Morgunblaðið - 14.06.2000, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 63
MINNINGAR
SIGURGEIR
GUNNARSSON
+ Sigurgeir Gunn-
arsson fæddist í
Reylgavík 19. júní
1944. Hann lést á
heimili sínu 4. júní
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Páll
Gunnar Júhannsson
múrarameistari, f.
28.9. 1912, d. 31.5.
1976, og Una Kri-
stjánsdóttir húsmúð-
ir, f. 7.8. 1915, d.
18.12. 1972. Börn
þeirra: Ester Berg-
þúra Gunnarsdúttir,
maki Herberg Krist-
jánsson. Sigurgeir, sem hér er
minnst, maki Hrafnhildur Gísla-
dúttir. Oddfríður (Fríða) Callagh-
an, maki James Callaghan. Rafn
Gunnarsson, maki Hugrún Þor-
steinsdúttir. Marta Gunnarsdúttir,
maki Birgir Bjarnason. Kristín
Gunnarsdúttir, maki Ólafur Theú-
dúrsson, og Júhanna Gunnarsdútt-
ir.
Sigurgeir kvæntist Hrafnhildi
Gfsladúttur, f. 1.3.1945,14. núvem-
ber 1964. Foreldrar hennar eru
Gísli Júnsson, f. 7.2.
1917, og Valborg Ól-
afsdúttir, f. 9.1.1920.
Sigurgeir og Hrafn-
hildur eignuðust tvö
böm, Kristján, f. 3.7.
1965, í sambúð með
Önnu Maríu Sigurð-
ardúttur, f. 15.8.
1966, dúttir þeirra er
Andrea Kristín Kri-
stjánsdúttir, f. 17.6.
1993. Anna Brynja, f.
18.8. 1968, í sambúð
með Stellan Ragnar,
f. 14.3. 1966, dúttir
þeirra er Lísa Katla
Stellansdúttir, f. 6.12.1995.
Sigurgeir lauk prúfi í trésmíði
frá Iðnskúlanum í Reykjavík í maí
1967, fúr í Meistaraskúlann og lauk
þar námi sem húsasmíðameistari
25.6. 1973. Hann starfaði við iðn
sína alla tíð, síðustu 12 árin rak
hann eigið trésmíðaverkstæði. Sig-
urgeir starfaði í Lionshreyfing-
unni.
Utför Sigurgeirs fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku pabbi. Nú er þessari erfiðu
ferð lokið. Síðasti spölurinn var erf-
iður, uppí móti og mjög torfær en þér
tókst samt að sannfæra okkur öll um
að þetta væri allt hið minnsta mál.
Síðastliðna mánuði kom þinn innri
persónuleiki svo vel í ljós. Aldrei eitt
orð um vanlíðan. Bjartsýnni og von-
betri varðst þú með hverjum degin-
um sem leið. Þó svo að þú hafír gert
þér grein fyrir hvert stefndi vildir þú
ekki gera okkur áhyggjufyllri með
svartsýni eða neikvæðu hugarfari.
Þú varst alltaf að hugsa um mömmu,
sagðir við okkur að þetta væri nú erf-
itt fyrir hana og að við yrðum að vera
sterk hennar vegna.
Minningarnar streyma fram um
ykkur mömmu. Þið voruð ekki bara
hjón heldur bestu vinir sem gátuð
ekki af hvort öðru séð. Gerðuð allt
saman og voruð sem eitt. Stundirnar
um síðastliðin jól og páska verða
kærar minningar fyrir okkur og þá
sérstaklega stelpumar okkar. And-
rea Kristín og Lísa Katla báru svo
mikla umhyggju fyrir afa sínum.
Þær voru alltaf að passa þig, klappa
og kyssa, þegar þú varst að hvíla þig
í sófanum inni í stofu og stundum
fékkstu engan frið fyrir þessum litlu
englum sem vildu svo vel.
Stóra framtíðarverkefnið okkar
var heldur betur tilefni margralíf-
legra samræðna þar sem þið feðg-
arnir gleymduð stund og stað og lét-
uð hugann reika um hvernig best
væri að haga málum. Það er ótrúlega
tómlegt að vita að við verðum að
halda áfram án þín, elsku pabbi, en
þú verður með í huga okkar.
