Morgunblaðið - 10.08.2000, Síða 45

Morgunblaðið - 10.08.2000, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 45 + Sesselja Jó- hanna Guðna- dóttir fæddist í Reykjavík 21. nóv- ember 1929. Hún lést á líknardeild Landspítalans að kvöldi 2. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Agústa Ingi- bjartardóttir, f. 17. nóvember 1907, d. 12. maí 1995, og Guðni Emil Júlíus Kristjánsson, f. 26. júlí 1905, d. 29. sept- ember 1977, bæði frá Þingeyri. Þau skildu 1936. Bræður Sesselju: Kristinn Viktor, f. 15. júlí 1931, dó fárra mánaða gamall, og Hall- dór Viktor, f. 16. júli' 1932, læknir í Bandaríkjunum, d. 15. júlí 1985. Hálfsystkin Sesselju, samfeðra: Reynir, f. 17. ágúst 1943, skóla- stjóri, og Edda-Gunn, f. 24. maí 1947, d. 24. janúar 1952. Sesselja giftist hinn 8. maí 1951 Guðmundi Ibsen skipstjóra, f. 9. ágúst 1926. Þau höfðu þá hafið bú- skap sinn í Reykjavík, og bjuggu þar siðan. Börn þeirra: 1) Krist- ín Guðmundsdóttir, f. 8. september 1951, bankastarfsmaður, maki Krislján Sigur- geirsson kerfisfræð- ingur, f. 8. janúar 1950. Þeirra synir: Sigurgeir Kristjáns- son, tölvunarfræðing- ur, f. 2. júní 1974, og Guðmundur Krist- jánsson, stúdent, f. 10. febrúar 1980. 2) Dröfn Guð- mundsdóttir, f. 11. febrúar 1953, meinatæknir, maki Sigurður Magnús Magnússon, kjarneðlis- fræðingur, f. 12. nóvember 1953. Þeirra börn: Sesselja Sigurðar- dóttir, stúdent, f. 7. maí 1980 og Magnús Sigurðsson, nemi, f. 28. september 1984. 3) Dóttir, f. 17. febrúar 1956, d. 22. febrúar 1956, óskírð. 4) Þórir Ibsen Guðmunds- son, f. 16. október 1959, alþjóða- stjórnmálafræðingur, maki Domin- ique Ambroise, f. 4. júlí 1951, myndlistarkona. Þeirra sonur: Árni Ambroise Ibsen, f. 7. mars 1987, nemi. Sesselja ólst upp í Reykjavík og á Þingeyri og lauk þar barnaskóla. Hún lauk einnig gagnfræðaprófi 1949 frá Gagnfræðaskóla Reykja- víkur með góðum vitnisburði og hvatningu til frekara náms, en erf- iðar aðstæður hömluðu frekari skólagöngu sem hugur hennar og hæfileikar stóðu þó til. Hún stund- aði þó nám við Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1950. Við tóku húsmæðrastörfin og uppeldi barnanna. Er börnin uxu úr grasi hóf hún „útivinnu“, sem svo var kallað. Hún starfaði sem lækna- ritari í Reykjavík, og um skeið við afgreiðslustörf í apóteki. Þá tók við starf deildarritara á Landakots- spítala til fjölda ára, og fann hún sig þar vel í starfi, þótt álag væri oft mikið. Síðustu 12 starfsárin vann hún hjá Landsbanka Islands, fyrst á Laugavegi 77, en síðar í að- albanka í Austurstræti. Þessi störf færðu henni mikla lífsfyllingu og fjökla vina. Hún hætti „útistörfum" að fullu fyrir 2 árum. Útför Sesselju verður gerð frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. SESSELJA JÓHANNA GUÐNADÓTTIR Elsku mamma, í dag kveðjum við þig með miklum söknuði. Andlát þitt bar alltof brátt að og við eigum erfitt með að sætta okkur við fráfall þitt. I hjarta okkar er nú mikið tómarúm sem verður ekki fyllt. Sorg okkar er mikil og sorg pabba enn meiri, en við vitum að þú munt ávallt vaka yfir okkur. Það er ekki svo langt síðan við vorum öll saman komin til að sam- fagna