Morgunblaðið - 10.08.2000, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 21
NEYTENDUR
Reglur um gæðaflokkun grænmetis
Gæðin verða
meiri og jafnari
NÝLEGA voru
nýjar reglur um
gæðaílokkun ís-
lensks grænmetis
kynntar fyrir
framleiðendum
og munu þeir
prófa að vinna eft-
ir þeim í sumar.
Reglumar eru
hluti af stærra verkefni nokkurra
samstarfsaðila sem miðar að því að
auka gæði íslensks grænmetis.
„Með nýju reglunum aukast gæði
íslensks grænmetis og verða jafnari.
Reglumar em því mikilvægar fyrir
neytendur, söluaðila og framleið-
endur sem munu styrkja stöðu sína
gagnvart innfluttu grænmeti,“ segir
Olafur Reykdal matvaelafræðingur
hjá Iðntæknistofnun. „I framtíðinni
sjáum við fyrir okkur að í verslunum
geti neytendur valið þá gæðaflokka
sem þeim henta.“
Þrír flokkar
Grænmetið verður flokkað í þrjá
gæðaflokka: úrvalsflokk, I. flokk og
II. flokk, en í reglunum em skil-
greindar lágmarkskröfur til ein-
stakra gæðaflokka: þyngdar- og
stærðarkröfur, leyfileg frávik og
kröfur um einsleitni, pökkun og
merkingar. Um er að ræða tómata,
gúrkur, papriku, gulrófur, gulrætur,
blómkál, höfuðkál, kínakál, spergil-
kál, salat, pottasalat, stilksellerí,
blaðlauk og steinselju
Olafur segir þetta viðskiptareglur
sem almennt verði viðhafðar alls
staðar í framtíðinni og að nú þegar
sjái menn mun á grænmetinu eftir
að byrjað var að fara eftir reglunum.
Við gerð reglnanna var tekið mið
af evrópskum stöðlum en íslensku
drögin eru einfaldari og löguð að ís-
lenskum aðstæðum. Reglumar voru
unnar af fulltrúum frá Matvæla-
rannsóknum Keldnaholti, Bænda-
samtökum íslands, Sambandi garð-
yrkjubænda, Nýkaupi og Sölufélagi
garðyrkjumanna.
Olíufylltu
WÖSAB
rafmagnsþilofnarnir
lækka
hitunarkostnaðinn!
• Fallegir, vandaöir
• Geta sparaö allt aö 30%
• Þunnir, taka lítið pláss
• Brenna ekki rykagnir
• Frostvarnarstilling,
hentugfyrir sumarhús
• Margar stæröir,
30eöa60cm háir
• Sérlega hagstætt verð!
Einar
Farestvert&Cohf
V
Borgartúni 28, « 562 2901
www.ef.is
y
Fimmtu
GEfiARD DAREL
FRjENCH CONNECTIOt
NléOLE FARHI
FRtE LANCE
«!Bt J0E
LABEL
omm KLEIN jeans
(auglýst sfðar
LAUGAVEGI
í^óttir á Netinu
0mbUs
ðHKtKKp*
Skeifunni 11 ■ Sími 588 9890 • orninn.is
Opið frá kl. 9-18 virka daga og kl. 10-16 laugardaga