Ferðirnar til Svíþjóðar í gegnum
árin voru ófáar. Þú hjálpaðir litlu
fjölskyldunni í Södra Sanby mikið
með húsið sitt og þegar þið Stellan
smíðuðuð grindverkið höfðum við
heldur betur gaman af, með sam-
blöndu af skandinavískum tungu-
málum tókst ykkur að smíða þetta
fína grindverk sem nú prýðir húsið.
Þú fylgdist heillaður með bygg-
ingu Eyrarsundsbrúarinnar og
stefnan var að Kristján skyldi hlaupa
í maraþonhlaupinu hinn 12. júní og
við hin myndum keyra yfir en í stað-
inn erum við öll hér á íslandi og
hjörtu okkar yfirfull af sorg.
Stóllinn þinn í eldhúsinu mun allt-
af minna á fjarveru þína. Þar sast þú
oft á kvöldin og grúskaðir yfir öllu
mögulegu, allt frá íslendingasögun-
um til Biblíunnar. Ritsafn Bólu-
Hjálmars lá oft frammi enda var
hann eitt af þínum eftirlætis skáld-
um. Síðasta mánuðinn þegar við sá-
um hvemig sjúkdómurinn hægt og
sígandi tók frá þér alla krafta og það
eina sem eftir var, var vonin í augum
þínum og þín ótrúlega bjartsýni, hef-
ur oft eitt fallegt kvæði Bólu-Hjálm-
ars komið upp í huga okkar.
Húmar að mitt hinsta kvöld,
horfiégframáveginn,
gröfinmótigapirköld,
gref ég á minn vonarskjöld,
rúnir þær sem ráðast hinum megin.
(Bólu-Hjálmar.)
Við viljum sérstaklega þakka
Heimahlynningu Krabbameinsfé-
lagsins fyrir framúrskarandi um-
hyggju ogvinskap.
Elsku pabbi, með þessum fáu orð-
um viljum við kveðja þig með virð-
ingu og stolti. Þú munt ávallt vera
með okkur og við biðjum Guð að
styrkja mömmu.
Kristján og Anna Brynja.
Elsku afi Geiri.
Bí,bíogblaka
álftimarkvaka,
églæt semégsofi,
ensamtmunégvaka.
(Sveinbj. Egilsson).
Takk fyrir allar stundirnar sem
við áttum saman, elsku afi, og megi
englarnir geyma þig.
Andrea og Lisa.
Þegar ég frétti að Geiri bróðir
hefði dáið fyrr um daginn kom það
mjög á óvart þó svo vitað væri að sú
stund nálgaðist. Það er illskiljanlegt
þegar stór og mikill maður verður
varnarlaus gagnvart illvígum sjúk-
dómi og erfitt fyrir aðstandendur að
horfa upp á slíkt.
Þó að Geiri hafi vitað að hverju dró
og oft liðið illa þá einkenndi hann
alltaf bjartsýni, létt lund, jákvæðni
og tillitssemi gagnvart öðrum.
Hann var gæddur mikilli frásagn-
argleði og hafði gaman af að
skemmta öðrum með sögum af
mönnum og málefnum sem lýstu já-
kvæðri afstöðu hans til ólíkra mann-
gerða. Fjölbreytileiki mannlífsins
var honum sífellt söguefni en þó án
allrar dómhörku.
Síðasta sumar tók Geiri bróðir að
sér að sjá um smíði á sólskála við hús
okkar hjónanna. Hann kom því oft
bæði til að smíða og til að fylgjast
með gangi mála og gefa ráð um fram-
kvæmdir. Við þessar tíðu heimsóknir
kynntumst við Geiri betur og nánar
en nokkurn tíma áður. í lok sumars-
ins kom svo í ljós að hann var með
krabbamein og að tvísýnt væri með
árangur af erfiðri meðferð sem í
vændum var. Mikið fannst mér for-
sjónin þá óréttlát. Hann, sem vildi
öllum vel, átti þetta ekki skilið.
Ég er ólýsanlega þakklát fyrir það
núna að hafa fengið þetta tækifæri í
fyrrasumar til að kynnast Geira
svona vel og eins er ég ánægð með að
hafa þennan fallega sólskála, sem
veitir mér svo mikla gleði, tengdan
minningu minni um Geira.
Lífið lék ekki alltaf við Geira en
það var mikið lán fyrir hann að eiga
góða konu eins og hana Dildu sem
stóð alltaf með honum í gegn um
þykkt og þunnt í 35 ára hjónabandi.