stúdentsprófi barnabarnanna hennar mömmu. Reyndar hafði hún þá þegar tekið þá sáru veiki er var hennar hinsta mein, en það var mömmu líkt að vilja vera með barna- börnunum á þessari stundu þó svo hún væri þungt haldjn. Svona var hún elsku mamma. Ávallt hugsaði hún fyrst um aðra en sjálfa sig. Það er okkur minnisstætt hversu mikla áherslu hún lagði á að allir gætu ver- ið með og að enginn væri skilinn út- undan. Þannig beið hún vikum sam- an með að halda upp á sjö- tugsafmælið sitt í vetur þar til öll börn, tengda- og barnabörn gátu verið með. Mamma hafði brennandi áhuga fyrir barnabömunum og lífi þeh-ra. Hún fylgdist náið með öllu því sem þau höfðu áhuga á og hvað var á döf- inni hjá þeim. Ávallt var mamma til staðar og fljót til að hvetja þau til dáða í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur. Lífssýn hennar mömmu byggðist á jöfnuði og jafnrétti. Hún fylgdist vel með þjóðmálum og hafði skýrar skoðanir á þeim. Sérstaklega bar hún hag og rétt kvenna fyrir brjósti og vildi ávallt sjá framgang þeirra sem mestan. Okkur er mjög minnis- stæður kvennafrídagurinn, 24. októ- ber 1975, en hún tók þátt í honum af heilum hug. Líf mömmu og uppeldi okkar mót- aðist af því að hún var sjómanns- kona. Það var í þá daga er sjómenn voru fjarri heimilum sínum nær alla daga ársins og öll fjarskipti mun erf- iðari en nú er. Þá var hún með stórt heimili. Auk okkar barnanna bjuggu hjá okkur amma og langamma. Um hríð bjó hjá okkur bróðir hennar. Þá var jafnan gestkvæmt hjá okkur. Það voru margir ættingjar utan af landi sem nutu þess að gista hjá okk- ur þegar þeir komu í bæinn. Ávallt stóð heimili okkar opið fyrir vinum og ættingjum. Það var og kast á henni mömmu þegar okkur börnunum var skellt upp í gamla Opelinn og ekið í sam- floti sjómannskvenna austur á land, á holóttum malai'vegum, til dvalar að Eiðum. Þetta var á síldarárunum þegar flotinn sótti síld allt austur á Rauðatorg, sem er reyndar nafngift frá pabba okkar komin, og landaði aflanum á Austfjarðahöfnum. I þá daga var talsvert ferðalag frá Reykjavík að Eiðum. Enginn hring- vegur og því varð að fara norðurleið- ina. Mamma tók virkan þátt í félags- starfi sjómannskvenna og var í stjórn kvenfélags Öldunnar til margra ára. Líknar- og mannúðar- mál voru henni mjög kær og tók hún virkan þátt í starfi Kvenfélagsins Hringsins. Eftir að pabbi hætti sjómennsku og útgerð vann mamma í mörg ár sem læknaritari, en kærast var henni starfið á barnadeild Landa- kots. Þar starfaði hún til margra ára. Oft höfum við heyrt frá samstarfs- fólki hennar hversu ósérhlífin og samviskusöm hún var í starfi sínu þar. Til hennar leituðu bæði börnin og samstarfsfólkið á deildinni, ann- aiTa erinda en þeirra er vörðuðu starf hennar. Síðar fór hún til starfa hjá Landsbanka íslands, þar sem hún undi sér vel og lauk starfsævi sinni þar meðal góðra samstarfs- manna. Elsku mamma. Við systkinin þökkum þér innilega fyrir allar þær yndislegu stundir sem þú veittir okkur og börnum okkar. Þær munu ávallt vera í huga okkar. Þú varst alltaf til staðar þegar við þurftum á þér að halda og lagðir þig alla fram til að aðstoða okkur. Það veganesti