Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 51
Neysluvenjur
og nýir kvillar
FYRIR nokkru kom
út í Bandaríkjunum
bók, sem heitir „Yom-
Miracle Brain“. Á ís-
lensku getum við kall-
að bókina „Undraverði
heilinn þinn“.
Höfundur bókarinn-
ar er kona að nafni
Jean Carper, en hún
hefur áður gefið út
nokkrar bækur, sem
fjalla um lifnaðarhætti
og heilsufar. Nokkrar
þeirra hafa orðið met-
sölubækur og nýjasta
bókin er á hraðri ferð
upp metsölulistann.
Við samningu þessarar
síðustu bókar hefur Jean Carper
notið aðstoðar fjölmargra vísinda-
manna og lækna, sérfræðinga á sviði
heilasjúkdóma, næringarfræðinga
og stofnana, sem hafa sérhæft sig í
rannsóknum á starfsemi heilans.
Hún hefur dregið saman í auðskilda
og læsilega bók niðurstöður nýjustu
vísindarannsókna á þessu sviði og
kemur efninu til skila á einföldu og
skýru máli.
í bókinni er fullyrt, að breyttar
neysluvenjur Vesturlandabúa síð-
ustu áratugi hafi haft slæm áhrif á
starfsemi heilans og líkamans al-
mennt. Jafnvel eru færð rök að því,
að tíðni ýmissa heilasjúkdóma hafi
aukist, minnisleysi orðið vaxandi
vandamál og greindarvísitala lækk-
að hjá sumum þjóðfélagshópum.
Ástæðan er sögð sú, að
fyrir nokkrum áratug-
um hafi orðið algjör
breyting, og raunar
bylting, í mataræði
margra þjóða á Vest-
urlöndum, einkum þó í
Bandaríkjunum. Þá
hafi skyndibitinn kom-
ið til sögunnar og
menn hætt að neyta
þess matar, sem hafi
verið ráðandi í fæðu-
keðju hans um margra
alda skeið. Þessi breyt-
ing hafi haft óheilla-
vænleg áhrif á alla lík-
amsstarfsemi, sem
m.a. komi fram í sívax-
andi offituvanda, sykursýki, sem nú
nálgist það að vera faraldur, og heil-
inn hafi ekki farið varhluta af þess-
um óheppilegu neysluvenjum. Hann
hafi ekki fengið þá næringu, sem
honum er nauðsynleg til eðlilegs
þroska.
I bókinni er rækilega á það minnt
að heilinn þurfi rétta næringu, eins
og önnur líffæri. Það sé hins vegar
alltof algengt, að nútímamaðurinn
neyti matar, sem heilinn hafi ekkert
gagn af og geti þar að auki haft
skaðleg áhrif á starfsemi hans. Bent
er á ýmsar óheppilegar fitutegundir,
glórulausa neyslu á hvítum sykri í
gosdrykkjum, sælgæti og fjölda-
mörgum fæðutegundum og matar-
tegundh', sem eru algjöriega snauð-
ar af efnum, er heilinn þarfnast til að
Neysla
Bókin er í heild mikill
áfellisdómur yfír þeim
nýju matarvenjum, sem
Vesturlandabúar hafa
tileinkað sér, segir Árni
Gunnarsson, og við köll-
um stundum neyslu á
ruslfæði.
geta starfað með eðlilegum hætti.
Bókin er í heild mikill áfellisdóm-
ur yfir þeim nýju matarvenjum, sem
Vesturíandabúar hafa tileinkað sér
og við köllum stundum neyslu á rusl-
fæði. Náttúruleg fæða mannsins frá
örófi alda hafi orðið að víkja fyrir
mat, sem er mjög kolvetnaríkur,
snauður af mörgum mikilvægustu
efnum og efnasamböndum, er lík-
aminn þarfnast. „Grænmeti, ávextir,
belgjurtir, hnetur og ber er orðinn
óverulegur hluti af fæðunni og við
borðum alltof lítið af fiski,“ segja
fræðimennirnir.
Og þá er komið að þeirri fæðu eða
því efni, sem vísindamennirnir telja
langmikilvægasta fyrir heilastarfi
semina. Þetta er omega-3 fitusýra. I
mörgum helstu vísindaniðurstöðum,
sem birtar eru í bókinni, er omega-3
Ámi
Gunnarsson
fitusýran talin svo mikilvæg, að
neysla hennar geti skipt sköpum um
gi'eind manna. Sagt er frá niður-
stöðum rannsókna á barnshafandi
konum, sem fengu omega-3 á með-
göngu og á meðan börn eru á brjósti,
og á öðrum hópi þar sem konumar
fengu ekki þessa fitusýru. Greind
barnanna var síðan mæld. Omega-
bömin reyndust með mun hærri
greindarvísitölu.