Það var ekki lítið álagið á henni núna
í veikindum Geira. Hann var mjög
hreykinn af börnunum sínum, Krist-
jáni, sem rak trésmíðaverkstæði með
honum og Önnu Brynju sem býr í
Svíþjóð og Geiri hefði viljað hitta oft-
ar.
Elsku Dilda mín, Kristján, Anna
María, Andrea Kristín, Anna Brynja
og fjölskylda, ég votta ykkur öllum
mína dýpstu samúð og vona að góðar
minningar ykkar um Geira létti ykk-
ur missinn. Þó við hefðum viljað hafa
hann lengur hjá okkur verðum við að
hugga okkur við hvað það er mikill
léttir fyrir hann að losna við kvalim-
ar.
Marta.
Fæðast og deyja í forlögura
frekast lögboð eg veit,
elskast og skilja ástvinum
aðalsorg mestu leit,
verða og hverfa er veröldum
vísasta fyrirheit,
öðlast og missa er manninum
meðfættájarðarreit
Lífið er stutt, og líðun manns
líkt draumi hverfur skjótt,
fmst þó mjög langt í hörmum hans,
hjartaðnærmissirþrótt,
kristleg frelsun krossberans
kemur aldrei of fljótt,
erfiðisdagur iðjandans
undirbýrhvíldarnótt.
Kærleikur hreinn þá knýtir bönd
kringum tvö blómguð strá,
dregur fýrst saman önd að önd,
einingumyndarþá,
samverkar munni sál og hönd,
rfisdrykkjur í Veislusalnum
Sóltúni 3, Akógeshúsinu,
fyrir allt að300 manns.
EINNIG LETTUR HADEGISMATUR
MEBKAFFI OG TERTU A EFTIR - SAMA VERÐ
. sl<o&ia
Íual.rtl*
hJá okkur
° ooh'nul
VEISLAN
G3
Glcesilegar veitingar frá Veislunni
Austurströnd 12 »170 Seltiomames ■ Simi: 561 2031 ■ Fm: 561 2008
VEITINGAELDHfjS
www.veislan.is
03
Legsteinar
Vönduð íslensk framleiðsla
Fáið sendan myndalista
MOSAIK
Marmari
Granít
Blágrýti
Gahhró
Líparíi
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
sem í kringum hann voru allt fram á
síðustu stundu.
Margt kemur upp í hugann við frá-
fall svo kærs vinar sem Hrafnhildur
systir og mágkona kynnti okkur fyr-
ir árið 1962. Hún aðeins 16 ára og
hann 17. Hann vann þá og hafði unn-
ið síðan hann var 15 ára á gömlu síðu-
togurunum. Þau urðu strax óaðskilj-
anleg og byrjuðu fljótlega að búa
saman. Hann kom þá í land og fór að
nema húsasmíði hjá húsasmíða-
meistaranum Magnúsi Vigfússyni.
Hélt Geiri mikið upp á hann og sagði
hann okkur oft sögur af honum með
mikilli virðingu. Lauk hann námi
sínu við Iðnskólann í Reykjavík árið
1967 og sem meistari frá sama skóla
1973.
Hann starfaði alla tíð sem húsa-
smiður og lengst af sem sjálfstæður
atvinnurekandi.
Þegar sú raunalega staðreynd
rennur upp að Geiri er ekki lengur
meðal okkar koma upp í hugann
ýmsar minningar um samverustund-
ir í bæði blíðu og stríðu með þeim
Dildu og Geira en þau giftu sig 14.
nóvember 1964 og eignuðust tvö
börn - Kristján og Önnu Brynju.
Mikið samneyti var á milli fjöld-
skyldna okkar systranna enda böm-
in okkar á svipuðum aldri. Margt var
gert sér til gamans, farið í útilegur á
gömlu bílskrjóðunum okkar. Á þess-
um tíma áttum við bara börn, skuld-
ir, hvort annað og bjartsýni á fram-
tíðina. Alltaf hafði Geiri tíma til að
aðstoða okkur með sínum hagleiks
smiðshöndum. Gluggar voru smíðað-
ir, hurðir settar upp, veggir voru
klæddir og speglar Úmdir upp. Alltaf
alveg sjálfsagt, bara að nefna það.
Þannig var hans lífsstíll.