sem þú bjóst okkur út með fyrir lífið er dýrmætt. Elsku mamma, við vit- um að þú munt ávallt vaka yfir okk- ur. Guð geymi þig. Þín Krístín, Dröfn og Þórir. í dag kveðjum við ástkæra tengdamóður okkar sem fallin er frá, fyrir aldur fram, eftir stutta en hai'ða baráttu við óvígan sjúkdóm. Á kveðjustund er okkur efst í huga innilegt þakklæti í hennar garð. Þakklæti fyrir allt það góða sem hún gerði fyrir okkur, maka okkar og börn okkar. Á hugann leita margvís- legar minningar um ánægjulegar samverustundir heima og heiman. Minningin um kæra tengdamóður mun lifa í hjarta okkar um ókomin ár. Minningin um vandaða og hjarta- hlýja tengdamóður sem ávallt vildi öllum vel og þá sérstaklega þeim sem minna mega sín í samfélaginu. Tengdamóður sem ekkert illt mátti sjá og þoldi hvorki óréttlæti né rang- indi. Missir okkar, maka okkar og barna er mikill. Mestur er þó missir tengdaföður okkar, sem skyndilega má sjá á bak ástkærum lífsförunaut eftir hartnær 50 ára hamingjusamt hjópaband. Á sorgarstundu leita á hugann margvíslegar hugrenningar um lífið, dauðann og tilveruna. Andspænis dauðanum og öðru því sem ekki verður breytt finnum við til smæðar okkar og vanmáttar. En tíminn læknar öll sár, hversu þungbær sem þau eru. Við fráfall ástvinar lifa áfram góðar minningar í huga okkar og hjarta. Svo er því farið með tengdamóður okkar. Með okkur lifa kærar minningarnar um allar góðu stundirnar sem við áttum með henni um áratuga skeið. Svoerþvífarið: Sáereftir lifir deyrþeimerdeyr en hinn látni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeireruhimnamir honum yfir. (Hannes Pét.) Dominique, Kristján og Sigurður. Elsku besta amma, nú ert þú farin frá okkur en minning þín mun ávallt lifa í hjarta okkar. Þótt söknuður okkar sé sár huggum við okkur við að nú líður þér vel eftir erfiða bar- + Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GYÐA ÞORSTEINSDÓTTIR, Smárahvammi 2, Hafnarfirði, (áður Grenigrund 6, Kópavogi), sem lést á Landspítalanum aðfaranótt föstu- dagsins 28. júlí, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju föstudaginn 11. ágúst kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á MND-félagið, hjúkrunarþjónustu Karitas og Minn- ingarsjóð Breiðfirðingafélagsins. Guðmundur Árni Bjarnason, Guðríður Guðbrandsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Unnur Jónsdóttir, Júlíana Ósk Guðmundsdóttir, Ólafur Björn Heimisson, Guðmunda Gyða Guðmundsdóttir, Gylfi Bergmann Heimisson, og barnabörn. áttu við veikindin, sem svo skyndi- lega og óvænt dundu yfir. Þegar við hugsum til þín á þessum erfiðu tímum er okkur efst í huga kærleikur þinn í okkar garð og sú ást og umhyggja sem þú sýndir okk- ur. Hjartahlýja þín og örlæti áttu sér engin takmörk. Fundum við sérstak- lega fyrir því þegar við dvöldum með þér og afa uppi í sumarbústað og einnig þegar við gistum hjá ykkur í Skipholtinu. Þá varst þú svo sannar- lega í essinu þínu, að stjana í kring- um okkur og sjá til þess að okkur liði sem best. Það vafðist aldrei fyrir þér að töfra fram ríkulegar veitingar og sérstaklega eru þá minnisstæðir morgunverðirnir í sumarbústaðnum þar sem hafragrauturinn