Morgunblaðið - 14.06.2000, Side 65

Morgunblaðið - 14.06.2000, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 65 GUÐJONINGI MAGNÚSSON + Guðjón Ingi Magnússon fædd- ist 27. aprfl 1976. Hann lést fimmtu- daginn 1. júm' síðast- )liðinn. Foreldrar hans eru Magnús Sig- | urðsson, f. 30 október 1949, og Aðalheiður Birgisdóttir, f. 8. febrúar 1955. For- eldrar Magnúsar voru Sigurður Gísla- son, f. 29. desember 1913, d. 29. desember 1983, bóndi í Kols- holti í ViIIingaholts- hreppi og Helga Þórlaug Guðjóns- dóttir, f. 24 ágúst 1918, d. 21 ágúst 1980. Foreldrar Aðalheiðar eru Ólöf Krisljánsdóttir, f. 3. apríl 1936, og fósturfaðir Ágúst Guð- jónsson, f. 1. ágúst 1920. Systkini Guðjóns eru: 1) Þorssteinn Magn- ússon, f. 11.2.1970. Kona hans er Þóra Sumarlína Jónsdóttir. Börn þeirra eru Bryndís Jóna Sveinbjörns- dóttir, Guðfinna Jenný Þorsteinsdótt- ir og Þorsteinn Daní- el Þorsteinsson. 2) Ir- is Björk Magnúsdótti f. 14.12.1973. Maður hennar er Jón Ari Guðbjartsson. Sonur þeirra er Sindri Magnús. 3) Ólöf Ósk Magnúsdóttir, f. 19.3 1979. Maður hennar er Steindór Guð- mundsson. Dóttir þeirra er Mar- grót Helga Steindórsdótti. 4) Helga Skúla Magnúsdóttir, f. 7.8.1980. Sambýlismaður hennar er Amar Brynjarsson. Barn þeirra er Brynjar Breki Amarsson. Útför Guðjóns Inga fór fram frá Selfosskirkju 10. júní. Að morgni fimmtudagsins 1. júní bárust þau hörmulegu tíðindi til okk- ar í Kolsholti að ungur frændi og vin- ur hefði látist í hörmulegu slysi þá um morguninn. Þvílíkt reiðarslag, að eitt símtal skuli geta breytt fögrum morgni í dimma nótt. Guðjón Ingi var eitt af mörgum sumarbörnum sem hjá okkur hafa dvalið. Ungur kom hann í sveitina til frænda síns og hans fjölskyldu og varð strax einn af okkur. Frá sjö ára aldri þar til að hann varð 19 ára kom hann um leið og vorið og fór um leið og fai’fuglarn- ir á haustin auk margra helga og um annan frítíma. Hann elskaði sveitina f og dýrin. Það er mikill fjársjóður að eignast vináttu og ást þeirra barna ! er hjá okkur dvelja. Guðjón Ingi er þar efstur á blaði. Hann var okkur ákaflega kær. Þeh- sem búa í sveit og eru með bindandi búskap vita hvað oft getur verið erfitt að skreppa frá. Við vorum svo lánsöm að eiga Guð- jón Inga að. Það var ekki langt liðið á þetta ár er hann hringdi til frænda síns, hvenær þyrfti hann á hjálp hans að halda í sumar? Gæti hann gert eitthvað um sláttinn ef hann tæki sumarfrí í ágúst. Ég sé hann fyrir 9 mér koma upp tröppurnar, stóran og þrekinn með bjart bros á andlitinu og kasta fram sinni vanalegu kveðju „sæl verið þið“. Það var ákaflega auðvelt að hafa Guðjón á heimili. Ef stund gafst frá daglegum verkum var oftast kíkt á bókaskápinn eða sest við sjónvarp. Honum leiddist aldrei. Hann var mjög barngóður og hændust öll börn að honum. Ef tal barst að bílum eða traktorum var Guðjón í essinu sínu. Þar var hann á ll heimavelli. Já, minningarnar eru óteljandi og við geymum þær öll með okkur á sinn hátt. í dag ríkir mikil sorg hér hjá okkur í Kolsholti. Það verður ekki oftar hringt frá Gauja mínum og sagt: Er í lagi ég komi og verði hjá ykkur um helgina? Já, missir okkar er mikill. Ég bið m Guð að styrkja foreldra og systkini Gauja, ömmu og afa og litlu systkina- börnin og okkur öll, ástvini hans. % Hann mun ávallt lifa í hjörtum okk- ar. Við gleymum honum aldrei. Ég kveð hann með sömu kveðju og ég gerði oftast: Bless, elsku Gaui minn, þakka þér fyrir allt sem þú ert búinn að gera fyrir mig. Guð blessi minn- ingu Guðjóns Inga. Eydís. Það voru harmafregnir sem okkur bárust þann 1. júní. Guðjón Ingi frændi okkar var dáinn. Gaui eins og við kölluðum hann alltaf var okkur systkinunum mikill félagi og náinn vinur. Það var alveg sama hversu langt leið á milli þess að við hittumst, alltaf var viðmót hans og vinskapur okkar sá sami. Gaui var góð sál og vinur sem hægt var að treysta. Hann stóð alltaf við það sem hann sagði og vildi alltaf hjálpa ef eitthvað bjátaði i á. Alltafvar stutt í hláturinn hjá hon- um. Gaui var í sveit á heimili okkar í I- ellefu sumur samfleytt. Það var eins og sjálfsagður hlutur að Gaui kæmi hvert sumar, maður bjóst alltaf við honum. Hann var sjö ára gamall þeg- ar hann var hjá okkur fyrst fram til 19 ára aldurs og var vinnumaður hjá pabba síðustu sumrin sín. Þar sem Gaui bjó á Selfossi var ekki langt í sveitina til okkar og kom hann oft einnig um helgar og á öðrum frídög- um á vetuma og var hjá okkur. Má segja að sveitin hafi verið hans ann- að heimili. Gaui var okkur tveimur yngstu systkinunum sem bróðir. Þar sem þrjú elstu syskini okkar voru löngu farin að heiman vorum við þrjú í heimili ásamt mömmu og pabba. Gaui montaði sig líka oft af því að hann ætti stóran systkinahóp. Það væru systkini sín og svo við krakk- arnir í Kolsholti. Það var margt sem við brölluðum saman í sveitinni. Ekki kom okkur allt of vel saman fyrstu árin, slógumst við eitt sinn svo heiftarlega þegar við vorum að gefa kálfunum að drekka að það endaði með því að Gaui fékk alla mjólkina yfir sig sem átti að fara ofan í kálf- ana. En þegar við urðum eldri breyttist þetta allt saman og endaði í góðrí vináttu. Það eru til margar góðar og skemmtilegar minningar um hann Gauja. Eitt atvik kemur oft upp í huga okkar og hlegið er mikið að en það er þegar hann varð óvart eftir uppi á Hellisheiði í blindbyl. Það var fastur liður hjá Gauja í mörg ár að fara alltaf með okkur til Reykjavíkur í verslunarferð fyrir jólin. I einum af þessum ferðum gerði mikinn snjóbyl á leiðinni yfir fjallið. Pabbi var alveg hættur að sjá út vegna snjós á rúðu- þurrkunum þannig að hann bað Gauja að fara út og hreinsa þær fyrir sig. Jú, jú, það var nú lítið mál fyrir Gauja en þegar hann ætlaði að koma inn í bílinn eftir það opnaði hann bíl- hurðina en settist ekki inn heldur lokaði aftur og ákvað að hreinsa aft- urrúðuna einnig. En pabbi vissi það ekki og hélt að Gaui væri kominn inn og bara brunaði af stað og Gaui stóð uppi á Hellisheiði í blindbyl og horfði á eftir bílnum. En Guði sé lof þá vor- um við Helgi aftur í og örguðum að Gaui væri ekki í bflnum. Gaui var alltaf fús til að sjá um búið með okkur krökkunum svo mamma og pabbi gætu skroppið í ferðalag eða á hestamót á sumrin. Hann var með mikla bfladellu og kepptist við að eiga kraftmesta og flottasta bflinn. Einnig var Gaui dug- legur við að þolprófa vélarnar í sveit- inni hjá okkur og var ekki til sá traktor á bænum sem Gaui hafði ekki fest og sú heyvinnsluvél sem hann hafði ekki brotið. Það var síðast nú í maí þegar ég hélt upp á afmælið mitt sem ég sá Gauja síðast. Ekki grunaði mig þá að það yrðu okkar síðustu samskipti. Þegar Gaui var mættur á svæðið og þurfti svo að skreppa frá og ég spurði hvort að hann kæmi ekki aft- ur sagði hann: Jú, auðvitað, það má ekki vanta fjórða bróðurinn. Hann gaf mér fallegan blómvönd og mynd af sjálfum sér í ramma; mynd sem flestir myndu ekki gefa af sjálfum sér en Gaui sá húmorinn í henni og gaf mér. Nú í dag er þetta dýrmæt- asta gjöfin mín. Elsku hjartans Gaui. Sorg okkar er mikil vegna missis okkar og hjarta okkar er í molum sem mun taka langan tíma að púsla aftur sam- an. Þú varst okkur ómetanlegur vin- ur. En minning okkar um indælan vin og frænda hjálpar okkur í gegn- um sorg okkar. Élsku Gaui, við sökn- um þín, vonandi líður þér vel núna. Við munum aldrei gleyma þér og ekkert mun koma í þinn stað. Guð geymi þig, elsku hjartans vinur. Við elskum þig. Elsku Maggi, Adda, íris, Olla, Helga og Steini. Guð veri með ykkur í sorg ykkar. Þín frænka og frændi, Sigurdís Lilja og Helgi Þdr. Tíunda júní sl. var til moldar bor- inn elskulegur frændi minn og syst- ursonur, Guðjón Ingi Magnússon. Ég á bágt með að trúa að ég eigi ekki eftir að sjá þig oftar, elsku Gaui minn. Allt gerist svo snöggt og eftir stöndum við sorgmædd og vitum ekki okkar rjúkandi ráð. Minningin um þig lifir í hjörtum okkar. Elsku Adda, Maggi, systkini og við öll, söknuðurinn er sár og missir- inn mikill, en vegna þess hvað okkur þótti vænt um hann verðum við að sætta okkur við þær ákvarðanir sem eru teknar og við fáum ekki rönd við reist. Guð gefi Gaua okkar frið og okkur hinum líkn á erfiðum stundum. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. þig umveQi blessun og bænir, égbið aðþúsofirrótt Þó svíði sorg mitt þjarta, þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þínveröld erbjörtáný. Ég þakka þau ár sem ég átti þáauðnuaðhafaþighér. Og það er svo margt að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfln úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er Ijós sem lifir oglýsirumókomnatíð. (Þórunn Sig.) Ástarkveðjur, Axel og Ingveldur. „Sorgin er gríma gleðinnar. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft- ur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. En ég segi þér, sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þínu, og þegar önnur situr við borð þitt, sefur hin í rúmi þínu.“ (Spámaðurinn.) Gaui frændi er dáinn. Þetta eru þær verstu fréttir sem ég hef fengið og þær síðustu er ég átti von á. Mikill söknuður greip um sig í brjósti mínu og tárin streymdu niður kinnar mínar. Margar góðar stundir áttum við saman og þær lifa svo lengi sem ég lifi. Er við vorum komnh’ saman var fátt okkur heilagt. Ósjald- an var okkur skipt út í matartímum, og ég á baðherbergið og þú fram í vaskahús, því ekki gátum við látið al- mennilega. Þegar við lékum okkur saman í haughúsinu í Hrygg á páskadags- morgun komnir í páskafötin og allir urðu æfir því við vorum ekki í húsum hæfir. Frændur eru frændum verstir. Ekki vorum við nú alltaf bestu vinir og slógumst oft í æsku og rifumst. Allar þessar stundir sem við vörðum saman gera það að verkum að þú munt aldrei deyja í bijósti mér. Hvfldu í friði, kæri frasndi. Ágúst Óli. Að vera vakinn um morguninn 1. júní, en það var sá dagur sem móðir mín kom inn í herbergi til mín og sagði: „Haddi minn, sestu upp því ég er með slæmar fréttir. Hann Gaui frændi þinn er dáinn, hann dó í nótt. Hann Magnús pabbi hans var að hringja og láta okkur vita.“ Þetta er einsog mér hefði verið gefið hundraðfalt högg utanundir. Ég vildi ekki trúa þessu í fyrstu en síðan fékk ég hnút í magann og dofn- aði allur upp. Ég brast í grát og tárin streymdu niður. Hvað er annað hægt en að spyrja Guð: Af hverju þurfti hann að fara svona fljótt frá okkur, hann átti svo mikið eftir? En því verður ekki breytt og því verður ekki svarað fyrr en við hittum hann aftur eftir okkar skólagöngu hér á jörðu. Elsku Guðjón frændi, ég á eftir að sakna þín svo mikið að orð verða aldrei nógu mörg til að lýsa því nokk- urn tímann. Þegar ég horfi til baka og fer að riija upp okkar kynni þá finnst mér að sá tími sem við fengum til að kynnast svo alltof, alltof stuttur, já mér finnst það sárt og leitt hvað hann var stuttur, ekki nema sjö ár, því ég kynntist þér ekki almennilega fyrr en þú varst að nálgast 17. árið. Ég hefði viljað þekkja þig frá því að þú fæddist, elsku Gaui minn, því sjö ár eru stuttur tími. En við áttum okkar frábæru stundir saman, það var ekki svo sjaldan sem við fórum saman á böll- in, í bíó, út að borða og svo hlógum við ekki sjaldan að öllu sem við vor- um oft að fíflast með. Það var yndis- legt að heyra þig hlæja því þú varst með svo smitandi hlátur og innilegan að ég hló alltaf með þér og fyrir það verð ég þér ætíð þakklátur og líka fyrir það að vera trúnaðarvinur þinn. Ég reyndi að kenna þér allt sem ég kann og að forðast öll þau mistök sem ég hef gert á minni tíð. Við rif- umst tvisvar en það gerði okkur bara að betri vinum, en ég hefði viljað segja þér svo margt og miklu meira, en það verður bara að bíða þar til ég hitti þig aftur. Ég fékk þó að hitta þig síðasta kvöldið um eittleytið, þú varst svo hress og kátur og leist svo rosalega vel út, og ég sagði það líka við þig. „Takk fyrir það,“ sagðir þú og bættir svo við: „Farðu nú að taka á því, Haddi bumba!“ og hlóst svo og glottir, „því annars springur þú einn daginn." Svo hlógum við eins og við gerðum oft saman. En elsku Gaui, þú ert eitt af skær- ustu ljósunum í lífi mínu, þú gafst mér hamingju, ást, gleði og sorg og fyrir það vil ég þakka þér, foreldrum þínum og Guði fyrir að fá að kynnast þér. Megi drottinn vernda þig og þína í nýju ljósi og veita ykkur öllum styrk. Takk fyrir allt sem þú gafst af þér, elsku frændi og vinur. Elsku Maggi, Adda, Steini, íris, Olla og Helga. Ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur í sorg ykkar, megi Guð senda ykkur alla þá vemd og allan þann styrk sem hann á um ókomna tíð, svo og bömum ykkar og fjölskyldu, frændfólki og vinum. Guð blessi ykkur öll. Ykkar frændi og vinur, Hafsteinn Már. Ég á aldrei eftir að gleyma fimmtudeginum 1. júní þegar hringt var í mig og mér sagt að Gaui hefði fallið í Ólfusá, ég einfaldlega brotn- aði niður og hef verið hálflamaður af sorg síðan þá. Ég kynntist Gauja fyrst tólf ára gamall og urðum við fljótt mjög góðir vinir. Þessi vinátta var einstök og entist hún allt til hins síðasta. Þó samband okkar hafi vissulega rofnað svolítið síðustu árin, vegna búsetu, þá var sönn vinátta alltaf til staðar, og minnist ég þess ekki að okkur hafi nokkum tímann orðið sundurorða. Svona var Gaui alla tíð, einstaklega trúr vinum sín- um og bar ég alltaf mikla virðingu fyrir honum vegna þess. Ekki get ég rifjað allt upp sem við Gaui upplifðum saman, til þess þyrfti tugi blaðsíðna, en þessar minningar munu alltaf lifa í huga mínum, minn- ingin um einstakan vin. Elsku Gaui minn, það veitir mér mikla hlýju að vita af því að þú hafir hugsað um mig og verið að tala um mig nokkmm tímum fyrir þetta ^ - hræðilega slys, þú varst að tala um að þú þyrftir endilega að skella þér í bæinn og kíkja í heimsókn til mín og Margrétar, af því það væri svo langt síðan við hefðum sést. Það máttu vita, að þú varst alltaf velkominn, og veit ég að þú munt eflaust fylgjast með okkur í framtíðinni. Einnig vil ég að þú vitir, að hin frábæra afmæl- isgjöf, sem þú gafst mér á tvítugs- afmæli mínu, hefur fengið nýtt hlut- verk, og hef ég komið henni fyrir uppá ísskáp hjá mér. Að lokum vil ég segja að þó þú haf- "* ir oft kallað mig Jóa hetju, þá varst það þú sem varst hetjan og munt alltaf verða. Elsku Adda, Maggi, íris, Olla og Helga, þið eruð öll frábær og þakka ég fyrir að hafa fengið að kynnast ykkur og allar næturnar sem ég gisti hjá ykkur hér forðum þegar við Gaui fórum á böll. Ykkur og Þorsteini votta ég mína dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur í hinni miklu sorg, því ykkar missir er mestur. Jóhann Þorláksson. + Alúðar þakkir fæmm við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, ELSU HAIDYAR ALFREÐSDÓTTUR, Funalind 13, Kópavogi. Við biðjum þann hæsta Himnasmið að gefa yður öllum farsæld og frið um ókomna ævidaga. Erlingur Hansson, Alfreð Svavar Eriingsson, Guðrún Sigurðardóttir, Búi Ingvar Erlingsson, Anna Gunnhildur Jónsdóttir, Hanna Erlingsdóttir, Karl Arnarson og barnabðrn, Agnar Búi Alfreðsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför eignkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTU JÓNSDÓTTUR, Efstaleiti 14, Reykjavík. Árni Gestsson, Jónína Árnadóttir, Gestur Árnason, Judith Hampshire, Börkur Árnason, Lisa-Lotta Reynis Andersen, Ásta Árnadóttir, Jón Grétar Margeirsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.