Morgunblaðið - 10.08.2000, Side 31

Morgunblaðið - 10.08.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 31 LISTIR Þú verður að vera á staðnum Stökktu til Costa del Sol 24. ágúst „MÁLVERKUM Anne Katrine verður ekki lýst með orðum og sér- hver tilraun til þess verður að lokum eins og svarthvít eftirprentun í dag- blaði. Þetta vandamál leiðir beint til eins af grunnþáttunum í verkum hennar: Þú verður að vera á staðnum til að sjá og upplifa verkin. Þú verður að standa andspænis verkunum og gefa þeim tíma.“ Svo skrifar Timo Valjakka í sýningarskrána um verk norsku listakonunnar, sem fyrr á þessu ári hlaut Fred-Thieler-verð- launin í Þýskalandi. Anne Katrine Dolven var að leggja lokahönd á undirbúning fyrir sýning- una í galleríi i8, sem verður opnuð í dag. Hún gerði hlé á vinnu sinni til að ræða um verk sín og sýninguna. „Ég er hrifm af salnum, það skiptir engu máli þótt hann sé lítill því aðalatriðin eru birtan og stemmningin hér inni,“ segir hún og dregur upp gardínuna til að hleypa sólarljósinu inn. „Birtan hefur áhrif á lífíð í þeim og þannig spila verkin mín og náttúran saman.“ Bæði málverk og myndbönd Sýningin ber heitið I Hold your Head in my Hands (Ég held höfði þínu í höndum mér) og verður opnuð í dag. Þar er að finna bæði málverk og myndbönd eftir listamanninn. Þetta er í fyrsta skipti sem Anne Katrine heldur einkasýningu hér á landi en áður mun hún hafa tekið þátt í samsýningum. Hún segist lengi hafa haft á prjórmnum að koma hingað og kveður íslendinga eiga marga góð samtíma listamenn. Málverkin sem Anne sýnir eru fimm og flest þeirra gerði hún sér- staklega fyrii' sýninguna hér. Þau eru öll í hvítum tónum en það mun vera algengt í verkum hennar. ,Áður bar ég mikla virðingu fyrir litum og á tímabili voru þeir ráðandi í verkum mínum. Á ákveðnum tíma þegar ég bjó í Berlín fór ég svo aftur að nota hvítan lit. Kannski spratt það af þörf til að vinna gegn öllum grámanum þar.“ Hún bendir á verkið sem henni er næst. „Hvítur er eins og spegill, hann tekur umhverfið inn í sig og endurspeglar það.“ Anne býr einnig til myndbönd sem varpað er á galleríveggi eða sýnd á skjám eða stafrænum skermum. I galleríi i8 er hún með sjónvarp uppi í einu horninu og einnig lítinn staf- rænan skerm. Myndböndin hennar eru hæg og tökuvélin ekki á hreyf- ingu. „Það að ég skuli hafa myndina svona kyrra endurspeglar kannski sjónarhorn myndlistarmannsins. Ég er að ná fram tilfinningu en ekki segja sögu.“ Myndbandið sem sýnt er á litla skjánum heith- Warmth (hlýja) og sýnir heitt egg sem bráðnar í gegn- um snjó. Það fellur niður um svarta holu, þar til hönd birtist sem grípur það. „Þetta myndband tengist hita og kulda og mér finnst eiga vel við að sýna það á íslandi. Það að koma úr kuldanum í hita getur reyndar átt við ótalmargt annað,“ segh’ hún. Á stærri skjá sem festur er upp í einu horni gallerísins er annað myndband sýnt og ber það sama titil og sýningin. Að sögn Anne byggist það á gömlu norsku ástarljóði. Anne Katrine Dolven. Morgunblaðið/Ásdís „Myndbandið sýnir höfuð sem kem- ur að ofan. Það er á hvolfi og tvær hendur halda um það og færa það til meðan hárið fýkur í vindinum," út- skýrir Anne. „Ég er oft spurð að því hvort ég sé myndlistarmaður eða myndbanda- listamaður (videoartist), eins og þetta séu algerlega ótengd listform,“ segir hún. „Það er mér eðlilegt að blanda þessu saman og oftast sýni ég bæði málverk og myndbönd þegar ég held einkasýningar. Samkvæmt minni upplifun byggjast þessi list- form á sömu tilfinningu." í sýningarskránni sem i8 gefur út í tilefni af sýningunni kemur eftirfar- andi fram í texta Timo Valjakka. „Það er ekki mikill munur á málverk- um hennar og myndböndum. Hvort- veggja samanstanda af einni flatri framhlið og fást við ljós, rúm, tíma og skynjun. Á hinn bóginn segja þau einnig frá raunverulegu lífi, frá ham- ingju og sorg, draumum og missi, nautnum og kvíða.