Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 35
RUSSELL
ATHLETIC
RENNDAR HETTUPEYSUR
„Að syngja
fyrir þjóðir“
TOIVLIST
Langhoiiskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Kór Langholtskirkju, undir sljórn
Jóns Stefánssonar, flutti íslenska
og norræna kórtónlist.
Einsöngvarar voru Guðríður Þóra
Gísladóttir og Nanna Maria Cortes.
Sunnudagurinn 4. júní 2000.
„AÐ syngja fyrir þjóðir" hefur
ávallt verið heillandi verkefni og á
vettvangi söngsins hefur okkur Is-
lendingum gengið vel, svo að segja
má , að þar standi landinn jafnfætis
öðrum syngjandi þjóðum, enda gera
íslenskir kórar það víðreist og fjöldi
einsöngvara starfar við mörg af
stóru óperuhúsunum. Kór Lang-
holtskirkju er t.d. á förum til Norð-
urlanda, til samsöngs við danska og
norska kóra og hélt af því tilefni
tónleika sl. sunnudagskvöld í Lang-
holtskirkju.
Tónleikarnir hófust á fimm þjóð-
lagaraddsetningum, sem íslensk
tónskáld hafa á síðari árum gert
mikið af. A því sviði eigum við orðið
mikið og marglitt safn söngverka,
sem mörg hver eru orðin eins konar
„klassík", sem allir íslenskir kórar,
bókstaflega talað, hafa haft á verk-
efnalista sínum, t.d. eins og fyrsta
lag tónleikanna, Tíminn líður, trúðu
mér, meistaralega raddsetningu
Arna Harðarsonar. Þá er er ekki
síður bragð að útsetningu Hjálmars
H. Ragnarssonar á Hér undir jarð-
ar hvílir moldu, en báðar þessar út-
setningar eru gerðar er nefnd tón-
skáld voru stjórnendur
Háskólakórsins. Önnur perla er svo
Hættu að gráta hringaná eftir Hafl-
iða Hallgrímsson og eru þessar
raddsetningar í raun meira en
raddsetningar, þær eru miklu frem-
ur sjálfstæð tónverk, byggð á þjóð-
lögum. Tvær síðustu raddsetning-
arnar á efnisskránni, hálfrar aldar
gamlar, eftir undirritaðan, voru
Sofðu unga ástin mín og Krummi
krunkar úti. Slíkar raddsetningar,
sem hér voru fluttar, eni eins konar
þjóðlífslýsing, sem Langholtskór-
inn söng af hjartans list.
Ekki eru frumsamin söngverk
síðri að úrvali og er þar marga perl-
una að finna, eins og t.d. Heilræða-
vísur eftir Jón Nordal, Maríukvæði
og Haustvísur til Maríu eftir Atla
Heimi Sveinsson, Alleluia eftir Mist
Þorkelsdóttur og Hósíanna eftir
Þorkel Sigurbjörnsson, en tvö síð-
arnefndu eru hugsuð sem eins kon-
ar „útgöngu“tónverk og voru upp-
færð sem slík á tónleikunum. Eftir
undirritaðan söng kórinn Orðskviði
Salomons. Kórinn er í fínu formi en
sumt í söngnum var á köflum nokk-
uð hrátt, miðað við það sem heyrst
hefur frá kórnum áður, en öll ís-
lensku verkin hefur kórinn flutt
margsinnis, bæði hér heima og er-
lendis. I lögum Mistar og Þorkels
söng Guðríður Þóra Gísladóttir há-
radda einsöngs-strófur af miklum
glæsibrag.
Erlendu verkin þrjú voru hins
vegar sérlega vel æfð, en tvö þeirra
eru gamlir kunningjar, Ave maris
stella eftir Þránd Kverno og Lauda-
te eftir Knut Nystedt, er voru mjög
vel flutt. Frumflutningur kórsins á
Magnificat eftir John Hoybye, sem
er sérstaklega samið fyrir Kór
Langholtskirkju, var frábærlega
mótaður og þar sýndi kórinn sínar
bestu hliðar, undir kraftmikilli
stjórn Jóns Stefánssonar. Einsöng í
verkinu söng Nanna María Cortes,
sem nú er að hefja sinn feril sem
einsöngvari og var söngur hennar í
alla staði glæsilega framfærður.
Þrátt fyrir að enn vantaði á það
sem best hefur heyrst hjá kórnum í
sumum íslensku viðfangsefnunum,
er raddlegt jafnvægi mjög gott og
t.d. eru karlaraddirnar sérlega fal-
legar, einkum tenórinn, en í heild er
hljómur kórsins glæsilegur, eins og
heyra mátti í norrænu verkunum.
Þá voru verk Jóns Nordals og Atla
Heimis mjög vel flutt, svo og út-
gönguvers Mistar og Þorkels.
Jón Ásgeirsson
Tveir fyrir einn
tii
Benidorm
11.júlí
frá kr. 17.750
Nú bjóðum við einstakt tækifæri á nokkrum sætum i sólina þann 11.
júlí til vinsælasta áfangastaðar við Miðjarðarhafið, Benidorm. Þú getur
valið um 1, 2 eða 3 vikur, bókar 2 sæti en borgar bara eitt og kernst í
sólina á verði sem hefur aldrei sést íyrr. Að auki getur þú valið um
fjölda gististaða með Heimsferðum á góðu verði og að sjálfsögðu nýtur
þú þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Verðkr. 17»750
Verö p. mann, m.v. 35.500/2 - 17.750.-
Flugvallaskattar kr. 2.490.-, ekki innifaldir.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Morgunblaðið/Kristinn
María Duncker og Valka á Vatnsveitubrúnni í Elliðaárdal.
Senda skilaboð
úr Elliðaárdal
IDAG klukkan 18 verður opnuð
sýning í Elliðaárdalnum á Transpl-
ant og Heart, mynd- og hljóðverki
þeirra Völku, Valborgar S. Ingólfs-
dóttur, og Maríu Duncker frá
Finnlandi. Staðsetning verksins er
nokkuð óvenjuleg, þ.e. við gömlu
Vatnsveitubrúna á Elliðaánum, rétt
ofan Árbæjarsundlaugar.
„Transplant og HEART er eitt af
þeim verkefnum sem þróaðist í
Helsinki í samvinnu við hinar borg-
irnar átta sem skarta titlinum
Menningarborg Evrópu í ár. Félag
finnskra myndhöggvara átti þessa
skemmtilegu hugmynd, sem miðar
að því að byggja upp samvinnu til
lengri tíma meðai myndhöggvara í
borgunum niu. Einn finnskur lista-
maður og í okkar tilfelli einn ís-
lenskur vinna í sameiningu verk
sem sýnt verður fyrst í Reykjavík,
en síðar á árinu í Helsinki,“ segir
Svanhildur Konráðsdóttir kynning-
arsljóri Menningarborgarinnar.
Þær Maria og Valka segja að
samstarf þeirra hafi að mestu farið
fram í gegnum tölvupóst og þannig
hafi hugmyndin kviknað, að byggja
verkið að hluta á starfi radio amat-
öra og morssendingum. Má hlýða á
móttekin skilaboð í verki þeirra
sem og skilaboð sem þær vilja
senda öllum þeim sem þau ná til.
Verkinu verður síðar í sumar
komið fyrir á stórri sýningu sem
opnar 23. ágúst f Vantaa, úthverfi
Helsinki, þar sem verk hinna borg-
anna verða til sýnis um leið. „Við
komumst að því að þar eru aðstæð-
ur mjög svipaðar og við Elliðaárnar
og ákváðum því að velja þessa staði
fyrir verkið í báðum borgunum,“
segir Valborg. Auðvelt er að þekkja
verkið þar sem því hefur verið
komið fyrir í litlu húsi úr áli sem
ekki fer framhjá neinum sem gerir
sér ferð að gömlu Vatnsveitubrúnni
í Elliðaárdal á næstu tveimur mán-
uðurn.
Verð frá kr. 4.990.-
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeifúnni 19 - S. 568 1717 —
www.hreysti.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face
Allir H
• _
í nýjum skóm
17. junii
afsláttur
25%
af öllum skóm til 17. júní
Herraskór - Dömuskór - Barnaskór
EUROSKO I
Kringlunni 8-12 • sími 568 6211
Skóhöllin • Bæjarhrauni 16 • Hf. • sími 555 4420