Morgunblaðið - 10.08.2000, Page 4

Morgunblaðið - 10.08.2000, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mjög mikilvægt að hraða framkvæmd nýs flugvallar INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, segir mjög mikilvægt að hraða fram- kvæmd nýs flugvallar í grennd Reykjavíkur. Ingibjörg segir að ef allar snertilendingar, æfinga- kennsla og einkaflug verði flutt á nýjan flugvöll verði hægt að fækka hreyfingum á Reykjavíkurflugvelli um 50-80%. Það sé mikilvægt út frá öryggissjónarmiðum, en ekki síður út frá þeirri truflun sem er af Reykjavíkurflugvelli. „Það sama á við um flugvöllinn og önnur umferðarmannvirki að því meiri umferð sem er um völlinn, því meiri líkur eru á því að það fari eitthvað úrskeiðis. Ef hægt er að draga úr flugumferð þá er það heil- mikill fengur. Það má heldur ekki gleyma að hún er það sem truflar íbúana mest,“ sagði Ingibjörg í samtali við Morgunblaðið í gær. Kúagerði hefur verið nefnt sem hugsanlegur staður fyrir flugvöll- inn. Ingibjörg segir að í bókun sem hún og samgöngumálaráðherra gerðu í júní í fyrra hafi verið gert ráð fyrir að flugvöllurinn kæmi inn á flugmálaáætlun fyrir tímabilið 2000-2003. „Ég mun óska eftir að það verði skoðað hvort ekki er hægt að ljúka vellinum árið 2003 i stað þess að hefja framkvæmdir 2003 eins og áætlanir gera ráð fyr- ir.“ I kjölfar flugslyssins í Skerjafirði á mánudagskvöld óskaði Ingibjörg eftir fundi með flugmálastjóra, framkvæmdastjóra flugumferðar- sviðs og framkvæmdastjóra flugör- yggissviðs á Reykjavikurflugvelli til að fara yfir atburðarásina, eink- um, að sögn Ingibjargar, af því komið hafi fram hjá sjónarvottum að vélin hefði flogið lágt yfir Skild- inganesinu. „Maður er alltaf að reyna að tryggja að sú hætta sem er samfara flugi hafi ekki áhrif á jörðu niðri, því flugvélar geta auð- vitað hrapað. Við fórum yfir málið og það liggur nokkuð ljóst fyrir að hverfandi líkur eru á að flugslys i tengslum við flugvöllinn hafi áhrif á jörðu niðri. Það kom fram á fundin- um, sem við vissum, að hættan er mest við flugtak og lendingu. Þá hefur maður ekki síst áhyggjur af norður-suðurbrautinni og norður- enda hennar.“ Ingibjörg segir að það sé sam- dóma álit allra að allt hafi verið með felldu á flugvellinum þegar slysið átti sér stað. „En svona al- varleg slys eins og þetta eru tilefni til að maður fer yfir málin til að vita hvort ekki hafi öllum öryggis- þáttum verið sinnt. Þess vegna gerði ég það. Við fórum líka yfir hvort framkvæmdirnar á vellinum hefðu haft einhver áhrif en það er álit allra að svo var ekki.“ Helgi Olafsson í bók um stórkost- legustu leiki sögunnar „Mikilfeng- legur leikur“ HELGI Ólafsson stórmeistari er einn þeirra skákmanna sem eiga framlag í bókinni „The Most Am- azing Chess Moves of All Time“, eða Stórkostlegustu skákleikir sögunnar, eftir stórmeistarann John Emms. Þar fjallar Emms um 200 bestu leiki allra tíma. Nýverið birtist umsögn um bókina á heima- síðu Kasparovs, http:/Avww.kasp- arov.com/, efth' Jonathan Levitt. Levitt var andstæðingur Helga í skákinni sem fjallað er um í bók- inni, á Reykjavíkurmótinu 1990. Levitt fjallar um leik Helga í dóminum og fer lofsamlegum orð- um um hann. „Það er ekki sérlega góð lífsreynsla að fá á sig stórkost- legan leik. Fyrst trúir maður hreinlega ekki eigin augum. Mað- ur reynir að láta á engu bera og láta svo sýnast að manni hafi ekki algjörlega yfirsést þessi mögu- leiki. Hjartað kippist til þegar maður uppgötvar sannleikann sem mætir manni á skákborðinu," eni upphafsorð umsagnarinnar. Sker sig algjörlega úr Svo heldur áfram: „Hingað til hafa þónokkuð margir leikh- gegn mér staðið uppúr, af öllum þús- undunum, en einn sker sig algjör- lega úr hvað varðar mikilfeng- leika. Þetta var á Reykjavíkurskákmótinu árið 1990. Ég var með svart á móti Helga Ól- afssyni og þótt ég hefði eilitlar áhyggjur af stöðunni hafði ég enga hugmynd um hvað væri í vænd- um.