Geiri var ákaflega vel lesinn og
víðsýnn, hafði gaman af því að rök-
ræða um allt mögulegt milli himins
og jarðar og sjá skoplegu hliðamar á
hlutunum. Orðheppinn var hann með
eindæmum. Islendingasögurnar
vom honum ákaflega kærar og upp-
áhaldsskáldið hans var Bólu-Hjálm-
ar.
í veikindum sínum sýndi hann
mikinn sálarstyrk, kraft og hu-
grekki, ekki hvað síst þegar eigi var
lengur við meinið ráðið, það verður
okkur öllum ógleymanlegt. Systir
mín og mágkona hugsaði um elskuna
sína með hjálp barna sinna af mikilli
alúð og naut aðstoðar Heimahlynn-
ingar Krabbameinsfélagsins þar til
yfir lauk. Án þeirra hefði þeim ekki
verið kleift að líkna honum heima.
Fyrir hönd systur minnar, barna
þeirra, tengdabarna og bamabama
fæmm við því elskulega fólki sem
þar starfar hugheilar kveðjur og
þakklæti fyrir umhyggjuna, alúðina
og kærleikann sem þau sýndu á með-
an veikindum Geira stóð. Guð blessi
starfið ykkar ætíð.
Mánarspýturfallafrá,
fárranýturgæða,
hvarsemiíturaugaðá
yfirflýturmæða.
Adams gjalda arfar með,
angriðfaldarhjörtu,
hel um kaldan hjóna beð
hefir tjaldað svörtu.
(Bólu-Hjálmar.)
Elsku vinur, við kveðjum þig með
söknuði. Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Blessuð sé minning Sigurgeirs
Gunnarssonar.
Svava og Erlingur Snær.
Hetjulegri baráttu Sigurgeirs
Gunnarssonar við illvigan sjúkdóm
er lokið. Hann sýndi hversu ótrúlegt
andlegt þrek manninum er gefið til
að takast á við örlög sín þegar syrtir
að. Framundir það síðasta stundaði
hann vinnu sína sárþjáður við smíðar
á verkstæði sínu. Geiri, eins og hann
var oftast kallaður, var greindur vel
og hafði ákveðnar skoðanir á hlutun-
um og lét þær óhikað í ijós. Hann var
fróðleiksfús, las mikið, hafði stál-
minni og sérstaka frásagnargáfu.
Seint gleymast þær ánægju-
stundir er fjölskyldan kom í heim-
sókn til okkar vestur í Dali, er við
bjuggum þar. Þá var oft glatt á <
hjalla, mikið spjallað og hlegið, oftai-
en ekki hafði Geiri sögur á takteinum
af kynlegum kvistum sem hann
kynntist bæði til sjós og eins er hann
kom í land og fór að læra trésmíði.
Kæri vinur. Okkur langar að
þakka þér fyrir allar þær fjölmörgu
ánægju- og samverustundir sem við
áttum saman allt frá fyrstu kynnum.
Þú varst ætíð hrókur alls fagnaðar
og naust þín vel í góðra vina hópi. Að
leiðarlokum biðjum við guð að blessa
minningu þína. *
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
GekkstþúmeðGuði,
Guðþérnúfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hfjóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Dilda systir, Anna Brynja,
Stellan, Lísa Katla, Kristján, Anna
María og Andrea Kristín, við biðjum
góðan guð að blessa ykkur og styrkja
ísorgykkar.
Friðborg (Bíbf), Birgir
og fjölskylda.
smumtilgangina,
verkið er stórt, en völt sú rönd,
sem verður að byggjast á.
(Bólu-Hjálmar 1845.)
Á sjómannadaginn 4. júní lauk
miklu veikindastríði, sem í um tíu
mánuði var háð við krabbamein. Þá
lauk sinni jarðvist hér elskulegur
mágur, svili og vinur okkar Sigurgeir
Gunnarsson, alltaf kallaður Geiri.
Hann missti aldrei móðinn, ætlaði að
sigra og barðist fram undir það síð-
asta. Hann var í vinnunni þar til einni
viku fyrir andlátið, krafturinn var
óskiljanlegur og hugrekkið. Hann
gerði að gamni sínu við okkur og alla
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Fossvogi
Sfmi 551 1266
www.utfor.is
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþ j ónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
71
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Baldur
Frederikseti
útfararstjóri,
stmi 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is