Þetta ættu að vera góð tíðindi fyr-
ir lýsisframleiðendur og þjóðir, sem
borða mikið af fiski. Fullyrt er í bók-
inni að heilsufar og almenn greind
japönsku þjóðarinnar hafi versnað
og dvínað í réttu hlutfalli við minnk-
andi fiskneyslu, en í Japan hefur
skyndibitinn orðið sífellt vinsælli á
undanförnum áram. Til að hamla
gegn þessari þróun hafa japönsk
heilbrigðisyfirvöld hvatt matvæla-
framleiðendur til að blanda omega 3,
eða DHA hluta hennar, í matvæli,
einkum barnamat.
I bókinni er gerð hörð hríð að
neyslu á hvítum sykri og jafnvel
hvítu hveiti. Sagt er að sykurneysl-
an sé komin út fyrir öll skynsamleg
mörk og eigi sök á mörgum alvarleg-
um „menningarsjúkdómum". Minnt
er á nauðsyn þess, að maðurinn nýti
sykur úr hunangi og ávöxtum, enda
sé það sá sykur, sem heilinn þarfnist
og nýti sér.
Þá fær dýrafita slæma dóma. Hún
er m.a. talin geta átt þátt í Parkin-
son-veikinni. I rannsókn, sem gerð
var við Columbia-háskólann í
Bandaríkjunum á hópi fólks, 65 ára
og eldri, kom í ljós, að þeim sem
neytt höfðu mikillar dýrafitu var
fimm sinnum hættara við að fá
Parkinson-veikina en þeim, er borð-
uðu minnsta dýrafitu.
Birtar era niðurstöður margra
rannsókna á offitu manna, einkum
unglinga, en meðal þeirra fer syk-
ursýki 2 mjög vaxandi og um leið
Kristnihátíð Þingvallakirkju -
Hátíð í heimabæ þjóðar
HINN 17. júní næst-
komandi verður haldin
kristnihátíð Þingv’alla-
khkju.
Þingvallasöfnuður er
einn minnsti söfnuður
landsins, en Þingvalla-
kirkja á sér öraggan
sess í hjörtum lands-
manna. Á hátíðarstund-
um berast myndir af
Þingvallakirkju og
Þingvallabæ inn á öll
heimili landsmanna og
Þingvallakirkju sækja
heim tugir ef ekki
hundrað þúsunda Is-
lendinga og útlendra
ferðamanna á hverju
ári. Alla helga daga yfir sumarmán-
uðina fer fram guðsþjónusta í
kirkjunni og tvisvar í mánuði yfir
vetrartímann. Á jólum, páskum og
öðrum stórhátíðum fylla kirkjuna
kirkjugestir sem margir era komnir
um langan veg að syngja Guði lof í
helgidóminum við Öxará. Staðar-
prestai’ hefur tekið á móti ótölulegum
fjölda barna og fullorðinna í kh'kjunni
í gegnum árin . Á þeim stundum hef-
ur saga Þingvalla og Þingvallakh'kju
verið sögð, að ekki sé minnst á sögu
náttúrannar sem myndar rammann
um kirkju og bæ. Þó að Þingvalla-
kirkja sé lítil þá er hún hluti af
stærsta musteri Drottins á íslandi
eins og hver einasti gestur skynjar
sem þangað kemui' allt árið um kring.
Frá öllum landshomum og úr öllum
heimsálfum koma brúðhjón til
brúðkaups í Þingvallakirkju og í
kh'kjunni renna allar kh-kjudeildh'
saman í eina. Þar heíur Jóhannes Páll
páfi annar kropið til bæna við altarið
ásamt biskupi íslands og Þingvalla-
presti og þar hafa grísk-katólskh',
hvítasunnumenn, kvekai'ar, já full-
trúar heimskirkjunnar allrai' átt sér
bænastund. Saga Þingvallakirkju og
prestakalls er orðin löng. Fyrsta
kirkjan var reist á Þingvöllum árið
1017 úr viði frá Ólafi konungi Hai’-
aldssyni í Noregi. Með
kirkjuviðnum sendi
konungur einnig forláta
klukku . Er Þingvöllur
talinn lyrsti eða annar
lögformlegi kirkjustað-
urinn á Islandi. Þessi
fyrsta opinbera kirkja á
staðnum var þing-
mannakirkja og eign
Alþingis. Hefur hún lík-
lega staðið þar sem
kirkjan stendur enn í
dag. Var hún helguð
Ólafi konungi helga. Áð-
ur hafði staðið svokölluð
búandakirkja á staðn-
um, en hún tilheyrði
Þingvallabónda og vora
þessar tvær kirkjur sameinaðar um
miðja 11. öld. Fyrsti nafngreindi
prestm- á Þingvallastað er sr. Brand-
Þingvallakirkja
Er Þingvöllur talinn,
segir Þórhallur Heimis-
son, fyrsti eða annar
lögformlegi kirkjustað-
--------------?-------------
urinn á Islandi.