var fastur liður. Hjálpsemi þín og ósérhlífni var meiri en nokkur orð fá lýst. Ávallt var hægt að leita til þín með allt sem okkur lá á hjarta og hlustaðir þú af athygli á það sem við höfðum fram að færa. Jólin voru sá tími sem þú hélst einna mest uppá. Var það sér- staklega vegna þess að þá átti öll fjölskyldan ánægjulegar stundir saman við kertaljós og kræsingar. Fjölskylduboðin verða nú aldrei söm þar sem þú, elsku amma, verður ekki með okkur. En við vitum að þú munt vaka yfir okkur jafnt á jólum sem á öðrum tímum. Sú minning sem er okkur ferskust í huga er sjötugsafmæli þitt nú í vet- ur. Þá átti öll fjölskyldan saman ógleymanlega kvöldstund þar sem gleði og hlátur réðu ríkjum og ham- ingjan skein úr augum þínum. Á kveðjustund viljum við þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið okk- ur. Ást þín og umhyggja hefur verið okkur ómetanleg. Minning þín, elsku besta amma, lifir í hjarta okkar um ókomna tíð og verður þín sárt sakn- að. Guð geymi þig að eilífu. Þín Sigurgeir, Guðmundur, Sesselja, Magnús og Árni. Okkur, samstarfskonur Sessýjar úr Landsbankanum, setti hljóðar þegar við fréttum að hún væri fár- veik og að það væri lítil sem engin von um bata. Síðast hittum við hana á fallegu heimili þeirra Guðmundar síðastliðinn vetur, en þá héldu þau okkur veglega veislu í tilefni af sjö- tugsafmæli hennar. Þetta var yndis- legur eftirmiðdagur, mikið skrafa<| og hlegið. Sessý var frísk og glöð og lék á als oddi og þau hjónin tóku á móti okkur af mikilli gestrisni og voru samhent í að láta okkur líða vel. Sessý vann í Landsbankanum í rúmlega tíu ár. Hún var einstakur vinnufélagi og vinur, við leituðum til hennar og sóttum til hennar ráð og hún var alltaf tilbúin að taka þátt í sorgum okkar og gleði. Við söknuð- um hennar sárt þegar hún lét af störfum fyrir þremur árum. Elsku Sessý, við þökkum þér inni- lega fyrir samfylgdina. Guðmundi og fjölskyldu sendum við hlýjar samúð- arkveðjur. Farþúífriði, * friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem.) ® Vinkvennahópurinn úr Landsbankanum. + Elskuleg móðir okkar, amma og langamma, KRISTJANA VALDEMARSDÓTTIR, Sólheimum 23, Reykjavík, lést á Landakotsspítalanum að kvöldl sunnu- dagsins 6. ágúst sl. Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju föstu- daginn 11. ágúst kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Krabbameinsfélag Islands njóta þess. Birgir Antonsson, Valborg Antonsdóttir, Óli Antonsson barnabörn og barnabarna- börn. + Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR frá Ásmúla, Furugerði 17, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstu- daginn 11. ágúst kl. 10.30. Jarðsett verður í Kálfholtskirkjugarði. Rut Guðmundsdóttir, Bjarni H. Ansnes, Þórunn Ansnes, Sigurður I. Björnsson, íris Ansnes, Einar Hilmarsson og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, FRIÐJÓNS GUÐMUNDSSONAR, Nesbala 12, Seltjarnarnesi. Heimir Hávarðsson, Þuríður Magnúsdóttir, Haraldur Friðjónsson, Magnús Örn Friðjónsson, Elín Árnadóttir, Guðmundur V. Friðjónsson, Þórlaug Sveinsdóttir, Héðinn Friðjónsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.