Systurnar Guðný O. Halldórs-
dóttir og Kristín H. Halldórsdóttir
eiga samtals 5,76% eignarhlut.
Guðný og börn hennar, Guðrún
Teitsdóttir og Halldór Teitsson,
eiga samtals 6,01% eignarhlut.
Kristín og börn hennar, Ragnhild-
ur Þórarinsdóttir, Guttormur B.
Þórarinsson og Margrét H. Þórar-
insdóttir, eiga samtals 6,24% eign-
arhlut, að því er fram kemur í
skráningarlýsingunni.
Starfsmenn Sjóvár-AImennra
eru nú 144 og í samræmi við
stefnu félagsins hafa starfsmenn
tvisvar fengið hlutabréf í félaginu,
og nemur eignarhlutur hvers
starfsmanns nú um 400 þúsund
krónum að markaðsvirði.
HLUTABRÉFASJOÐUR I N N AUÐLIND H F .
AÐALFUNDUR
Verður haldinn á 1. hæð á Grand Hótel Reykjavík, þann 15. júní 2000, kl. 17.00
Dagskrá:
1. Skýrsla stjómar
2. Staðfesting ársreiknings rekstrarársins 1999-2000
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar
4. Tillaga um heimild handa stjóm Hlutabréfasjóðsins Auðlindar hf. um kaup á eigin
bréfum félagsins
5. Tillaga um breytingar á samþykktum:
Tillaga um lækkun hlutafjár:
Stjóm félagsins leggur til, að hluthafafundur samþykki að lækka hlutafé félagsins um
kr. 100.000.000,-
- Ástæða tillögunnar er að lækka hlutfé í eigu félagsins, til samræmis við þau mörk
sem áskilið er í lögum og samþykktum. Framkvæmd lækkunarinnar er því einungis
tilfærsla í reikningum félagsins
6. Kosning stjómar félagsins
7. Kosning endurskoðenda félagsins
8. Ákvörðun um laun stjómarmanna
9. Erindi um hlutabréfamarkað
10. Önnur mál
Reykjavík, 6. júní 2000
Stjóm Hlutabréfasjóðsins Auðlindar hf.
ffi
KAUPÞING
Ármúli 13A, 108 Reykjavík,
sími 515 1500 fax 515 1509
• Öflugur margreyndur tvígengismótor sem slær öllum við.
• Þetta er vélin fyrir þá sem gera kröfur.
• Fáanleg með og án drifs, grassafnari fylgir.
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - slmi 568 1500 - AKUREYRI: Lónsbakka - slmi: 461 1070 - www.thor.ls
ÞÓR HF
REYKJAVÍK - AKUREYRI
Í2S