ur Þórisson, en hann var prestur þar
á síðari hluta 12. aldar. Hann var son-
ur Þóris bónda á Þingvöllum, Skegg-
Brandssonar bónda á sama stað, Þor-
móðssonar. Seint á 12. öld er getið um
prestinn sr. Guðmund Ámundason á
Þingvöllum, af ætt Ingólfs Amarson-
ar, en hann var kvæntur Sólveigu,
dóttur Jóns Loftsspnar í Odda er
nefndur var „fursti Islands" um sína
daga eða „princeps patriae". Sonm'
þeirra Guðmundar og Sólveigar vai'
sr. Magnús allsherjargoði á Þingvöll-
um, kjörinn biskup árið 1236 en fékk
ekki biskupsvígslu vegna veraldlegr-
ar tignar sinnar. Var hann síðar
prestur á Þingvöllum til dauðadags.
Þórhallur
Heimisson
Af mörgum nafnfrægum prestum
er þjónað hafa staðnum má nefna Al-
exíus Pálsson sem var staðarprestur í
ein 20 ár á miðri 16. öld. Byggði hann
þar nýja kirkju á hinum forna granni.
Varð hann síðar síðasti ábóti í Viðey.
Sr. Engilbert Nikulásson, er nefndur
var læknir, var prestm- á Þingvöllum
frá um 1618-1668, en þá veitti Brynj-
ólfrn' biskup í Skálholti bróðm'syni
sínum, sr. Þórði Þorleifssyni, staðinn.
Sr. Páll Þorláksson frá Selárdal,
bróðir þjóðskáldsins sr. Jóns á Bæg-
isá, tók við Þingvöllum 1781 og var
þar prestur í ein 40 ár, til ársins 1821.
Þá settist séra Björn Pálsson sonur
hans í embættið og gegndi því til
1846.1846-1879 gegndi embættinu sr.
Símon Daníel Vormsson Bech, há-
lærður maður af norðlenskum ættum.
Byggði hann núverandi Þingvalla-
kirkju árið 1859, en kirkjusmiður var
Eyjólfur Þorvarðarson. Eftir hans
dag tók við staðnum sr. Jens Pálsson
og sat hann staðinn til 1886. Hann
varð síðar prestur á Utskálum og
þjóðkunnur skörangur á Alþingi. Sr.
Jón Thorstensen var Þingvallaprest-
ur 1886-1923 er sr. Guðmundur Ein-
arsson tók við embættinu. Gegndi
hann því til 1928. Embætti Þingvalla-
prests var ekki setið frá 1928-1958, en
þá er það endurreist með komu sr. Jó-
hanns Hannessonar, fyrram kristni-
boða og síðar prófessors í guðfræði
við Háskóla íslands. Sr. Eiríkur J.
Eiríksson prófastur gegndi em-
bættinu frá 1959-1981 er séra Heimir
Steinsson tók við staðnum. Var hann
þá einnig þjóðgarðsvörður og fram-
kvæmdastjóri Þingvallanefndar. Árið
1991 var sr. Heimir skipaður útvarps-
stjóri og tók sr. Hanna María Péturs-
dóttir þá við embættinu. Gegndi hún
því til ársins 1996 en þá kom sr.
Heimir aftur til embættisins og
gegndi hann því til dauðadags, 15. maí
síðastliðinn.
Þannig spannar saga Þingvalla-
kh’kju og prestakalls þau 1.000 ár
sem kristinn siður hefur verið í land-
inu. Undanfama áratugi hafa Þing-
vallaprestar gegnt stöðu þjóðgarðs-
varðar og staðarhaldara, enda fer vel
á því að heimamaður bjóði gesti vel-
komna heim til Þingvalla, erlenda
sem innlenda. Á þessu kristnihátíðar-
sumri er skai'ð fyiir skildi á staðnum.