“ Þá fer Levitt yfir skákina og fer illþýðanlegum skákorðum um snilldina. Helgi segist, í samtali við Morg- unblaðið, muna vel eftir þessum leik. „Það er vissulega gaman og mikill heiður að komast í þessa bók og fá þvílíka urnsögn," segir hann. Leitað að spænskum seglskipum Stærsta flakið talið á um 100 metra dýpi HAUSTIÐ 1615 fórust þrjú spænsk skip í ofsaveðri við Strandir. Mann- björg varð, en skipveijamir sem voru frá Baskalandi á Spáni lentu í erjum við landsmenn en þeir munu hafa rænt sér til bjargar. Deilumar enduðu með því að Vestfirðingar vógu alls um 40-50 Baska í Dýrafirði og Æðey á ísafjarðardjúpi. Einn hópur komst hins vegar undan til Patreksfjarðar og era Spánverjamir taldir hafa siglt til Bretlands. Þessir atburðfr eru þekktir sem Spánverja- vígin í íslandssögunni. Engin merki fundust um flakið Árangurslausri leit að stærsta skipinu lauk á mánudaginn eftir fimm daga leit. Bjarai F. Einarsson fomleifafræðingur var leiðangurs- stjóri leitarmanna. Hann segir mjög aðdjúpt á þessum slóðum og því lík- legt að skipið hafi rannið niður snar- bratta hlíð sem nær allt niður á 100 m dýpi. Slíkt dýpi hafi verið köfuran- um ofviða. Alls tóku átta kafarar þátt í leitinni í Naustvík og Ytri-Naust- víkum sem era í norðanverðum Reykjafirði. „Samkvæmt samtíma- heimildum sökk stærsta skipið af þessum þremur þama,“ segir Bjami. „Það er haft eftir Jóni lærða Guðmundssyni sem var alþýðufræði- maður og var sjálfur um borð.“ Engin merki fundust um flakið. Bjami telur ástæðuna vera þá að mest allt góss hafi náðst úr stærsta skipinu sem skemmdist tiltölulega lítið við strandið. Því hafi góssið ekki dreifst um fjarðarbotninn eins og e.t.v. hefði mátt vænta. Hann segir þó ágætar líkur á því að flakið finn- ist, væntanlega í ágætu ástandi. Eft- ir því sem skipsflök liggja dýpra, því heillegri séu þau. Þar sé meiri kuldi, minna súrefni og ekkert Ijós. Til leit- ar þurfi þó betri búnað, m.a. fjar- stýrða neðansjávarmyndavél. Næst leitað að minni skipunum Hin skipin tvö skemmdust meira og annað þeirra mun hafa brotnað í tvennt. Bjami telur góðar líkur á því að hægt verði að finna flök þeirra. Hann segir samtímaheimildir geta þess að þau hafi farist við Kesvogs- kot. I tímans rás hafi hinsvegar stað- setning þess gleymst en Bjami telur sig nú hafa fundið Kesvogskot á ný. Rústirnar sem Bjami telur vera Kesvogskot era utar í Reykjafirði en fjörðurinn grynnkar mjög þegar ut- ar dregur. „Þar era allar aðstæður miklu betri til köfunar. Það verður væntanlega næsta viðfangsefni," sagði Bjarni. Bjami segir að skyggni til köfunar í Reykjafirði hafi verið ágætt. Fyrstu dagana hafi hinsvegar gríðarlegur fjöldi margglyttna gert köfuranum lífið leitt. „Við eram allir með branabletti á vörum og kinn- um,“ sagði Bjami sem sjálfur fékk að kenna á margglyttunum. Leiðangurinn, sem stóð yfir í fimm daga, er samvinnuverkefni Forn- leifafræðistofunnar, Minjavarðar Vesturlands og Köfunarskólans. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Það var furðubáturinn Klði sem fékk flest stig í Furðubátakeppninni á Flúðum. Furðubátakeppni á Flúðum Hrunamannahreppi - Hin árlega furðubátakeppni á Flúðum fúr fram við brúna yfir Litlu-Laxá á sunnudaginn að viðstöddum mikl- um fjölda áhorfenda. Keppni þessi nýtur ávalit mikilla vinsælda og koma sumir áhorfenda um langan veg til þess að fylgjast með keppn- inni. Nú eru tæpir tveir áratugir liðn- ir siðan þessi leikur hófst. Börn eru jafnan aðalþátttakendurnir í keppninni og ríkir mikil spenna á meðal þeirra fyrir og á meðan á keppni stendur. Þó er alltaf stutt í barnið hjá nokkrum fullorðnum, eins og glöggt mátti heyra á djúpum radd- hljómi, þegar leikar stóðu hvað hæst. Fleyin voru aldrei fleiri en nú eða 25 talsins og er ánægjulegt að utansveitarfólk er einnig farið að taka þátt í leiknum. Veitt eru fern verðlaun fyrir frumlegustu bátana, einnig fern verðlaun fyrir tilþrif og siglingakunnáttu og ein fyrir mestu óhappafleytuna. Að þessu sinni var það báturinn Klói sem fékk flest stig, skreyttur fánum Landsbankans. Með þvi að nýta sér þjónustu Heimilislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari vaxtakjörum og umtalsverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi. Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma. @BÚNAÐARBANKINN HEIMILISI-lNAN Traustur banJá www.bLb Frjáls verslun Jakob og Björn beðnir afsökunar MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá Frjálsri verslun: „Svo óheppilega vildi til að rangar upplýsingar birt- ust um þá Jakob Bjamason, framkvæmdastjóra Kers hf., og Björn Leifsson, eiganda World Class, í nýútkomnu tekjublaði Frjálsrar verslunar þar sem birtar era upplýsingar um telqur um 1.700 íslendinga. Jakob var sagður með rúmar 3,3 milljónir króna á mánuði í tekjur á síðasta ári. Rétt tala er 1.237 þús. krónur. Bjöm Leifs- son, eigandi World Class, var sagður með 150 þús. kr. í tekjur á mánuði í fyrra. Rétt tala er 350 þús. kr. Frjáls verslun bið- ur þá Jakob og Björn afsökun- ar vegna þessara mistaka og óþæginda sem þau hafa valdið þeim.“ Ritstj. Fijálsrar verslunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.