“ Anne er sammála þessum ummæl- um og segir að það sé illmögulegt að aðskilja lífið og listina. „Listin er persónuleg og endurspeglar lífs- reynsluna. Ef það gerist eitthvað í lífi þínu gerist einnig eitthvað fyrir list- sköpunina. Ég held að hugmyndir mínar að verkum kvikni bara af því að lifa. Listamenn þurfa að vera meðvitaðir um lifið því þeir nota það í verkum sínum og það eru að mínu mati forréttindi að fást við slíkan efn- ivið.“ Anne bendir á að það sé mikil áskoran að gera verk, sem þarfnast athygli og tíma, fyrir fólk sem hrær- ist í hröðu þjóðfélagi. „Þegar fólk kemur að skoða verkin mín tekur það sér oftast tíma til þess, auðvitað eru einhverjir sem stoppa ekki við en það er þeirra vandamál. Reyndar hef ég tekið eftir að fyrir um tíu árum stóð fólk miklu lengur fyrh’ framan mál- verk, en nú gefur það sér fremur tíma til að skoða myndböndin,“ Hún segist vera ánægð með þá nú- tímtækni sem gerir listamönnum kleift að miðla verkum sínum með hröðum hætti. „Málverkið er meira hægfara,“ útskýrir hún. „Þú verður að koma á staðinn, standa framan við verkið og horfa á það. Með tilkomu Netsins er hins vegar hægt að dreifa myndböndum án þess að ferðast með þau og skoða verk annarra á auð- veldan hátt. Ég vil samt ekki segja að annað listformið sé betra en hitt; mér finnst spennandi að geta sent verk mín samstundis hvert sem er í heiminum en einnig kann ég vel við að fólk þurfi að koma á staðinn og upplifa." Sýningin í i8 stendur til 10. september og er galleríið opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14- 18. Anne ætlar sjálf að vera á Islandi fram á sunnudag og hyggst ferðast um landið. Hún er ekki búin að ákveða hvert hún fer en veit eigi að síður hvað hún vill sjá. „Mig langar að sjá jökla og hveri. Þetta heita og kalda, alveg eins og í myndbandinu mínu,“ segir hún brosandi að lokum. Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol þann 24. ágúst, en vinsældir þessa staðar hafa aldrei verið meiri. Hér finn- urþú frábæra gististaði, glæsilega veitinga- og skemmtistaði, frægustu golf- velli Evrópu, glæsilegar snekkjubátahafnir, tívolí, vatnsrennibrautagarða, glæsilega íþróttaðstöðu og spennandi kynnisfeðrir í fríinu. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Tryggðu þér ótrúlegt tilboð í sólina, bókaðu núna og 4 dögum fyrir brottför, hringj- um við í þig og látum þig vita hvar þú gistir. Verð kr. 45.955 M.v. hjón mcð 2 böm, 2-11 ára, 2 vikur, 24. ágúst, stökktu tilboð. HEIMSFERÐIR Verð kr. 57.390 M.v. 2 í studio, 2 vikur, 24. ágúst. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1600.- Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Fréttir á Netinu 1 kvöld • • • . . • Sigurður B. Stefánsson Hlutabréfarabb Kvöldkaffi meðVlB og Súfistanum bókakaffi í Máli og menningu, Laugavegi 18. I kvöld: 10. ágúst kl. 20:30 - 21:30 Frægir fjárfestar - Warren BufFett og fleiri góðir. Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri VÍB. Sjáumstl VÍB VÍB er hluti af Íslandsbanka-FBA hf. Kirkjusandi • Sími 560-8900 • www.vib.is • vib@vib.is HREYSTI Skeifunni 19 ÆFINGAR- ÚTIVIST- BÓMULL S. 568 1 71 7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.