En ef Guð lofar mun nýr Þingvalla-
prestur og staðarhaldari taka við
merki staðarins með haustinu . og
bjóða landsmenn velkomna að elsta
helgidómi lands og þjóðar.
Á mörgum heimilum landsins
piýðir mynd af Þingvallakirkju og
Þingvallastað stofuveggi. í hugum
manna er Þingvallaprestakall og
Þingvallastaður prestakall allrar
þjóðarinnar. Þar hefur kirkja staðið í
1.000 ár og Þingvellir umvefja hana,
stækka og mynda með henni einn
stærsta helgidóm landsins. Þannig
yrkir sr. Heimir Steinsson í ljóð sínu
„Dagrenning" um kirkju og stað.
Leystarerufestar:
Hefstogrís
úrnausti,
frástrondu
landið,
landiðeina.
Gotteraðlifa
ogelska
landiðíhafinu,
böminílandinu
ogGuðvorslands.
Landið siglir ofar skýjum.
Krossinnblaktir
yfirlandinu.
(sr. Heimb- Steinsson, Þmgvöllum 1983.)
Kristnihátíð Þingvallakirkju hefst
með guðsþjónustu kl. 14. Þar predik-
ar Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra, en hann er jafniramt formaður
Þingvallanefndar. Organisti er Glúm-
ur Gylfason.
Höfundur er prestur við Hafnar-
(jarðarkirkju en erstarfandi prestur
i Þingvallaprestakalli í sumar.
kvillar eins og minnisleysi og hjarta-
sjúkdómar. Meðal ungs fólks verði
æ algengari sjúkdómar, sem áður
greindust hjá öldruðu fólki. Sagt er,
að draga megi úr þessum sjúkdóm-
um með því að neyta lýsis.
Og enn fær lýsið góða einkunn.
Það er talið geta aukið framleiðslu á
seratonin í líkamanum og þar með
dregið úr þunglyndi og alvarlegum
afleiðingum þess. Sagt er frá rann-
sóknum þar sem sjúklingum með al-
varlegt þunglyndi er gefið omega-3
með góðum árangri. Síðan er bætt
við niðurstöðu rannsókna, er sýna
að þunglyndi hafi aukist hjá tiltekn-
um þjóðfélagshópum fólks í Banda-
ríkjunum þar sem fiskneysla hefur
dregist saman.
I bókinni er á það minnt, að
omega-3 sé samsett úr tveimur teg-
undum fitusýra; önnur er skamm-
stöfuð DHA og hin EPA. Það er
DHA-hlutinn sem er mikilvægastur
fyi’ir heilann. Síðan eru nefnd nokk-
ur vítamín og bætiefni, sem nútíma-
maðurinn þurfi á að halda til tryggja
eðlilega starfsemi heilans. Einkum
era nefnd b-6 og b-12 vítamín,
niacin, c-vítamín og nokkur fleiri
efni. Einnig er lögð á það áhersla, að
sykur komi úr hunangi og ávöxtum.
En rauði þráður þessarar bókar
er sá, að neysluvenjur nútíma-
mannsins séu með þeim hætti, að
boðið sé heim margvíslegum sjúk-
dómum, sem á næstu árum og ára-
tugum muni flokkast undir faraldur.
Þeirra sé þegar farið að gæta.
Vandamál offitunnar geti hæglega
snúist upp í margskonar sjúkdóma,
sem rekja megi til truflana á starf-
semi heilans vegna rangrar fæðu.
I sepbember 1998 gaf bandaríska
heilbrigðisráðuneytið út drög að
stefnumótun, sem á íslensku nefnist
„Heilbrigt fólk, stefnumótun til
2010“. Þar er fjallað um alla helstu
þætti heilbrigðismála í Bandaríkj-
unum og hvernig æskilegt væri að
takast á við helstu vandamálin, sem
að steðja. Þarna er langur kafli um
nauðsyn breytinga á neysluvenjum
þjóðarinnar og sagt að þriðji hver
fullorðinn Bandaríkjamaður glími
við offitu og allt að helmingur þjóð-
arinnar sé kominn yfir æskileg mörk
í líkamsþyngd. Offita verði æ al-
gengari meðal bama og unglinga.
Síðan eru taldir upp fjöldamargir
sjúkdómar, sem megi rekja beint til
rangrar fæðu. Engin ástæða er til að
ætla, að íslendingar fari varhluta af
þessari þróun, ef ekki verður gripið
harkalega i taumana.
Tillögur í skýrslunni um úrbætur
era mjög í anda þeirrar bókar, sem
hér hefur verið gerð að umræðuefni.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði.