Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 66
MORGUNBLAÐIÐ
^66 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
MINNINGAR FRÉTTIR
BJÖRN ÞÓRARINN
ÁSMUNDSSON
+ Björn Þórarinn
Ásmundsson
fæddist í Nýjabæ í
Vestmannaeyjum 6.
janúar 1918. Hann
lést 3. júní síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Hafnar-
kirkju 12. júní.
Mig langar að
kveðja þig, elsku
pabbi, með nokkrum
minningarbrotum en
þau eru mörg á líf-
sleiðinni. Þú varst
lengst af sjómaður,
vélstjóri, eins og tíðkaðist í þá
daga, og síðar vélgæslumaður í
frystihúsinu. Fast var sóttur sjór-
inn þótt bátar væru minni og ekki
eins kostum búnir og í dag. Það
þurfti að vinna fyrir stórri fjöl-
skyldu, sjö börnum, sem öll þurftu
sitt. Oft beið maður niðri á
bryggju til að taka á móti bátum
þegar þeir konju. að landi. Ég man
líka að við vorkenmium pabba þeg-
ar hann var að fara í myrkri og
kulda snemma á morgnana út á
sjó. Syo þegar við fórum í skólann
• ,þá séttdst að manni þeygur ef sjáv-
arhljóðið var mikið.. Pubbi naut
þeirrar gæfu að vinna frám undir
áttræðisaldur enda var hann vel á
sig kominn. Nokkrar af mínum
bestu minningum erú þegar við
Hreinn fórum að ferðast með ykk-
ur eftir að við fluttum á Höfn. Það
var farið í Lónið í steinaleit, á fjör-
ur og að veiða svo fátt eitt sé
nefnt. Pabba og Hreini kom vel
saman og myndaðist sérstök vin-
átta þeirra á milli sem var gagn-
kvæm. Við fórum líka saman í ykk-
ar fyrstu ferð til
sólarlanda. Þú varst
nú ekki alveg viss um
að það ætti við þig en
annað kom á daginn.
Þið fóruð margar
ferðir eftir þetta því
ykkur fannst það ynd-
islegt. Þið tengda-
feðgar fóruð saman í
ykkar síðustu sólar-
landaferð fyrir þrem-
ur árum og var það
gert fyrir okkur.
Pabbi minn, þú
varst alltaf svo
hraustur og ungur í
anda og líkamlega vel á þig kom-
inn þar til hjartað fór að bila. En
þú sagðir alltaf að það væri allt í
lagi fram á síðasta dag. Fyrir hálf-
um mánuði varstu svo vongóður og
bjartsýnn að þú ákvaðst að kaupa
þér nýjan bíl til að auðvelda ykkur
mömmu að komast í sumarbústað-
inn ykkar í Lóni sem þið nutuð svo
vel að fara í og skoða fallegu trén
ykkar sem þið gróðursettuð. En
síðan þú hættir að vinna hafið þið
mamma notið þess að aka um
sveitirnar og njóta fallegrar nátt-
úru. Elsku mamma, ég bið guð að
styrkja þig í sorg þinni og veit að
hann leggur líkn með þraut.
Eg þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnagt,
svo margt sem um huga minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós semíifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Valdís Þórarinsdóttir.
Alyktanir frá 30. þingi Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
Aðgengi fyrir alla - þjóð-
félag án þröskulda
Ljósmynd/Jón Gunnlaugsson
Amór Pétursson, formaður Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra.
30. ÞING Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, haldið á Akranesi
dagana 2.-4. júní sl., hafði ferilmál
að aðalumfjöllunarefni. Það er engin
tilviljun að svo er, því forsenda þess
að fatlaðir geti lifað sem eðlilegustu
lífi er að öll aðgengismál séu í lagi.
Það eru mannréttindi að fólk komist
á sem auðveldastan hátt ferða sinna,
t.d. vegna náms og atvinnu, segir í
fréttatilkynningu frá Sjálfsbjörgu.
Því skorar þingið á stjórnvöld að
láta gera úttekt í öllum sveitarfélög-
um á aðgengi að öllu húsnæði og úti-
vistarsvæðum ætluðum almenningi.
Úttektinni og áætlunum um úrbæt-
ur verði lokið eigi síðar en í árslok
2001. Þá liggi fyrir hverju er ábóta-
vant og hvernig stjórnvöld hyggist
bæta úr og fyrir hvaða tíma.
Greiðar almenningssamgöngur
eru mannréttindi. Því þarf að
tryggja öllum greiðan aðgang að al-
menningsfarartækjum. Verði því
ekki við komið þarf að tryggja
ferðafrelsi hreyfihamlaðra með sér-
úrræðum sem ekki skerða sjálf-
stæði einstaklinganna. Þetta gildir
um almenningsvagna innanbæjar,
sérleyfisbifreiðir, flugsamgöngur og
ferjur.
Sjálfsbjörg skorar á ríkisvaldið að
setja lög sem tryggi samgöngur fyr-
ir alla. Kjörorðið er: Aðgengi fyrir
alla inn í nýja öld.
30. þing Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, lýsir því yfir að
Sjálfsbjörg geti ekki samþykkt
frumvarp til laga um félagsþjónustu
sveitarfélaga, sem lagt var fyrir á
Alþingi á 125. löggjafarþingi 1999-
2000 nema eftirfarandi verði tryggt;
I fyrsta lagi að réttarstaða fatlaðra
verði betri en hún er nú og í öðru
lagi að tryggt verði nægjanlegt fjár-
magn til að sveitarfélögin geti sinnt
þeim verkefnum sem þeim er ætlað
í frumvarpinu.
Vegna þeirra umræðna sem hafa
verið í fjölmiðlum undanfarið um
lausn húsnæðismála fyrir hóp fat-
laðra með flutningi þeirra til Hrís-
eyjar, vill 30. þing Sjálfsbjargar
álykta eftirfarandi: Sjálfsbjörg
hafnar ekki þeirri lausn fyrir þá
sem það kjósa að búa í Hrísey en
meginreglan á að vera sú að búset-
uvandamál fatlaðra séu leyst í
þeirra heimabyggð.
ÁSTA
JÓNSDÓTTIR
+ Ásta Jónsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 18. desember
1920. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 26. maí
siðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Dómkirkjunni 5.
júní.
Harmafregnir gera
sjaldnast boð á undan
sér. Á svipstundu
verður lífið dauflegra
og tómlegra. Andlát
vinkonu minnar Ástu
Jónsdóttur bar snöggt að; hélunótt-
in skall óvænt á og hin trygga og
yndislega kona var horfin úr lífi
okkar. Þegar góðir og mætir ein-
staklingar, sem gert hafa líf okkar
betra og fyllra, yfirgefa heim okkar,
myndast tóm sem erfitt reynist að
fylla. Orð verða vanmáttug. Engu
að síður langar mig til að þakka
Ástu samfylgdina með nokkrum fá-
tæklegum setningum. Ásta hafði til
að bera hlýju og líknarmátt sem að-
eins gjafmildu og miklu fólki er gef-
inn. Viska hennar og
skörp dómgreind gerði
hana einstaklega færa
um að miðla málum.
Mannkærleikur Ástu
var rómaður og nutu
hans fjölmargir og
ekki síst þeir sem
minna máttu sín. Ég
bar gæfu til að fylgjast
með innilegu og ást-
ríku sambandi hennar
og ejginmannsins Ár-
na. Ég votta þeim öll-
um innilega hluttekn-
ingu mína og samúð.
Ég veit að missir hans
og barna þeirra fjögurra er mikill
en huggun harmi gegn eru hinar
sterku og fallegu minningar um
Ástu sem eftir sitja.
Háa skilur hnetti
himingeimur
blað skilur bakka og egg
en anda sem unnast
fær aldregi
eilífð að skilið.
(Jónas Hallgr.)
Ingibjörg Eyþórsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
ÁRNA BJÖRNSSONAR
húsasmiðs,
Grandavegi 47,
sem iést á Benidorm 26 maí.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Samvinnuferðar Landsýnar.
Guðrún Hallgrímsdóttir,
Stefán Árnason, Sigurrés Kristjánsdóttir,
Sigurlaug Árnadóttir, Ingvar Isebarn,
Rósa Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Gengið og
siglt milli
hafnarsvæða
Samstarfsráð-
herrar funda
í Færeyjum
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð og sjóferð í
kvöld, miðvikudagskvöld, milli
gömlu hafnarinnar og Sundahafnar.
Farið verður frá Hafnarhúsinu,
Miðbakkamegin, kl. 20 út í Suður-
bugt og síðan með höfninni og
ströndinni ínn í Laugarnes og
Klettavör í Sundahöfn. Þar verður
val um að ganga til baka, fara með
SVR eða sigla með ströndinni á í/h
Skúlaskeiði að Miðbakka. Á leiðinni
inn að Kirkjusandi verða skoðuð úti-
listaverk og þaðan verður hópurinn í
fylgd Þorgríms Gestssonar. Állir vel-
komnir.
SIV Friðleifsdóttir, umhverfisráð-
herra og norrænn samstarfsráð-
herra, mun sitja fund samstarfs-
ráðherra Norðurlanda sem haldinn
verður í Færeyjum í dag, 14. júní.
Á fundinum verða m.a. til um-
ræðu og væntanlegrar ákvarðana-
töku fjárlög Norrænu ráðherran-
efndarinnar fyrir árið 2001.
Upphæð þeirra árið 2000 er rúmir
7 milljarðar króna.
Ráðherrarnir munu einnig ræða
samþættingu jafnréttis á öllum
sviðum norræns samstarfs, fram-
hald norræna þjónustusímans og
tillögur til gagngerra breytinga í
uppbyggingu og vinnuferli nor-
rænna fjárlaga.
Siv Friðleifsdóttir mun jafn-
framt eiga fund með umhverfis-
ráðherra Færeyja.
Ur dagbók lögreglunnar
Lögreglumaður
var bitinn í eyra
Auðgunarbrot
Tilkynnt var um 6 innbrot í
heimahús um helgina og 9 innbrot
í bifreiðar. Bifreið var stöðvuð í
akstri á á sunnudagsmorgni, við
leit í bifreiðinni fundust tvö um-
ferðarmerki. Á sunnudag var til-
kynnt um þjófnað á listaverki við
Sæbraut.
Ofbeldisbrot
Aðfaranótt laugardags var mað-
ur fluttur í fangageymslu lögreglu
eftir að hafa ráðist að dyravörðum
við skemmtistað í miðborginni.
Aðfaranótt sunnudags var lög-
reglumaður við störf í miðborginni
bitinn í eyra af manni sem hafði
verið færður inn í lögreglubifreið-
ina vegna óláta. Tilkynning barst
um það að morgni sunnudags að
ráðist hefði verið að manni og
Helgin 9.-12. júní
hann úðaður með gasúða. Maður-
inn var færður á slysadeild þar
sem gasið var skolað af andliti
hans. Gat maðurinn gefið greinar-
góða lýsingu á árásaraðilunum og
voru þrír menn sem eru grunaðir
um verknaðinn handteknir
skömmu síðar.
Umferðarmál
Um helgina voru 55 ökumenn
kærðir fyrir of hraðan akstur og
23 ökumenn grunaðir um ölvun við
akstur. Síðdegis á föstudag var til-
kynnt um umferðarslys í Skeif-
unni, þar var einn fluttur á slysa-
deild með sjúkrabifreið og voru
báðar bifreiðarnar þar óökufærar
eftir áreksturinn. Á laugardag valt
malarflutningabifreið á hliðina á
gatnamótum Suðurlandsvegar og
Vesturlandsvegar. Þurfti að kalla
til tækjabfl Slökkviliðs til að klippa
ökumann út úr bifreiðinni. Á að-
faranótt sunnudags var tilkynnt
um umferðarslys á horni Nóatúns
og Brautarholts, þrír voru fluttir á
slysadeild og voru báðar bifreið-
arnar taldar ónýtar eftir árekstur-
inn og skráningarnúmer þeirra því
fjarlægð.
Annað
Tilkynnt var um bruna í tveimur
bifreiðum aðfaranótt sunnudags,
annarri í vesturbænum og hinni í
Grafarvogi. Á laugardagsmorgni
var tilkynnt um slys við fallhlífar-
stökk á björgunarsveitaæfingunni
Samverði 2000. Tildrög slyssins
voru þau að línur fallhlífar snerust
eftir opnun hennar og hindraði það
stökkvarann í að stýra fallhlífinni.
Við þetta rakst hann á grjótmel og
slasaðist á ökkla í lendingunni.